Fréttablaðið - 01.05.2014, Blaðsíða 28
1. maí 2014 FIMMTUDAGUR| SKOÐUN | 28
Við sem höfum starfað að
velferðarmálum barna
og ungmenna um langa
hríð höfum ekki farið
varhluta af því hve börn
og ungmenni eiga sér
veika rödd í samfélaginu.
Margt hefur þó áunnist
en það er enn þá langt í
land hvað varðar raun-
veruleg áhrif ungmenna,
bæði í samfélaginu og í
nærumhverfi sínu.
Á níunda áratug síð-
ustu aldar innleiddu
félagsmiðstöðvar hérlendis
starfsaðferðir unglinga-
lýðræðis sem tæki og lið
í valdeflingu ungmenna.
Aðferð sem byggir á lífs-
leikni og er menntandi
í víðasta skilningi þess
orðs. Starfsaðferðir ung-
lingalýðræðis ganga út
á það að efla getu ein-
staklings og eða hópa
til þess að vinna með
öðrum á lýðræðislegum
forsendum og að takast
á við tilveruna í öllum
hennar margbreytileika.
Ungmennin öðlast með virkni í
starfinu aukna félagslega hæfni,
þroska með sér jákvæða sjálfs-
mynd og aðra þá eiginleika sem
fást með þátttöku í þeim fjöl-
mörgum verkefnum og viðfangs-
efnum sem starfsemi félagsmið-
stöðva inniheldur.
Æskulýðslög
Þessi þróun hefur m.a. leitt
til þess að í æskulýðslögu
m (17. mars/2007/11. gr.) er
ákvæði um heimild um stofn-
un ungmennaráða í sveitar-
félögum en þar segir: „Sveitar-
stjórnir hlutast til um að stofnuð
séu ungmennaráð. Hlutverk
ungmennaráða er m.a. að vera
sveitarstjórnum til ráðgjafar um
málefni ungs fólks í viðkomandi
sveitarfélagi. Sveitarstjórnir
setja nánari reglur um hlutverk
og val í ungmennaráð.“ Flest
sveitarfélög hafa nýtt sér þetta
heimildarákvæði en ekki öll. Í
mínum heimabæ, Hafnarfirði,
var ákveðið fyrir margt löngu
að fulltrúi unglinga ætti sæti
í íþrótta- og tómstundanefnd
bæjarins með áheyrnar- og til-
lögurétt á sama hátt og fulltrúi
íþróttahreyfingarinnar.
Ungmennaráð
Starfsemi ungmennaráða hefur
víða um land gengið vel, dæmi
um slíkt er Reykjvíkurráð ung-
menna og ekki síður í Hafnar-
firði, þar var búið að koma á
ungmennaráði löngu áður en
ákvæði um slíkt kom í lög. Ung-
mennaráðið/in í Hafnarfirði
hafa ýmsu áorkað í gegnum
árin. Hinu er þó ekki að leyna
að þegar kemur að stóru málun-
um þá verður oft brestur á, ekki
bara í Hafnarfirðinum heldur
einnig víðar þar sem ungmenna-
ráð starfa.
Það má velta fyrir sér hvers
vegna ungmennaráð eru ekki
höfð með í ráðum í stærri
málum. Minnist í þeim efnum
mikils niðurskurðar til æsku-
lýðsmála, mun meiri niður-
skurðar en í öðrum málaflokk-
um, í Hafnarfirði fyrir nokkrum
árum. Á þeim tímapunkti sýndu
hafnfirsk ungmenni sterka lýð-
ræðisvitund, efndu til fjölmennr-
ar mótmælagöngu og sýndu hug
sinn í verki og höfðu verðskuld-
uð áhrif. Í þessu ljósi má velta
fyrir sér hvers vegna er verið að
tala um unglingalýðræði og til
hvers er fyrirkomulag eins og
Ungmennaráð ef það hefur ekk-
ert um brýn hagsmunamál sín að
segja þegar virkilega á reynir?
Mynd af brosandi stjórnmála-
mönnum og ungmennaráðum er
vissulega hugguleg en hefur ekk-
ert vægi umfram það ef starf-
semi ráðanna fylgja ekki raun-
veruleg völd.
Lækkum kosningaaldur
Gæti verið að ungt fólk, þ.e.a.s.
þau sem ekki eru kjörgeng, eigi
sér í raun enga rödd eða mál-
svara í samfélaginu þegar að
raunverulega blæs á móti? Ég
minnist þess fyrir allmörgum
árum þegar stjórnmálamenn
fóru allt í einu að tala um fram-
haldsskólann, sem var í velflest-
um tilfellum í beinu samhengi
við lækkun kjörgengis í 18 ár.
Getur verið að áherslur stjórn-
málamanna miðist nær ein-
göngu við áhuga virkra atkvæða
sbr. foreldramiðuð skólaum-
ræða?
Ég hef lengi verið talsmaður
þess að lækka kjörgengi í 16 ára
og jafnvel 15 ára aldur og með
því gefa ungmennum raunhæfa
möguleika á því að hafa áhrif
á mótun samfélagsins ekki síst
nærumhverfisins og á þau mál
sem á þeim brennur. Unglinga-
lýðræði í núverandi mynd virkar
ekki sem skyldi þegar á móti
blæs. Því tel ég einu raunhæfu
leiðina að lækka kjörgengi og
því fyrr því betra. Veit sem
er að við slíkt myndu málefni
unglinga ekki verða sú afgangs-
stærð í þjóðfélaginu sem því
miður oft vill verða. Það hefur
ekkert samfélag efni á slíku
fálæti og allra síst á tímum eins
og þeim sem við lifum á.
Veitum ungmennum áhrif – lækkum kosningaaldur
➜ Starfsaðferðir unglinga-
lýðræðis ganga út á það að
efl a getu einstaklings og eða
hópa til þess að vinna með
öðrum á lýðræðislegum
forsendum og að takast á
við tilveruna í öllum hennar
margbreytileika.
SAMFÉLAG
Árni
Guðmundsson
M.Ed. félagsupp-
eldisfræðingur
GEFÐU
HÆNU
gjofsemgefur.is
9O7 2OO3
Stöndum vaktina allan sólarhringinn
Sími 570 2400 · oryggi.is
Öryggismiðstöðin sýnir einstakt listaverkasafn sitt í tilefni af List án landamæra
List án landamæra er árleg listahátíð með áherslu á fjölbreytileika mannlífsins. Við hjá Öryggismiðstöðinni
höfum fylgst náið með hátíðinni og séð hana vaxa og dafna. Áhugi okkar og aðdáun hefur orðið til þess
að við höfum síðustu ár keypt verk eftir listamenn hátíðarinnar. Nú opnum við dyrnar og leyfum öllum að
njóta þeirrar einstöku listar.
Sýningin verður opnuð föstudaginn 2. maí kl. 17
í Öryggismiðstöðinni, Askalind 1, Kópavogi – gengið inn að ofanverðu.
Sýningin er opin helgarnar 3.–4. og 10.–11. maí frá kl. 12 til 15.
Öryggismiðstöðin er stoltur styrktaraðili Listar án landamæra 2014.
LISTIN Á
SÉR ENGIN
LANDAMÆRI
Eftirfarandi listafólk á verk á sýningunni:
Atli Viðar Engilbertsson, Einar Baldursson (unnið á Sólheimum), Hugrún Dögg Þorfinnsdóttir (unnið á Bjarkarási), GÍA, Guðrún Bergsdóttir, Ína, Ingi Hrafn
Stefánsson, Ísak Óli Sævarsson, Jón Grétar Höskuldsson (unnið á Bjarkarási), Sigrún Huld Hrafnsdóttir og Snorri Ásgeirsson. Á sýningunni verða einnig
samstarfsverk Guðrúnar Bergsdóttur og Eggerts Péturssonar, Sigrúnar Huldar Hrafnsdóttur og Söru Riel og Ísaks Óla Sævarssonar og Hugleiks Dagssonar.
Þá mun listakonan Unnur Mjöll S. Leifsdóttir sýna nýtt verk sem hún vinnur sérstaklega fyrir sýninguna með frænda sínum Degi Steini.
PI
PA
R
\T
BW
A
•
SÍ
A
•
14
07
60