Fréttablaðið


Fréttablaðið - 01.05.2014, Qupperneq 28

Fréttablaðið - 01.05.2014, Qupperneq 28
1. maí 2014 FIMMTUDAGUR| SKOÐUN | 28 Við sem höfum starfað að velferðarmálum barna og ungmenna um langa hríð höfum ekki farið varhluta af því hve börn og ungmenni eiga sér veika rödd í samfélaginu. Margt hefur þó áunnist en það er enn þá langt í land hvað varðar raun- veruleg áhrif ungmenna, bæði í samfélaginu og í nærumhverfi sínu. Á níunda áratug síð- ustu aldar innleiddu félagsmiðstöðvar hérlendis starfsaðferðir unglinga- lýðræðis sem tæki og lið í valdeflingu ungmenna. Aðferð sem byggir á lífs- leikni og er menntandi í víðasta skilningi þess orðs. Starfsaðferðir ung- lingalýðræðis ganga út á það að efla getu ein- staklings og eða hópa til þess að vinna með öðrum á lýðræðislegum forsendum og að takast á við tilveruna í öllum hennar margbreytileika. Ungmennin öðlast með virkni í starfinu aukna félagslega hæfni, þroska með sér jákvæða sjálfs- mynd og aðra þá eiginleika sem fást með þátttöku í þeim fjöl- mörgum verkefnum og viðfangs- efnum sem starfsemi félagsmið- stöðva inniheldur. Æskulýðslög Þessi þróun hefur m.a. leitt til þess að í æskulýðslögu m (17. mars/2007/11. gr.) er ákvæði um heimild um stofn- un ungmennaráða í sveitar- félögum en þar segir: „Sveitar- stjórnir hlutast til um að stofnuð séu ungmennaráð. Hlutverk ungmennaráða er m.a. að vera sveitarstjórnum til ráðgjafar um málefni ungs fólks í viðkomandi sveitarfélagi. Sveitarstjórnir setja nánari reglur um hlutverk og val í ungmennaráð.“ Flest sveitarfélög hafa nýtt sér þetta heimildarákvæði en ekki öll. Í mínum heimabæ, Hafnarfirði, var ákveðið fyrir margt löngu að fulltrúi unglinga ætti sæti í íþrótta- og tómstundanefnd bæjarins með áheyrnar- og til- lögurétt á sama hátt og fulltrúi íþróttahreyfingarinnar. Ungmennaráð Starfsemi ungmennaráða hefur víða um land gengið vel, dæmi um slíkt er Reykjvíkurráð ung- menna og ekki síður í Hafnar- firði, þar var búið að koma á ungmennaráði löngu áður en ákvæði um slíkt kom í lög. Ung- mennaráðið/in í Hafnarfirði hafa ýmsu áorkað í gegnum árin. Hinu er þó ekki að leyna að þegar kemur að stóru málun- um þá verður oft brestur á, ekki bara í Hafnarfirðinum heldur einnig víðar þar sem ungmenna- ráð starfa. Það má velta fyrir sér hvers vegna ungmennaráð eru ekki höfð með í ráðum í stærri málum. Minnist í þeim efnum mikils niðurskurðar til æsku- lýðsmála, mun meiri niður- skurðar en í öðrum málaflokk- um, í Hafnarfirði fyrir nokkrum árum. Á þeim tímapunkti sýndu hafnfirsk ungmenni sterka lýð- ræðisvitund, efndu til fjölmennr- ar mótmælagöngu og sýndu hug sinn í verki og höfðu verðskuld- uð áhrif. Í þessu ljósi má velta fyrir sér hvers vegna er verið að tala um unglingalýðræði og til hvers er fyrirkomulag eins og Ungmennaráð ef það hefur ekk- ert um brýn hagsmunamál sín að segja þegar virkilega á reynir? Mynd af brosandi stjórnmála- mönnum og ungmennaráðum er vissulega hugguleg en hefur ekk- ert vægi umfram það ef starf- semi ráðanna fylgja ekki raun- veruleg völd. Lækkum kosningaaldur Gæti verið að ungt fólk, þ.e.a.s. þau sem ekki eru kjörgeng, eigi sér í raun enga rödd eða mál- svara í samfélaginu þegar að raunverulega blæs á móti? Ég minnist þess fyrir allmörgum árum þegar stjórnmálamenn fóru allt í einu að tala um fram- haldsskólann, sem var í velflest- um tilfellum í beinu samhengi við lækkun kjörgengis í 18 ár. Getur verið að áherslur stjórn- málamanna miðist nær ein- göngu við áhuga virkra atkvæða sbr. foreldramiðuð skólaum- ræða? Ég hef lengi verið talsmaður þess að lækka kjörgengi í 16 ára og jafnvel 15 ára aldur og með því gefa ungmennum raunhæfa möguleika á því að hafa áhrif á mótun samfélagsins ekki síst nærumhverfisins og á þau mál sem á þeim brennur. Unglinga- lýðræði í núverandi mynd virkar ekki sem skyldi þegar á móti blæs. Því tel ég einu raunhæfu leiðina að lækka kjörgengi og því fyrr því betra. Veit sem er að við slíkt myndu málefni unglinga ekki verða sú afgangs- stærð í þjóðfélaginu sem því miður oft vill verða. Það hefur ekkert samfélag efni á slíku fálæti og allra síst á tímum eins og þeim sem við lifum á. Veitum ungmennum áhrif – lækkum kosningaaldur ➜ Starfsaðferðir unglinga- lýðræðis ganga út á það að efl a getu einstaklings og eða hópa til þess að vinna með öðrum á lýðræðislegum forsendum og að takast á við tilveruna í öllum hennar margbreytileika. SAMFÉLAG Árni Guðmundsson M.Ed. félagsupp- eldisfræðingur GEFÐU HÆNU gjofsemgefur.is 9O7 2OO3 Stöndum vaktina allan sólarhringinn Sími 570 2400 · oryggi.is Öryggismiðstöðin sýnir einstakt listaverkasafn sitt í tilefni af List án landamæra List án landamæra er árleg listahátíð með áherslu á fjölbreytileika mannlífsins. Við hjá Öryggismiðstöðinni höfum fylgst náið með hátíðinni og séð hana vaxa og dafna. Áhugi okkar og aðdáun hefur orðið til þess að við höfum síðustu ár keypt verk eftir listamenn hátíðarinnar. Nú opnum við dyrnar og leyfum öllum að njóta þeirrar einstöku listar. Sýningin verður opnuð föstudaginn 2. maí kl. 17 í Öryggismiðstöðinni, Askalind 1, Kópavogi – gengið inn að ofanverðu. Sýningin er opin helgarnar 3.–4. og 10.–11. maí frá kl. 12 til 15. Öryggismiðstöðin er stoltur styrktaraðili Listar án landamæra 2014. LISTIN Á SÉR ENGIN LANDAMÆRI Eftirfarandi listafólk á verk á sýningunni: Atli Viðar Engilbertsson, Einar Baldursson (unnið á Sólheimum), Hugrún Dögg Þorfinnsdóttir (unnið á Bjarkarási), GÍA, Guðrún Bergsdóttir, Ína, Ingi Hrafn Stefánsson, Ísak Óli Sævarsson, Jón Grétar Höskuldsson (unnið á Bjarkarási), Sigrún Huld Hrafnsdóttir og Snorri Ásgeirsson. Á sýningunni verða einnig samstarfsverk Guðrúnar Bergsdóttur og Eggerts Péturssonar, Sigrúnar Huldar Hrafnsdóttur og Söru Riel og Ísaks Óla Sævarssonar og Hugleiks Dagssonar. Þá mun listakonan Unnur Mjöll S. Leifsdóttir sýna nýtt verk sem hún vinnur sérstaklega fyrir sýninguna með frænda sínum Degi Steini. PI PA R \T BW A • SÍ A • 14 07 60
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.