Fréttablaðið - 01.05.2014, Blaðsíða 48
1. maí 2014 FIMMTUDAGUR| MENNING | 40
Við gerum ráð fyrir
að umbylta kerfinu fyrir
klukkan ellefu.
„Þetta er ljóðakvöld til þess að
fella kapítalismann, við gerum
ráð fyrir því að umbylta kerfinu
fyrir klukkan ellefu,“ segir Stefán
Ingvar Vigfússon, en hann býður
til Verkaljóðskvölds í Tjarnar-
bíói í kvöld klukkan 20.00. Kvöld-
ið er á vegum Fríyrkjunnar, hóps
ungskálda sem hafa verið dugleg
að halda ljóðakvöld undanfarna
mánuði. „Það er frekar breytilegt
hverjir lesa,“ segir Stefán Ingvar
en Fríyrkjan samanstendur af
um það bil tuttugu ungum skáld-
um. „Það fer bara eftir því hverjir
mæta.“ Hópurinn var stofnaður í
fyrra af Sólveigu Matthildi Krist-
jánsdóttur en ungskáldin gáfu í
kjölfarið út sína fyrstu ljóðabók.
„Síðan þá erum við búin að vera
lesa upp ljóðin hér og þar,“ segir
Stefán Ingvar um ljóðakvöldin svo-
nefndu. „Þau hafa líka verið mjög
vel sótt. Á fyrsta ljóðakvöldinu
var troðið út að dyrum og síðan
þá hafa þetta verið á bilinu þrjá-
tíu til hundrað manns að hlýða á,“
segir Stefán Ingvar sem býst við
metmætingu á Verkaljóðskvöldið,
sem er einmitt svo listilega hald-
ið á verkalýðsdaginn sjálfan. „Ég
býst nú bara við að húsið hrynji.“
Halda upp á Verka
Fríyrkjan er hópur ungskálda sem komu saman í fyrra og gáfu út ljóðabók. Í
kvöld heldur hópurinn ljóðakvöld í Tjarnarbíó til þess að umbylta kerfi nu.
UPPRENNANDI UNGSKÁLD Stefán
Ingvar Vigfússon tilheyrir Fríyrkjunni.
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
FIMMTUDAGUR
1. MAÍ 2014
Gjörningar
14.00 Ruslaurant opnar á Járnbraut 1, Granda. Markmiðið
er að vekja athygli á öllum þeim góða mat sem fer til spillis
daglega og bjóða gestum og gangandi uppá veitingar. Frír
matur fyrir alla á meðan birgðir endast. Í ferlinu frá framleið-
anda til neytenda er árlega 1/3 af öllum mat hent. Á meðan
svelta milljónir manna. Peningurinn, vatnið og landið sem fer
í þessi sóuðu matvæli má vafalaust verja betur.
Tónleikar
12.00 Var Schubert slúbbert? Fjölskyldutónleikar Kammer-
sveitar Reykjavíkur á Barnamenningarhátíð í Ævintýrahöllinni
í Iðnó. Félagar úr Kammersveit Reykjavíkur flytja gáskafulla,
töfrandi og tilfinningaþrungna þætti úr Oktett eftir Franz
Schubert fyrir forvitna tónleikagesti á öllum aldri. Aðgangur
er ókeypis.
15.00 Sumargleðskapur BORG í Lucky Records. Tónlistar-
mennirnir sem koma fram eru Viktor Birgiss, plötusnúðar
BORG og Housekell. Allir velkomnir og lofað góðu stuði.
20.00 Daníel Hjálmtýsson leikur ábreiður af lögum eftir
marga af hans uppáhaldstónlistarmönnum. Má þar nefna
listamenn á borð við Townes Van Zandt, Bob Dylan, Neil
Young, Nick Cave og Mark Lanegan. Tónleikar Daníels eru
partur af svokallaðari Daniel Acoustic Introspection seríu
sem hófst snemma árs 2013 og hefur hlotið mikið lof.
Tónleikarnir eru á Hlemmur Square og eru opnir öllum.
20.00 Kvennakór Hafnarfjarðar heldur vortónleika undir yfir-
skriftinni Vorið kallar. Stjórnandi Kvennakórs Hafnarfjarðar
er Erna Guðmundsdóttir, píanóleikur er í höndum Antoníu
Hevesi og flautuleikari er Kristrún Helga Björnsdóttir. Tón-
leikarnir verða í Hásölum við Strandgötu og miðaverð á
tónleikana er 2.500 krónur. Gestum boðið að þiggja kaffi og
konfekt í tónleikahléi.
20.00 Vortónleikar karlakórsins Fóstbræðra í Langholtskirkju.
Á efnisskrá verða m.a. sænsk og ensk þjóðlög, verk eftir
Högna Egilsson og útsetningar eftir Davíð Þór Jónsson. Þá
er úrval eldra efnis ásamt kórum úr Carmen. Einsöng flytur
Hanna Dóra Sturludóttir. Á píanó spilar Steinunn Birna Ragn-
arsdóttir og stjórnandi er Árni Harðarson. Miðaverð er 3.000
krónur og miða er hægt að nálgast á miði.is
20.00 Vortónleikar Karlakórs Kópavogs í Salnum í Kópavogi.
Kórinn er nú á sínu 12. starfsári og telur nú yfir 60 söng-
menn. Garðar Cortes hefur stjórnað kórnum frá 2011. Á
efnisskrá vortónleikanna verða flutt hefðbundin karlakórslög
í bland við önnur óhefðbundin lög útsett fyrir karlakóra.
Kórinn leitast við að túlka hljóma úr angurværum róman-
tískum ljóðum upp í tóna úr harmþrungnum hetju- og ætt-
jarðaróðum. Frá hvísli þagnarinnar upp í tónstyrk sem aldrei
væri morgundagurinn. Miðaverð er 3.000 krónur og miða er
hægt að nálgast á miði.is
21.00 Hallur Ingólfsson flytur sólóplötuna sína Öræfi í
Hljómahöllinni í Reykjanesbæ. Plötuna gaf Hallur út í sept-
ember síðastliðnum og inniheldur platan níu ósungin lög
sem eru í senn dramatísk og hlaðin grimmri fegurð. Öræfi
komst í úrtak af útgáfum ársins sem tilnefndar voru til Nor-
rænu tónlistarverðlaunanna og sást víða á árslistum ýmissa
tónlistarspekúlanta yfir bestu plötur ársins. Miðaverð eru
1.500 krónur og hægt er að nálgast miða á miði.is
21.00 Hljómsveitin Four Leaves Left heldur tónleika á Vín-
smakkaranum og er aðgangur ókeypis.
21.00 Raftónlistarmenn koma fram á Harlem Bar, Tryggva-
götu 22. Flestir tónlistarmennirnir eru danskir og munu koma
fram einir og í hóp. Meðal tónlistarmanna sem koma fram
eru Jonas G, OEDELAND, Lord Pusswhip, Holoduke, Kjært
Barn, SnabelKael, Coup de Ras, WAIC, Cæcilie Overgaard,
Matthiam, Qasmus og Totenslager. Aðgangur er ókeypis.
Listamannaspjall
15.00 Ingibjörg Sigurjónsdóttir og Anna Hrund Másdóttir,
sýningarstjórar útskriftarsýningar BA nema í hönnun,
arkitektúr og myndlist VERÐA með sýningarstjóraspjall í
Listasafni Reykjavikur, Hafnarhúsi. Aðgangur er ókeypis og
allir eru velkomnir.
16.00 Bak við tjöldin - Kogga ræðir um verk Magnúsar
Kjartanssonar í Listasafni Íslands við Fríkirkjuveg. Hér gefst
einstakt tækifæri til að fá innsýn í heim listamannsins í
tengslum við sýninguna Form, litur, líkami: háspenna/lífs-
hætta, Magnús Kjartansson sem nú stendur yfir í sölum
safnsins. Í framhaldi af leiðsögn Kolbrúnar Björgúlfsdóttur
tekur við kynning á myndbandsverki mánaðarins eftir finnsku
listakonuna Nina Lassila, „PULL YOURSELF TOGETHER“.
Listakonan verður viðstödd sýninguna og mun kynna verkið.
Dans
16.30 Nemendasýning Listdansskóla Hafnarfjarðar verður
sýnd á Stóra sviðinu í Borgarleikhúsinu. Miðaverð er 2.500
krónur og hægt er að nálgast miða á miði.is.
Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@frettabladid.is og einnig
er hægt að skrá þá inni á visir.is.
Hljómsveitin Amiina ætti ekki að vera ókunnug nein-
um Íslendingi en sveitin hefur gert garðinn fræg-
an erlendis jafnt sem hérlendis. „Það vill bara svo
skemmtilega til að við héldum tónleika nýverið í Ist-
anbúl sem voru fyrstu tónleikarnir okkar í svolítinn
tíma,“ segir Magnús Trygvason Eliassen, trymbill
sveitarinnar, um hvers vegna þau ákváðu að blása til
tónleika í Reykjavík. „Það var bara einhver orka í loft-
inu á tónleikunum úti og við hugsuðum bara af hverju
ekki að nýta þessa æfingatörn sem við tókum fyrir
þá tónleika í aðra tónleika á Íslandi,“ segir Magnús.
Ýmislegt verður að finna á efnisskrá tónleikana. „Við
munum spila allt milli himins og jarðar,“ segir Magn-
ús. „Nýtt efni í bland við gamalt, það verða allavega
tvö lög sem við höfum spilað áður en aldrei gefið út.
Síðan verða nýjar útgáfur af eldgömlum lögum og
bara alls konar.“
Tónleikarnir fara fram í Mengi á Óðinsgötu og hefjast
klukkan 21.00. Aðgangseyrir er 2.000 krónur.
Orka í loft inu í Istanbúl
Amiina blæs til tónleika í kvöld í Mengi á Óðinsgötu þar sem hljómsveitin mun
spila nýtt efni í bland við gamalt ásamt nýjum útgáfum af eldgömlum lögum.
SKEMMTILEG HLJÓMSVEIT Amiina ætti ekki að vera ókunn
neinum Íslendingi. MYND/AÐSEND
„Skoðun þess sem hér heldur um
penna er sú að það ætti að skylda
alla landsmenn til að sjá þessa
mjög svo góðu sýningu; svo brýnt
erindi á hún við íslenskan sam-
tíma.“
Jakob Bjarnar Grétarsson
Eldraunin
Þjóðleikhúsið - Stóra svið
★★★★★
Gróttuviti verður vafinn vinat-
refli í dag sem starfsfólk bæj-
arins og eldri borgarar hafa
prjónað. Hönnuðirnir Olga
Hrafnsdóttir og Elísabet Jóns-
dóttir sýna í vitavarðarhúsinu en
þær sækja innblástur til Gróttu-
vita. Börn geta rannsakað sjávar-
lífverur með stækkunarglerjum
í fræðasetrinu þar sem ljúfir
harmóníkutónar óma og hægt er
að kaupa vöfflukaffi. Í Alberts-
búð syngur KK í hálftíma frá
13.15 og að því loknu hefst þar
gerð flugdreka.
Allt þetta og fleira til er á dag-
skrá fjölskyldudagsins í Gróttu
sem stendur frá 13 til 15.
Opið er út í eyjuna frá kl. 11.30
til 16 og Björgunarsveitin Ársæll
sér um að ferja fólk sem ekki á
auðvelt með ganga. Stutt helgi-
stund verður í Albertsbúð klukk-
an 12.30.
Þetta er síðasta tækifæri til
að fara út í Gróttu áður en lokað
verður fyrir umferð þangað vegna
fuglavarps til 15. júlí.
Gróttudagurinn í dag
Sumarkomunni á Seltjarnarnesi er fagnað með
fj örugum fj ölskyldudegi í Gróttu í dag.
Í GRÓTTU Hátíðin höfðar til allra
aldurs hópa. MYND/ÚR EINKASAFNI