Fréttablaðið - 01.05.2014, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 01.05.2014, Blaðsíða 12
1. maí 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTASKÝRING | 12 SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR REYKJAVÍK Vekjum upp líkamsvitundina og uppskerum betri líkamsstöðu, aukinn styrk og betra jafnvægi til að takast á við daglegt amstur. Hefst 6. maí Þri. og fim. kl. 12:00-13:00 Kennari: Gyða Dís Verð kr. 13.900.- Jóga 2, 7% 3, 7% 5 ,2 % vi km ör k 1, 6% 1, 1% 0, 2% 0, 3% 34 ,7 % 29 ,3 % 21 ,6 % 3, 0% Elsa Yeoman 2 Ilmur Kristjánsdóttir Eva Einarsdóttir 3 4 Björn Blöndal 1 33 ,6 % 23 ,1 % 27 ,0 % 3, 2% Júlíus V. Ingvarsson 2 Kjartan Magnússon Áslaug M. Friðriksdóttir Hildur Sverrisdóttir 3 4 5 Halldór Halldórsson 1 9, 6% 10 ,5 % 2, 2% Þórgnýr Thoroddsen 2 Halldór A. Svansson 1 7, 2% 9, 5% 8, 7% 2, 1% Sólveig Tómasdóttir 1 19 ,1 % 23 ,0 % 2 6, 6% 3, 2% Björk Vilhelmsdóttir 2 Hjálmar Sveinsson Kristín S. Jónsdóttir 3 4 Dagur B. Eggertsson 1 Skúli Helgason 5 Kosningar 29.5.2010 Könnun 12.3.2014 Könnun 29.4.2014 Næstur inn Næstur inn FYLGI FLOKKA Í REYKJAVÍK Borgarstjórnarmeirihluti Besta flokksins og Samfylkingar heldur velli, samkvæmt nýrri skoðana- könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Í síðustu kosningum fengu þessir flokkar, eða fyrirrennarar þeirra, níu fulltrúa af fimmtán. Besti flokk- urinn vann þá stórsigur og fékk sex borgarfulltrúa kjörna. Fylgi Bjartrar framtíðar mælist nú 21,6% og dygði það til að ná inn fjórum mönnum í borgarstjórn. Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig fylgi, fengi 27% atkvæða og fimm menn í bæjarstjórn. Í humátt á eftir honum kemur Samfylkingin með 26,6% atkvæða og fjóra menn. Píratar mælast með 10,5% fylgi og einn mann inni. Vinstri græn eru með 8,7% og einn mann inni. Framsóknarflokkurinn mælist með 5,2% en nær ekki manni inn í borgarstjórn samkvæmt könnun- inni. Dögun mælist vart, er með 0,2% fylgi samkvæmt þessu. Ef þetta verða úrslit kosninga í vor er samstarf Bjartrar framtíðar og Samfylkingar líklegasti kostur- inn. Jón Gnarr, fráfarandi borgar- stjóri, hefur látið hafa það eftir sér að hann vilji sjá Dag B. Eggertsson, oddvita Samfylkingar, sem næsta borgarstjóra. Einnig hafa skoðana- kannanir sýnt að meirihluta borgar- búa vilji helst sjá Dag í borgarstjór- astólnum eftir kosningar. Fjármál borgarinnar Ársreikningur Reykjavíkurborgar var kynntur á síðasta borgarstjórn- arfundi þann 29. apríl. Þar kom fram að skuldir A-hluta borgarsjóðs hafa hækkað og eru skuldir A-hlutans 62,2 milljarðar króna. Þegar á heild- ina er litið er rekstrarafkoma borg- arsjóðs jákvæð á árinu 2013 um 8,8 milljarða. Skiptar skoðanir voru milli meiri- og minnihluta um stöðu fjármála í borginni. Halldór Hall- dórsson segir að skuldir borgarinnar hafi aukist um 30% á kjörtímabilinu. Dagur B. Eggertsson telur mikinn árangur hafa náðst á kjörtímabilinu og segir að 35 milljarða skuldalækk- un á kjörtímabilinu sé met. Orkuveita Reykjavíkur Málefni Orkuveitu Reykjavíkur voru fyrirferðarmikil í upphafi kjörtímabilsins. Nýr forstjóri, Bjarni Bjarnason, byrjaði 1. mars 2011 og á þeim tíma var ráðist í endurskipulagningu á fjármálum fyrirtækisins. Áætlunin, „Plan- ið“, sem sett var á legg á þeim tíma miðaði að því koma böndum á reksturinn. Fjárhagserfiðleik- arnir voru á þeim tíma taldir afar miklir og ljóst að taka þyrfti til í rekstrinum. Planið hefur gengið eftir í öllum atriðum og gott betur en það, og getur fyrirtækið stað- ið við allar sínar skuldbindingar í dag. Björn Blöndal, oddviti Bjartr- ar framtíðar, telur árangurinn í rekstri Orkuveitunnar sýna að vel sé haldið á spöðunum í fjármálum borgarinnar. Í dag stendur Orkuveitan vel og hefur greitt niður skuldir sam- kvæmt áætlun. Sala eigna gengur einnig vel. Því er líklegt að mál- efni Orkuveitunnar verði dregin upp í komandi kosningabaráttu af hálfu meirihlutans til að sýna þann árangur sem náðst hefur. Stóru málin Halldór Halldórsson, borgarstjóra- efni Sjálfstæðisflokksins, vill leggja áherslu á skólamál, húsnæðismál og álögur borgarbúa. „Við viljum setja nemandann í fyrsta sæti og breyta skólakerfinu. Við ætlum að leysa biðlistavanda- mál barnafjölskyldna eftir plássi á leikskóla með þjónustutryggingu, leggja okkar af mörkum til að lækka kaupverð íbúða og þar með leigu með auknu lóðaframboði og með breytingu á gjaldskrám. Einnig vilj- um við lækka álögur á borgarbúa.“ Um málefni flugvallar í Vatns- mýri segir Halldór að Sjálfstæð- isflokkurinn hafni flutningi flug- vallar til Keflavíkur. Flugvöllur í Vatnsmýri verði þar um fyrirsjáan- lega framtíð. Gjaldfrjálsir leikskólar Sóley Tómasdóttir, oddviti VG, telur að samskiptin við meirihlutann hafi verið með ágætum. Hún leggur áherslu á að bæta kjör þeirra sem lakast standa fjárhagslega í borg- inni. „Samskiptin hafa gengið ágæt- lega, meirihlutinn hefur gert margt gott en líka hluti sem ég hefði síður viljað að þau hefðu gert. Stóru málin munu snúast um næsta kjörtímabil, að tryggja jöfnuð og sporna gegn fátækt,“ segir Sóley. „Gjaldfrjálsir leikskólar, skóla- máltíðir og frístundaheimili fyrir börn eru forgangsmál. Með þessu tryggjum við jafnt aðgengi barna að menntun og frístundum óháð efna- hag foreldra.“ Þorleifur Gunnlaugsson, efsti maður á lista Dögunar, leggur, líkt og Sóley, áherslu á húsnæðismál. „Húsnæðismál eru efst á baugi að mínu mati, þar leggjum við ákveðn- ar tillögur fram um félagsbústaði. Boðum uppbyggingu á félagslegu húsnæði. Byggja þarf upp leigumarkað þar sem félagsbústaðir eru stór aðili á markaði. Einnig leggjum við áherslu á að húsaleigubætur verði hækkaðar um allt að 40 prósent,“ segir Þorleifur. „Við leggjum áherslu á að leik- skólinn verði gjaldfrjáls í skrefum og að við tekjutengjum gjaldskrár þannig að byrðum sé skipt eftir fjár- hagslegri stöðu fólks.“ Þorleifur vill halda flugvellinum í Vatnsmýri. „Flugvöllur á að vera áfram í Vatnsmýri, hann er sam- göngumiðstöð fyrir allt landið og tenging landsbyggðar við höfuð- borgina.“ Íbúar ósammála borgarstjórn Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir er nýr oddviti Framsóknarflokks- ins. „Flugvallarmálið er stórt kosninga- mál sem og húsnæðisöryggi fyrir íbúa Reykjavíkur. Einnig munum við leggja áherslu á menntamál og fjölskyldumál í komandi kosninga- baráttu,“ segir Sveinbjörg. „Við verðum að geta tryggt búsetuúrræði fyrir alla í Reykjavík, með öflugum leigumarkaði og fjöl- breyttu búsetuformi.“ Sveinbjörg telur erfiðleika við að ná saman lista ekki munu hafa áhrif á flokkinn í kosningabarátt- unni. „Þetta hefur verið erfið fæð- ing en ég held að þetta muni ekki hafa áhrif á okkur.“ Halldór Auðar Svansson er kaft- einn Pírata. Píratar vilja auka lýð- ræðið og leyfa íbúum að koma að ákvarðanatöku beint. „Stóru málin fyrir okkur pírata eru umbætur á stjórnsýslu og aukið lýðræði, það er kall tímans á öllum stjórnsýslustigum og þess vegna setjum við það í forgang.“ „Flugvöllurinn verður ekki í sjálfu sér kosningamál,“ segir Halldór. „Ég held hins vegar að það sé bráðnauðsynlegt að lyfta umræðunni á hærra plan og hafa umræðuna um flugvöllinn opna og með vitrænum hætti. Það er ekki heilbrigt ástand að mínu mati að stór meirihluti borgarbúa sé ósam- stíga borgarstjórn í þessu máli. Á því þarf að finna einhvern flöt.“ Pólitískur stöðugleiki S. Björn Blöndal, oddviti Bjartr- ar framtíðar, vill leggja áherslu á hreinskiptin samskipti í borginni, sem snúa að öllum þáttum borgar- innar. „Stóra málið verður líklega fjár- mál borgarinnar. Við höfum reynt að ástunda ábyrga fjármálastjór- nun bæði í borginni og í Orkuveitu Reykjavíkur. Síðasti ársreikning- ur sýnir góðan árangur í fjármála- stjórn borgarinnar og við erum stolt af þeim árangri. Við viljum einnig tala fyrir bættu borgarumhverfi og bættum samgöngumálum innan borgarinnar. Þau mál eru okkur hugleikin og eru í senn fjárhags- legt og lýðheilsulegt hagsmunamál borgarbúa.“ Einnig telur S. Björn að sá árang- ur sem unnist hafi sé einkum þeim pólitíska stöðugleika að þakka sem þeir komu á. „Ábyrgðin felst í að sýna fram á stöðugleika í borgar- stjórn. Við teljum okkur hafa komið með stöðugleika inn í borgarstjórn.“ Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingar, telur húsnæðismál og málefni fjölskyldna í borginni verða ofan á í kosningunum í lok maí. „Fjölgun leiguíbúða og heilbrigð- ari húsnæðismarkaður verður í brennidepli að mínu mati. Við erum með yfirgripsmikla aðgerðaráætl- un um fjölgun leigu- og búseturétt- aríbúða um 2.500 til 3.000 á næstu þremur til fimm árum,“ segir Dagur. „Einnig viljum við að áfram verði friður og stöðugleiki við stjórn borgarinnar. Sá stöðugleiki sem hefur myndast síðustu fjögur ár undir okkar stjórn kemur öllum til góða. Samstarfið hefur gengið mjög vel,“ segir Dagur, sem legg- ur einnig mikla áherslu á skóla- og velferðarmál. Sjálfstæðisflokkurinn stærstur Meirihlutinn í borgarstjórn heldur velli samkvæmt könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Fylgi Bjartrar framtíðar minnkar. Fram- sókn og Dögun ná ekki manni inn í borgarstjórn. Húsnæðismálin verða í forgrunni ef marka má orð oddvita framboðanna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.