Fréttablaðið - 10.05.2014, Blaðsíða 2
10. maí 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 2FRÉTTIR 2➜10
SKOÐUN 12➜17
HELGIN 18➜44
SPORT 66
MENNING 54➜59
Pollapönk Landsmönnum
létti stórlega þegar Pollapönk
komst í úrslit í Júróvision.
Drengirnir stóðu sig eins og
hetjur og var vel fagnað eft ir
að þeir fl uttu lag sitt Enga
fordóma í undanúrslitakeppninni í Kaup-
mannahöfn.
Lísa Ólafsdóttir selur dýr-
asta ilmvatn sem hægt er að
kaupa hér á landi í verslun
sinni. 50 millilítrar af ilminum
kosta 128 þúsund krónur.
Formaður íslenskra
atvinnufl ugmanna, H afsteinn
Pálsson, stóð í ströngu við að
verja það að fl ugmenn Ice-
landair, sem eru með talsvert
hærri laun en fl estir aðrir í
þjóðfélaginu, væru að fara í verkfall.
Sigríður Gunnarsdóttir,
framkvæmdastjóri hjúkrunar
á Landspítala segir þrengslin
á sjúkrahúsinu óviðunandi.
Hún segir það alvarlegasta
við þrengslin vera að sjúk-
lingar smiti hver annan.
FIMM Í FRÉTTUM KJARABARÁTTA OG EVRÓVISJÓN
➜ Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra bar af sér allar sakir þegar hún svaraði
fyrirspurnum á Alþingi um stóra lekamálið. Hún sagðist aldrei hafa sagt Alþingi ósatt í málinu.
Annars kvaðst hún lítið geta tjáð sig um lekamálið á meðan lögreglurannsókn á því stendur yfi r.
SEGLAGERÐIN ÆGIR
Þar sem ferðalagið byrjar
FERÐAVAGNAR
Frábært
verð!
HEILRÆÐI 12
Þorsteinn Pálsson um efnahagsmál.
AF HVERJU? 17
Einar Benediktsson um utanríkismál.
KOMA TOLLAR Á LANDBÚNAÐAR-
VÖRUR NEYTENDUM EKKI VIÐ? 16
Jóhannes Gunnarsson um neytendamál.
SUMARDRYKKUR 18
Uppskrift að dásamlegum piparmyntu- og súkkulaðidrykk.
SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR 2014 28
Fréttablaðið skoðar stöðuna í Reykjanesbæ þar sem
eru sex framboð, þar af þrjú ný.
MYRT Á AFMÆLISDEGI
SONAR SÍNS 32
Íslenskir ástríðuglæpir taka fyrir skelfi legt morðmál frá árinu
1988.
FROZEN FÆR FJÓRAR STJÖRNUR 38
Magnea Sindradóttir er kvikmyndarýnir vikunnar á krakka-
síðunni.
STÓRKOSTLEGUR SÖNGVARI 54
Jónas Sen heillaðist á Sinfóníutónleikum.
ÚTRÁS TIL
MIÐ-AUSTURLANDA 54
Íslenskar bækur þýddar í stríðum straumi
á arabísku.
LOSNA ALDREI VIÐ
EUROVISION 59
Íslenskar Eurovision-stjörnur skemmta víða um land.
Á ALLAR EUROVISION-KEPPNIRNAR
SÍÐAN 1985 74
Jónína Kristín er einn af heitustu aðdáendum
Eurovision á Íslandi.
ÍSLENDINGUR STRÍÐIR DÖNUM 74
Íslendingurinn Viðar Örn Sævarsson er í þriðja
sæti í evrópskri tónlistarkeppni, EuroMusic
Contest 2014.
LÍFIÐ 60➜74
MARKAKÓNGURINN TIL SÖLU 66
Alfreð Finnbogason segir líklegt að hann hafi spilað
sinn síðasta leik fyrir Heerenveen í Hollandi þótt hann
eigi enn tvö ár eft ir af samningi sínum.
VÍSINDI „Það lýsir bæði hroka og
og skringilegri forræðishyggju
að halda því fram að fullveðja
Íslendingar séu ekki færir um að
taka ákvörðun um að taka þátt í
að sækja nýja þekkingu um sjúk-
dóma og heilsu eða ekki,“ þetta
segir Kári Stefánsson, forstjóri
Íslenskrar erfðagreiningar.
Tilefnið er gagnrýni hóps fræði-
manna við hugvísindadeild
Háskóla Íslands á framkvæmd
lífsýnasöfnunar 100 þúsund
Íslendinga sem Íslensk erfðagrein-
ing stendur fyrir nú í samstarfi við
Slysavarnafélagið Landsbjörg.
„Það felst alltaf einhver þrýst-
ingur í því þegar maður nálgast
einstakling og biður hann að taka
þátt í læknisfræðirannsókn,“ segir
Kári. „Það er bara spurning um
hvað er óeðlilegur þrýstingur.“
Kári segir gagnrýni hópsins ómál-
efnalega. „Ef stjórnmálamenn
trúa því að það sé gott að gera upp-
götvanir í læknisfræði þá auðvitað
hvetja þeir fólk til að taka þátt.“
Gagnrýni fræðimannanna snýr
meðal annars að því að fólk sé
beðið um að veita samþykki sitt
fyrir umfangsmikilli rannsókn
án þess að um hana hafi farið
fram upplýst umræða. Björgunar-
sveitar menn á vegum Lands-
bjargar hófu söfnun lífsýnanna
daginn eftir að beiðni var send út
til fólks um þátttöku. „Ég er ekk-
ert viss um að við höfum gert þetta
nákvæmlega rétt og það er erfitt
að vera viss um það bæði núna
og eftir á hvað hefði verið rétt,“
segir Kári. „Vandamálið er að ef
þú sendir póst þá er búið að henda
honum eftir tíu daga. Ég er ekki
að halda því fram að þetta sé full-
komin framkvæmd hjá okkur en
markmiðið er að auka getu okkar
til að gera uppgötvanir, það er ekk-
ert annað sem að baki býr.“
Vilhjálmur Árnason, prófessor
í heimspeki og stjórnar formaður
Siðfræðistofnunar Háskóla
Íslands, segir að aðferðin við
söfnun lífsýnanna sé fordæma-
laus. „Það er mjög óeðlilegt þegar
um er að ræða vísindarann sóknir
að þetta sé sett fram sem ein-
hvers konar hópefli. Það er verið
að skapa einhverja þjóðarstemn-
ingu með landsþekktum skemmti-
kröftum og stjórnmálamönnum.“
Fram kom í Fréttablaðinu á
fimmtudag að vísindasiðanefnd
hafi verið einróma í samþykki
sínu á aðferð rannsóknarinnar.
Þess má geta að Kristján Erlends-
son, formaður vísindasiðanefnd-
ar, gegndi um nokkurra ára skeið
embætti framkvæmdastjóra sam-
starfsverkefna hjá Íslenskri erfða-
greiningu.
snaeros@frettabladid.is
Kári segir gagnrýni á
rannsókn hrokafulla
Hart er tekist á um siðferðisleg álitaefni vegna lífsýnasöfnunar Íslenskrar erfða-
greiningar. Heimspekiprófessor segir að óeðlilegum aðferðum sé beitt við söfnun-
ina og að henni svipi til hópeflis. Kári Stefánsson hafnar gagnrýni fræðimannanna.
ÓSAMMÁLA GAGNRÝNINNI Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar,
gefur lítið fyrir gagnrýni fræðimanna við Háskóla Íslands og segir hana ómálefna-
lega og hrokafulla. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Ef stjórnmálamenn
trúa því að það sé gott að
gera uppgötvanir í læknis-
fræði þá auðvitað hvetja
þeir fólk til að taka þátt.
Kári Stefánsson,
forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar.
LÖGREGLUMÁL Hópnauðgunin sem nú er til rann-
sóknar hjá lögreglu átti sér stað á heimili eins
hinna grunuðu í málinu. Lögregla rannsakaði
íbúðina á miðvikudag, sama dag og fimmmenn-
ingarnir sem grunaðir eru í málinu voru hand-
teknir.
Atvikið átti sér stað í samkvæmi í Breiðholti
aðfaranótt sunnudags. Húsráðendur voru ekki
heima en samkvæmið var þó haldið með þeirra
vitneskju. Samkvæmt upplýsingum Frétta-
blaðsins hafði þó nokkur gestagangur verið
um kvöldið en nauðgunin á að hafa átt sér stað
þegar fáir gestir voru eftir í samkvæminu.
Fimm ungir menn, fjórir undir lögaldri, voru
úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna málsins í
gær. Þeir hafa allir kært gæsluvarðhaldsúr-
skurðinn.
Heimildir blaðsins herma að myndband sem
til er af verknaðinum og tekið var af einum
brotamannanna sé ekki í almennri dreifingu.
Það hafi gengið fólks á milli síðan verknaðurinn
átti sér stað en sé ekki aðgengilegt á internet-
inu.
Upphaflega voru sex menn handteknir í mál-
inu en einungis fimm þeirra hafa stöðu grun-
aðra vegna þess. Ekki var farið fram á gæslu-
varðhald yfir þeim sjötta og hefur hann því
verið látinn laus. - ssb
Fimmmenningarnir hafa allir áfrýjað gæsluvarðhaldsúrskurði til Hæstaréttar:
Hópnauðgunin var í heimahúsi
SÉRSVEITIN Á STAÐNUM Fjölmennt lögreglulið og sér-
sveit mættu til að fylgja fimmmenningunum í Héraðsdóm á
fimmtudag þegar krafist var gæsluvarðhalds yfir þeim.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
LÁNALENGING LANDS-
BANKA Í RÉTTA ÁTT 4
Ásdís Kristjánsdóttir segir samning milli
gamla og nýja Landsbanka færa okkur
nær því að losa höft in.
VILJA STÆKKA GRIÐA-
SVÆÐI HVALA 6
Forsvarsmenn hvalaskoðunarfyrirtækja
segja framtíð hrefnuskoðunar vera í
óvissu.
TEKJUHÁIR GRÆÐA Á
SKULDANIÐURFELLINGU 8
Um 200 fj ölskyldur sem eiga hreina
eign upp á hundruð milljóna eiga von
á milljarði.
SAMKOMULAG UM ÞING-
LOK 10
ESB-tillagan verður ekki tekin á dagskrá.