Fréttablaðið - 10.05.2014, Blaðsíða 36
10. maí 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 36
Af þeim 32 þjóðum sem taka þátt á HM í sumar, er aðeins ein sem er að þreyta frumraun sína á stóra sviðinu: Bosnía-Hersegóvína. Eftir
að hafa tapað fyrir Portúgal í
umspilsleikjum um sæti á HM
2010 og EM 2012 náði þetta litla
og fámenna ríki loks að komast á
stórmót.
Þetta verður reyndar ekki í
fyrsta skipti sem bosnískir knatt-
spyrnumenn spila á HM, en nokkr-
ir slíkir spiluðu undir merkjum
sameinaðrar Júgóslavíu á árum
áður. Fremstur þeirra var leikmað-
ur að nafni Safet Susic – núverandi
landsliðsþjálfari Bosníu.
Heyrði skothvelli á hverjum degi
Bosnía skoraði 30 mörk í leikjun-
um tíu í undankeppninni – aðeins
Þýskaland, Holland og England
skoruðu fleiri – og eins og geta má
nærri er sóknarleikurinn í fyrir-
rúmi hjá liðinu.
„Við verðum að spila eins og
við höfum verið að spila. Ég veit
að þetta hljómar kannski óþrosk-
að frá taktísku sjónarhorni, en
það væri rangt að spila öðru vísi,“
segir Susic um leikstíl Bosníu. „Við
vitum að við opnum okkur of mikið
og það er mikil áhætta sem fylgir
því hvernig við spilum, en það væri
ekki sanngjarnt gagnvart stuðn-
ingsmönnunum, leiknum og okkur
sjálfum ef við myndum bæla niður
þá hæfileika sem búa í liðinu.“
Í sóknarleik Bosníu mæðir mest
á Edin Dzeko, markahæsta leik-
manni í sögu bosníska landsliðs-
ins. Dzeko, sem hefur spilað frá-
bærlega fyrir Manchester City á
síðustu vikum, fór ekki varhluta
af stríðinu sem geisaði í Bosníu á
fyrri hluta 10. áratugarins.
„Ég fæddist rétt áður stríðið
braust út og ólst upp í Sarajevo
meðan á umsátrinu um borgina
stóð,“ sagði Dzeko um æskuárin.
„Á hverjum degi heyrðir maður
skothvelli og við misstum bæði vini
og ættingja. Minningarnar fylgja
manni alltaf, þetta var hræðilegur
tími og ég átti mjög sára og sorg-
lega æsku.“ Heimili fjölskyldu
Dzek os var lagt í rúst í loftárás og
þau neyddust til að flytja til ömmu
hans og afa, þar sem öll fjölskyld-
an bjó undir einu litlu þaki. Sagan
segir einnig að móðir Dzekos hafi
eitt sinn kallað á Dzeko að koma
heim rétt áður en sprengja féll á
fótboltavöllinn þar sem hann hafði
verið að leika sér.
Völdu að spila fyrir föðurlandið
Stríðið í Bosníu var vettvangur
hræðilegra stríðsglæpa, þ. á m.
fjöldamorðanna í Srebrenica, þar
sem her Bosníuserba undir stjórn
Ratkos Mladic myrti 8.000 mús-
limska menn og drengi á griða-
svæði Sameinuðu þjóðanna í júlí
1995. Meðan á stríðinu stóð neydd-
ust einnig 2,2 milljónir Bosníu-
manna til að flýja heimili sín.
Margir flúðu land, en af þeim
sökum eru margir leikmenn bosn-
íska landsliðsins aldir upp utan
heimalandsins.
Miralem Pjanic, Asmir Beg ovic,
Ermin Bicakcic, Sejad Salihovic,
Haris Medunjanin, Zvejzdan
Misimovic, Senad Lulic og Vedad
Ibisevic eru meðal þeirra leik-
manna liðsins sem hafa aldrei búið
í Bosníu svo heitið geti, eða spilað
í deildinni heima fyrir. Þeir völdu
samt að spila fyrir Bosníu, þrátt
fyrir að eiga þess kost að spila
fyrir önnur landslið.
Medunjanin – sem missti föður
sinn í stríðinu – varð t.a.m. Evr-
ópumeistari í tvígang með U-21
árs landsliði Hollands og Begovic
spilaði með Kanadamönnum á
HM U-20 ára 2007 og var nokkr-
um sinnum valinn í A-landslið
þeirra. „Bosníska blóðið rann allt-
af í æðum mér,“ sagði Begovic um
ákvörðun sína í viðtali við Daily
Mail í janúar.
„Ég sneri ekki aftur fyrr en ég
var kominn á þrítugsaldurinn,
þegar ég var viðstaddur jarðarför
afa míns. Þar hitti ég hluta af fjöl-
skyldu minni sem ég hafði ekki séð
í áraraðir. Ég upplifði sársaukann,
allt það slæma sem gerðist, árin
sem ég missti af. Þetta var mjög
tilfinningarík ferð og þá ákvað ég
að spila fyrir Bosníu, stæði mér
það til boða.“
Þrátt fyrir að Pjanic hefði spil-
að fyrir yngri landslið Lúxem-
borgar og Frakkland hefði gert
hosur sínar grænar fyrir honum
var aldrei neinn vafi í huga hans.
„Það var aldrei spurning hvaða
land ég myndi vilja spila fyrir,“
sagði Pjan ic í viðtali við bosníska
dagblaðið SAN. „Bosnía var minn
fyrsti og eini kostur.“ Alls þurftu
tíu af þeim 24 leikmönnum sem
Susic valdi í HM-hópinn að breyta
um ríkisfang til að spila fyrir bosn-
íska landsliðið.
Mál sem þessi eru erfið og flók-
in – eins og við Íslendingar höfum
fengið að kynnast – en Bosníu-
menn hafa notið góðs af breytingu
á þeirri reglu FIFA sem áður mein-
aði leikmönnum með tvöfalt ríkis-
fang að skipta um landslið eftir
að þeir urðu 21 árs. Án þessar-
ar reglubreytingar er hætt við að
Bosnía myndi spila á HM í sumar.
Í áðurnefndu viðtali talar Susic
um að það hafi þurft að eltast við
leikmenn af bosnískum ættum og
fá þá til að spila fyrir landsliðið.
Hann segir enn fremur að málið
muni vandast til muna eftir tíu ár
þegar kemur að þriðju eða fjórðu
kynslóðar Bosníumönnum sem búa
utan heimalandsins. „Það verður
erfitt að telja þá á að spila fyrir
land afa þeirra,“ segir Susic, en af
þeim sökum segir hann mikilvægt
fyrir Bosníu að komast inn á HM
og önnur stórmót.
Bosnía fer þó ekki til Brasi-
líu bara til að vera með, en Susic
hefur sett stefnuna á 16-liða úrslit.
Bosnía dróst í riðil með Argent-
ínu, Nígeríu og Íran, svo möguleik-
inn er svo sannarlega fyrir hendi.
Þrátt fyrir að leikmennirnir komi
úr ólíkum áttum mynda þeir eina
sterka heild og bosníska liðið hefur
á undanförnum árum sýnt að því
eru flestir vegir færir.
SÍLE var með eitt
skemmtilegasta liðið á
HM 2010 undir stjórn Marc-
elos Bielsa og Jorge Sampaoli
eftirmaður hans hefur fetað
svipaða slóð. Chile getur gert
hvaða liði sem er skráveifu,
en það er þó hætt við því að
Spánn og Holland reynist of
sterk.
SPÁNVERJAR eru
heimsmeistarar og eiga
möguleika á að vinna fjórða
stórmótið í röð. Þeir eru
sannarlega með mannskap til
þess og spennandi verður að
sjá hvernig Diego Costa kemur
inn í liðið.
HOLLAND fór sann-
færandi í gegnum
undankeppnina og Louis van
Gaal hefur sett stefnuna á
undanúrslit. Hann hefur notað
marga leikmenn síðan hann
tók við liðinu og það ríkir
nokkur óvissa um hverjir muni
skipa ýmsar lykilstöður.
ÁSTRALÍA hefur staðið
sig vel á síðustu tveimur
heimsmeistaramótum, en
liðið verður væntanlega í hlut-
verki lítilmagnans í Brasilíu.
BRASIÍLA ætti að öllu
eðlilegu að vinna þenn-
an riðil enda á heimavelli. Luiz
Felipe Scolari og lærisveinar
hans leggja væntanlega höfuð-
áherslu á það til að forðast
mögulegan leik gegn Spáni í
16-liða úrslitum.
KRÓATAR eru með
mjög góðan mannskap
og það er betri heildarbragur
á liðinu eftir að Niko Kovac
tók við því.
MEXÍKÓ varð Ólympíu-
meistari 2012, en svo tók
við óreiðukennt tímabil sem
einkenndist af vondum úr-
slitum og tíðum þjálfaraskipt-
um. Mexíkó hefur komist upp
úr riðlakeppninni á síðustu
fimm heimsmeistaramótum,
en raunin gæti orðið önnur í
sumar.
KAMERÚN tryggði sér
sæti á HM með góðum
sigri á Túnis í umspili, en liðið
þykir ekki líklegt til afreka í
Brasilíu.
B
-R
IÐ
ILLL
A
-R
IÐ
ILLL
Neymar
22 ára
Sóknarmaður Brasilíu
Einn efnilegasti
fótboltamaður heims
Xavi
34 ára
miðjumaður Spánverja
einn sigursælasti
fótboltamaður sögunnar
HM-REYNSLA ÞJÓÐANNA SEM KEPPA Í BRASILÍU
Í FÓTBOLTA
BRASILÍU
HM
33 DAGAR Í FYRSTA LEIK
Koma fundnu synirnir á óvart?
Heimsmeistarakeppnin í fótbolta hefst eftir rúmar fimm vikur en aðeins ein þjóð af þeim 32 sem
keppa um titilinn í Brasilíu hefur ekki verið á HM áður. Bosnía fór mjög illa út úr Júgóslavíustríðinu
og margir af stjörnuleikmönnum Bosníuliðsins á HM í Brasilíu ólust upp utan heimalandsins.
Að komast á HM er
eitt það jákvæðasta sem
hefur komið fyrir Bosníu.
Það skapar pressu því við
erum svo staðráðnir í að
færa fólkinu gleði og
hamingju eftir erfið ár.
Asmir Begovic, markvörður Stoke
og bosníska landsliðsins.
MÆÐIR MIKIÐ Á DZEKO
Framherjinn Edin Dzeko
hjá Manchester City mun
gegna lykilhlutverki í liði
Bosníu á HM í sumar.
© GRAPHIC NEWS FIFA, RSSSF
HM-keppnirSigurleikir 8 liða úrslit Undanúrslit Úrslitaleikir Heims-
meistara-
titlarBrasilía
Ítalía
Þýskaland*
Argentína
Úrúgvæ
Frakkland
England
Spánn
Holland
* Vestur-Þýskaland
telst með
+ Sovétríkin teljast með
Portúgal
Rússland†
Síle
Bandaríkin
Belgía
Suður-Kórea
Króatía
Sviss
Mexíkó
Kamerún
Gana
Kólumbía
Japan
Nígería
Alsír
Ástralía
Kostaríka
Íran
Fílabeinsstr.
Ekvador
Grikkland
Hondúras
20 5
4
3
2
2
1
1
1
18
18
16 10
8
12
7
6
7
4
2
2
1
1
3
4
5
5
2
2
4
2
1
1
1
1
1
10
16
9
6
6
10
2
5
2
2
1
1
1
6
16
12
14
14
14
10
6
10 5 1
9
10
12
9
10
15
7
5
3 1
1
2
3
5
5
4
4
4
4
4
3
3
3
3
Bosnía 1
67
44
60
37
18
25
26
28
22
12
11
7
10
5
6
9
12
4
4
3
3
3
4
4
2
2
2
1
1
0
0
17
Ingvi Þór
Sæmundsson
sport@frettabladid.is
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY