Fréttablaðið


Fréttablaðið - 10.05.2014, Qupperneq 81

Fréttablaðið - 10.05.2014, Qupperneq 81
LAUGARDAGUR 10. MAÍ 2014 11 ● ÁSTRALIR Í EUROVISION Ástralir hafa haldið mikið upp á Eurovision-keppnina allt frá því ABBA sigraði árið 1974. SBS-sjónvarpsstöðin í Ástralíu hefur sýnt frá keppn- inni í fjölda ára. Keppnin er sýnd þrjú kvöld í röð og laðar að sér um þrjár milljónir áhorfenda sem er dágott miðað við íbúafjölda Ástralíu sem er 22 milljónir. Ástæður þess að Ástralir elska Eurovision eru nokkrar. Til dæmis þykir þeim keppnin mikilfengleg en eru ekki síður hrifnir af hversu skemmtilega hallærisleg hún er. Þá eiga Ástralir margir hverjir ættir að rekja til Evrópu. Ástralir hafa nokkrum sinnum óskað eftir því að fá að taka þátt í keppninni og í ár rættist sú ósk. Eftir seinni undanúrslitin á fimmtudaginn steig hin ástralska Jessica Mauboy á svið með lagið Sea of Flags. Atriðið var mikið sjónarspil eins og búast má við frá litaglöðum Áströlum. Volare best af öllum Eftir Eurovision-söngvakeppnina árið 2010 leitaði aðdáendasíðan Eurovison Times til aðdáenda keppninnar um að velja sitt uppáhalds Eurovision-lag frá upphafi. Í fyrsta sæti varð lagið Nel blu dipinto di blu í flutningi Domenico Modungo. Lagið er betur þekkt sem Volare og lenti í þriðja sæti keppninnar árið 1958. Lagið sló strax í gegn á heimsvísu og er það lag Söngvakeppni evrópskra sjónvarps- stöðva sem oftast hefur verið tekið upp og flutt af öðrum listamönnum. Á meðal heimsfrægra söngvara sem sungið hafa Volare má nefna Dean Martin, Cliff Richards, Celine Dion, David Bowie, Luciano Pavarotti, Barry White og Andrea Bocelli. Lagið Waterloo með Abba var í öðru sæti. Eu Slæmt gengi Breta Það er með ólíkindum hvað Bretum hefur gengið illa í Eurovision- keppninni undanfarin ár. Frá árinu 1999 hefur þessi mikla tónlistarþjóð aðeins tvisvar verið á meðal fimm efstu þjóða en ef árið 2009 er undan- skilið hafa Bretar ekki lent á meðal tíu efstu þjóða frá því árið 2002, þegar Jessica Garlick lenti í þriðja sæti með ballöðuna Come back. Raunar hafa þeir nokkrum sinnum lent neðar en í 20. sæti undanfarin ár og hrepptu til dæmis 25. sætið þrisvar á fimm ára tímabili. Það er ekki gott að segja hver skýringin er því margir þekktir og reynslumiklir lagahöfundar og tón- listarmenn hafa tekið þátt undan- farin ár fyrir þeirra hönd. Helsta skýringin gæti verið sú að árið 1999 var reglum keppninnar breytt þannig að þátttökuþjóðir máttu syngja á hvaða tungumáli sem er, þar með talið ensku. Fram að því hafði Bretland ekki lent neðar en í 10. sæti nema tvisvar í allri sögu keppninnar. Eftir mörg mögur ár á síðasta áratug gekk það svo langt að BBC átti í viðræðum við sjálfan Morrissey, sem var söngvari hljómsveitarinnar goðsagnakenndu The Smiths, um þátttöku í keppninni en ekkert varð úr því. Síðustu tvö árin hefur Bretland lent í næstsíðasta sæti og 19. sæti með gömlu kempunum Engelbert Humperdinck og Bonnie Tyler. Það verður því fróðlegt að sjá hvað Molly Smitten-Downes gerir í kvöld með lagi sínu Children Of The Universe. TM ...verðlaun fyrir besta Eurovisionnammið
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.