Fréttablaðið - 10.05.2014, Qupperneq 16
10. maí 2014 LAUGARDAGUR| SKOÐUN | 16
Frá stofnun Neytendasam-
takanna fyrir 61 ári hefur
tollvernd á landbúnaðar-
vörum verið eitt af stóru
málunum í hagsmunabar-
áttu neytenda, en sam tökin
telja að oftar en ekki sé
meiri hagsmunum fórnað
fyrir minni. Um tollvernd-
ina hafa samtökin ítrekað
fjallað, ályktað, sent erindi
til stjórnvalda og haldið
málþing. Tollar og toll-
kvótar sem eru eingöngu
settir til að vernda eina atvinnu-
grein ganga svo freklega gegn
hag neytenda að samtökin
munu berjast á móti þeim
á meðan þeir eru við lýði.
Í febrúar sl. kom í ljós
að landbúnaðarráðherra
hafði skipað fulltrúa frá
ýmsum hagsmunasam-
tökum í starfshóp um tolla-
mál á sviði landbúnaðar og
ákveðið að útiloka Neyt-
endasamtökin frá þeirri
vinnu. Í ljósi þess að um er
að ræða mjög mikilvægt
hagsmunamál fyrir neyt-
endur sendu samtökin strax erindi
til ráðherra þar sem þau óskuðu
eftir að fá að koma að þessu starfi
og tilnefna fulltrúa í starfshóp-
inn. Eftir ítrekanir á þessu erindi
og fréttatilkynningar frá samtök-
unum, barst loks svar frá ráðu-
neytinu sem dagsett er 6. maí sl.
Þar segir m.a.: „Núverandi skipan
hópsins er eftirfarandi: Tveir full-
trúar koma hvor frá sínu ráðu-
neyti, einn frá Bændasamtökum
Íslands, tveir frá framleiðendum,
tveir frá launþegasamtökum, einn
frá Samtökum atvinnurekenda og
einn frá Samtökum verslunar og
þjónustu. Að athuguðu máli verður
ekki annað séð af skipan hópsins
en að sjónarmið þeirra er hags-
muna eiga að gæta, muni koma
fram með fullnægjandi hætti í
nefndarstarfinu.“
Stjórn Neytendasamtakanna
getur með engu móti fallist á
að launþegasamtök, bændasam-
tök og atvinnurekendur í starfs-
hópnum gæti hagsmuna neytenda
sérstaklega. Verður því að túlka
svarið sem svo að ráðherra telji að
endurskoðun á tollalöggjöf á sviði
landbúnaðar komi neytendum ekk-
ert við.
Á umliðnum árum hafa stjórn-
völd talið eðlilegt að Neytenda-
samtökin eigi fulltrúa í nefndum
og starfshópum þar sem fjallað er
um tolla og aðrar opinberar álög-
ur á matvæli og raunar aðrar neyt-
endavörur. Hér virðist ráðherra
því marka nýja stefnu. Stjórn
Neytendasamtakanna mótmælir
harðlega þessari ákvörðun. Þegar
um svo mikilvægt hagsmunamál
fyrir neytendur er að ræða eins
og tollamál á sviði landbúnaðar,
er með öllu óeðlilegt að samtök
sem hafa það eitt að markmiði að
gæta hagsmuna neytenda séu snið-
gengin á þann hátt sem hér er gert.
Stjórn Neytendasamtakanna
Koma tollar á landbúnaðarvörur neytendum ekki við?
Við skiptum
öll máli. Það
eru mikilvæg
mannréttindi
að taka virkan
þátt í samfé-
laginu. Ef ekki
væri fyrir
margbreyti-
leika mann-
fólksins yrðum
við fljótt leið
hvert á öðru.
Hvert manns-
barn er einstakt og við eigum að
fagna fjölbreytninni og ekki síst
þeim sem þurfa á stuðningi sam-
félagsins að halda.
Réttindi fatlaðs fólks ber að
virða og hugmyndafræðin um
sjálfstætt líf skal höfð að leiðar-
ljósi. Samfylkingin telur að það
þurfi að bæta þjónustu við fatl-
aða íbúa borgarinnar frá því
sem nú er. Til þess þarf aukið
fjármagn og er það kappsmál
okkar nú þegar unnið er að
endurmati á yfirfærslu þjónust-
unnar frá ríki til sveitarfélaga
að samið verði um meira fé til
að mæta þörfum fatlaðra íbúa út
frá þeirri stefnu sem sett hefur
verið af öllum flokkum á Alþingi
og í borgarstjórn Reykjavíkur.
Við í Samfylkingunni leggjum
áherslu á eftirfarandi atriði:
■ Við viljum koma til móts við
fólk með fötlun í samræmi við
samning Sameinuðu þjóðanna
um réttindi fatlaðs fólks.
■ Við ætlum að vinna áfram
að þróun og innleiðingu not-
endastýrðrar persónulegrar
aðstoðar.
■ Við ætlum að skilgreina rétt
til þjónustu óháðan búsetuformi.
■ Við viljum vinna markvisst
að því að eyða biðlistum eftir
stuðningsþjónustu.
■ Við ætlum að eyða biðlistum
eftir húsnæði og vinna markvisst
að lokun herbergjasambýla.
■ Við lítum á ferðaþjónustu
fatlaðs fólks eins og almenn-
ingssamgöngur og viljum að
ferðaþjónustan sé til reiðu þegar
hennar er þörf og óháð bíla-
styrkjum TR.
Borgarbúar
allir jafn
mikilvægir
➜ Samfylkingin telur að
það þurfi að bæta þjónustu
við fatlaða íbúa borgarinnar
frá því sem nú er. Til þess
þarf aukið fjármagn og er
það kappsmál okkar nú
þegar unnið er að endurmati
á yfi rfærslu þjónustunnar
frá ríki til sveitarfélaga að
samið verði um meira fé til
að mæta þörfum fatlaðra
íbúa …
J
A
N
Ú
A
R
NEYTENDUR
Jóhannes
Gunnarsson
formaður Neyt-
enda samtakanna
➜ Stjórn Neytendasamtak-
anna getur með engu móti
fallist á að launþegasamtök,
bændasamtök og atvinnu-
rekendur í starfshópnum
gæti hagsmuna neytenda
sérstaklega.
SAMFÉLAG
Björk
Vilhelmsdóttir
borgarfulltrúi, í 2.
sæti á XS Reykjavík