Fréttablaðið - 10.05.2014, Side 92
10. maí 2014 LAUGARDAGUR| TÍMAMÓT | 48
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi,
SÆVAR ÖRN HELGASON
Austurbrún 4,
varð bráðkvaddur á heimili sínu aðfaranótt
27. apríl sl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Þökkum samúð og vinarhug.
Helgi, Ólafur, Sæunn, Bjarki Sævarsbörn og fjölskyldur.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts og útfarar okkar
ástkæra eiginmanns, föður, tengdaföður,
afa og langafa,
JÓNS SVAVARS JÓNASSONAR
blikksmíðameistara,
Drekavöllum 57, Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir til starfsfólks heimahlynningar LSH fyrir frábæra
umönnun og einnig til allra þeirra sem komu að veikindum hans.
Kolbrún Ósk Óskarsdóttir
Kristens Jónsson Ingibjörg Jóna Kristjánsdóttir
Katrín Svava Jónsdóttir Stefán Kristófersson
Jórunn Jónsdóttir Einar Þór Einarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Þann 5. maí lést ástkær frænka okkar
og uppeldismóðir,
ELÍN AÐALHEIÐUR MAGNÚSDÓTTIR
á Sóltúni í Reykjavík.
Samkvæmt ósk hinnar látnu fór útför hennar
fram í kyrrþey.
Magnús S. Guðmundsson
Sjöfn Guðmundsdóttir
makar, börn og barnabörn.
Innilegar þakkir færum við öllum þeim
fjölmörgu sem sýnt hafa okkur samúð og
vinarhug við andlát og útför föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
GUÐNA EYJÓLFSSONAR
hjúkrunar- og dvalarheimilinu Höfða,
Akranesi.
Vinátta ykkar er ómetanleg.
Erna Sigríður Guðnadóttir Einar Jón Ólafsson
Helgi Þröstur Guðnason Ragna Ragnarsdóttir
Birgir Már Guðnason Ólafína Ólafsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar ástkæri
BJARNI ÁGÚSTSSON
mjólkurfræðingur,
Skipalóni 24, Hafnarfirði,
lést á Landspítalanum við Hringbraut þriðju-
daginn 6. maí. Útförin fer fram frá Bústaða-
kirkju fimmtudaginn 15. maí kl. 13.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþökkuð.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið.
Þórdís Lára Ingadóttir
Heiða Dís Bjarnadóttir Sturla Hrafn Einarsson
Elmar Ingi Bjarnason Ólafía Ingvarsdóttir
Margrét Ágústsdóttir Aðalsteinn Ólafsson
Kristján Ágústsson Stefanía Sara Gunnarsdóttir
Ágúst Björn Ágústsson Þórdís Kristinsdóttir
Álfheiður Óladóttir Skúli Níelsen
og barnabörn.
Þökkum hlýhug og samúð vegna fráfalls
elskulegrar móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
ÁSTHILDAR TORFADÓTTUR
Hvassaleiti 56.
Sérstaklega þökkum við starfsfólki hjarta-
og nýrnadeilda LSH fyrir góða umönnun.
Friður sé með ykkur öllum.
Hallgerður Arnórsdóttir Helgi Gíslason
Björk Inga Arnórsdóttir
börn og barnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir
og amma,
RAGNHILDUR ÁRNADÓTTIR
frá Atlastöðum í Svarfaðardal,
Grandavegi 47, Reykjavík,
lést 3. maí. Útförin fer fram frá Neskirkju
föstudaginn 23. maí klukkan 15.00.
Katrín Pálsdóttir Ágúst Ragnarsson
Árni Pálsson Emelía Gunnþórsdóttir
Rannveig Pálsdóttir Guðbrandur Sigurðsson
Anna Katrín, Páll, Ragnhildur, Ragnar Árni, Ragna Kristín
og Ingi Hrafn.
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir,
amma og langamma,
ÞÓRDÍS GUÐJÓNSDÓTTIR
Melgerði 42, Kópavogi,
lést miðvikudaginn 16. apríl á líknardeild
Landspítalans í Kópavogi. Útförin hefur farið
fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Sérstakar
þakkir til starfsfólks heimahlynningar og
líknardeildar. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda
samúð og vinarhug.
Guðrún W. Jensdóttir Guðmundur Björnsson
Jens Kristján Guðmundsson
Birna Sigurborg Guðmundsdóttir Birkir Örn Hlynsson
Guðmundur Ari Birkisson
➜ Gegn fordómum
Pollapönk– Fyrir að nýta tónlistarsköpun og -flutning markvisst til að bæta samfélagið og draga úr fordómum.
Tilvitnun í tilnefningu: „Hljómsveitin á að mínu viti skilið að fá verðlaun fyrir góðan boðskap texta sinna til barna. Sérstaklega
vinningslagið í Eurovision „Enga fordóma“ sem virkilega hefur reynst vel í umræðunni um náungakærleik og fordóma innan leik-
skólasamfélagsins!“
Alma Rut Lindudóttir– Fyrir að auka umræðu um mannrétt-
indi útigangsfólks og stuðla að úrbótum á aðstæðum þess.
Tilvitnun í tilnefningu: „Alma hefur árum saman barist af
heilum huga og af öllu hjarta með mannréttindi útigangs-
manna og kvenna í huga. Allt hennar starf hefur einkennst af
því að fá fólk til að skilja og fá þó ekki sé nema örlitla innsýn
inn í heim þeirra sem eiga höfði sínu hvergi að halla.“
Félagasamtökin Erindi og feðginin Selma Björk Hermanns-
dóttir og Hermann Jónsson– Fyrir að standa að fræðslu til
að uppræta einelti og vera góð fyrirmynd.
Tilvitnun í tilnefningu: „Félagasamtökin Erindi hafa staðið
fyrir fyrirlestrunum Ást gegn hatri þar sem Selma Björk segir
grunnskólanemum frá reynslu sinni af einelti og Hermann
faðir hennar talar við foreldra um góð gildi í uppeldinu og þær
leiðir sem hann fór til að takast á við eineltið hennar Selmu.
Erindi hefur einnig staðið fyrir fræðslu fyrir foreldra um
hættur á netinu.“
➜ Hvunndagshetjan
Sigurður Hallvarðsson– Fyrir að vera
öðrum góð fyrirmynd og leggja sitt af
mörkum þrátt fyrir erfiðar aðstæður.
Tilvitnun í tilnefningu: „Hann hefur
með jákvæðni sinn, dugnaði og vilja,
hvatt fólk til dáða. Með áheitagöngu
í roki og rigningu frá Hveragerði til
Reykjavíkur safnaði hann milljónum
króna til Ljóssins við Langholtsveg. Um
daginn þegar hann var í hvíldarinn-
lögn á líknardeildinni safnaði hann
peningum til kaupa á sjónvörpum fyrir
langveik börn sem dvelja í Rjóðrinu.“
Guðjón Hólm Gunnarsson og Sigurður
Már Sigmarsson– Fyrir að standa fyrir
söfnun til að kaupa tæki sem geta
bjargað mannslífum.
Ástæða tilnefningar: Guðjón Hólm
Gunnarsson vinnur hjá Neyðarlínunni
og er í björgunarsveit og Sigurður Már
Sigmarsson er sjúkraflutningamaður.
Þeir ákváðu upp á sitt eindæmi að safna fyrir hnoðbretti í sjúkrabíla á Akranesi. Þau kosta 2,5 milljónir stykkið og þeir útveguðu
tvö tæki í vor fyrir Akranes og eru langt komnir með tæki fyrir Búðardal. Eru að byrja söfnun fyrir Ólafsvík og Stykkishólm um
þessar mundir.
Hafdís Ýr Birkisdóttir– Fyrir að standa fyrir veglegri söfnun fyrir heimilislausa þrátt fyrir ungan aldur.
Ástæða tilnefningar: Hafdís Ýr er tíu ára gömul stúlka sem stóð fyrir söfnun til styrktar heimilislausum. Hún útbjó matreiðslubók
sem hún afhenti þeim sem vildu gegn frjálsum framlögum og fékk fyrirgreiðslu frá ýmsum fyrirtækjum og einstaklingum og
safnaði þar með upphæð sem notuð var til að kaupa ýmislegt sem heimilislaust fólk hefur þörf fyrir. Hafdísi Ýri finnst þessi
vinna hennar í raun ekkert merkileg, heldur bara sjálfsögð og er hissa á því að fólk hrósi henni eitthvað sérstaklega fyrir þetta
framtak, henni finnst að þetta eigum við öll að gera.
SIGURÐUR
HALLVARÐSSON
POLLAPÖNK
ALMA RUT LINDUDÓTTIR