Fréttablaðið - 10.05.2014, Page 12

Fréttablaðið - 10.05.2014, Page 12
10. maí 2014 LAUGARDAGURSKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRI: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is RITSTJÓRNARFULLTRÚI: Álfrún Pálsdóttir alfrun@frettabladid.is VIÐSKIPTI: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is MENNING: Friðrika Benónýsdóttir fridrikab@frettabladid.is DÆGURMÁL: Lilja Katrín Gunnarsdóttir liljakatrin@frettabladid.is VÍSIR: Kolbeinn Tumi Daðason, kolbeinntumi@365.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRAR: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is, Mikael Torfason mikael@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 SPOTTIÐ AF KÖGUNARHÓLI ÞORSTEINS PÁLSSONAR Á morgun lýkur árlegri álfasölu SÁÁ en í tuttugu og fimm ár hafa samtökin selt álfa til að fjármagna starfsemina. Í ár er yfirskrift söluátaksins: „Álfurinn fyrir unga fólkið“ en söfnunin hófst formlega á miðvikudag og þá fylgdi sérstakt edrú- blað SÁÁ með Fréttablaðinu. Formaður samtakanna, Arnþór Jónsson, ritaði grein í blaðið og sagði að allt söfnunarfé myndi renna til rekstrar unglingadeildar á Vogi. Hann benti einnig á að rannsóknir sýna að besta fjárfestingin í baráttu við ofneyslu vímuefna sé meðferð. Meðferð er til dæmis „mun arðbærari en lögregluaðgerðir, félagsleg úrræði og forvarnarherferðir“. Meðferð getur breytt öllu og á Íslandi eigum við ótal hetjusögur af fólki sem hefur snúið við blaðinu. Áfengis- og vímuefnasýki er að mörgu leyti þjóðarsjúkdómur Íslend- inga. Nærri tveir af hverjum tíu karlmönnum á Íslandi munu einhvern tíma á lífsleiðinni fara á sjúkrahúsið Vog í afeitrun. Ein af hverjum tíu konum er líkleg til að feta sömu slóð og fá hjálp við að verða edrú. Í fyrrnefndri grein sinni á miðvikudag skrifar Arnþór að „fyrir hverja krónu sem sett er í meðferð við þessum sjúkdómi koma rúmlega sjö krónur til baka til samfélagsins. Þar af skila rúmlega tvær krónur sér til baka strax á fyrsta árinu.“ Við Íslendingar höfum alltaf tekið beiðni alkóhólista og SÁÁ um hjálp fagnandi. Vogur var til dæmis byggður fyrir söfnunarfé. Íslenska þjóðin lagðist á eitt og ákvað að styrkja alkóhólista og fjölskyldur þeirra og fjármagna byggingu á Vogi en sjúkrahúsið var tekið í notkun fyrir þrjátíu árum. Nú biðlar SÁÁ enn og aftur til þjóðarinnar en rekstur samtak- anna hefur gengið verr eftir hrun. Þá lækkuðu fjárveitingar ríkisins til Vogs og SÁÁ og síðustu fimm ár hafa samtökin þurft að fjármagna sjálf um fimmtung af kostnaðinum við rekstur sjúkrahússins. Í fyrra nam upphæðin sem sam- tökin sjálf settu inn í reksturinn tvö hundruð milljónum og ekki þarf minna í ár en að sögn Þórarins Tyrfingssonar, yfirlæknis á Vogi, eru nú um þrjú hundruð manns á biðlista eftir meðferð. Þetta er „fólk í mikilli neyslu“, sagði Þórarinn í frétt Fréttablaðsins í gær. Í fréttinni segir enn fremur að lokanir hjá SÁÁ í sumar verði þær mestu í sögu samtakanna. Vík og Staðarfelli verður lokað frá 20. júní og fram í ágúst, auk þess sem göngudeildum í Reykjavík og á Akureyri verður lokað. Hjá SÁÁ vonast fólk eftir auknum fjárframlögum frá hinu opin- bera svo samtökin geti hafið starfsemi af fullum krafti eftir sumarlokanir. En nú um helgina biðla samtökin til okkar allra að taka vel á móti álfasölufólki og styðja við bakið á unga fólkinu sem þarf á hjálp að halda. Álfasölu SÁÁ lýkur á morgun: Meðferð er arðbær fjárfesting Mikael Torfason mikael@frettabladid.is Stjórnvöld þurfa að nýta sumarið vel til góðra verka og byggja þannig upp trú-verðugleika á framtíð þjóðar í greiðslustöðvun. Ef það gerist ekki verða aðrir að taka við keflinu.“ Þetta eru orð Þorkels Sigur- laugssonar, formanns Framtaks- sjóðs Íslands, í síðasta hefti Vís- bendingar. Að baki þeim býr þekking og löng reynsla í hjarta atvinnulífsins. Þeim verður ekki vísað á bug með tilvísunum í skammstafanir, menn úti í bæ eða óvild í garð ríkisstjórnarinnar. Fyrsta mæða ríkisstjórnar- innar kom þegar forystumenn vinnumarkaðarins lýstu því yfir í kjölfar þess að hún var mynduð að þeir gætu ekki farið beint í gerð lang- tímasamninga vegna óvissu um stjórnar- stefnuna. Margir höfðu reiknað með að fersk stjórn myndi á fyrsta degi tilkynna að ný efnahagsáætlun yrði unnin með atvinnulífinu og samtökum launafólks. Það mun þó aldrei hafa staðið til. Bjartsýni manna jókst nokkuð um áramótin eftir samþykkt fjár- laga og hófsamra skammtíma- samninga á almennum vinnumark- aði. En nú hefur hún greinilega dvínað þegar jafn orðvar maður og Þorkell Sigurlaugsson segir að þetta sumar verði að nota til að móta trúverðuga efnahagsstefnu. Ugglaust munu ýmsir hafa meiri blíðmæli á vörum á ársafmæli ríkis stjórnarinnar en ekki er víst að í þeim felist betri hollráð. Pólitíski vandinn leysist hins vegar ekki með því að aðrir taki við keflinu. Hafi ríkisstjórninni mistekist að byggja upp trú á skýra framtíðarsýn fer því víðs fjarri að fyrrverandi stjórnar- flokkum hafi lánast að nota stjórn- arandstöðuna til að ávinna sér slíkt traust á ný. Heilræði Efnahags- og framfarastofn-unin, OECD, birti umsögn um íslensk efnahagsmál í vik- unni. Hagvaxtartölurnar eru hag- stæðar. En hinu má ekki gleyma að það var líka góður hagvöxtur fyrir hrun. Verkurinn var að hann byggði meir á eyðslu en sköpun verðmæta. Menn þurfa að gæta sín að loka ekki aftur augunum fyrir því hvernig hagvöxturinn verður til. Umsögn Efnahags- og framfara- stofnunarinnar um Írland, sem birt- ist samtímis, er ekki síður athyglis- verð. Hagvöxtur þar er að vísu lítið eitt lægri en hér en virðist aftur á móti reistur á traustari undir- stöðum. Meðan hátæknifyrirtækin og nýsköpunarfyrirtækin leita frá Íslandi er Írland talið í góðri stöðu til að draga til sín erlenda fjárfest- ingu í þessum greinum. Efnahagspólitík ríkisstjórnar- innar hefur byggst á þeirri trú að krónan hafi gefið Íslandi öfl- ugri viðspyrnu en nokkurt annað kreppuríki í Evrópu hafi. Umsögn Efnahags- og framfarastofnun- arinnar bendir ekki til að svo sé. Þvert á móti gæti evruríki eins og Írland hugsanlega hafa náð betri fótfestu við endurreisn efnahags- ins. Þá herma fréttir að fjárfestar virðist jafnvel hafa meiri áhuga á Grikklandi. Í þessu ljósi og með skírskotun til þeirra efasemda sem hér hefur verið vitnað til um trúverðugleika efnahagsstefnunnar gæti verið til- efni fyrir ríkisstjórnina að hugsa stöðuna í gjaldmiðilsmálum upp á nýtt. Það væri einnig í góðu sam- ræmi við landsfundarályktun Sjálf- stæðisflokksins um þau efni þar sem fram komu efasemdir um að krónan dygði til frambúðar og for- ystu flokksins var falið að kanna aðra kosti í þeim efnum. Þetta gæti vissulega orðið nokkur þol- raun fyrir stjórnarsamstarfið. En stundum er slíkt óhjákvæmilegt bæði út frá pólitískum og efnahags- legum sjónarmiðum. Ágæt umsögn OECD Þungamiðjan í starfi ríkis-stjórnarinnar hefur verið loforð Framsóknarflokks- ins um mestu niðurgreiðslu hús- næðis skulda í heimi. Önnur mark- mið hafa vikið fyrir því. Trúlega er þetta helsta fótakefli stjórn- arinnar. Fyrir vikið hefur trú- verðugleiki efnahagsstefn unnar veikst og vonir dvínað um stöðug- leika og hagvöxt, sem byggir á raunverulegri verðmætasköpun og aukinni framleiðni. Það var með réttu talið forystu Sjálfstæðisflokksins til tekna að hafa heflað loforðið niður um helming. En það breytir ekki því að í raun var ekki til sáttaflötur milli þessa heimsmets í popúl- isma og ábyrgrar efnahagsstefnu. Hálf aðgerðin var einnig heims- met og of stórt frávik. Þó að ríkisstjórnin geti um margt verið sátt við umsögn Efnahags- og framfarastofnunar- innar er þar að finna alvarlegar aðvaranir. Tæpitungulaust er til að mynda talað um líkur á vaxta- hækkun. Hún er að hluta afleið- ing þessara misráðnu aðgerða og kemur með fullum þunga í bakið á skuldugum heimilum. Upplýst var í vikunni að vandi Íbúðalánasjóðs mun stóraukast vegna heimsmets- ins og leggjast á ríkissjóð. Það lýsir siðferðilegri brotalöm þegar ekki er hægt að hefjast handa við byggingu nýs Landspítala. Margt bendir því til að Sjálf- stæðisflokkurinn hafi keypt sam- starfið við Framsókn of dýru verði og þurfi af þeim sökum að sæta því að takmarkaðri árangur náist á öðrum sviðum en vænst var. Fótakefl ið
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.