Fréttablaðið - 10.05.2014, Qupperneq 18
Á PLÖTUNA
THIS IS
ICELANDIC
INDIE MUSIC VOL.
2 sem var að koma
út. Inniheldur meðal
annars lög frá Mammút, Mono Town
og Vök.
Glas af þessum græna drykk bragðast
eins og piparmyntusúkkulaði.
2 bollar af spínati
½ banana, má vera frosinn
¼ avokadó
¼ bolli af ferskri myntu
1 tsk. af hreinni vanillu
1 steinlaus daðla
Klípa af sjávarsalti
1 bolli af möndlumjólk
30 gr af 70% dökku súkkulaði
Settu allt hráefnið saman í blandara
nema súkkulaðið og láttu blandast
vel saman. Settu smávegis af
súkkulaðinu saman við og láttu
hrærast meira.
Helltu í glas og settu afganginn
af súkkulaðinu ofan á til að toppa
þetta. Heimild: Heilsutorg.is
DÆGRADVÖL
BENEDIKTS
GRÖNDAL
sem er ein rómaðasta
sjálfsævisaga ís-
lenskra bókmennta
og var nýlega
endurútgefin í kilju.
Á OPNUN SÝNINGARINNAR
ÁSMUNDUR SVEINSSON–
MEISTARAHENDUR
í Ásmundarsafni í dag klukkan 16.
HELGIN
10. maí 2014 LAUGARDAGUR10. maí 2014 LAUGARDAGUR
FARÐU
HLUSTAÐU
LESTU
HORFÐU...
Ólafur Örn Ólafsson,
vínþjónn
Missir sig úr spenningi
„Ég ætla að setja upp mat-
jurtagarð í vörubretti á svalirnar,
missa mig úr spenningi yfir
Pollapönki og leika við fjöl-
skylduna.“
Friðrika Hjördís Geirsdóttir,
dagskrárgerðarkona og sjónvarpskokkur
Íþróttahelgi fram undan
„Þetta verður íþróttahelgi í meira lagi. Á laugardaginn ætla
ég að freistast til að fara í kajakferð ef veður leyfir. Svo ætla
ég að hjóla Hvalfjörðinn á sunnudaginn með Cyclothon-liði
Stöðvar 2.“
Valgerður Guðnadóttir,
leik- og söngkona
Frumraun í sushi-gerð
„Í kvöld skelli ég mér í Euro-
vision- partí þar sem ég mun
þreyta frumraun í sushi-gerð og
hvetja Pollapönkara til dáða í
gríð og erg.
Gunnar Helgason,
rithöfundur og leikari
Fagnar sigri Pollapönks
„Ég ætla að reyna að lappa
upp á ónýtan skúr sem ég á
áður en ég sest við Eurovision.
Sunnudagurinn fer í að fagna
sigri Pollapönks.“
Sumardrykkur
Á MYNDINA THE OTHER
WOMAN Í BÍÓ. Það verður
líklega nóg af auðum sætum
í kvöld milli kl. 19 og 22 á meðan
Eurovision er í sjónvarpinu.
Sjö stig frá Rússum
Samkvæmt alþjóðlegri OGAE- könnun
sem var gerð meðal aðdáenda
Eurovision í Evrópu áður en undan-
keppnin hófst átti Ísland að lenda í
31. sæti. Fengum við aðeins sjö stig
í könnuninni– og það frá Rússlandi.
Samkvæmt þessu hefði Pollapönk
ekki komist upp úr undankeppninni.
Líkurnar hafa skánað til muna
Pollapönk átti ekki að komast
upp úr undankeppninni ef marka
má líkurnar hjá hinum ýmsu
veðbönkum fyrir hana. Þegar tölur
helstu veðbanka voru teknar saman
áður en Eurovision hófst, þar á
meðal Bet365, Ladbrokes og Betfair,
voru líkur Pollapönks nánast engar
og þeir sem hefðu veðjað á að þeir
myndu vinna Eurovision-keppnina
hefðu getað allt að 400-faldað
peninginn. Samkvæmt sömu veð-
bankaspám í gær hafa líkurnar
aldeilis breyst. Nú geta þeir sem
veðja á Ísland til sigurs aðeins um
200-faldað peninginn og er talið
líklegt að Ísland lendi í 18. sæti af
þeim 26 löndum sem keppa.
Blaðamenn höfðu enga trú
Hefð er fyrir því að blaðamenn
alls staðar að sem koma saman á
Eurovision spái á ári hverju hvaða
lönd komist upp úr undanriðlunum.
Samkvæmt þeirri spá átti Ísland
ekki að komast í úrslit en löndin
sem blaðamenn tippuðu á voru
Ungverjaland, Svíþjóð, Armenía,
Úkraína, Aserbaídsjan, Rússland,
Eistland, Svartfjallaland, Holland og
Belgía. Það voru hins vegar Ísland
og San Marínó sem komust áfram í
stað Belgíu og Eistlands.
Afskrifaðir af Evrópu
en gáfust ekki upp
Pollapönkarar keppa fyrir Íslands hönd í Eurovision í kvöld. Fáir bjuggust við
því að Pollapönkarar kæmust svona langt en þeir létu ekki deigan síga.
Öll lögin, eins og þau voru flutt á báðum
undanúrslitakvöldunum, eru hýst á Youtube-rás
Eurovision-keppninnar.
RÚSSAR VINSÆLIR Á YOUTUBE
Mint Twist hefur tekið saman vinsældir Eurovision-
keppendanna ef litið er til netheima. Hér má sjá hve oft
hefur verið leitað að einstökum keppendum á Google.
NETHEIMAR ELSKA MOLLY
Google leit fjöldi
496.000
336.000
289.000
274.000
273.000
258.000
232.000
226.000
163.000
157.000
Bretland
Finnland
Svíþjóð
Armenía
Þýskaland
Spánn
Hvíta-Rússland
Ítalía
Holland
Makedónía
Hve oft hefur verið horft
Ef maður vill losna
við að óboðnir
kettir komi inn
í garðinn er
ráð að dreifa
appelsínu-
berki gróft yfir
blómabeðin.
Kettir þola illa
lyktina af berkinum.
Vissir þú þetta
um appelsínur?
2003 Hreiðar Örn
Kristjánsson og Haraldur
Freyr Gíslason taka þátt í
undankeppni Eurovision
með lagið Eurovísa
með hljómsveitinni
Botnleðju. Hljómsveitin
lýtur í lægra haldi fyrir
Birgittu Haukdal.
2013
27. DESEMBER
Haraldur segir í samtali
við Fréttablaðið að eftir
tapið 2003 hafi með-
limir sveitarinnar lagt á
ráðin um að taka aftur
þátt og sigra að tíu árum
liðnum. „Nú náum við til
svo margra. Við höfum
náttúrulega líka gömlu
aðdáendur Botnleðju.
Þeir hafa ekki fyrirgefið
neitt.“
2014
8. FEBRÚAR
Pollapönk keppir í
undankeppni Eurovision
og kemst í úrslit.
15. FEBRÚAR
Pollapönk ber sigur úr
býtum í undankeppninni
og er á leiðinni til Kaup-
mannahafnar.
15. MARS
Myndband við lagið er
frumsýnt. Búið er að
horfa á myndbandið
tæplega fjögur hundruð
þúsund sinnum.
6. MAÍ
Pollapönk stígur á
svið á fyrra undanúr-
slitakvöldi Eurovision í
B&W-höllinni í Kaup-
mannahöfn. Lagið Enga
fordóma kemst áfram
í úrslitakeppnina og að
sjálfsögðu er Ísland lesið
upp síðast af þeim tíu
löndum sem komast
áfram.
10. MAÍ
Pollapönk keppir í
úrslitum Eurovision. Fara
þeir þvert á allar spár
enn á ný?
➜ Pollapönkarar verða fjórðu
á svið í kvöld.
➜ Öll sigurlög síðan árið
2004 hafa verið eitt af tíu
síðustu lögunum til að hljóma
í keppninni.
➜ Ef litið er á meðaltal
síðustu fimm ára hefur sigur-
vegarinn komið á svið nítjándi
í röðinni.
NIÐURRÖÐUNIN
VINNUR EKKI
MEÐ OKKUR
Nr.4
HVORKI VEÐBANKAR NÉ SPÁR HITTU NAGLANN Á HÖFUÐIÐ
RÚSSLAND
Tolmachevy Sisters
ARMENÍA
Aram MP3
HOLLAND
The Common Linnets
AUSTURRÍKI
Conchita Wurst
SVÍÞJÓÐ
Sanna Nielsen
ÚKRAÍNA
Mariya Yaremchuk
SVARTFJALLALAND
Sergej Cetkovic
UNGVERJALAND
András Kállay-Saunders
PÓLLAND
Donatan & Cleo
ÍSLAND
Pollapönk
390.000
194.000
190.000
91.000
123.000
152.000
154.000
177.000
248.000
530.000