Fréttablaðið - 10.05.2014, Page 24

Fréttablaðið - 10.05.2014, Page 24
10. maí 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 24 Ég vil ekki fara neitt nánar út í upphaflegu söguna, það eiga allar fjölskyldur fjölskylduleyndarmál og við erum einmitt að velta því upp í myndinni hvernig þöggun innan fjölskyldna virkar og hvað hún getur verið öflug og ógeðsleg.“ Friðrika Benónýsdóttir fridrikab@frettabladid.is BALDVIN Z „Ég byrjaði að skrifa sögur um það leyti sem mamma veiktist og þegar ég fattaði kvikmyndaformatið varð ég alveg heillaður og fór að prufa mig áfram í því.“ FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Daginn eftir forsýn-ingu á Vonarstræti viðurkennir Baldvin að hann sé eiginlega alveg tómur, en um leið hamingjusamur og þakklátur, enda hafi viðtök- urnar við myndinni farið fram úr hans björtustu vonum. „Ég er í allan dag búinn að vera að reyna að setja status á Facebook til að þakka fyrir mig. Búinn að skrifa hann fjórum sinnum en ég get bara ekki komið því nógu sterkt að hvað ég er þakklátur og ánægður svo ég hef ekki birt hann.“ Baldvin lítur á klukkuna um leið og hann talar því hann er á dálítilli hraðferð þar sem hann þarf að sækja eitt barnanna sinna í skólann, eins gott að ég komi mér að efninu. Ég byrja á að spyrja hann um bakgrunn hans, að gömlum íslenskum sið. „Ég er fæddur og uppalinn á Akureyri og bjó þar fyrstu 26 ár ævinnar. Þá flutti ég til Dan- merkur með Heiðu konu minni og tveimur börnum og úti eign- uðumst við eitt barn í viðbót. Meiningin var að fara í skóla en fljótlega eftir að ég kom út fór ég að vinna við auglýsingagerð á meðan ég undirbjó umsókn í danska kvikmyndaskólann ári seinna. Meðan ég beið eftir að umsóknarferlið hæfist sótti ég alls konar kúrsa í kvikmynda- gerð. Þegar ég loks gat sótt um skólann fékk ég ekki inngöngu og fór í óendanlega mikla fýlu.“ Fjölskyldan hafði lagt mikið á sig til að draumur Baldvins um danska kvikmyndaskólann gæti orðið að veruleika en þetta var á tímum góðærisins og þegar honum bauðst vinna hjá íslensku framleiðslufyrirtæki tóku þau sig upp og fluttu aftur heim í árs- byrjun 2008. Það ævintýri entist í sex mánuði, fram að hruni, en þá var fyrirtækið farið á hausinn og Baldvin stóð uppi atvinnulaus. „Að sjálfsögðu vildi ekkert fyrir- tæki ráða nýjan leikstjóra inn á þessum tímapunkti svo ég var bara í því að mæla göturnar.“ Á hóteli með Hoffman Baldvin segist hafa verið ákveð- inn í því að vinna við kvik myndir frá 11 ára aldri og árið 2005 byrjaði hann að senda handrit til framleiðslufyrirtækja til að reyna að koma sér á framfæri en fékk aldrei nokkur viðbrögð. „Það var ekki fyrr en Júlíus Kemp og Ingvar Þórðarson fengu handrit að stuttmynd sem eitt- hvað fór að gerast. Ég hafði gef- ist upp á því að byrja tölvupósta á einhverri kynningu á sjálfum mér og sendi Júlíusi bara tölvu- póst með handritinu, þannig að ef hann yfirhöfuð byrjaði að lesa póstinn væri hann kominn inn í handritið. Það virkaði og ég fékk svar frá honum strax daginn eftir með tilboði um samvinnu.“ Björninn var þó ekki þar með unninn því Kvikmynda sjóður neitaði að styrkja verkefnið og það var ekki fyrr en þremur árum seinna sem Baldvin fékk styrk til að gera stuttmyndina Hótel Jörð. „Það er bara pínulítil sjö mínútna stuttmynd en hún fór á fullt af hátíðum og gekk ágæt- lega og upp úr því varð til hug- myndin að Óróa.“ Órói er byggð á unglinga sögum Ingibjargar Reynisdóttur og þau Baldvin skrifuðu handritið í sam- einingu. Myndin fékk góðar við- tökur, hefur verið sýnd á 65 kvik- myndahátíðum víða um heim og hlotið verðlaun og viður kenn- ingar. Baldvin segir það merki- lega upplifun að sækja kvik- myndahátíðir sem leikstjóri. „Ég hef farið nokkrum sinnum og lifað eins og kóngur í nokkra daga, sem er mjög gaman. Það er stjanað alveg vandræðalega mikið við mann á þessum hátíðum, en þetta er skemmtilegt og maður kynnist ólíklegasta fólki. Er allt í einu bara kominn á hótel með Phi- lip Seymour Hoffman sem er að keppa í sömu kategoríu og ég með sína fyrstu og einu leikstjórnar- mynd. Þetta er hálfóraunveru- legt og maður lendir í alls konar skemmtilegum ævintýrum.“ Upptekinn af því mannlega Fyrsta myndin sem Baldvin gerði, ellefu ára gamall, var undir áhrifum frá Twin Peaks sem hann segist hafa heillast gjörsamlega af. Sú mynd hét Hraundrangar og var ævintýra- mynd með dvergum og risum, ansi ólík því sem hann er að gera í dag. Hann viðurkennir að hríf- ast af þannig myndum, segist til dæmis vera mikill aðdáandi Game of Thrones, en það sé óra- langt frá honum að gera slíkar myndir sjálfur. „Ég er voðalega upptekinn af því mannlega í fólki og hvað það er sem fær það til að akta eins og það gerir.“ Sú áhersla er í forgrunni í Vonarstræti sem Baldvin skrif- aði handritið að ásamt Birgi Erni Steinarssyni, Bigga í Maus. Í myndinni eru sagðar sögur þriggja ólíkra einstaklinga sem síðan samtvinnast. Baldvin segir hugmyndina að hlutverki rithöf- undarins sem eitt sinn var stór- stjarna en hefur verið fylliraft- ur í tuttugu ár hafa komið fyrst og upphaflega átt að vera uppi- staðan í heilli mynd. „Ég hef alltaf verið heillaður af „hinu fólkinu“. Á Akureyri eru margir ógæfumenn þekktir í bænum og eiga sér sérstök nöfn: „Jón hlaup- ari“ og „Sjallaskrímslið“ og ég veit ekki hvað og hvað. Ég gerði sjónvarpsseríu þegar ég var að vinna á Aksjón á Akureyri þar sem ég fór og heimsótti þetta fólk og tók viðtöl við það. Þá sá ég að allir áttu miklu meiri og dýpri sögu. Sögu sem mig langaði að segja í bíómynd.“ Hugmyndin um sögu útrásar- víkingsins í myndinni fæddist hins vegar á einum degi. „18. mars 2008 var ég afmælisbarn dagsins í DV og líka Jón Sig- urðsson, forstjóri FL-Group. Við erum jafngamlir upp á dag. Það fannst mér merkilegt og ég fór að fylgjast með þessum gæja. Svo kom hrunið og allir fóru að tala illa um þessa menn en ég horfði alltaf á þennan strák og sá ekkert illmenni í honum. Ég undirstrika þó að það er nákvæmlega ekkert um hann sem slíkan í myndinni, hann er engin fyrirmynd að kar- akternum. Ég er alveg viss um að þetta er góður strákur og líka að ég hefði gert allt eins og hann hefði ég fengið tækifæri til þess. Það fannst mér vera vinkill á sögu.“ Þriðji aðalkarakterinn í Vonar- stræti er einstæð móðir sem stundar vændi til að eiga í sig og á. Um fyrirmynd þess kar- akters vill Baldvin lítið segja. „Það er gömul saga úr minni ætt sem liggur að baki hennar sögu. Mig hafði oft langað til að fjalla um það mál og sá tækifæri til að flétta hana inn í framvinduna í Vonarstræti. Ég vil ekki fara neitt nánar út í upphaflegu sög- una, það eiga allar fjöls kyldur fjölskylduleyndarmál og við erum einmitt að velta því upp í myndinni hvernig þöggun innan fjölskyldna virkar og hvað hún getur verið öflug og ógeðsleg.“ Kvaddi ekki móður sína Spurður hvers vegna þeir sem verða undir í lífinu höfði svona sterkt til hans, hvort hann hafi reynslu af því sjálfur að vera í þeirri stöðu, segir Baldvin svo alls ekki vera. Það sé þó eitt atriði sem hafi markað djúp spor í æsku hans og hann sé enn að vinna úr. „Mamma dó þegar ég var þrettán ára og það hafði vissulega alveg gríðarleg áhrif á mig. Síðustu dagana áður en hún dó flúði ég til að þurfa ekki að hitta hana. Það var leitað að mér út um allt til að fá mig til að kveðja hana og loksins lét ég til leiðast að fara til hennar. En ég kvaddi hana samt ekki. Hún kvaddi mig, reisti sig upp úr rúm- inu í síðasta sinn til að taka utan um mig, en ég sagði ekki neitt. Ég hef séð alveg rosalega eftir því alla tíð síðan og ómeðvitað hef ég tileinkað mér það lífsviðhorf að ég ætla aldrei aftur að sjá eftir neinu í lífinu. Þannig nálgast ég hlutina í dag, ég verð að gera allt sem ég vil gera og ég verð að hafa gaman af því.“ Baldvin viðurkennir að enn þann dag í dag sé hann ekki búinn að gera sér fulla grein fyrir því hversu mikil áhrif dauði móður hans hafði á hann. Spurður hvort hann hafi þá flúið inn í sagnaheim kvikmyndanna til að forðast sársaukann segir hann að það geti vel verið. „Ég byrjaði að skrifa sögur um það leyti sem mamma veiktist og þegar ég fattaði kvikmyndaform- atið varð ég alveg heillaður og fór að prufa mig áfram í því. Senni- lega hefur þetta verið einhvers konar flótti því þegar mér leið sem verst þá var ég tilbúinn með annan heim til hliðar þar sem ég var önnur manneskja. Ég fór inn í hann og byrjaði að leika díalóga og tala við sjálfan mig og skapa mér nýjan veruleika. Þetta gerði ég langt fram eftir unglingsaldr- inum, alveg þangað til ég fattaði að allir myndu álíta mig geð- veikan ef þeir sæju til mín.“ Ljótasti hluti íslensks þjóðlífs Unglingar í vandræðum með líf sitt verða í forgrunni í næstu kvikmynd Baldvins, sem hann skrifar handritið að ásamt Bigga í Maus, og hann segir hana fjalla um allra ljótasta hluta íslensks þjóðlífs. „Við köllum verkefnið Contalgen-börnin og umfjöllunar- efnið er krakkar sem eru komir ansi langt í eiturlyfjaneyslu. Það er alveg hræðilega ljótur heimur. Við fengum Jóhannes Kr. Kristjánsson í lið með okkur til að kynna okkur þennan heim og koma okkur í sambönd og uppgötvuðum til dæmis að það fer fram mansal á unglingum á Íslandi og það virðist öllum vera sama. Við þurfum bara að finna smekklegan farveg fyrir söguna svo hún hafi réttu áhrifin.“ Þótt Baldvin hafi hlotið mikið hrós fyrir myndir sínar og sé hálfklökkur yfir viðtökum Vonar strætis segir hann þó eitt hrós standa upp úr og að það hafi ekki tengst kvikmyndum á nokkurn hátt. „Þegar ég var unglingur spilaði ég á trommur í rokkhljómsveitinni Toy Mach- ine sem var mjög skemmti- legt. Við spiluðum til dæmis á fyrstu Airwaves-hátíðinni og fórum til New York og spiluðum. Í New York fékk ég fallegasta hrós sem ég hef nokkurn tíma fengið. Við vorum að gera sánd- tékk, ég var að tromma og það stóðu þrír götumenn við dyrnar og hlustuðu. Þá labbaði að mér svartur maður með bréfpoka, alveg staðalímynd hins heim- ilislausa manns í New York, og sagði: „Hey you, white man with a beat,“ og gaf mér þumal. Það hrós mun aldrei verða toppað.“ Flúði sársauka inn í hliðarheim Kvikmyndin Vonarstræti var frumsýnd í vikunni og vakti einróma hrifningu. Leikstjórinn Baldvin Z segist hálfklökkur yfir viðtökunum. Hrós um myndir hans er þó ekkert nýtt, kvikmynd hans Órói hefur vakið hrifningu víða um heim og Baldvin er kominn í hóp okkar virtustu leikstjóra. Allt byrjaði þetta í huga unglings sem þurfti að takast á við dauða móður sinnar.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.