Fréttablaðið - 10.05.2014, Side 38
10. maí 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN KRAKKAR | 38
Er Frozen uppáhaldsbíómyndin
þín? Ég elska Lego Movie og Rio
2. Ég er búin að horfa svo oft á
Frozen núna að ég er aðeins að
hvíla mig á henni.
Hvað hefurðu séð hana oft?
Kannski átta sinnum, eða sjö
eða níu – eða, ég bara er
ekki viss.
Hvað finnst þér
best við hana?
Lögin.
Hver af pers-
ónunum er í
mestu uppá-
haldi?
Snjókarlinn
Ólafur.
Finnst þér
Elsa og Anna
vera eðlileg-
ar stelpur?
Nei, alls ekki.
Elsa frystir allt.
Enginn venjuleg-
ur getur gert það!
Og Anna er prins-
essa.
Hvort er Frozen meira sorg-
leg eða fyndin mynd? Meira
fyndin, af því að Óli er alltaf að
segja og gera eitthvað fyndið.
Hefurðu lesið söguna um
Snædrottninguna sem
myndin er byggð á? Nei,
reyndar ekki.
Værir þú til í að lesa hana? Tja,
kannski.
Hvernig finnst þér tónlistin í
myndinni? Æðisleg. Ég kann öll
lögin, nema sumarlagið hans
Óla.
Hvað er skemmtilegasta lagið?
Let it Go. (Þetta er nóg,
í íslenskri þýðingu.)
Finnst þér skemmti-
legra að horfa á
teiknimyndir en leiknar
myndir? Teiknimyndir, held
ég. Allar bestu myndirnar mínar
í dag eru teiknimyndir.
Ef þú ættir að gefa Frozen
stjörnur frá 1-5, hvað gæfirðu
henni margar? Fjórar ****
Geturðu fært rök fyrir því í
þremur setningum af hverju
krakkar ættu að horfa á Froz-
en? Krakkar ættu að horfa
á Frozen af því að hún er
skemmtileg! Mér finnst hræði-
legt að Elsa læsir sig inni, en
það er bara af því að hún elskar
Önnu og vill ekki meiða hana.
Mér finnst gott að Anna hætti
aldrei að elska Elsu, þó að Elsa
láti eins og hún vilji ekki vera
vinkona Önnu. Við eigum að
elska systkinin okkar, sama
hvað! Ég ætla alltaf að elska
Jökul, litla bróður minn!
Brandarar
Krakkarýni: Frozen
Teikningar og texti: Bragi Halldórsson
95
„Og þetta er hvaða vitleysa?“ sagði Kata. „Svona þrautir gera mig bara ringlaða. Litir og
form, af hverju er ekki frekar hægt að nota fótbolta og tennisspaða?“ bætti hún við.
Lísaloppa las leiðbeiningarnar. “Staðsettu öll sextán táknin á reitaða borðið við hliðina á
þeim þannig að engin tvö form né litir séu eins í neinni röð hvorki lóðréttri né láréttri.“
Róbert þagði. Þetta var ekki hans sterkasta hlið en Lísaloppa og Konráð hófust strax
handa við að glíma við þrautina.
Getur þú leyst þessa þraut? Best er að klippa út öll formin og raða þeim á reitaborðið til
að prófa þig áfram þangað til þú hefur leyst þrautina.
Fyndin teiknimynd
með æðislegri tónlist
Magnea Sindradóttir, 7 ára nemandi í Grundaskóla á Akranesi
SKEMMTILEG
MYND Ólafur snjókarl
er uppáhaldspersóna
Magneu í teiknimynd-
inni Frozen. MYND/ALDÍS
PÁLS
Hvernig veistu að fíll hefur verið í ísskápnum?
Það eru fótspor í smjörinu.
Læknir! Mér finnst eins og ég sé ísskápur!
Byrjaðu á að loka munninum. Ljósið skín svo í augun á mér.
Hvað er það sem ég á og þú notar eins og þér sýnist?
Nafnið mitt.
Af hverju skilaði Hafnfirðingurinn bindinu aftur í búðina?
Það var of þröngt um hálsinn.
Mamma: Af hverju setur þú bangsann þinn inn í frysti?
Halli: Af því mig langar í ísbjörn.
HALLA ELÍSABET, 6
ÁRA, Í LEIKSKÓLANUM
SKERJAGARÐI Þetta er
Anna prinsessa í Frozen
að syngja til Elsu systur
sinnar og biðja hana um
að koma út að leika.
TÓNMENNTASKÓLI REYKJAVÍKUR
Innritun nýrra nemenda fyrir skólaárið 2014-2015
Stendur yfir núna á vorönn og lýkur í maí.
Innritaðir eru nemendur á aldrinum 8-10 ára sem eru teknir beint í
hljóðfæranám, án undangengins forskólanáms.
Hægt er að komast að á eftirfarandi hljóðfæri:
• Strengjahljóðfæri, þ.e. fiðlu, víólu, selló og gítar.
• Einnig á píanó og harmóníku.
• Einnig er innritað í fiðluforskóla (5-6 ára börn)
• Einnig er til takmarkað pláss á þverflautu, klarinett og saxófón
• Teknir eru inn nokkrir nemendur fædda 2008 (6ára) í Forskóla I
ATHUGIÐ AÐ FRAMBOÐ Á SKÓLAVIST ER TAKMARKAÐ.
Skrifstofa skólans á Lindargötu 51 er opin frá kl. 13:00-16:00 virka daga.
Síminn er 562-8477.
Það skal tekið fram að nauðsynlegt er fyrst að skrá nemendur í skólann
með því að hafa samband við skrifstofuna.
Til að tryggja endanlega að innritunin sé frágengin er nauðsynlegt að
innrita nemandann einnig í Rafræna Reykjavík á heimasíðunum
www.reykjavik.is eða www.grunnskolar.is á sama tíma og setja
Tónmenntaskólann í 1. val.
Skólastjóri