Fréttablaðið - 10.05.2014, Page 90

Fréttablaðið - 10.05.2014, Page 90
10. maí 2014 LAUGARDAGUR| TÍMAMÓT | 46TÍMAMÓT Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@365.is. Ástkær eiginmaður minn og fósturfaðir okkar, HERMANN ÞORSTEINSSON Espigerði 2, lést 5. maí á Vífilsstöðum. Helga Rakel Stefnisdóttir Steinunn Sara Helgudóttir María Helgudóttir Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, REYNIR ÞORGRÍMSSON lést á Landakoti þann 1. maí. Hann verður jarðsunginn frá Digraneskirkju þriðjudaginn 13. maí kl. 13.00. Rósa Guðbjörg Gísladóttir Einar Örn Reynisson Ása Sóley Hannesdóttir Ingibjörg Reynisdóttir Ólafur Tryggvason Ragnar Már Reynisson María Gomez og barnabörn. Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, amma og langamma, SÓLVEIG MARÍA BJÖRNSDÓTTIR lést á Landspítalanum við Hringbraut laugardaginn 26. apríl. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 13. maí kl. 15.00. Sigurður Hólm Guðmundsson Helga Rós Sigurðardóttir Björn Guðgeir Sigurðsson María Hlín Sigurðardóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GÍSLI SIGURJÓN SIGURÐSSON húsasmíðameistari, Smáraflöt 15, Akranesi, sem lést miðvikudaginn 23. apríl, verður jarðsunginn frá Akraneskirkju miðvikudaginn 14. maí kl. 14.00. Þráinn Elías Gíslason María S. Sigurðardóttir Gunnar Valur Gíslason Hervör Poulsen Jón Bjarni Gíslason María Kristinsdóttir Sigurlaug Gísladóttir Guðmundur Gíslason Guðrún Sigríður Gísladóttir Guðmundur S. Jónsson barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug vegna fráfalls GUÐRÚNAR ÓLAFSDÓTTUR frá Þórisstöðum. Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki Höfða, hjúkrunar- og dvalarheimilis, og Heilbrigðisstofnunar Vesturlands á Akranesi fyrir góða umönnun. Ólafía Ólafsdóttir Hilmar Jónasson Tómas Guðjónsson Gyða Maja Guðjónsdóttir Þuríður Óskarsdóttir Marsibil Sigurðardóttir og fjölskyldur. ➜ Samfélagsverðlaunin Klúbburinn Geysir– Fyrir að hjálpa fólki að fóta sig í lífinu á ný eftir geðræn veikindi. Ástæða tilnefningar: Klúbburinn Geysir býður velkomna þá sem eiga eða hafa átt við geðræn veikindi að stríða, til að vinna uppbyggilegt starf á jafningjagrundvelli með það að markmiði að auka samfélagslega þátttöku og efla lífsgæði. Einnig er veittur stuðningur í námi og atvinnuleit og í samstarfi við fyrirtæki boðið upp á tímabundin atvinnutækifæri á almennum vinnumark- aði. Klúbburinn Geysir á fimmtán ára starfsafmæli í haust og hefur á starfstíma sínum hjálpað fjölda fólks til betra lífs. Hjálparsími Rauða krossins– Fyrir að vera til staðar fyrir þá sem eiga erfitt og veita sálræna aðstoð og upplýsingar um úrræði í boði. Ástæða tilnefningar: Þegar mikið mæðir á og fólk hefur engan til að tala við um sín hjartans mál í trúnaði er Hjálpar- sími Rauða krossins ætíð til staðar. Hjálparsíminn hefur staðið vaktina fyrir þá sem líður illa frá árinu 2004 og eru þrautþjálfaðir sjálfboðaliðar hans alltaf á vaktinni og tilbúnir að veita sálræna aðstoð og upplýsingar um þau úrræði sem í boði eru. Á síðasta ári tók Hjálparsíminn á móti tæplega 15 þúsund símtölum. Kiwanishreyfingin– Fyrir óeigingjarnt starf í þágu samfélagsins. Ástæða tilnefningar: Kiwanishreyfingin á Íslandi fagnaði 50 ára afmæli nú í vor. Frá stofnun hafa Kiwanisklúbbarnir safnað fyrir ýmsum tækjum, fyrsta bílnum fyrir fatlaða, tækjum og sjúkrarúmum sem gefin hafa verið sjúkrahúsum, hljóðupptökutæki fyrir Blindrabókasafnið, spjaldtölvum og öðru fyrir fatlaða og reiðhjólahjálmum fyrir sex ára börn og einnig hefur K-lykillinn verið seldur til styrktar Geðhjálp svo nokkuð sé nefnt. Um þessar mundir er í gangi átak vegna stífkrampa í samvinnu við UNICEF. Tilnefningar til samfélags- verðlauna Fréttablaðsins Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins verða veitt í níunda sinn á þriðjudaginn, 13 maí. Eins og fyrr barst fj öldinn allur af uppástungum um verðuga verðlaunahafa og nú hafa eft ir- taldir verið valdir til tilnefningar í þeim fj órum fl okkum sem verðlaun eru veitt í, auk heiðursverðlaunanna sem tilkynnt verða á þriðjudag. ➜ Frá kynslóð til kynslóðar Móðurmál, samtök um tvítyngi– Fyrir að styðja við og efla móðurmáls- kunnáttu barna með íslensku sem annað mál. Ástæða tilnefningar: Rannsóknir hafa sýnt að börn sem eru tvítyngd þurfa aukna aðstoð til að eiga sömu möguleika og önnur börn í námi. Hópurinn sem stendur að þessum félags- samtökum vinnur óeigingjarnt og þarft starf en þiggur engin laun fyrir. Hópurinn stendur að kennslu einu sinni í viku í tvo klukkutíma þar sem börnum á ólíkum aldri er kennt og fá þau aðstoð til að viðhalda móðurmáli sínu. Félagið hefur starfað síðan 1994 og með hverju ári bætast við ný tungu- mál. Í dag eru níu tungumál kennd hjá félaginu. Grunn- skólar hafa sóst eftir aðstoð frá kennurum í félaginu til að koma til móts við tvítyngd börn í skólanum og hefur samvinna milli Móðurmáls og grunnskóla vaxið mikið síðustu ár. Allir kennarar sem koma að undirbúningi og kennslu eru í sjálfboðavinnu. Gunnar Vignir Guðmundsson sundkennari– Fyrir framúrskarandi sundkennslu barna, þar sem hvatning og uppbygging er höfð að leiðarljósi. Tilvitnun í tilnefningu: „Við sundlaugargestir í Vestur- bæjar laug og foreldrar sundnemenda í vesturbæ Reykja- víkur mælum eindregið með því að Gunnar Vignir sund- kennari fái verðlaun í flokknum frá kynslóð til kynslóðar. Gunnar hefur kennt sund í 30 ár og höfum við aldrei séð eins lifandi og skapandi sundkennslu. Hann er alltaf jákvæður, hvetjandi og uppbyggilegur við nemendur sína og veit nöfnin á þeim öllum fyrr og síðar. Gunnar hefur skarað fram úr og sinnt börnum af einstakri alúð og metnaði.“ Ómar Ragnarsson– Fyrir fræðslu til margra kynslóða um náttúruvernd og líf fólks um allt land. Ástæða tilnefningar: Ómar hefur frætt landsmenn um nátt- úru og sögu um áratugaskeið með ýmsum hætti, sérstaklega í gegnum sjónvarp. Nú nýverið slóst hann í för með dóttur sinni Láru Ómarsdóttur og heldur áfram að fræða áhorfendur heima í stofu um náttúruna og mannlíf á ólíkum stöðum á landinu. ÓMAR RAGNARSSON
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.