Fréttablaðið - 10.05.2014, Page 98

Fréttablaðið - 10.05.2014, Page 98
10. maí 2014 LAUGARDAGUR| MENNING | 54 Hvert íslenska bókmenntaverkið á fætur öðru er nú gefið út á arab- ísku. Réttindastofa Forlagsins er nýkomin af bókamessunni í Abu Dhabi þar sem undir ritaðir voru samningar um arabíska útgáfu á Sögunni af bláa hnett inum eftir Andra Snæ Magnason, Blóð- hófni eftir Gerði Kristnýju og Valeyrar valsinum eftir Guðmund Andra Thorsson. Réttindastofan hefur að undan- förnu samið við arabísk forlög um útgáfu á verkum ýmissa höfunda sinna. LoveStar eftir Andra Snæ Magnason kemur út á næstunni, Mýrin, Grafarþögn og Röddin eftir Arnald Indriðason hafa þegar komið út á arabísku, sem og Elsku besti pabbi og Mamma er best eftir Björk Bjarkadóttur, Gæludýrin eftir Braga Ólafsson, Svanurinn eftir Guðberg Bergs- son, Brekkukotsannáll eftir Hall- dór Laxness og Skugga-Baldur eftir Sjón. Tröllakirkja eftir Ólaf Gunnarsson er væntanleg fljót- lega, sem og Z ástarsaga eftir Vigdísi Gríms dóttur og Flateyjar- gáta eftir Viktor Arnar Ingólfs- son. Skáldsaga Einars Más Guð- mundssonar, Fótspor á himnum, kemur enn fremur út á arabísku um þessar mundir og var Einari Má af því tilefni boðið á bóka- messuna, þar sem hann ræddi verk sín og íslenskar bókmenntir. Stórsókn bókmennta í arabíska heiminum Íslenskar bókmenntir njóta síaukinna vinsælda í Mið-Austurlöndum og hafa útgefendur vart undan að skrifa undir þýðingarsamninga á arabísku. EINAR MÁR Skáldsaga Einars Más Guðmundssonar, Fótspor á himnum, kemur út á arabísku um þessar mundir og var Einari Má af því tilefni boðið á bókamessuna. MYND/RÉTTINDASTOFA FORLAGSINS Kristín Helga Gunnarsdóttir og Áslaug Jónsdóttir eru til nefndar fyrir Íslands hönd til ALMA- verðlaunanna 2015, bókmennta- verðlauna sem stofnuð voru í minningu Astrid Lindgren. Það eru IBBY á Íslandi, Upp- lýsing og Rithöfundasamband Íslands sem tilnefna íslensku höf- undana sem keppa um þessi virtu verðlaun við fjölmarga höfunda frá öllum heimshornum. Allir höfundarnir eru tilnefndir fyrir framlag sitt til barnabókmennta og barnamenningar, en Kristín Helga og Áslaug hafa báðar sent frá sér fjölda bóka og hlotið margvíslegar viðurkenningar fyrir störf sín. Verðlaunaféð nemur fimm milljónum sænskra króna svo það er eftir miklu að slægjast. Til- kynnt verður um sigurvegarann næsta vor. Sænski höfundurinn Barbro Lindgren er hand- hafi ALMA- verð- launanna í ár. Hún hefur sent frá sér fjölda bóka sem þýddar hafa verið á ýmis tungu- mál, meðal annars íslensku. Kristín Helga og Áslaug tilnefndar TÓNLIST ★★★★ ★ Sinfóníutónleikar í Hörpu Verk eftir Rakmanínoff, Mússorgskí og Brahms á tónleikum Sinfóníuhljóm- sveitar Íslands í Hörpu fimmtudaginn 9. maí. Einsöngvari: Ólafur Kjartan Sigurðarson. Stjórnandi: Vladimir Ashkenazy. Dauðinn var í aðalhlutverkinu á fyrri hluta tónleika Sinfóníunnar í Hörpu á fimmtudagskvöldið. Ekki aðeins var fyrsta atriði efnisskrár- innar Eyja hinna dauðu eftir Rak- manínoff, heldur voru líka fluttir Söngvar og dansar dauðans eftir Mússorgskí. Drunginn var í fyrir- rúmi og mér sýndist hjónum við hliðina á mér hundleiðast. Þau nenntu ekki einu sinni að klappa og voru horfin eftir hlé. En ég skemmti mér konung- lega. Vladimir Ashkenazy stjórn- aði og það hafa fáir jafngóða til- finningu fyrir rússneskri tónlist og hann. Hann var jú einn mesti píanóleikari veraldar þegar hann var yngri og upptökur hans með píanó verkum Rakmanínoffs eru með þeim bestu sem til eru. Ekki er síðri upplifunin að heyra hann stjórna slíkri sinfónískri tónlist nú. Eyja hinna dauðu er meðallangt hljómsveitarverk sem er inn- blásið af málverki eftir hinn svissneska Arnold Böcklin. Þar sést fremur myrk eyja rísa úr hafinu og bátur sem er að leggjast í vör, í honum er líkkista og hvít- klædd vera. Tón l ist i n by rjaði rólega, hún minnti helst á öldu- gjálfur. Svo æstist hún upp, tók alls konar breytingum sem Ashke- nazy útfærði þannig að það var alltaf áhugavert. Mismunandi blæ- brigði urðu til eðlilega, risu upp í magnaða hápunkta og svo tók eitt- hvað annað við. Spennan var stöð- ug, maður naut hvers augnabliks. Ashkenazy hefur einstakt lag á að segja sögu í tónum og útkoman nú var frábær. Söngvar og dansar dauðans eftir Mússorgskí voru líka magnaðir. Textinn samanstendur af fjórum ljóðum eftir Golenisjev-Kutusov sem fjalla um dauðann frá ýmsum sjónarhornum. Ólafur Kjartan Sig- urðarson var einsöngvari og var svo gott sem fullkominn í hlut- verki sínu. Ekki bara var röddin þétt, fókuseruð og barst ávallt vel yfir hljómsveitina, heldur var túlk- unin sérlega sannfærandi. Rúss- neskur framburður Ólafs var trú- verðugur og hrár en sjarmerandi söngstíllinn hentaði hinu hrjúfa tónmáli Mússorgskís ákaflega vel. Það var dásamlegt að hlýða á söng- inn þótt hann fjallaði um sorg og dauða. Eftir hlé varð stemningin gleði- legri. Fyrsta sinfónía Brahms var á dagskránni, stórt og mikið verk sem að vísu byrjar í auðheyrðri geðshræringu en endar í sigur- vímu. Einnig hér var Ashkenazy í essinu sínu. Túlkunin var blátt áfram og heiðarleg, alveg laus við tilgerð. Hljómsveitin spilaði prýði- lega, hún var samtaka og heildar- hljómurinn fallegur. Sérstaklega verður að nefna vel heppnaðan málmblásaraleik í síðasta kafl- anum rétt áður en fræga strengja- stefið byrjaði. Horn og básúnur nánast svifu í lausu lofti, það var eins og kall úr öðrum heimi frá einhverjum háleitum engla verum. Og svo opnuðust himnarnir. Hjónin sem fóru í hléinu misstu af miklu. Jónas Sen NIÐURSTAÐA: Mögnuð túlkun, snilldar einsöngur. Hrár, sjarmerandi söngur EINSÖNGVARINN „Ólafur Kjartan Sigurðarson var einsöngvari og var svo gott sem fullkominn í hlutverki sínu,“ segir Jónas Sen. MYND/HEIÐA.IS MENNING
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.