Fréttablaðið - 10.05.2014, Síða 104
10. maí 2014 LAUGARDAGUR| LÍFIÐ | 60
„Ég hef alltaf verið músíkalskur
inn við beinið og byrjaði að læra
á píanó þegar ég var lítill, um níu
ára. Ég entist ekki lengi og var í
örfá ár í klassísku námi eins og
börn fara í. Ég var ekkert sérstak-
lega spenntur fyrir því en lærði
ákveðinn grunn og gat pikkað upp
lög sem mér fannst skemmtileg,“
segir Jökull Júlíusson, söngv-
ari hljómsveitarinnar Kaleo.
Frægðar sól sveitarinnar hefur svo
sannarlega risið hátt síðustu mán-
uði en allt stefndi í að Jökull yrði
frekar fótboltamaður en tónlistar-
maður á sínum yngri árum.
„Þegar ég var í kringum sextán
ára hætti ég í fótbolta og þá tóku
aðrir hlutir við. Fram að því lifði
ég fyrir fótbolta og þá komst voða-
lega lítið annað að. Tónlistaráhug-
inn hafði kviknað aftur þegar ég
var fjórtán ára og þá lærði ég á
djasspíanó í eitt og hálft ár í FÍH.
Ég kenndi sjálfum mér á gítar og
hef hlustað rosalega mikið á tónlist
allt mitt líf,“ segir Jökull. Hann
segir föður sinn hafa verið vissan
áhrifavald í músíkinni.
„Ég á pabba mínum að þakka
gott tónlistaruppeldi. Hann kynnti
mig fyrir gullaldartónlistinni,
Bítlunum og öllu því sem hann
hlustaði á. Ég er honum þakklátur
fyrir það. Hann kenndi mér einnig
fyrstu gripin á gítarinn enda lunk-
inn gítarleikari.“
Vasapeningurinn heillaði
Eftir grunnskóla stofnaði hann
hljómsveitina Timburmenn ásamt
Davíð Antonssyni og Daníel Ægi
Kristjánssyni sem skipa hljóm-
sveitina Kaleo í dag ásamt Rubin
Pollock.
„Við Davíð og Danni vorum
saman í bekk í Varmárskóla í Mos-
fellsbæ. Við byrjuðum að spila
frumsamið efni en leiddumst svo
út í að spila meira ábreiður. Við
byrjuðum að spila á Danska barn-
um, Óliver og öðrum stöðum niðri
í bæ. Þar fengum við smá vasapen-
ing sem heillaði meira en að vera
að strögla í hinu.“
Hljómsveitin Kaleo var svo opin-
berlega stofnuð rétt fyrir tónlistar-
hátíðina Iceland Airwaves árið
2012 og bættist þá Rubin í hópinn.
„Þá ákváðum við að það væri
löngu kominn tími til að fókusera
á eigið efni. Fyrsta giggið okkar
var utan dagskrár á Airwaves og
þetta byrjaði frekar rólega. Þarna
var ég enn að spila á kassagítar
en fljótlega eftir þetta keypti ég
mér rafmagnsgítar. Þá breyttist
lagasmíðin og við komumst að því
að rokk og ról var stefnan. En við
viljum ekki vera einhæfir samt
því tónlist býður upp á fjölbreytni.
Það er svo leiðinlegt að vera alltaf
eins.“
Frægir nánast yfir nótt
Strákarnir ákváðu síðan að taka
þátt í Músíktilraunum í fyrra. Þeir
komust ekki í verðlaunasæti en í
kjölfarið var þeim boðið að spila
í þættinum Skúrnum á Rás 2. Þar
tóku þeir lagið Vor í Vaglaskógi
sem var ekki planað, það var tekið
upp og fór upptakan eins og eldur í
sinu um netheima. Stuttu síðar fór
lagið í spilun í útvarpinu og kom
þeim Kaleo-mönnum á kortið. Það
fékk gríðarlega spilun og komst til
dæmis í fyrsta sæti vinsældalista
Rásar 2.
Í nóvember í fyrra kom síðan
út fyrsta breiðskífa sveitarinnar,
Kaleo, sem hlaut lof gagnrýnenda
og hefur síminn vart stoppað hjá
meðlimum hljómsveitarinnar
síðan.
„Ég finn ekki fyrir einhverri
breytingu. Ég er alltaf með annan
fótinn í Mosfellsbæ, heima bænum,
og þekki alla fyrir. En auð vitað
kemur fyrir að einhver stoppi
mann og hefur annaðhvort eitt-
hvað jákvætt eða neikvætt að
segja. Það fylgir þessu bara og
mér finnst mjög gaman að heyra
frá fólki,“ segir Jökull.
Svarthol fyrir peninga
Allir strákarnir í sveitinni eiga
kærustur.
„Það fara mörg kvöld og helgar
í tónlistina. Þetta getur stundum
tekið á en kærastan mín sýnir mér
mikinn skilning,“ segir Jökull. „Ég
leita mikið til fjölskyldu minnar til
að fá viðbrögð við tónlistinni. Það
er fólk sem ég treysti til að gefa
hreinskilið álit. Ég myndi segja að
kærastan væri hreinskilnust sem
betur fer,“ bætir hann við á léttum
nótum.
Fjórmenningarnir í hljómsveit-
inni eru allir fæddir árið 1990 og
segir Jökull að það standi ekki til
hjá þeim að fjölga sér á næstunni.
„Við erum ekki rosalega góðir
með fjármál og stöndum ekki vel
sjálfir. Mín skoðun er að þetta
komi ef það kemur. Maður þarf
að geta séð fyrir sjálfum sér áður
en maður fer að sjá fyrir öðrum,“
bætir hann við.
„Við erum ekki ríkir, langt því
frá. Ég held að það séu mjög fáir
tónlistarmenn á Íslandi sem eru
það. Það væri draumur að geta
lifað á þessu og við höfum séð
Íslendinga gera það. Það er ekkert
ómögulegt í þessu lífi. En það
kostar mikið að reka heila hljóm-
sveit og peningarnir bara hverfa.
Við keyptum bíl sem við köllum
Lárus fyrir mánuði og hann er
eins og svarthol fyrir peninga. Á
Samfélagsstyrkir
Landsbankans
landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn
Umsóknarfrestur vegna samfélagsstyrkja er til og með mánu-
deginum 12. maí 2014. Rafrænar umsóknir og nánari upplýsingar
á landsbankinn.is.
Landsbankinn veitir 20 milljónum króna í samfélagsstyrki árið
2014 sem úthlutað verður í tvennu lagi. Samfélagsstyrkjum
er ætlað að styðja við verkefni á ýmsum sviðum, þar á meðal í
mannúðarmálum, menningu og listum, menntun, rannsóknum
og vísindum, einnig forvarna- og æskulýðsstarfi og sértækri
útgáfustarfsemi.
Lifði fyrir fótboltann áð
að tónlistarframinn tók
EKKI RÍKUR Jökull vonar að hann geti einhvern daginn lifað af tónlistinni.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Óþekktir strákar úr Mosfellsbænum sem urðu frægir yfir nótt
Langar aldrei að hætta í tónlist
Daníel Ægir Kristjánsson
Á hvaða hljóðfæri spilar þú í Kaleo? Bassa.
Uppáhaldsminning í hljómsveitinni? Það eru svo margar góðar minningar sem hafa
komið síðasta ár að það er ekki hægt að velja úr.
Fyrirmynd í tónlistinni? Erfitt að segja einhverja eina fyrirmynd, en þeir sem mér
detta helst í hug eru Led Zeppelin, Pink Floyd, Jimi Hendrix, The Beatles og Rolling
Stones.
Hvort myndirðu frekar vilja, að geta bara spilað eitt lag aftur og aftur það sem eftir
er ævinnar eða hætta í tónlist fyrir fullt og allt? Það fer allt eftir því hvaða eina lag
það væri, en mig langar aldrei að hætta í tónlist.
Hver er óstundvísastur í bandinu? Ég verð að segja Rubin Pollock en honum fer fram.
Hvaða lag er þitt „guilty pleasure“? Like a Virgin– Madonna.
Heyrði varla í mónitornum
Davíð Antonsson Crivello
Á hvaða hljóðfæri spilar þú í Kaleo? Trommur og syng bakraddir.
Uppáhaldsminning í hljómsveitinni? Get eiginlega ekki svarað þessu,
það eru svo rosalega margar góðar minningar. Ein frábær er frá verslunar-
mannahelginni á Akureyri í fyrra, þegar áhorfendurnir sungu svo hátt að ég
heyrði varla í mónitornum.
Fyrirmynd í tónlistinni? Led Zeppelin gerðu einhvern veginn allt rétt (fyrir
utan að Bonham dó allt of snemma). Hans Zimmer er líka svakalegur.
Hvort myndirðu frekar vilja, að geta bara spilað eitt lag aftur og aftur
það sem eftir er ævinnar eða hætta í tónlist fyrir fullt og allt? Örugglega
spila sama lagið, þótt það myndi líklegast enda á því að ég myndi hætta.
Hver er óstundvísastur í bandinu? Rubin á titilinn.
Hvaða lag er þitt „guilty pleasure“? Let‘s Get It Started með Black Eyed
Peas.
Hljómsveitin Kaleo skaust upp á stjörnuhimininn þegar hún setti lagið Vor í
Vaglaskógi í nýjan búning á síðasta ári. Um helgina spilar sveitin í fyrsta sinn
erlendis. Söngvarinn Jökull Júlíusson tekur frægðinni með ró og þakkar föður
sínum gott tónlistaruppeldi en hann kenndi honum einnig fyrstu gítargripin.
• Kaleo vann til þrennra verðlauna á Hlustendaverðlaununum 2014 fyrir besta
nýliða, besta söngvara og bestu plötu. Alls fékk sveitin sex tilnefningar.• Hljómsveitin var valin Mosfellingur ársins 2013.• Platan þeirra, Kaleo, fékk átta stjörnur á vefsíðunni plotudomar.com.• Horft hefur verið á myndband við lagið Vor í Vaglaskógi tæplega 260 þúsund
sinnum á YouTube.• Horft hefur verið á upptöku á laginu í Skúrnum á Rás 2 rúmlega hundrað
þúsund sinnum á YouTube.• Rúmlega átján hundruð manns eru áskrifendur að Youtube-rás sveitarinnar.• Tæplega fimm þúsund manns líkar við sveitina á Facebook.
Sigurganga Kaleo