Fréttablaðið - 10.06.2014, Page 54

Fréttablaðið - 10.06.2014, Page 54
10. júní 2014 ÞRIÐJUDAGUR| LÍFIÐ | 26 ORKA SEM ENDIST FUJITSU GÆÐARAFHLÖÐUR Fujitsu alkaline rafhlöðurnar eru öflugar, endast vel og eru auðvitað á góðu verði. Skútuvogi 1c · 104 Reykjavík · Sími 550 8500 · Fax 550 8510 · vv@vv.is · www.vv.is Fást í fjölda verslana um land allt. Dreifing á Íslandi: Stjörnurnar styðjast við áhættuleikara Margar stjörnur í Hollywood treysta sér ekki til að leika í sínum eigin áhættu- atriðum og fá sérstaka áhættuleikara til að leysa sig af. Áhættuleikararnir eru ekki aðeins lunknir í ýmsum kúnstum heldur einnig sláandi líkir stjörnunum. TVEIR MEÐ TÍKÓ Spéfuglinn Adam Sandler er hér með sínum áhættuleik- ara á setti myndarinnar Jack and Jill. NÓTT OG DAGUR Áhættuleikkona Cameron Diaz lagar búninginn hennar á setti myndarinnar Knight and Day. EINS KLÆDDAR Leikkonan Jennifer Garner mætti með sinni áhættuleik- konu, Shaunu Duggins, á Taurus- verðlaunin árið 2003. NÁ VEL SAMAN Angelina Jolie og hennar áhættuleikkona gantast á setti myndarinnar Salt. VEL GREIDDIR Brad Pitt og tvífari hans á setti myndarinnar The Counselor. SKIPTIR UM KYN Áhættuleikari Jenni- fer Lopez í myndbandi við lagið Follow the leader var karlkyns. Sítrusávextir C-vítamín í appelsínum skiptir miklu máli þegar kemur að því að halda kollageninu í gómnum í góðu standi, en að borða of mikið af sítrusávöxtum getur einnig skemmt fallegt bros. Sítrónur og lime eru sérstaklega slæm, eins safar búnir til úr sítrusávöxtum. Þeir innihalda afar mikinn sykur. • Hvað skal gera: Eftir að hafa borðað sítrusávexti eða drukkið appelsínudjús skaltu drekka stórt glas af vatni og skola munninn í leiðinni með vatni. Eftir 20 mínútur er í lagi að bursta tennurnar. Þetta má ekki liggja of lengi á tönnum því þá er glerungurinn í hættu. Og alls ekki bursta beint eftir að hafa drukkið slíkan safa eða borðað sítrusávexti, þá ertu að skemma gler- unginn. Möndlur Flestir eru óðir í möndlur, þær eru fullar af E-vítamínum og troðfullar af hollu fitunni sem okkur líkar vel og þær fylla magann vel. „Möndlur eru afar harðar undir tönn. Ef þú passar þig ekki og bítur fast niður á möndlu þá gætir þú brotið tönn,“ segir dr. Jennifer Jablow. • Hvað skal gera: Ekki kaupa poka með heilum möndlum, gríptu frekar poka með möndlum í bitum eða sneiðum. Þurrkaðir ávextir Þar sem allt vatn hefur verið kreist úr þeim eru þurrkaðir ávextir fullir af sykri og þeir eiga það til að festast á tönnunum. Þegar það gerist er hætta á bakteríusýkingum. • Hvað skal gera: Borðaðu þurrkaða ávexti heima við. Skolaðu munninn með vatni eftir að þú hefur borðað þurrkaða ávexti og burstaðu tennurnar 20 mínútum síðar. Kaffi Það er mikið magn af andoxunarefnum í kaffi, en kaffi skilur líka eftir bletti á tönnum. Þessir blettir draga að sér bakteríur. • Hvað skal gera: Það þarf ekki að drekka heilan helling á hverjum morgni til að fá þessa bletti. Það þarf bara tvo til þrjá bolla á dag. Ef þú getur ekki sleppt kaffi, prufaðu ískaffi og drekktu það í gegnum rör. Hnetusmjör Því miður getur hnetusmjör fest sig við tennurnar og þar af leiðandi áttu á hættu að fá skemmdir. • Hvað skal gera: Reyndu að finna hnetusmjör sem hefur engan við- bættan sykur. Fæðutegundir sem fara illa með tennurnar Anna Birgis á síðunni Heilsutorg fer yfi r þá fæðu sem er óholl fyrir tennurnar. Save the Children á Íslandi LÍFIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.