Fréttablaðið - 11.06.2014, Blaðsíða 4
11. júní 2014 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 4
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is,
Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is
FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is,
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
SVONA ERUM VIÐ
Different Trains
Bryndís Halla Gylfadóttir
Pétur Grétarsson, Davíð Þór Jónsson
Víkingur Heiðar Ólafsson
Mahler Chamber Soloists
14. júní. 20.00. Silfurberg.
4 DAGAR. 9 TÓNLEIKAR. 13.–16. JÚNÍ.
Kynnið ykkur magnaða dagskrá á www.reykjavikmidsummermusic.com
458 tonn af ýmsum aukaafurðum voru
soðin niður um aldamótin 2000.
Árið 2012 hafði þessi vinnsla
matvæla stóraukist og nam 6.287
tonnum hér á landi.
Heimild: Hagstofa Íslands.
AKUREYRI Eiríkur Björn Björgvinsson verð-
ur endurráðinn sem bæjarstjóri á Akur-
eyri. Þetta kemur fram í samstarfssamningi
Samfylkingar, Framsóknar og L-lista, sem
undirritaður var við menningarhúsið Hof
á Akureyri, um nýjan meirihluta flokkanna.
Framsóknarflokkurinn fær formennsku
í bæjarráði og L-listinn forseta bæjar-
stjórnar.
Allir bæjarfulltrúar nýs meirihluta skrif-
uðu undir samstarfssamninginn. Þar kemur
fram að Samfylkingin fái formennsku í
helmingi fastanefnda bæjarins. Þá hefur
Fréttablaðið heimildir fyrir því að flokkur-
inn fái einnig formennsku í Atvinnuþróunar-
félagi Eyjafjarðar sem og í Eyþingi.
Í samningnum kemur einnig fram að
áhersla verður lögð á ábyrga fjármálastjórn
bæjarins og að langtíma áætlanagerð sé lyk-
illinn að því að það takist.
Einnig er lögð áhersla á að setja aukna
fjármuni í skóla- og velferðarmál og að jafna
stöðu bæjarbúa. „Bæjarfélag sem býr yfir
fjölbreyttu atvinnulífi, góðum skólum, líf-
legri menningu, öflugu íþróttalífi er líklegt
til að laða að sér nýtt fólk og halda í þann
mannauð sem fyrir er,“ segir í samstarfs-
samningnum. - sa
Meirihlutasamstarf undirritað milli Samfylkingarinnar, Framsóknarflokks og L-lista fólksins á Akureyri
Eiríkur Björn endurráðinn bæjarstjóri
NÝR MEIRIHLUTI Bæjarfulltrúar á Akureyri skrifa
undir. FRÉTTABLAÐIÐ/SVEINN
Elísabet Margeirsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
MILT Í VEÐRI Það léttir til sunnan til í dag og má búast við 18–20°C í innsveitum en
á austanverðu landinu verður rigning og heldur svalt við sjóinn. Úrkomulaust víðast á
morgun en þykknar smám saman upp syðra á föstudag.
11°
5
m/s
14°
4
m/s
16°
3
m/s
13°
8
m/s
8-15 við
SV-
ströndina,
annars
hægari.
Strekk-
ingur
syðst
annars
3–8 m/s.
Gildistími korta er um hádegi
23°
29°
24°
25°
16°
23°
30°
22°
22°
23°
23°
25°
26°
31°
32°
30°
26°
30°
15°
2
m/s
13°
7
m/s
8°
5
m/s
9°
5
m/s
14°
4
m/s
14°
4
m/s
10°
2
m/s
17°
13°
14
12°
15°
11°
15°
16°
18°
17°
Alicante
Aþena
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
FÖSTUDAGUR
Á MORGUN
DÓMSMÁL Ákæra á hendur Sig-
urði Inga Þórðarsyni, Sigga
hakkara, verður þingfest fyrir
Héraðsdómi Reykjaness á
fimmtudag.
Sigurður er sakaður um stór-
felldan fjárdrátt, fjársvik og
þjófnað. Þýfi hans og svik eru
metin á þrjátíu milljónir króna.
Ákæruliðirnir eru átján og skipta
undirliðirnir tugum. RÚV greindi
frá málinu í gær.
Sigurður Ingi er sagður hafa
svikið út vörur og þjónustu auk
þess að hafa blekkt fólk til að
millifæra umtalsverðar upphæðir
á bankareikninga sína á fölskum
forsendum. - sks
Sakaður um þjófnað og svik:
Siggi hakkari á
leið fyrir dóm
EFNAHAGSMÁL Heildarmat fast-
eigna á Íslandi hækkar um 7,7
prósent og verður 5.396 millj-
arðar króna samkvæmt nýju fast-
eignamati fyrir árið 2015. Þetta
er talsvert meiri hækkun en í
fyrra en alls hækkar matið á 91,7
prósent eigna á landinu.
Eins og gefur að skilja þýðir
hærra fasteignamat hærri fast-
eignagjöld á næsta ári. Dæmi eru
tekin um hækkun gjalda á íbúð-
arhúsnæði í töflunni hér til hlið-
ar en gróflega má gera ráð fyrir
því að fasteignagjöld Íslendinga
muni hækka um 800 milljónir á
næsta ári. Það gerir um 6.500
krónur aukalega á hvert heimili.
Fasteignamat á landinu hækk-
ar mest í Borgarfjarðarhreppi,
eða um 14,3 prósent. Það lækk-
ar í tveimur sveitarfélögum, um
2,1 prósent í Vogum á Vatnsleysu-
strönd og um 0,2 prósent í Ísa-
fjarðarbæ. Heildarfasteignamat
á höfuðborgarsvæðinu hækkar
um 9,1 prósent.
Matið lækkar hvergi á höfuð-
borgarsvæðinu. Mest hækkar
það í Akrahverfi í Garðabæ, um
14,6 prósent, en minnst í Leirvog-
stungu í Mosfellsbæ, um 1,7 pró-
sent. Matið á miðlægum svæðum
hækkar að jafnaði meira en þeim
sem eru í jaðri höfuðborgarinn-
ar, þannig hækkar matið talsvert
meira í til dæmis Vesturbænum
og Hlíðahverfi Reykjavíkur en í
Grafarvogi.
Athygli vekur að á höfuðborg-
arsvæðinu hækkar matsverð
íbúða í fjölbýli meira en mat
íbúða í sérbýli. Utan höfuðborg-
arsvæðisins er þessu öfugt farið.
Fasteignamat á atvinnuhús-
næði hækkar um 12,4 prósent á
landinu öllu. Breytingar á mati
atvinnuhúsnæðis eru mjög mis-
munandi og stafar það fyrst og
fremst af breyttri matsaðferð
Þjóðskrár.
Ný aðferð miðar að því að
samband sé milli fasteignaverðs
atvinnuhúsnæðis og þeirra tekna
sem af húsnæðinu má hafa. Hall-
dór Halldórsson, formaður Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga,
segir að tekjur sveitarfélaganna
muni aukast um um það bil millj-
arð króna á næsta ári vegna nýju
aðferðarinnar.
Halldór segir einnig að álagn-
ing á eigendur fasteigna, sem
hækka vegna nýju matsaðferð-
arinnar, verði milduð með nýju
frumvarpi innanríkisráðherra í
haust.
„Þessu verður dreift á 2015 og
2016 og kemur ekki að fullu til
útgjalda fyrir þau fyrirtæki sem
eiga svona húsnæði fyrr en 2017,“
segir Halldór.
Nýja fasteignamatið tekur ekki
gildi fyrr en 31. desember næst-
komandi og frestur til að skila
inn athugasemdum vegna þess
er til 1. nóvember.
bjarkia@frettabladid.is
Fasteignagjöld hækka um
800 milljónir á næsta ári
Heildarmat fasteigna hækkar um 7,7 prósent samkvæmt nýju fasteignamati Þjóðskrár. Það hækkar mest í
Borgarfjarðarhreppi en lækkar í tveimur sveitarfélögum. Halldór Halldórsson, formaður Sambands
íslenskra sveitarfélaga, segir að tekjur sveitarfélaganna muni aukast um milljarð vegna nýrrar matsaðferðar.
REYKJAVÍK Á höfuðborgarsvæðinu hækkar matsverð íbúða í fjölbýli meira en mat
íbúða í sérbýli. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
BANDARÍKIN Tveir létu lífið í skot-
árás í framhaldsskóla í Troutdale
í Portland í Oregonríki í Banda-
ríkjunum í gær.
Nemandi í skólanum lést í árás-
inni. Í kjölfarið umkringdi lög-
reglan skólabygginguna. Heim-
ildarmenn CNN-fréttastofunnar
segja að maðurinn hafi skotið sig
til bana.
Nemendur lokuðust inni í bygg-
ingunni en var fylgt út eftir að
árásarmaðurinn var látinn. Þetta
er þriðja skotárásin í bandarísk-
um skóla á þessu ári. - sks, jme
Nemendur lokuðust inni:
Skotárás í skóla
í Oregonríki
ÖRUGG Móðir stúlku úr skólanum
faðmar dóttur sína eftir að hún slapp út
úr skólanum. NORDICPHOTOS/AFP
Staðsetning Fasteignagjöld
árið 2013
Nýtt fast-
eignamat
Fasteigna-
gjöld 2014
Akrahverfi
í Garðabæ
(14,6% hækkun) 104.000 45.840.000 119.184
Hlíðahverfi
í Reykjavík
(13,2% hækkun) 80.000 45.280.000 90.560
Hlíðahverfi
á Akureyri
(3,6% hækkun) 152.000 41.440.000 157.472
Rimahverfi
í Grafarvogi
(8,1% hækkun) 80.000 43.240.000 86.480
Vesturbær
Reykjavíkur
(12,5% hækkun) 80.000 45.000.000 90.000
6.500
krónur er skattahækkunin
sem lendir á hverju heimili
að meðaltali vegna hækkun-
ar á fasteignamati, en
hækkunin leggst misþungt
á fólk eft ir búsetu.