Fréttablaðið - 11.06.2014, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 11.06.2014, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 11. júní 2014 | SKOÐUN | 17 Bankahrunið 2008 og alþjóðlega efnahagskrepp- an hafa leitt til stjórnmála- viðbragða sem sumpart áttu ekki að koma á óvart. Árinni kennir illur ræð- ari, segir máltækið og það má herma á Grikki. Þeir kenna Evrópusambandinu og Myntbandalaginu um ófarir sem stafa af lélegri hagstjórn þeirra sjálfra. En útlendingahatur, eins og hjá UKIP-flokknum breska, hefur illu heilli sprottið upp þegar aðfluttum útlendingum er kennt um atvinnu- leysi. Alveg séríslensk útgáfa af stefnu- mörkun eftir Hrunið, var sá boð- skapur þeirra forseta landsins og þáverandi utanríkisráðherra, að Íslendingar ættu að setja hald sitt og traust á Alþýðulýðveldið Kína. Gerð fríverslunarsamnings við Kína, aðalstoð svokallaðrar Asíu- gáttar, átti að opna nýja viðskipta- möguleika sem skipti máli. Þetta er fjarri lagi. Sjávarafurðir og flugþjónusta, uppistaða útflutn- ings vara og þjónustu, beinist eðli- lega til nálægra hátekjumarkaða beggja vegna Atlantshafs. Þar vantar herslumuninn á fullkomið viðskiptafrelsi, sem fæst með aðild að Evrópusambandinu og þátttöku í fríverslunarsvæði þess og Banda- ríkjanna sem samið er um. Þakkarverð er sú áminning Hjör- leifs Sveinbjörnssonar, kunnáttu- manns um málefni Kína, í Frétta- blaðinu 4. júní, að fjöldamorðin á Torgi hins himneska friðar í Pek- ing fyrir 25 árum séu óuppgert voðaverk. Kínverski kommúnista- flokkurinn, allsráðandi í landinu, hefur aldrei viðurkennt þann glæp sem þá var framinn. Amnesty stað- reynir að andófsmenn hafi verið látnir sæta varðhaldi í aðdraganda tímamótanna 4. júní 1989-2014. Því fer mjög fjarri að mannrétt- indi þar nálgist það sem er frum- réttur Íslendinga og allra sem búa við lýðfrelsi. Nægir þar að benda á harða ritskoðun með fjölmiðl- um sem áróðursdeild kommún- istaflokksins hefur með höndum. Var það ekki úr þeim starfsvett- vangi sem við fengum skáldið Huang Nubo, auðmann og fjár- festi, áhugasaman sem landgreifa að Grímsstöðum? Á hinum óheppi- legasta tíma er hafin bygging sam- eiginlegrar norðurljósastofnun- ar Íslands og Kína í Norðurþingi og efnt til málþings með þeim um norðurslóðamál. Leynd virðist hvíla yfir athugunum fyrir stórhöfn og atvinnurekstur í Finnafirði. Samfallandi hagsmunir Sá tími er kominn að líta beri á Rússa og Kínverja, á ný vinaríki, sem bandamenn í lengri tíma áætl- un um yfirráð á Norðurslóðum og í framhaldinu á Norður-Atlantshafi. Af ýmsum ástæðum eru hagsmun- ir þeirra samfallandi og nýgerð- ur samningur um sölu til Kína á gríðarlegu magni rússnesks jarð- gass til 30 ára, staðfestir nána sam- vinnu. Bæði ríkin hafa þegar grip- ið til fjandsamlegra aðgerða gegn Evrópulöndum og Bandaríkjunum; í Úkraínu annars vegar og hins vegar með yfirtroðslu Kínverja í Suður-Kínahafi við Filippseyjar og Víetnam. Í Kínahafi eru Kínverjar greini- lega að kanna viðbrögð Bandaríkja- manna sem eru bundnir samningum við Japani og Filippseyinga um varnir. Eru Bandaríkjamenn svo fullsaddir af stríðsaðgerð- um eftir Írak og Afgan- istan, að þeir skeyta ekki deilum út af skerjagörð- um, smáeyjum og tengdu hafsvæði, og láti þetta afskiptalaust? Það kann að vera. Á hinn bóginn er staðreyndin sú, að Banda- ríkjamenn hafa verið seintekn- ir til stríðsaðgerða, eins og í Evr- ópustórstyrjöldum 20. aldarinnar, en höfðu þá úthald til að ná sigri. Þannig gæti yfirgangur Kínverja við grannríkin reynst þeim þau afdrifaríku mistök að hafa unnið sýndarsigra en tapað lokauppgjöri. Þetta mikla traust Íslendinga á friðarást og samstarfsvilja Kín- verja á sér að virðist helst sögulega hliðstæðu í samskiptum þeirra við Indland. Pandit Nehru, stjórnmála- leiðtogi Indverja eftir að þeir hlutu sjálfstæði, dáðist mjög að fram- gangi byltingar kommúnista í Kína. Friðarstefna (e. appeasement) var mörkuð og tekið að hampa Kína í þeirri trú að þar með yrði tryggð vinátta þjóðanna. Þessi stefna reyndist Indverjum gagnslaus. Kínverjar hafa fyrr og síðar litið á Indland sem þann eina aðila sem gæti skákað þeim í Asíu og hafa því stefnt að einangrun þeirra í suður- hluta álfunnar. Vináttusamband við Íslendinga er fyrir Kínverja tæki til mikillar stöðu áhrifa og ábata, bæði varðandi siglingaleiðina sem senn opnast um Norðausturleið- ina og nýtingu jarðefna og olíu í nágrenni við Ísland. Og hvað boðar bandalag þeirra og Rússa, sem nú eru að koma upp miklum hernaðar- mætti á svæðinu? Herstöð á Íslandi væri stóri vinningurinn en henni fylgja sem fyrr veruleg yfirráð í Norður-Atlantshafi. Íslendingar verða nú sem aldrei fyrr að sýna frumkvæði um varn- arsamstarf við Bandaríkin. Það snertir sameiginlegt varnarátak Norðurlandanna og Bandaríkjanna á norðurslóðum en þar hefur orðið sú heillavænlega þróun að Svíar og Finnar taka þátt í loftrýmisgæslu á Íslandi sem borin er uppi af banda- ríska flughernum. Kína nær og fjær UTANRÍKISMÁL Einar Benediktsson fv. sendiherra ➜ Þeir kenna Evrópusam- bandinu og Myntbanda- laginu um ófarir sem stafa af lélegri hagstjórn þeirra sjálfra. Áfram Ísland! Við sendum íslenska handboltalandsliðinu góða strauma og hvetjum stelpurnar áfram til árangurs. Samskip styðja stolt við bakið á stelpunum okkar. www.samskip.is Saman náum við árangri E N N E M M / S IA • N M 56 0 94

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.