Fréttablaðið - 11.06.2014, Blaðsíða 29

Fréttablaðið - 11.06.2014, Blaðsíða 29
 7 | 11. júní 2014 | miðvikudagur Fjármála- og efnahagsráðuneytið, ellefu hjúkrunarheimili, Lífeyris- sjóður starfsmanna ríkisins og Líf- eyrissjóður hjúkrunarfræðinga hafa undirritað samninga sem fela í sér yfi rtöku ríkisins á nær öllum lífeyrisskuldbindingum hjúkrun- arheimilanna vegna starfsmanna þeirra í B-deild LSR og LH. Þetta kemur fram í tilkynningu ráðu- neytisins. Þar segir að samningarnir séu gerðir til að koma til móts við erfi ða fjárhagsstöðu hjúkrunar- heimila sem rekin eru af sjálfs- eignarstofnunum innan Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu. Fjárhæð yfi rtekinna lífeyrisskuld- bindinga nemur tæplega sex millj- örðum króna. - fb j Ríkið semur við hjúkrunarheimili: Sex milljarð- ar yfirteknir Listkennsludeild Listaháskólans býður uppá námskeið á meistarastigi fyrir starfandi listgreina kennara og listafólk sem vill sækja sér símenntun. – Skapandi skrif – Listir og sjálfbærni – Námsefnisgerð – Listmeðferð í námi – Listir og menning – Sjúkrahússtrúður – Rödd – spuni – tjáning – Listrannsóknir I – Líkanagerð – Ukulele Allar nánari upplýsingar um námskeiðin, og umsóknareyðublað er að finna á lhi.is OPIN NÁMSKEIÐ Í LIST KENNSLU- DEILD NÁMSKEIÐ Á HAUSTÖNN 2014 SVIPMYND Haraldur Guðmundsson | haraldur@frettabladid.is „Við erum að sigla inn í ágætis sumar vertíð og það er alltaf meira að gera hjá okkur á þessum árs- tíma. Við munum bæta verulega í áætlun okkar á Grænlandi og þar verður örugglega töluverð aukning miðað við síðasta ár,“ segir Árni Gunnarsson, framkvæmdastjóri Flugfélags Íslands. „Þó það hafi orðið fækkun í inn- anlandsfluginu á undanförnum árum þá er erlendum ferðamönn- um sem fl júga með okkur alltaf að fjölga,“ bætir Árni við. Hann hefur starfað hjá flug- félaginu síðan 1999, fyrst sem sölu- og markaðsstjóri og síðan fram- kvæmdastjóri frá 2005. Árni lærði rekstrarhagfræði í háskólanum í Augsburg í Suður- Þýskalandi að loknu stúdentsprófi frá Fjölbrautaskólanum í Garðabæ. Hann bjó í samtals níu ár í Þýska- landi og starfaði þá um tíma hjá þýskum ferðaheildsala í München. Árið 1997 bauðst honum síðan starf hér heima sem hann ákvað að taka. „Þá var ég ráðinn forstöðumað- ur Icelandair Holidays sem seldi þá einfaldar pakkaferðir til Íslands og var í eigu Flugleiða. Svo var ég framkvæmdastjóri Íslandsferða í eitt og hálft ár áður en fyrirtæk- ið sameinaðist Ferðaskrifstofu Íslands,“ segir Árni. Hann segir Flugleiðir hafa átt þrjár ferða- skrifstofur á þessum tíma sem allar voru í svipuðum rekstri. „Þetta var allt sameinað í raun- inni á tveimur árum þannig að ég Starfaði hjá þýskum heildsala í München Á REYKJAVÍKURFLUGVELLI Árni lærði rekstrarhagfræði í Suður-Þýskalandi og bjó í landinu í níu ár. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Þungavigtarmaður í íslenskri ferðaþjónustu „Árni er fyrst og fremst fagmaður. Hann er þungavigtar- maður í íslenskri ferðaþjónustu og á stóran þátt í því hvernig hún hefur náð að vaxa og dafna síðustu ár. Hann nálgast alltaf viðfangsefnið með jákvæðni og á mál- efnalegan hátt. Hann er fljótur að greina aðalatriðin, er strategískur og hefur þann hæfileika að geta leitt mál til lykta með fólki og fyrir fólk á hógværan og uppbyggilegan máta. Það líkar öllum vel við Árna og sást það hvað best þegar hann lét af embætti formanns SAF á síðasta aðalfundi. Eftir lokaræðuna sína var hann hylltur vel og lengi undir standandi lófataki fundargesta.“ Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar. „Árni setur alltaf mikinn kraft í allt sem hann tekur sér fyrir hendur. Menntaskólann kláraði hann á þremur árum og vatt sér til Þýskalands í framhaldsnám. Ég held reyndar að sá skóli hafi verið honum mjög góður. Ráðdeild Þjóðverjanna kemur sér vel í rekstri á stóru fyrirtæki. Skynsemi, sann- girni og útsjónarsemi eru orð sem koma upp í hugann. Það getur þó verið erfitt að eiga rólega stund með honum vegna anna. Veiðiferðir okkar í Búðardalsá hafa verið árlegur viðburður í áratug. Árni er eini veiðimaðurinn sem ég þekki sem landað hefur 100 cm laxi á 5 feta silungastöng með 20 metra girni. Það var barátta sem við gleymum seint!“ Valgeir Vilhjálmsson, markaðsrannsóknarstjóri RÚV. fór í gegnum að vera framkvæmda- stjóri Íslandsferða og Ferðaskrif- stofu Íslands á þeim stutta tíma.“ Afi Árna var Guðmundur Jónas- son fjallabílstjóri. Móðir hans hefur ásamt systkinum sínum rekið rútu- fyrirtæki í nafni Guðmundar í ára- tugi. „Ég er því alinn upp í ferðaþjón- ustunni og hef ekki starfað við neitt annað. Mjög margir í minni fjöl- skyldu hafa unnið við atvinnugrein- ina og þá bæði í móðurættinni og föðurættinni.“ Árni er kvæntur Sigríði Bjarna- dóttur iðjuþjálfa og þau eiga þrjá stráka. Ferðalög með fjölskyld- unni eru eitt af áhugamálum hans en einnig nefnir hann stangveiði og golf. „Í ferðaþjónustunni ertu að vinna með drauma fólks. Þú ert að hjálpa fólki að upplifa drauma um frí og spennandi tíma. Það er mjög gef- andi að vinna í geira sem stuðlar að því. Þá verður allt að vera vel undir- búið því ekkert má klikka. Það er lykillinn að þessu öllu saman.“ Þriðja hvert fyrirtæki á Íslandi mun nýta sér snjalllausnir í aukn- um mæli á næstu tólf mánuðum og áttunda hvert fyrirtæki mun byrja að nýta sér snjalllausnir á næstu tólf mánuðum. Þetta kemur fram í könnun Nýherja u m á h e r s lu r stærstu fyrir- tækja landsins í upplýsingatækni. Í könnuninni kemur fram að þriðja hvert fyrirtæki mun fjár- festa meira í upplýsingatækni á næsta ári og hátt í 60 prósent munu halda sambærilegu fjárfest- ingastigi og áður. Þá kemur fram að öryggismál séu helsta áherslu- atriði forstjóra og yfi rmanna upp- lýsingatæknimála. - sój Fyrirtæki ætla sér að fjárfesta: Nýta sér upp- lýsingatækni

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.