Fréttablaðið - 11.06.2014, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 11.06.2014, Blaðsíða 22
 | 4 11. júní 2014 | miðvikudagur Vörur ORF Líftækni og dóttur- fyrirtækisins Sif Cosmetics eru nú seldar til um 30 landa. Sala á þeim skilaði fyrirtækjunum um hálfum milljarði króna í tekjur á síðasta ári og síðan þá hafa fi mm lönd bæst í hópinn. Stjórnendur samstæðunnar gera ráð fyrir 650 milljóna króna sölutekjum á þessu ári. Gangi áætlanir þeirra eftir mun reksturinn skila hagnaði í fyrsta sinn í sögu ORF Líftækni. Meðferð á 39 þúsund krónur Árið 2006 hóf ORF Líftækni fram- leiðslu á svokölluðum vaxtarþátt- um, sérvirkum próteinum, sem fyrirtækið ræktar í byggplöntum í hátæknigróðurhúsi í Grinda- vík. Vaxtarþættirnir eru seldir til háskólasjúkrahúsa, lyfjafyrir- tækja og rannsóknarstofa og not- aðir í stofnfrumurannsóknir og frumuræktun. Þeir fara einnig í snyrtivörur Sif Cosmetics sem var stofnað árið 2009. Dótturfyrirtæk- ið hefur séð um þróun og markaðs- setningu á húðdropum, augnkrem- um og öðrum húðvörum. Hér á landi eru þær seldar undir vöru- merkinu EGF en nafninu Bioeffect í útlöndum. Kristinn D. Grétarsson, for- stjóri samstæðunnar, sýnir blaða- manni vöru merkta Bioeffect sem inniheldur 30 daga húðmeðferð og kostar 250 evrur, tæpar 39 þúsund krónur. „Þetta er okkar virkasta og öfl - ugasta vara og hún er gífurlega vinsæl. Þessa stundina er hún eingöngu fáanleg erlendis en við ætlum að koma henni á markað hér heima.“ Kristinn útskýrir hvernig allar frumur líkamans eiga það sam- eiginlegt að þurfa næringu og ákveðin efni til að endurnýja sig. Húðfrumur þurfi prótein sem lík- aminn framleiði minna af eftir því sem við eldumst. „Við splæsum þessu erfðaefni inn í byggið og það lætur plata sig og fer að framleiða vaxtarþætt- ina. Húðfruman þekkir þetta efni og endurnýjar sig hraðar,“ segir Kristinn. Hann bætir við að fyrir- tækið sé ekki með einkaleyfi á framleiðsluaðferðinni enda sé hún byggð á þekktri aðferðafræði. „Hins vegar hefur engum öðrum tekist að framleiða þessa vaxtarþætti í byggi,“ segir Krist- inn. Fyrir utan skrifstofuna hans hanga plaköt sem sýna alla 40 vaxtarþætti fyrirtækisins. Í vélum British Airways Húðvörur Sif Cosmetics komu fyrst á markað árið 2010 og fjór- um árum síðar eru þær orðnar sjö talsins og sú áttunda er á leiðinni. Vörurnar eru nú fáanlegar í 700 verslunum í 25 löndum og þar af í fl estum löndum Evrópu eins og Finnlandi, Danmörku, Bretlandi, Þýskalandi, Belgíu og Austur- ríki. Þær má einnig fi nna í öðrum heimsálfum í löndum eins og Kan- ada, Panama, Suður-Afríku, Suð- ur-Kóreu og Kína. Húðdropar Bioeffect seljast að sögn Kristins betur en nokkur einstök áfengis- eða tóbaksvara í fl ugvélum Brit- ish Airways og voru um tíma mest seldu snyrtivörurnar í vélum þýska fl ugfélagsins Lufthansa. „Fyrir nokkrum dögum gerðum við samning við verslanakeðju í Finnlandi sem heitir Sokos og við erum einnig komin inn í fl ugvél- ar Finnair. Þar að auki erum við í 22 apótekum í landinu og því má segja að við séum búin að komast inn á allan fi nnska markaðinn. Svo tekur tíma að koma sölunni í gang og ná veltunni upp,“ segir Krist- inn. Húðvörur Si Stiklað á stóru í sögu ORF Líftækni og Sif Cosmetics VIÐTAL HARALDUR GUÐMUNDSSON HARALDUR@FRETTABLADID.IS KRISTINN D. GRÉTARSSON Kristinn er forstjóri ORF Líftækni og Sif Cosmetics. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL Kynntu þér kosti Flotaleigunnar og fáðu allar nánari upplýsingar á lysing.is Gerðu starfsánægju að staðalbúnaði Flotaleiga Lýsingar sér til þess að bílafloti fyrirtækisins er alltaf í góðu ástandi sem skilar sér í auknum afköstum og ánægðu starfsfólki. Lýsing hf. Ármúla 1 108 Reykjavík Sími 540 1500 lysing.is lysing@lysing.is J A N Ú A R Sala á vörum ORF Líftækni og dótturfyrir- tækisins Sif Cosmetics skilaði um hálfum milljarði króna í tekjur á síðasta ári. Krist- inn D. Grétarsson var ráðinn forstjóri sam- stæðunnar í mars. Hann segir áætlanir gera ráð fyrir besta ári í sögu ORF Líftækni. 2001 ORF Líftækni hf. stofnað af þremur íslenskum vísinda- mönnum. 2006 Fyrsti vaxtarþáttur- inn einangraður úr byggi. 2010 Félagið fær inn erlenda fjár- festa. 2014 Vaxtarþættir ORF seldir til um 400 rann- sóknarstofa í stofnfrumu- rannsóknum. 2001 2006 2008 2009 2010 2011 2013 2014 2008 Sala á fyrsta vaxtar- þættinum fyrir læknis- fræðilegar rannsóknir. 2008 Gróðurhúsið Græna smiðjan í Grindavík opnað. 2011 33 þúsund flöskur af EGF Húðdropum™ seljast á einu ári. 2009 Dótturfyrirtækið Sif Cosmetics stofnað. 2013 Bioeffect fer inn á Asíumarkað. 2010 EGF-húð- vörurnar koma á markað hér á landi. 2011 Markaðssetning á Bioeffect-vörumerk- inu hefst. 2014 Bioeffect- húðvörurnar seldar í um 700 verslunum í 25 löndum.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.