Fréttablaðið - 11.06.2014, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 11.06.2014, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* *Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012 Miðvikudagur 14 BÓKMENNTAGANGA Á ENSKUBorgarbókasafn Reykjavíkur býður upp á bókmenntagöng- ur á ensku í sumar. Fyrsta gangan verður farin á morgun kl. 15 og verða göngurnar svo vikulegur viðburður alla fimmtu- daga í sumar. Farið er frá aðalsafni Borgarbókasafns, Tryggvagötu 15, en þaðan liggur leiðin um hinar og þessar götur miðborgarinnar. Á NETINU Ómar Þór Ómarsson, framkvæmdastjóri Balsam, bendir sem flestum á að kynna sér lækningamátt Magnolia á netinu. B örkur af plöntunni Magnolia officinalis sem vex í fjallahéruð-um Kína hefur verið notaður við svefnvandamálum, kvíða og þunglyndi í yfir tvö þúsund ár í Asíu. Rekja má ótrúlegan lækningamátt hans til nátt-úrulegu efnanna honokiol og magn-olol. Börkurinn virkjar taugaboðefni í heilanum sem hafa slakandi og róandiáhrif og stuðl ð NÝ SENDING KOMIN Í VERSLANIR!Magnolia officinalis hefur nú þegar notið mikilla vinsælda á Íslandi og seldust fyrstu sendingarnar upp með hraði. Fáanlegt í nær öllum apótekum landsins, Heilsuhúsinu, Heilsuhorninu Blómavali, vefversluninni heilsutorg is Fjarðarkaupum og H i HEILBRIGÐ LAUSN VIÐ SVEFNVANDABALSAM KYNNIR MAGNOLIA OFFICINALIS – Það nýjasta frá Natural Health Labs. Tilvalið fyrir þá sem vilja aðstoð við svefnvandamálum, stuðla að heil- brigðum samfelldum svefni, vinna gegn þunglyndi, kvíða og depurð og bæta andlega og líkamlega líðan. RÁÐLÖGÐ NOTKUNTaktu 1 hylki með vatns-glasi með kvöldmat eðaum 30 – 60 mínútumfyrir svefn. Dagskammt-ur er 1 – 2 grænmetis-hylki. Taka 12 Kg · HljóðlátStórt op > auðvelt að hlaðaSparneytin amerísk tæki.<Þvottvélin tekur heitt og kalt vatn Afkastamikill þurrkari > Þvottavél Þurrkari12 kg Amerískgæðavara www.visir.is Sími: 512 5000 | Miðvikudagur 11. júní 2014 | 36. tölublað | 10. árgangur STAFRÆN PRENTUN! Fjölgun þrátt fyrir verkföll Greiningardeild Íslandsbanka spáir því að ferða-mönnum muni fjölga í það minnsta um 20 prósent á þessu ári frá því í fyrra, þrátt fyrir að ferðum hafi verið fækkað hjá Icelandair samhliða verkfalli flugmanna. Alls fóru 66.700 ferðamenn frá landinu um Keflavíkurflugvöll í maímánuði sem svarar til 24,4 prósenta fjölgunar milli ára en miðað við tölur Isavia yfir úthlutuð stæði hefði mátt búast við fjölgun um 31 prósent. Forsendur spárinnar kunna þó að bresta verði af frekari verkföllum innan flugstéttarinnar en flugvirkjar a a boðað verkfall í júní og flugmenn sömdu aðeins til 30. september. - fbj LSR keypti bæði og seldi í gær Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (LSR) k ti í 2 SÉRBLÖÐ Markaðurinn | Fólk Sími: 512 5000 11. júní 2014 135. tölublað 14. árgangur Fasteignagjöld hækka Heildarmat fasteigna hækkar um 7,7 prósent samkvæmt nýju fasteignamati. Fast- eignagjöld hækka í sama hlutfalli. 4 Íslamistar taka Mosul Næststærsta borg Íraks er í höndum herskárra íslamista eftir að þeir hröktu stjórnar- herinn og lögreglu á brott. 8 Hafa beðið svars í 8 ár Ríkið brýtur reglur um málshraða með því að svara ekki óskum landeiganda í átta ár. 10 MENNING Fjölhæfir lista- menn spila á Reykjavík Midsummer Music. 22 SPORT Ingi Rúnar Kristins- son leyfir sér að dreyma um að komast á ÓL í Ríó. 30 FRÉTTIR MARKAÐURINN Opið allan sólarhringinn í Engihjalla, Vesturbergi og Arnarbakka SKOÐUN Ingvar Gíslason skrifar um ófrægingarmýtu og framboðsklúður. 14 LÍFIÐ Gunnar Hansson og Davíð Óskar leikstýra nýrri, íslenskri kvikmynd. 34 NJÓTTU ÞÍN Í BERLÍN 9.990 DÓMSMÁL Guðjón S. Marteinsson, dómsformaður í Aurum-málinu í Héraðsdómi Reykjavíkur, segir dóminn ekki hafa valdið réttar- spjöllum með því að upplýsa ekki um ættartengsl sérfróðs meðdóm- ara í málinu. Ólafur Þór Hauksson, sérstak- ur saksóknari, hefur sagst mundu hafa mótmælt skipan Sverris Ólafs- sonar sem sérfróðs meðdómara í Aurum-málinu ef hann hefði vitað að Sverrir er bróðir Ólafs Ólafsson- ar kaupsýslumanns, sem ákærður var af sérstökum saksóknara og dæmdur í Al-Thani málinu. Guðjón segir að hann sem dómsformaður gæti að hæfi sér- fróðs meðdómsmanns. Það hafi verið gert og meðdómsmaður hafi enga tilkynningaskyldu út á við. „Ákæruvaldið á við sjálft sig hvernig það kannar bakgrunn sérfróðra meðdómsmanna. Hvað ákæruvaldið vissi eða vissi ekki er fyrir utan þessa umræðu.“ - gar / sjá síðu 6 Aurum-dómarinn neitar að hafa valdið réttarspjöllum vegna meðdómara: Ásökunum saksóknara hafnað Bolungarvík 11° NA 5 Akureyri 14° NA 4 Egilsstaðir 15° N 5 Kirkjubæjarkl. 8° SA 2 Reykjavík 16° NNV 3 VÆTA EYSTRA Í dag verður hæg NA- eða breytileg átt og nokkuð bjart veður einkum SV-til en stífari N-átt eystra og rigning. Hiti 8-20, mildast SV-til. 4 Ef málflytjendur eru ósammála dómsformanni um hæfi meðdómsmanns geta þeir gert athuga- semdir. Guðjón S. Marteinsson, dómsformaður HEILBRIGÐISMÁL Lyfjastofnun er ekki skylt að halda sameiginlegt yfirlit yfir lyfjabirgðir í landinu og slíkt yfirlit er ekki til. Dæmi eru um að mikilvæg lyf hafi ekki verið til á landinu og sjúklingar hafi þurft að minnka lyfjaskammta sína og breyta lyfjagjöf vegna þess. „Undanþágukerfið grípur samt inn í ef mikið liggur við. Þá er náð í lyf með hraði til annarra landa,“ segir Helga Þórisdóttir, staðgengill forstjóra Lyfjastofnunar. Krabbameinssjúk kona fékk lyfin sín ekki afgreidd úr apóteki Land- spítalans í síðustu viku. Hún segir að þetta sé ekki í fyrsta skipti sem hún lendi í því að lyfin hennar séu ekki til. Konan, sem er með eitil- frumukrabbamein, notar sjaldgæft krabbameinslyf sem kallast Tar- gretin og ógleðilyfið Zofran. Ógleðilyfið hefur ekki verið fáan- legt síðan 15. apríl síðastliðinn en samkvæmt upplýsingum frá lækni á krabbameinsdeild Landspítalans er lyfið mjög algengt fyrir fólk í krabbameinsmeðferð. Til er sam- heitalyf fyrir Zofran en konan segir að lyfið sé það eina á töfluformi sem hafi reynst virka fyrir hana. Engar skýringar fengust á því hvers vegna ógleðilyfið hefur verið ófáanlegt. Apótek Landspítalans þarf að panta krabbameinslyfið Targretin sérstaklega vegna lítill- ar notkunar þess hérlendis. Konan þarf að byggja upp lyfjaþol vegna þess hve sterkt lyfið er en vegna skortsins neyðist hún til að hefja ferlið aftur á byrjunarreit. Konan segist hafa fengið þær skýringar hjá apóteki Landspítalans að vegna skulda spítalans við lyfjabirgja hafi ekki verið hægt að leysa lyfið út. Inga Arnardóttir, yfirlyfjafræð- ingur á Landspítalanum, vísar þessu á bug. „Landspítalinn skuldar engin lyf og hefur ekki gert í mörg ár. Þetta var viðvarandi vandamál fyrir hrun og á árum áður en þetta hlýtur að vera misskilningur. Ég trúi ekki að nokkur starfsmaður hafi sagt þetta.“ Inga segir að vegna þess hve sjaldgæft lyfið sé þá verði sjúkling- ar að segja frá því þegar þá fer að skorta lyfið. „Með svona dýr lyf þá liggjum við ekki með þau á lager. Mörg af þessum krabbameinslyfj- um eru einstök. Það er sameigin- leg ábyrgð líka.“ Konan segist hafa hringt tímanlega í apótekið og pant- að lyfin sín. - ssb Lyfjaskortur tefur meðferð Ríflega 200 misjafnlega mikilvæg lyf eru á biðlista hjá lyfjafyrirtækjum hérlendis. Lyf fyrir krabbameinsveika konu hefur ekki verið til frá því um miðjan apríl. Sjúklingar þurfa sjálfir að minna á að láta panta óalgeng lyf. Vörur í 700 verslunum Sala á vörum ORF Líftækni og dótturfyrirtækisins Sif Cosmetics skilaði fyrirtækjunum um hálfum milljarði króna í tekjur á síðasta ári. Vörur Sif Cosmetics eru nú fáanlegar í 700 verslunum í 25 löndum. Með svona dýr lyf, þá liggjum við ekki með þau á lager. Mörg af þessum krabbameinslyfjum eru einstök. Inga Arnardóttir, yfirlyfjafræðingur á Landspítalanum FÓTBOLTI Viðar Örn Kjartansson hefur slegið í gegn með norska úrvalsdeildarfélaginu Vålerenga sem leikur í Ósló. Hann hefur skor- að nítján mörk í fimmtán leikjum en þessi öflugi sóknarmaður frá Selfossi kom til félagsins frá Fylki fyrir tímabilið. Strax er byrjað að orða Viðar Örn við lið í ensku úrvals- deildinni en hann lætur sér fátt um finnast. „Ég reyni að láta umboðsmann- inn minn sjá um þessi má. Ég er ekkert að æsa mig of mikið með einhverjum sögusögn- um,“ segir Viðar í ítar- legu viðtali við Fréttablað- ið í dag. - esá / sjá síðu 28 Viðar Örn Kjartansson: Rólegur yfir sögusögnum GAMAN Í BRENNÓ Nemendur í Háskóla unga fólksins hófu nám gær. Þá fjóra daga sem skólinn er starfræktur sitja fróð- leiksþyrstir nemendur námskeið af öllum fræðasviðum Háskóla Íslands. Krakkarnir tóku sér smá pásu frá fyrirlestrum í gær og fóru í brennubolta. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.