Fréttablaðið - 11.06.2014, Blaðsíða 40
11. júní 2014 MIÐVIKUDAGUR| SPORT | 28
Mörkin: 0-1 Jóhann Birnir Guðmundsson (10.),
1-1 Ingiberg Ólafur Jónsson (43.).
Rautt spjald: Ingiberg Ólafur Jónsson, Fram (81.).
FRAM (4-3-3): Ögmundur Kristinsson 6 - Ingiberg
Ólafur Jónsson 5, Tryggvi Sveinn Bjarnason 5,
Einar Bjarni Ómarsson 6, Ósvald Jarl Traustason
5 - Hafsteinn Briem 5, Jóhannes Karl Guðjónsson
6 (64., Aron Þórður Albertsson 5), Viktor Bjarki
Arnarsson 5 (48., Haukur Baldvinsson 5) - Arnþór
Ari Atlason 6, Björgólfur Hideaki Takefusa 6, Ás-
geir Marteinsson 6 (83., Halldór Arnarsson -).
KEFLAVÍK (4-3-3): Árni Freyr Ásgeirsson 5 (55.,
Sindri Kristinn Ólafsson 5) - Endre Ove Brenne
5, Unnar Már Unnarsson 6, Haraldur Freyr
Guðmundsson 6, Magnús Þórir Matthíasson
6 - Ian Paul McShane 5, Sindri Snær Magnússon
7, *Jóhann Birnir Guðmundsson 7 - Elías Már
Ómarsson 5, Hörður Sveinsson 5, Bojan Stefán
Ljubicic 5 (69., Theodór Guðni Halldórsson -).
Skot (á mark): 15-11 (5-5) Horn: 4-8
Varin skot: Ögmundur 4 - Árni Freyr 0, Sindri 1.
1-1
Laugardalsv.
Áhorf: Óuppg.
Guðmundur
Á. Guðm. (5)
visir.is
Meira um leiki
gærkvöldsins
PEPSI-DEILD KVENNA
ÚRSLIT
AFTURELDING - ÍBV 0-4
0-1 Vesna Smiljkovic (23.), 0-2 Ármey Valdimars-
dóttir (32.), 0-3 Sigríður Lára Garðarsdóttir (41.),
0-4 Kristín Erna Sigurlásdóttir (82.).
BREIÐABLIK - SELFOSS 2-3
1-0 Aldís Kara Lúðvíksdóttir (26.), 1-1 Dagný
Brynjarsdóttir (41.), 1-2 Erna Guðjónsdóttir
(42.), 2-2 Guðrún Arnardóttir (85.), 2-3 Guð-
munda Brynja Óladóttir (89.).
STJARNAN - VALUR 7-2
1-0 Harpa Þorsteinsdóttir (22.), 2-0 Harpa
Þorsteinsdóttir (25.), 2-1 Hildur Antonsdóttir
(30.), 2-2 Dóra María Lárusdóttir (45.), 3-2 Elva
Friðjónsdóttir (54.), 4-2 Glódís Perla Viggós-
dóttir (58.), 5-2 Sigrún Ella Einarsdóttir (72.), 6-2
Harpa Þorsteinsdóttir (80.), 7-2 Harpa Þorsteins-
dóttir (89.).
FYLKIR - FH 3-0
1-0 Rut Kristjánsdóttir (20.), 2-0 Lucy Gildein
(61.), 3-0 Aníta Björk Axelsdóttir (91.).
STAÐAN
Þór/KA 5 4 1 0 11-6 13
Stjarnan 5 4 0 1 18-3 12
Valur 5 3 1 1 16-9 10
Fylkir 5 3 1 1 5-3 10
Selfoss 5 3 0 2 12-8 9
Breiðablik 5 2 1 2 17-6 7
ÍBV 5 2 0 3 6-8 6
FH 5 2 0 3 5-21 6
ÍA 5 0 0 5 3-12 0
Afturelding 5 0 0 5 2-19 0
NÆSTU LEIKIR
Pepsi-deild karla:
Í kvöld: 19.15 Fjölnir - FH, Fylkir - Breiðablik.
20.00 Stjarnan - KR.
Pepsi-deild kvenna:
Þriðjudagur 24. júní: 18.00 ÍBV - FH, Þór/
KA - Breiðablik. 19.15: Afturelding - ÍA, Valur -
Fylkir, Selfoss - Stjarnan.
FÓTBOLTI Fram og Keflavík skildu í
gærkvöldi jöfn, 1-1, í fyrsta deildar-
leik sumarsins á Laugardalsvelli. Jó-
hann B. Guðmundsson kom Keflavík
yfir snemma leiks en Ingiberg Ólafur
Jónsson jafnaði fyrir Fram áður en
hann var sjálfur rekinn af velli með
rautt spjald undir lok leiksins.
Keflavík hefði jafnað FH á
toppnum með sigri í leiknum en
fyrir vikið á FH möguleika á að auka
forystu sína á toppi deildarinnar í
fimm stig með sigri á nýliðum Fjölnis
í kvöld, fari svo að Stjarnan tapi fyrir
KR. Fylkir og Breiðablik eigast svo
einnig við í Árbænum. - esá
FH getur komist í fi mm stiga forystu í kvöld
STEINROTAÐIST Árni Freyr Ásgeirsson var borinn af velli eftir höfuðmeiðsli í gær.
Hann náði þó meðvitund áður en hann var fluttur á sjúkrahús. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
SPORT
HM Í FÓTBOLTA Í BRASILÍU
1 DAGUR Í FYRSTA LEIK
THOMAS MÜLLER varð fyrir fjórum árum annar
þýski leikmaðurinn í röð sem tryggir sér gullskóinn
sem markahæsti leikmaður úrslitakeppni HM en landi
hans Miroslav Klose varð markakóngur á HM 2006.
Þjóðverjar höfðu aðeins einu sinni áður átt markakóng
HM en Gerd Müller skoraði 10 mörk á Hm í Mexíkó 1970.
Thomas Müller skoraði fimm mörk eins og bæði Spánverjinn
David Villa, Hollendingurinn Wesley Sneijder og Úrúgvæinn
Diego Forlán en vann gullskóinn af því að hann lagði upp fleiri
mörk fyrir félaga sína. Müller var með þrjár stoðsendingar en
hinir þrír aðeins eina. Villa fékk silfurskóinn af því að hann
spilaði fæstar mínútur og Sneijder lék færri mínútur en
Forlán og fékk bronsskóinn.
HM stöðin
FÓTBOLTI „Það er þrjátíu stiga hiti og sól og ég
er einfaldlega að kafna úr hita, ég þarf eigin-
lega að halda mér inni vegna hita,“ sagði Viðar
Örn Kjartansson, leikmaður Vålerenga, þegar
Fréttablaðið heyrði í honum í gær. Viðar Örn
hefur farið á kostum í liði Vålerenga á sínu
fyrsta tímabili með liðinu.
„Ég er auðvitað mjög ánægður með að það
gangi vel, maður stefndi alltaf að því að það
myndi ganga vel en þetta er vonum framar.
Hefði ég verið kominn með sex mörk í tólf
leikjum væri ég fjandi sáttur en þetta er bara
búið að vera mun betra en ég gat ímyndað mér
og eiginlega eins gott og þetta verður,“ sagði
Viðar, sem hefur skorað 19 mörk í 15 leikjum í
öllum keppnum.
„Þegar þeir fengu mig hingað höfðu þeir
gríðarlega trú á mér. Þjálfarinn gerði mig að
aðalskotmarki sínu. Þeir voru gríðarlega þakk-
látir fyrir að ég beið eftir þeim og að ég valdi
Vålerenga. Ég sé ekki eftir því, það hafa allir
trú á mér hérna sem hjálpar gríðarlega upp á
sjálfstraustið. Það er oft þannig að þegar maður
fer í sterkari deild tekur oft tíma að aðlagast
nýrri deild og nýjum aðstæðum. Ég var
mjög heppinn. Ég náði að setja tvö
mörk í öðrum leik sem setti örlít-
ið tóninn fyrir það sem koma
skyldi og hef ekki stoppað
síðan þá.“
Stutt á milli
Aðeins fjögur ár eru frá
því að Viðar lék í fyrstu
deildinni með Selfoss á
Íslandi, nýstiginn upp úr
erfiðum meiðslum.
„Á Íslandi þarftu að
skora mörg mörk til þess
að komast út en þú byrj-
ar alltaf aftur á byrj-
unarreit. Norðmenn líta
svolítið niður á íslensku
deildina þótt mér finn-
ist hún vera sterk,“ sagði
Viðar sem telur að það hafi
gert honum gott að fara ekki
út fyrr en raun bar vitni.
„Ég þroskaðist gríðarlega
sem leikmaður eftir tvítugt og
þótt það hafi tekið tíma er ég ein-
faldlega meira tilbúinn núna. Ég lagði
gríðarlega mikið á mig til að þetta yrði
að veruleika og ég mun ekki slaka á,
ég ætla mér að ná lengra,“ sagði Viðar
en aðeins fjögur ár eru frá því að hann
spilaði í fyrstu deildinni með Selfoss.
„Ég þurfti að taka skref aftur á bak eftir að
ég sleit krossband. Ég spilaði í fyrstu deildinni
með Selfoss til að komast aftur á sporið. Maður
var ekki allt of bjartsýnn á framhaldið þá en ég
tók eitt skref í einu.“
Viðar skaust fram á sjónarsviðið með góðri
frammistöðu á síðasta
tímabili þegar hann var
markahæstur í Pepsi-
deildinni en fékk silf-
urskóinn þar sem Atli
Viðar Björnsson skor-
aði jafn mörg mörk
en spilaði minna.
„Tímabilið í fyrra
er það sem kemur
mér út í atvinnu-
mennsku í raun og
veru. Ég var búinn
að eiga ágæt tímabil
en aldrei búinn að ná
að springa út og vera
meðal þeirra bestu í
deildinni. Ég átti
frábært tímabil í fyrra og það hjálpaði mér
gríðarlega mikið þegar ég kom út.“
Áhugi eykst
Framtíðin er óviss, Viðari líður vel í Ósló en
hugurinn leitar lengra. „Maður fær auðvitað
töluverða athygli þegar vel gengur og það er
gaman að því. Svo er gott að félagið er í stór-
borg en ekki einhverju krummaskuði úti á landi
– það er allt hérna nálægt sem maður þarf. Ég
gat ekki valið betri klúbb til að byrja atvinnu-
mannaferilinn.“
Gott gengi Viðars hefur ekki farið fram hjá
öðrum liðum. Í gær voru útsendarar mættir í
stúkuna til þess að fylgjast með Viðari.
„Ég heyrði að einhver úrvalsdeildarlið hefðu
verið að fylgjast með mér en ég reyni að láta
umboðsmanninn minn sjá um þessi mál. Ég er
ekkert að æsa mig of mikið með einhverjum
sögusögnum. Eins og hann orðaði það þá eru
lið að fylgjast með mér, þau eru nokkur, en við
ætlum ekki að pæla neitt meira í þessu nema
eitthvað komi upp á borðið. Ég reyni að hugsa
bara um einn leik í einu og gera eins vel og ég
get fyrir liðið, það er eina sem ég get hugsað
um,“ sagði Viðar hógvær.
„Það væri auðvitað gaman að fara í sterkari
deild en þetta er líka spurning um tímasetn-
ingu, hvenær er rétt að taka næsta skref. Að
fara í allt of stórt lið þegar ég er ekki tilbúinn
gæti einfaldlega rústað ferlinum en það gæti
líka verið frábært skref. Maður verður að velja
vandlega næsta skref.“
Fyrsti landsleikurinn í sex ár
Viðar spilaði sinn fyrsta leik fyrir landslið
Íslands á dögunum en sex ár eru síðan hann
lék síðast með yngri landsliðum Íslands.
„Þetta var auðvitað þvílíkur heiður að vera
valinn í svona sterkt landslið. Hópurinn er mun
sterkari en hann var fyrir nokkrum árum.Ég
pældi ekkert í þessu, markmiðið var bara að
standa sig vel og sjá hvort kallið kæmi. Þegar
það kom var ég auðvitað stoltur og mér fannst
ég komast ágætlega út úr því verkefni,“ sagði
Viðar.
„Heimir og Lars óskuðu mér góðs gengis og
hvöttu mig áfram. Ef þú stendur þig vel í Nor-
egi eru meiri líkur á að þú fáir kallið næst og
ég reyni bara að gera mitt besta til þess. Ég
er bara gríðarlega stoltur yfir að hafa fengið
að leika fyrir Íslands hönd og vonandi fæ ég
tækifæri að spila fleiri leiki fyrir Ísland,“ sagði
Viðar að lokum. kristinnpall@365.is
Gefur mér mikið sjálfstraust
Viðar Örn Kjartansson hefur farið frábærlega af stað með Vålerenga á fyrsta tímabili sínu í Noregi. Viðar er
markahæstur í norsku úrvalsdeildinni og fékk loksins tækifærið með íslenska landsliðinu um daginn.
ÓSTÖÐVANDI Viðar Örn hefur skorað nítján mörk í fimmtán
leikjum á tímabilinu til þessa í Noregi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FÓTBOLTI „Menn vilja breyta nafninu með nýju
stúkunni. Það hefur verið talað um að kalla
þetta Dalinn. Lautin þykir víst of mjúkt nafn,
ekki veit ég hvaðan það kemur,“ sagði Björn
Gíslason, formaður Íþróttafélagsins Fylkis, í
samtali við Fréttablaðið í gær.
Í gærkvöldi lauk loksins langri bið er ný
stúka var vígð á Fylkisvellinum en félagið
hefur verið á undanþágu undanfarin ár.
„Við erum búin að vera á undanþágu undan-
farin ár og núna er það úr sögunni. Þetta er
gríðarlegur léttir og vonandi lyftistöng fyrir
knattspyrnuna í Árbænum. Fylkir er rótgró-
ið félag í Pepsi-deildinni sem er búið að vera í
fjórtán ár í úrvalsdeildinni og því komin meiri
pressa á okkur. Þetta væri eflaust öðruvísi ef
við hefðum fallið öðru hvoru, þá væru ekki
sömu staðlarnir á hverju ári.“
Stúkan fékk eldskírn sína í gærkvöldi en
stuðningsmenn Fylkis hafa unnið hörðum
höndum í sjálfboðavinnu að reisa hana. „Það
er ómetanlegt fyrir félag eins og Fylki að eiga
svona stuðningsmenn. Ekki aðeins fjárhagsað-
stoðin sem veitt var heldur einnig við að setja
niður sætin. Þetta voru 1900 sæti með þrjá
bolta í hvert sæti. Menn voru að í þrjú kvöld og
settu tæplega 6.000 bolta. Mönnum er annt um
félagið, það var gríðarlegur fjöldi sem mætti
og félagið er mjög þakklátt.
Fólkið í Árbænum tók vel í söfnunina og
stuðningsmennirnir komu svo og gáfu vinnu
sína til að reisa stúkuna. Þetta er alveg einstakt
að eiga svona stuðningsmenn og velunnara að,“
sagði Björn.
Fylkisvöllur kom illa undan vetri eins og
margir aðrir grasvellir á höfuðborgarsvæðinu
en í kvöld leikur meistaraflokkur karla sinn
fyrsta leik í Árbænum eftir útileiki í fyrstu sex
umferðunum í Pepsi-deild karla. Fylkir tekur
þá á móti Breiðabliki. - kpt
Tæplega sex þúsund boltar og nýtt nafn
Ný stúka var vígð við Fylkisvöllinn í gær en í kvöld leikur meistarafl okkur karla sinn fyrsta leik í Árbænum.
3-0 SIGUR Fylkir fagnaði nýju stúkunni með því að
vinna FH í Pepsi-deild kvenna í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL