Fréttablaðið - 11.06.2014, Qupperneq 17
MIÐVIKUDAGUR 11. júní 2014 | SKOÐUN | 17
Bankahrunið 2008 og
alþjóðlega efnahagskrepp-
an hafa leitt til stjórnmála-
viðbragða sem sumpart
áttu ekki að koma á óvart.
Árinni kennir illur ræð-
ari, segir máltækið og það
má herma á Grikki. Þeir
kenna Evrópusambandinu
og Myntbandalaginu um
ófarir sem stafa af lélegri
hagstjórn þeirra sjálfra. En
útlendingahatur, eins og hjá
UKIP-flokknum breska, hefur illu
heilli sprottið upp þegar aðfluttum
útlendingum er kennt um atvinnu-
leysi.
Alveg séríslensk útgáfa af stefnu-
mörkun eftir Hrunið, var sá boð-
skapur þeirra forseta landsins og
þáverandi utanríkisráðherra, að
Íslendingar ættu að setja hald sitt
og traust á Alþýðulýðveldið Kína.
Gerð fríverslunarsamnings við
Kína, aðalstoð svokallaðrar Asíu-
gáttar, átti að opna nýja viðskipta-
möguleika sem skipti máli. Þetta
er fjarri lagi. Sjávarafurðir og
flugþjónusta, uppistaða útflutn-
ings vara og þjónustu, beinist eðli-
lega til nálægra hátekjumarkaða
beggja vegna Atlantshafs. Þar
vantar herslumuninn á fullkomið
viðskiptafrelsi, sem fæst með aðild
að Evrópusambandinu og þátttöku
í fríverslunarsvæði þess og Banda-
ríkjanna sem samið er um.
Þakkarverð er sú áminning Hjör-
leifs Sveinbjörnssonar, kunnáttu-
manns um málefni Kína, í Frétta-
blaðinu 4. júní, að fjöldamorðin á
Torgi hins himneska friðar í Pek-
ing fyrir 25 árum séu óuppgert
voðaverk. Kínverski kommúnista-
flokkurinn, allsráðandi í landinu,
hefur aldrei viðurkennt þann glæp
sem þá var framinn. Amnesty stað-
reynir að andófsmenn hafi verið
látnir sæta varðhaldi í aðdraganda
tímamótanna 4. júní 1989-2014.
Því fer mjög fjarri að mannrétt-
indi þar nálgist það sem er frum-
réttur Íslendinga og allra sem búa
við lýðfrelsi. Nægir þar að benda
á harða ritskoðun með fjölmiðl-
um sem áróðursdeild kommún-
istaflokksins hefur með höndum.
Var það ekki úr þeim starfsvett-
vangi sem við fengum skáldið
Huang Nubo, auðmann og fjár-
festi, áhugasaman sem landgreifa
að Grímsstöðum? Á hinum óheppi-
legasta tíma er hafin bygging sam-
eiginlegrar norðurljósastofnun-
ar Íslands og Kína í Norðurþingi
og efnt til málþings með þeim um
norðurslóðamál. Leynd virðist hvíla
yfir athugunum fyrir stórhöfn og
atvinnurekstur í Finnafirði.
Samfallandi hagsmunir
Sá tími er kominn að líta beri á
Rússa og Kínverja, á ný vinaríki,
sem bandamenn í lengri tíma áætl-
un um yfirráð á Norðurslóðum og í
framhaldinu á Norður-Atlantshafi.
Af ýmsum ástæðum eru hagsmun-
ir þeirra samfallandi og nýgerð-
ur samningur um sölu til Kína á
gríðarlegu magni rússnesks jarð-
gass til 30 ára, staðfestir nána sam-
vinnu. Bæði ríkin hafa þegar grip-
ið til fjandsamlegra aðgerða gegn
Evrópulöndum og Bandaríkjunum;
í Úkraínu annars vegar og hins
vegar með yfirtroðslu Kínverja í
Suður-Kínahafi við Filippseyjar
og Víetnam.
Í Kínahafi eru Kínverjar greini-
lega að kanna viðbrögð Bandaríkja-
manna sem eru bundnir
samningum við Japani og
Filippseyinga um varnir.
Eru Bandaríkjamenn svo
fullsaddir af stríðsaðgerð-
um eftir Írak og Afgan-
istan, að þeir skeyta ekki
deilum út af skerjagörð-
um, smáeyjum og tengdu
hafsvæði, og láti þetta
afskiptalaust? Það kann
að vera. Á hinn bóginn er
staðreyndin sú, að Banda-
ríkjamenn hafa verið seintekn-
ir til stríðsaðgerða, eins og í Evr-
ópustórstyrjöldum 20. aldarinnar,
en höfðu þá úthald til að ná sigri.
Þannig gæti yfirgangur Kínverja
við grannríkin reynst þeim þau
afdrifaríku mistök að hafa unnið
sýndarsigra en tapað lokauppgjöri.
Þetta mikla traust Íslendinga á
friðarást og samstarfsvilja Kín-
verja á sér að virðist helst sögulega
hliðstæðu í samskiptum þeirra við
Indland. Pandit Nehru, stjórnmála-
leiðtogi Indverja eftir að þeir hlutu
sjálfstæði, dáðist mjög að fram-
gangi byltingar kommúnista í Kína.
Friðarstefna (e. appeasement) var
mörkuð og tekið að hampa Kína í
þeirri trú að þar með yrði tryggð
vinátta þjóðanna. Þessi stefna
reyndist Indverjum gagnslaus.
Kínverjar hafa fyrr og síðar litið
á Indland sem þann eina aðila sem
gæti skákað þeim í Asíu og hafa því
stefnt að einangrun þeirra í suður-
hluta álfunnar. Vináttusamband við
Íslendinga er fyrir Kínverja tæki
til mikillar stöðu áhrifa og ábata,
bæði varðandi siglingaleiðina sem
senn opnast um Norðausturleið-
ina og nýtingu jarðefna og olíu í
nágrenni við Ísland. Og hvað boðar
bandalag þeirra og Rússa, sem nú
eru að koma upp miklum hernaðar-
mætti á svæðinu? Herstöð á Íslandi
væri stóri vinningurinn en henni
fylgja sem fyrr veruleg yfirráð í
Norður-Atlantshafi.
Íslendingar verða nú sem aldrei
fyrr að sýna frumkvæði um varn-
arsamstarf við Bandaríkin. Það
snertir sameiginlegt varnarátak
Norðurlandanna og Bandaríkjanna
á norðurslóðum en þar hefur orðið
sú heillavænlega þróun að Svíar og
Finnar taka þátt í loftrýmisgæslu á
Íslandi sem borin er uppi af banda-
ríska flughernum.
Kína nær og fjær
UTANRÍKISMÁL
Einar
Benediktsson
fv. sendiherra
➜ Þeir kenna Evrópusam-
bandinu og Myntbanda-
laginu um ófarir sem stafa
af lélegri hagstjórn þeirra
sjálfra.
Áfram Ísland!
Við sendum íslenska handboltalandsliðinu góða
strauma og hvetjum stelpurnar áfram til árangurs.
Samskip styðja stolt við bakið á stelpunum okkar.
www.samskip.is
Saman náum við árangri
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
56
0
94