Fréttablaðið - 17.06.2014, Síða 10
17. júní 2014 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 10
Snærós
Sindradóttir
snaeros@frettabladid.is
Undirritaðar umsóknir skulu berast sjóðnum á þar til
gerðum eyðublöðum í þríriti ásamt fylgigögnum fyrir
miðnætti hinn 30.apríl 2013 merktar
„Tónskáldasjóður Rásar 2“
Laufásvegi 40, 101 Reykjavík
Tónskáldasjóður
Rásar 2
Umsóknareyðublöð má fá á heimasíðum FTT og STEFs
Tónskáldasjóður
365
auglýsir eftir umsóknum
Frestu vegna umsókna í Tónskáldasjóð 365 rennur út á
miðnætti hins 5. júlí n.k.
Undirritaðar umsóknir skulu berast sjóðnum á þar til gerðum eyðublöðum
í þríriti ásamt fylgigögnum fyrir miðnætti hinn 5.júlí 2014 merktar:
„Tónskáldasjóður 365“
Laufásvegi 40, 101 Reykjavík
Umsóknarblöð má fá á heimasíðu STEFs.
Umsóknir ber að vanda.
0 m.
5 m.
10 m.
15 m.
20 m.
25 m.
30 m.
Mjög umfangsmikil leit hefur staðið yfir að Ástu
Stefánsdóttur síðan á þriðjudag í síðustu viku. Hátt í 200
björgunarsveitarmenn hafa komið að leitinni án nokkurs
árangurs. Nú hefur verið tekin ákvörðun um að draga úr
leitinni en fjölskylda og vinir Ástu hyggjast fara og leita
hennar í dag.
Ásta Stefánsdóttir er 35 ára lögfræðingur að mennt.
Hún er hávaxin og grönn með ljóst skollitað hár. Lögreglan
á Hvolsvelli telur nær útilokað að Ásta finnist á lífi úr
þessu. Kærasta Ástu, Pino Becerra, fannst látin við botn Bleiksársgljúfurs
á þriðjudag. Áður var talið að hún hefði drukknað. Krufning leiddi í ljós
að Pino lést við að falla þrjátíu metra niður gljúfrið.
Fjölskylda og vinir leita að Ástu í dag
FLJÓTSHLÍÐ Nærri útilokað er að
íslensku konunni, Ástu Stefáns-
dóttur, sem leitað hefur verið að
í Fljótshlíð frá því í síðustu viku,
hafi skolað niður með Bleiksárgili
og út í Markarfljót. Til þess er áin
of grunn.
„Við erum á þeirri skoðun að
konunni hafi ekki getað skolað út
í Markarfljót með eðlilegu vatns-
magni. Það hafa engar stórleys-
ingar verið síðan svo það er ekkert
sem bendir til þess að það hafi getað
gerst,“ segir Jón Hermannsson hjá
Björgunarsveitinni Dagrenningu á
Hvolsvelli. Hann segir að vatnadrög
gilsins nái þó upp í fjöll þar sem snjó
kynni að hafa leyst. „Ef einhvers
staðar hefði myndast krapastífla
sem hefði brostið á þessu tímabili
þá hefði getað komið í þetta smá-
skot en það er ekkert sem bendir til
þess að vatnið hafi hækkað neitt.“
Kærasta íslensku konunnar, hin
spænska Pino Becerra, fannst látin
í hyl neðan við foss gljúfursins. Föt
kvennanna fundust efst við gljúfur-
brúnina en þau eru eina vísbend-
ingin um Ástu. Fótspor sem fundust
þrjá kílómetra austur af gljúfrinu
eru ekki eftir Ástu eins og talið var
að gæti verið.
„Það finnast þarna fótspor og
við köllum strax til sérfræðinga
í að rekja spor. Í framhaldi af því
koma rannsóknarlögreglumenn sem
hugsanlega gætu greint blóð í spor-
unum því það má reikna með að það
sé blóð í þeim. Það var ekkert sem
svaraði jákvætt í þessum málum,“
segir Jón.
Talið er að konurnar hafi gengið
um kílómetra langa leið austur að
gilinu frá sumarbústað sem þær
dvöldu í. Þorsteinn segir að ólík-
legustu möguleikar hafi verið kann-
aðir. „Við teljum okkur vera sér-
fræðinga og þess vegna skoðum við
alla möguleika jafnvel þótt þeir séu
óhugsandi.“
Fótspor ekki
eftir konuna
Rannsóknarlögreglumenn og fótsporasérfræðingar kom-
ust að því að spor eftir beran fót sem fundust í Fljótshlíð
hafi ekki verið eftir íslensku konuna sem hvarf.
EFNAHAGSMÁL Tekjur 27 stærstu
sveitarfélaganna jukust um 2,8
prósent umfram verðbólgu á
síðasta ári. Það er um 0,4 pró-
sentustigum meiri vöxtur en
árið áður, samkvæmt samantekt
grein ingar deildar Arion banka á
rekstri sveitarfélaganna.
Staða sveitarfélaganna hefur
almennt batnað á síðustu árum,
og var síðasta ár engin undan-
tekning. Að meðaltali skiluðu
sveitarfélögin 27, þar sem um 94
prósent íbúa landsins búa, 576
milljóna króna hagnaði í fyrra.
Það er mun betri niðurstaða en
árið 2012 þegar þau töpuðu 55
milljónum króna, og árið 2011
þegar tapið nam 274 milljónum
króna.
Greiningardeild Arion bendir
á að mestu skipti bætt afkoma
fjögurra stærstu sveitarfélaga
landsins, Reykjavíkur, Kópa-
vogs, Hafnarfjarðar og Akur-
eyrar. Þessi fjögur sveitarfé-
lög skiluðu 12 milljarða króna
hagnaði í fyrra samanborið við
5,5 milljarða tap árið 2012. Sam-
kvæmt lögum sem sett voru árið
2011 mega heildarskuldir sveitar-
félaganna ekki vera meiri en 150
prósent af tekjum. Á því eru
þó undan tekningar, til dæmis
tengdar orkufyrirtækjum, auk
þess sem sveitarfélögin fengu tíu
ár til að ná þessu marki.
Af sveitarfélögunum 27 eru
19 undir þessu viðmiði, en átta
skulda meira en 150 prósent af
tekjum. Í fjórum er hlutfallið yfir
200 prósent. - bj
Staða 27 stærstu sveitarfélaga landsins batnar áfram samkvæmt greiningu frá Arion banka:
Tekjurnar jukust meira í fyrra en árið 2012
HEILSA Breska matvælaeftirlitið
hvetur fólk til þvo ekki hráan kjúk-
ling. Þannig sé dregið úr líkum á
því að smitast af veirunni kamfíló-
bakter, sem er algengasta tegund
matareitrunar í Bretlandi.
Meira en fjórir af tíu segjast þvo
kjúklinga fyrir eldun. Eftirlitið
segir vatnsdropa geti dreift kam-
fílóbakter-veirunni yfir húð fólks,
vinnusvæði, föt og mataráhöld. Um
280 þúsund manns veikjast árlega
af kamfílóbakter í Bretlandi. - fb
Breskir neytendur varaðir við:
Ekki skal þvo
hráan kjúkling
REYKJAVÍK Miklu munar um bætta
stöðu fjögurra stærstu sveitarfélaganna
þegar fjárhagur sveitarfélaga landsins
er skoðaður. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
ÍSRAEL, AP Ísraelsk stjórnvöld hóta hörðum refsi-
aðgerðum gegn Palestínumönnum vegna þriggja
ísraelskra ungmenna sem saknað er síðan á
fimmtudag.
Ísraelar saka Hamas-samtökin um að hafa
rænt ungmennunum. Moshe Yaalon, varnar-
málaráðherra Ísraels, segir að Palestínumenn
megi reikna með að gjalda mannránin dýru
verði.
Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels,
notar tilefnið einnig til að hnýta í Mahmúd
Abbas, forseta Palestínu, og segir hann bera
á endanum ábyrgð á mannránunum þar sem
Fatah-samtök hans hafi náð sáttum við Hamas
og myndað þjóðstjórn í Palestínu.
Þeir Abbas og Netanjaú ræddust við símleiðis
í gær vegna málsins, en bein samskipti þeirra
hafa verið fátíð. Netanjahú óskaði eftir því að
Abbas aðstoðaði við leitina að ungmennunum.
Ísraelski herinn hefur verið með fjölmennt lið
á Vesturbakkanum að leita að ungmennunum.
Þetta eru viðamestu aðgerðir hersins þar í nærri
áratug. - gb
Ísraelsk stjórnvöld saka Hamas um mannrán og kenna Abbas um:
Hóta hörðum refsiaðgerðum
ÍSRAELSHER Í HEBRON Ísraelskir hermenn hafa gert dauðaleit
að þremur unglingum skammt frá borginni Hebron á Vestur-
bakkanum. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
1 Föt kvennanna fundust á
vesturbakka gljúfursins.
Tvennir skór fundust
á bakkanum og einar
buxur og nærbuxur en
aðrar buxur og nærföt
höfðu lent aðeins neðar
í gljúfrinu.
2 Fossinn í Bleiksárgili
er 30 metra hár.
3 Önnur kvennanna,
Pino Becerra
Bolanos, fannst
í hylnum fyrir
neðan fossinn.
4 Sprænan sem liggur
úr gilinu þykir
of vatnslítil til
að líkami gæti
skolast þar niður.
1
2
3
4
➜ Sumarbústaðurinn
sem konurnar voru í er
um það bil einn km vestur
af Bleiksárgili.
➜ Um þrjá km austan við gljúfrið fundust spor
eftir beran fót. Eftir rannsókn sérfræðinga bendir
ekkert til þess að fótsporin tilheyri
íslensku konunni.
➜ Þrengri leitarhringur
björgunarsveitanna
er 1,5 km í allar áttir
frá staðnum
þar sem Pino féll.
➜ Víðari leit
björgunarsveitanna
er í 6,4 km radíus
frá fossinum.