Fréttablaðið - 17.06.2014, Page 12
17. júní 2014 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR |
Hraðinn á stórsókn vígamanna
samtakanna Íslamskt ríki í Írak
og Austurlöndum nær (ISIS) í
Írak virðist hafa komið mörgum
í opna skjöldu. ISIS hefur tekið
Mosúl, aðra stærstu borg lands-
ins, og margar minni borgir án
mikilla átaka við Íraksher, en ekk-
ert bendir til þess að samtökin nái
höfuðborginni Bagdad á sitt vald
á næstunni.
Markmið ISIS er að stofna
íslamskt ríki með sjaría-lögum.
Samtökin hafa skipulagt hryðju-
verk í Írak á undanförnum árum,
en hafa barist við stjórnarherinn
í Sýrlandi síðustu ár og halda þar
stóru landsvæði við landamærin
við Írak.
Á þeim tíma virðast stjórnendur
ISIS hafa endurskipulagt sam-
tökin, og virðast þau að mörgu
leyti virka eins og skæruliðasam-
tök en ekki hryðjuverkasamtök, að
mati sérfræðinga. Samtökin virð-
ast vel skipulögð, vel fjármögnuð
og ágætlega tækjum búin.
Þetta hefur gert vígamönnum
samtakanna kleift að nýta sér
undanhald Írakshers í Mosúl og
öðrum borgum í norðurhluta Írak
og stjórna samtökin nú stórum
landsvæðum norður af Bagdad og
yfir sýrlensku landamærin.
Uppreisnarmenn ISIS eru sagðir
hafa framið fjöldamorð á íröskum
hermönnum sem þeir tóku til
fanga. Ekki er ljóst hversu margir
hermenn hafa verið drepnir eftir
að þeir gáfust upp, en talsmenn
ISIS fullyrða að þeir séu um 1.700
talsins.
ISIS sendi frá sér myndir um
helgina sem virðast sýna fanga
samtakanna tekna af lífi. Qassim
al-Moussawi, talsmaður Írakshers,
segir myndirnar sýna að í það
minnsta 170 hermenn hafi verið
teknir af lífi eftir að þeir féllu í
hendur ISIS.
Þá sýna myndbönd sem sam-
tökin hafa sent frá sér hvernig
vígamenn þeirra skjóta á bíla og
myrða fólk með hríðskotarifflum.
Talið er að rúmlega hálf milljón
óbreyttra borgara hafi flúið borgir
sem ISIS hefur hertekið.
Sparkað úr al-Kaída
ISIS-samtökin eiga rætur að rekja
til Íraks, þar sem þau urðu til úr
öðrum samtökum súnníta sem
tilheyrðu al-Kaída-hryðjuverka-
netinu. Þau fengu nafnið Íslamskt
ríki í Írak og Austurlöndum nær í
apríl í fyrra þegar tvenn samtök
sameinuðust undir þessu nafni.
Leiðtogi ISIS heitir Abu Bakr al-
Baghdadi, en hann stýrði al-Kaída
í Írak frá árinu 2010. Talið er að
um 7.000 vígamenn séu í samtök-
unum.
ISIS-samtökin njóta þess vafa-
sama heiðurs að vera einu aðildar-
samtök al-Kaída sem þau alræmdu
hryðjuverkasamtök hafa ákveðið
að slíta öll tengsl við. Yfirlýsing
frá al-Kaída bendir til þess að ISIS
hafi látið illa að stjórn.
ISIS styðjast við harðlínustefnu
og hafa stundað aftökur og hýð-
ingar, bannað tónlist, reyk ingar
og aðra hegðun sem stjórnendur
þeirra telja ekki í anda íslams. Þá
vilja samtökin að konur hylji sig
frá hvirfli til ilja og taki lítinn sem
engan þátt í samfélaginu. Þessi
harðlínustefna virðist hafa gengið
gegn hagsmunum al-Kaída.
Eiga lítið í íraska herinn
ISIS hefur náð fjölmörgum bæjum
í Írak á sitt vald á undanförnum
dögum, þótt vígamönnum sam-
takanna hafi ekki alltaf tekist að
halda fengnum hlut þegar íraski
herinn hefur gert gagnsóknir.
Kirk Sowell, sérfræðingur í
málefnum Íraks sem rætt er við
á fréttavefnum Vox, segir að þótt
hersveitir í þeim borgum sem ISIS
hefur ráðist á hafi hingað til hörf-
að undan hafi Íraksher yfir að ráða
margfalt meiri mannafla en ISIS,
og mun betri hergögnum. Þess
vegna sé afar ólíklegt að liðsmenn
ISIS hafi betur í beinum átökum.
Þá hafa bandarísk stjórnvöld
sent flugmóðurskip og tvö her-
skip sem búin eru stýriflaugum
á Persaflóa, og gætu þau stutt við
aðgerðir Írakshers.
Aðgerðir ISIS þykja benda til
þess að samtökin hafi endur vakið
nærri tíu ára gamlar hernaðar-
áætlanir sem aldrei urðu að veru-
leika, um að taka úthverfi Bagdad
og umkringja borgina.
Erfitt að halda landsvæðum
Munurinn á hernaðarlegri getu
vígamanna ISIS og íraska stjórnar-
hersins er mikill. Það þýðir ekki
að herinn muni eiga auðvelt með
að þurrka út uppreisnarmennina,
en það þýðir að ISIS mun eiga erf-
itt með að halda landsvæði sem
stjórnarherinn reynir að ná á sitt
vald, segir Sowell við Vox.
Við þetta bætist að þau svæði
þar sem ISIS hefur mest ítök eru
afar fátæk og lítill möguleiki á
að ISIS takist að þróa olíuvinnslu
á svæðinu til að fjármagna sig.
Draumur ISIS um íslamskt ríki
virðist því fjarlægur.
„Í rauninni gætu þeir náð að
stofna eigið ríki, en bara ef þeir
eru tilbúnir til að svelta,“ segir
Sowell.
Þrátt fyrir þetta hefur Nuri al-
Maliki, forsætisráðherra Íraks,
beitt sér fyrir því að vígasveitir
sjíta berjist við hlið stjórnarhers-
ins gegn uppreisnarmönnum ISIS.
Sérfræðingar óttast að með því að
gefa þessum vígasveitum lögmæti
með þessum hætti séu stjórnvöld
að bjóða heim hættunni á harð-
ari átökum milli súnníta og sjíta
í Írak.
ANBAR
RAQQA
HALAB
Sjálfstjórnar-
hérað Kúrda
Damaskus
ISIS með ítök
Undir stjórn ISIS
Borg undir
stjórn ISIS
Nýlega hertekið af ISIS
Mosúl
Kirkuk
Baiji
Tikrit
Balad
Tal Afar
Ramadi
Fallujah
Deir al Zawr
Raqqa
Í R A K
S Ý R L A N D
JÓRDANÍA
ÍRAN
Persa-
flóiSÁDÍ-ARABÍA
L
ÍB
A
N
O
N
K Ú V E I T
DEIR AL ZAWR HÉRAÐ HASAKAH NINEVEH
Bagdad
Jalula
Sadiyah
Muqdadiya
100km
VÍGAMENN ISIS SÆKJA Í ÁTT AÐ BAGDAD
Brjánn
Jónasson
brjann@frettabladid.is
Ólíklegt að ISIS takist að ná Bagdad
Vígamenn ISIS-samtakanna berjast nú við Íraksher um stjórn á borgum og bæjum norður af Bagdad. Stjórnarherinn er mun fjölmennari
og betur vopnum búinn. ISIS segjast hafa tekið 1.700 íraska hermenn af lífi. Draumur ISIS um að stofna íslamskt ríki virðist fjarlægur.
HERMÖNNUM SMALAÐ Í mynd sem ISIS-samtökin hafa sent frá sér sést hvernig mönnum sem sagðir eru hermenn, en eru
ekki í einkennisbúningum, er smalað saman og þeir reknir út í skurð. NORDICPHOTOS/AFP
TEKNIR AF LÍFI Hermönnunum var skipað að leggjast. ISIS-samtökin sendu þessa mynd frá sér, og segja að mennirnir sem
liggja á myndinni hafi allir verið teknir af lífi skömmu eftir að myndin var tekin. NORDICPHOTOS/AFP
SKOTINN Tveir liðsmenn ISIS standa yfir óþekktum manni sem hefur verið skotinn
til bana, á mynd sem ISIS-samtökin sendu frá sér. NORDICPHOTOS/AFP
HERMENN Svörtum fána jíhadista sem
ISIS notar er veifað yfir höfðum manna
sem sagði eru handsamaðir íraskir her-
menn, á mynd sem samtökin sendu frá sér.
NORDICPHOTOS/AFP
Múslimar í Írak skiptast í tvo hópa. Meirihlutinn, um tveir þriðju hlutar lands-
manna, er sjítar en þriðjungur er súnnítar. Fylkingarnar hafa lengi deilt, og
hefur það endurspeglast í stjórnmálaástandinu í Írak.
Nuri al-Maliki, forsætisráðherra Íraks, er sjíti og þykir mörgum súnnítum
hann ekki hafa deilt völdum með súnnítum með eðlilegum hætti. Þá hafa
stjórnvöld beitt mikilli hörku í baráttu sinni við uppreisnarhópa, og hand-
tekið mikinn fjölda súnníta sem sitja oft bak við lás og slá árum saman án
réttlátrar málsmeðferðar.
Stuðningsmenn ISIS eru súnnítar, en Írak er að mestu stjórnað af sjítum.
Átökin eru þó ekki eingöngu á milli þessara tveggja vel afmörkuðu hópa.
Kúrdar, sem búa á sjálfstjórnarsvæðum í norðurhluta landsins, eru súnnítar
en hafa barist gegn ISIS. Talið er að meirihluti annarra súnníta í Írak vilji
frekar láta reyna á friðsamlegar lausnir, aðeins lítill hluti er talinn styðja
vopnaða uppreisn gegn stjórnvöldum í Bagdad.
Skiptingin í súnníta og sjíta á rætur að rekja til deilna um hver skyldi
verða eftirmaður spámannsins Múhameðs. Súnnítar héldu því fram að það
ætti að vera Abu Bekr, tengdafaðir Múhameðs, en sjítar töldu það eiga að
vera Ali, tengdason Múhameðs. Nokkur munur er á trúarkenningum þessara
tveggja hópa. Súnnítar styðjast til dæmis við ýmis ummæli sem höfð eru
eftir Múhameð en ekki eru í Kóraninum.
ÁTÖKIN EKKI BARA Á MILLI SJÍTA OG SÚNNÍTA • Um 270 þúsund hermenn
eru í íraska hernum. Banda-
rískir og breskir hermenn hafa
hjálpað til við að skipuleggja
heraflann og þjálfa hersveitir.
• Útgjöld ríkisins til hermála
voru um 17 milljarðar banda-
ríkjadala á síðasta ári.
• Írösk stjórnvöld hafa fengið
mikið af hergögnum frá Banda-
ríkjunum og Bretlandi, auk þess
að hafa pantað orrustuþotur og
herþyrlur frá Bandaríkjunum.
• Baráttuandinn í hernum er
sagður afar lítill, og undanhald
hersveita frá Mosúl og nágrenni
bendir til þess að það sé rétt.
• Eitthvert mannfall hefur
verið í sprengjuárásum, auk
þess sem liðhlaup er ekki
óalgengt.
➜ Baráttuandi íraska
hersins lítill
ASKÝRING | 12
ÁTÖKIN Í ÍRAK HARÐNA