Fréttablaðið - 17.06.2014, Side 17
ÞRIÐJUDAGUR 17. júní 2014 | SKOÐUN | 17
HEILSA
Teitur
Guðmundsson
læknir
Beltone First gengur með iPhone 5s, iPhone 5c, iPhone 5, iPad Air, iPad (4. kynslóð), iPad mini með Retina, iPad mini og iPod touch (5. kynslóð) með iOS eða nýrra stýrikerfi. Apple, iPhone, iPad og iPod touch eru vörumerki sem tilheyra Apple Inc, skráð í Bandaríkjunum og öðrum löndum.
HEYRNARSTÖ‹IN
Beltone First™
Snjallara heyrnartæki
Ísland er 70 ára í dag, því ber
að fagna og munum við ganga
fylktu liði út á götur í fylgd lúðra-
sveita, kaupa blöðrur og sleikjó
og skemmta okkur í vonandi hinu
ágætasta veðri um land allt. Margt
merkilegt hefur drifið á daga þess-
arar ungu þjóðar og má með sanni
segja að það sé hálfótrúlegt hvað við
höfum afrekað þrátt fyrir smæðina.
Sjálfstæði okkar og tungumál hefur
verið varið og við höfum verið þátt-
takendur í samstarfi þjóðanna með
ágætum árangri. Við höfum skar-
að fram úr öðrum í ýmsu og erum
ekkert feimin við að berja okkur á
brjóst og finnast við býsna merki-
legt fólk.
Það er gott að hafa sterka þjóð-
ernisvitund og þekkja rætur sínar,
það er líka hollt og nauðsynlegt að
hafa samanburð, vera auðmjúkur og
bera virðingu fyrir öðrum sjónar-
miðum. Almennt hefur það líklega
tekist með ágætum. Nú þegar þjóðin
er að komast á „efri“ árin er eflaust
margt sem má gagnrýna, en örugg-
lega fleira sem má hrósa þegar
horft er yfir farinn veg og það gefur
tilefni til bjartsýni.
Ætli Ísland sé ekki eitt af þeim
ríkjum jarðar þar sem best er að
búa í margvíslegu tilliti. Við búum
við mikið öryggi, frelsi og jafn-
rétti kynjanna, þótt auðvitað megi
þar gera enn betur. Það er almennt
viður kennt að menntakerfið er gott
og heilbrigðiskerfið líka. Grunnstoð-
irnar eru sterkar, en þær eru langt
frá því að vera sjálfsagðar. Mín
kynslóð hefur alist upp við stöðuga
framþróun, velmegun hefur verið
talsverð þótt verulega hafi gefið á
bátinn eins og allir vita á undan-
förnum árum. Sú staða gerir okkur
að vissu leyti erfitt fyrir því við
verðum að viðurkenna að við höfum
líklega farið of geyst, kannski
ofmetnast og ætlast til of mikils af
okkur. Næstu árin munu sýna það
hvort okkur tekst að halda okkur
áfram í efstu deild þjóða heims, sér-
staklega þegar kemur að þeim lífs-
gæðum sem við teljum hvað mikil-
vægust og ég taldi upp hér að ofan.
Í úrvalsdeild
Tölum því aðeins um heilbrigðis-
kerfið sem að mínu viti er líklega
eitt það allra mikilvægasta sem
við eigum, en ég er auðvitað hlut-
drægur í því mati sem læknir. Allir
mælikvarðar segja okkur að við
spilum þar í úrvalsdeild, samt sem
áður er mikið kvartað. Biðtímar eru
að lengjast, undirmönnun mikil og
nýliðun gengur hægt. Þetta þekkj-
um við til viðbótar við þann bar-
lóm sem heyrist reglulega varðandi
húsakost og tækjabúnað. Við erum
að falla niður um deild ef okkur
tekst ekki að snúa skútunni, sumir
segja að við séum þegar fallin. Það
verður okkur dýrkeypt. Ekki ætla
ég að metast, en það fer óneitanlega
mikið í taugarnar á fagfólki þegar
talað er um heilbrigðiskerfið sem
kostnað eingöngu. Það er hreinn
ávinningur og vafalítið leggur Land-
spítali, heilsugæslan um landið og
heilbrigðisþjónustan eins og hún
leggur sig meira inn en hún tekur
út á hverju ári til samfélagsins.
Það þýðir hins vegar ekki að það
sé ásættanlegt, heilbrigðisþjón ustan
verður að svara kalli nútímans,
breyttra aðstæðna, breytts sam-
skiptamáta og síðast en ekki síst
breyttrar samsetningar fólksins
í landinu. Ferðamenn eru orðn-
ir tvisvar sinnum fleiri en íbúar
landsins á ársgrundvelli, við erum
orðin fjölmenningarsamfélag, lífs-
stílssjúkdómar herja á okkur sem
aldrei fyrr og samfélagið er að eld-
ast hratt. Einstaklingar eru að lifa
mun lengur en þeir gerðu fyrir
20-30 árum að meðaltali og er ljóst
að við munum ekki hafa efni á að
reka okkur eins og við höfum gert.
Við erum orðin þreytt á frösum
stjórnmálamanna, raunverulegra
breytinga er þörf sem miðast við
næstu áratugi en ekki kjörtímabil,
mögulega væri róttækasta hug-
myndin sú að taka heilbrigðisþjón-
ustuna eins og hún leggur sig út
fyrir stjórnarráðið og vinna hana
með langtímasjónarmið, langtíma-
fjármögnun og hagsmuni þjóðar og
sjúklinga að leiðarljósi.
Sem sönnum Íslendingi sæmir og
með íslenska bjartsýni að leiðarljósi
efast ég samt ekkert um það að við
munum áfram spila í úrvalsdeild,
til hamingju með daginn Íslend-
ingar! Fram, fram, aldrei að víkja.
Fram, fram bæði menn og fljóð.
Tengjumst tryggðarböndum, tökum
saman höndum, stríðum, vinnum
vorri þjóð.
Brestir í gamalmenninu?
Við erum orðin
þreytt á frösum
stjórnmálamanna, raunveru-
legra breytinga er þörf sem
miðast við næstu áratugi en
ekki kjörtímabil.
Vissir þú að ef vextir á
20 milljóna króna óverð-
tryggðu jafngreiðsluláni,
til 20 ára, lækka úr 7,5% í
6,5% þá lækka afborganir
þess um 145 þúsund krón-
ur á ári? Í kjölfarið mynd-
ast umtalsverður sparn-
aður ef litið er til líftíma
lánsins. Sé sparnaðurinn
núvirtur, sem kallað er,
má meta verðmæti lækk-
unarinnar á um 1,5 milljónir króna
(miðað við 7,5% ávöxtunarkröfu).
Það er því augljóst að það marg-
borgar sig að skoða hvaða lánakjör
standa þér til boða.
Með því að fylgja nokkrum ein-
földum þumalputtareglum þá getur
þú tryggt betur að fá sem lægsta
vexti á fasteignalánum þínum. Það
getur sparað umtalsverða fjármuni.
Fylgdu þremur þumalputtareglum
Í fyrsta lagi skaltu búa til yfirlit
yfir þau lán sem hvíla á fasteign-
inni þinni og eðli þeirra. Í því gæti
t.d. komið fram hvort þau eru verð-
tryggð eða óverðtryggð, hversu
langur tími er eftir af hverju láni,
afborganir á mánuði, vextir, hvort
vextirnir eru breytilegir eða fastir,
hvort uppgreiðslugjöld séu til staðar
og svo framvegis.
Í öðru lagi skaltu afla upplýsinga
um fasteignamat og markaðsverð-
mæti fasteignar þinnar. Þær upplýs-
ingar geturðu nýtt til þess að meta
hversu hátt hlutfall eignarinnar er
veðsett en möguleikar til lántöku
ráðast að miklu leyti af veð-
setningarhlutfallinu.
Í þriðja lagi skaltu bera
saman vexti og kjör hjá þeim aðil-
um sem starfa á markaðnum. Ef
ársvext irnir lækka um 1% eða
meira þá ætti það að öllum líkind-
um að vera hagstætt fyrir þig að
endurfjármagna fasteignalánin. Í
upphafi gætirðu t.d. fengið upplýs-
ingar um lánakjör hjá Arion banka,
Landsbankanum, MP banka, Íbúða-
lánasjóði, Íslandsbanka og lífeyris-
sjóðnum þínum (lífeyrissjóðir bjóða
í mörgum tilfellum upp á mjög hag-
stæð kjör á fasteignalánum).
Taktu ákvörðun
Í dag er lítill kostnaður sem fylgir
því að endurfjármagna fasteignalán
en ástæða þess er m.a. sú að nú um
áramótin voru stimpilgjöld af veð-
skjölum felld niður. Því er lántöku-
gjaldið oft nánast eini kostnaðurinn
sem fylgir því að endurfjármagna
fasteignalán en gjaldið er á bilinu
0,5-1% af upphæð nýja lánsins. Það
getur því margborgað sig að skoða
þessi mál, hvort heldur upp á eigin
spýtur eða með aðstoð óháðs fjár-
málaráðgjafa.
Endurfjármögnun
fasteignalána getur
margborgað sig
FJÁRMÁL
Valur Þráinsson
hagfræðingur
➜ Með því að fylgja
nokkrum einföldum
þumalputtareglum þá
getur þú tryggt betur
að fá sem lægsta vexti á
fasteignalánum þínum.