Fréttablaðið - 17.06.2014, Qupperneq 38
17. júní 2014 ÞRIÐJUDAGUR| LÍFIÐ | 34
BAKÞANKAR
Álfrúnar
Pálsdóttur
Miðasala á:
22 JUMP STREET
22 JUMP STREET LÚXUS
FAULT IN OUR STARS
MILLION WAYS TO DIE . . .
TÖFRALANDIÐ OZ 2D ÍSL. TAL
X-MEN 3D
X-MEN 2D
VONARSTRÆTI
LÁSI LÖGGUBÍLL
22 JUMP STREET
GRACE OF MONACO
FAULT IN OUR STARS
VONARSTRÆTI
THE OTHER WOMAN
KL. 5.30 - 8 - 10.30
KL. 5.30 - 8 - 10.30
KL. 5 - 8 - 10.40
KL.10.45
KL. 3.20
KL. 8 - 10.45
KL. 5
KL. 5.20 - 8
KL. 3.20
KL. 8 - 10.30
KL. 5.40 - 8
KL. 6 - 9
KL. 5.20 - 8 - 10.40
KL. 5.30 – 10.30
OF
KIDMAN
NICOLE
FRANK LANGELLA
DAHANOLIVIERMYND EFTIR
ROTH
TIM
GAUMONT KYNNIR
„ÞÚ SÉRÐ EKKI FYNDNARI
MYND Í SUMAR!“ -T.V., BIOVEFURINN.IS
-C.P., USA TODAY
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ ÞRIÐJUDAGSTI BOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
22 JUMP STREET 5, 8, 10:20
MILLION WAYS TO DIE IN THE WEST 8, 10:30
VONARSTRÆTI 5, 8, 10:40
TÖFRALANDIÐ OZ 2D 2, 4, 6
TÖFRALANDIÐ OZ 3D 2
RÍÓ 2 2D 2
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
ÞRIÐJUDAGUR ER TILBOÐSDAGUR
T.V. Bíóvefurinn.is
SHORT TERM 12
HM Í FÓTBOLTA
Í BEINNI
FRÍTT INN
SJÁ FLEIRI SÝNINGAR Á WWW.BIOPARADÍS.IS - Miðasala: 412 7711 - Hverfisgata 54 - bioparadis.is - Hluti af Europa Cinemas
ÁLFABAKKA
AKUREYRI
EGILSHÖLL
KRINGLUNNI
KEFLAVÍK
HOLLYWOOD REPORTER NEW YORK DAILY NEWS
ANGELINA JOLIE OG ELLE FANNING
EKKI TRÚA
ÆVINTÝRINU
Gwyneth Paltrow og Chris Martin
búa enn þá saman í Brentwood og
eyða helgum saman í nýju húsi
sínu í Malibu þrátt fyrir að hafa
skilið að skiptum eftir tíu ára
hjónaband í mars. Slúðurmiðlar
hafa velt vöngum yfir því hvort
parið sé að endurhugsa skilnaðinn,
hugsanlega til þess að gefa hjóna-
bandinu annan séns. Nýlega sást til
þeirra hlæja saman í rómantískum
kvöldverði í Kaliforníu. E! News
segir parið búa saman til þess að
gera skilnaðinn sem þægilegastan
fyrir börnin sín, Apple og Moses.
„Þau hafa borið öryggi og vellíðan
barnanna fyrir brjósti í gegnum
allt saman,“ segir heimildarmað-
ur E!.
Grunsemdir
um skilnaðinn
BÚA SAMAN Stjörnuparið býr enn þá
saman þrátt fyrir skilnaðinn í mars.
Save the Children á Íslandi
Fjör á Grímunni
Mikið var um dýrðir í Borgarleikhúsinu í gærkvöldi þar sem Gríman 2014 fór fram en það er uppskeruhátíð
sviðslista hér á landi. Gestir voru í sínu fínasta pússi er þeir fj ölmenntu í leikhúsið. Kynnar kvöldsins voru
þeir Bergur Ebbi og Dóri DNA og fóru þeir á kostum.
FLOTTAR VINKONUR Selma Björnsdóttir og Björk Eiðsdóttir.
ALSÆLL Leikarinn Gunnar Helgason.
SÆT SAMAN Leikkonan Svandís Þóra Einarsdóttir og
Sigtryggur Magnússon.
FLÖTT FJÖLSKYLDA Karl Steingrímsson, Ester Ólafsdóttir,
leikarinn Þorvaldur Davíð Kristjánsson og unnusta hans, Hrafn-
tinna Viktoría Karlsdóttir.
GAMAN María Telma Smáradóttir og
Kári Birgir Angantýsson.
BROSANDI Gígja Tryggvadóttir og Ari Matthíasson.
SKEMMTU SÉR Egill og Móeiður.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Á DÖGUNUM fann ég rykugan og snjáð-
an myndakassa sem hafði verið á flakki
milli geymslna síðan filmuvélin gaf upp
öndina. Upp hófst mikið nostalgíukast þar
sem mismerkileg tímamót síðustu 15 ára
voru rifjuð upp. Þar ber hæst drulluga
Hróarskelduhátíð, skólaferðalag í Þórs-
mörk þar sem allir klæddust að minnsta
kosti þremur hettupeysum hverri yfir
aðra og stígvél voru óþörf þar sem
dekkjasólarnir á Buffaló-skónum
ösluðu í gegnum polla. Sumarið góða
í Kaupmannhöfn sem var upphafið
og endirinn á ræstingakonuferli
mínum stóð einnig upp úr sem og
bekkjarferðalagið til Parísar þar
sem rauðvín var bragðað í fyrsta
sinn.
STUNDUM vantaði haus, fót,
hönd. Lokuð augu, grettinn
svipur, óvelkomin undirhaka,
rauð augu og inn á milli voru
myndir sem voru einfaldlega
svartar. Margar myndir á sömu
filmunni af fólki í sömu pósunni
var einnig klassískt og miðinn
„kjörinn til stækkunar“ yljaði
um hjartarætur. Með því að vera einmitt
misgóðar fönguðu myndirnar tíðarandann
vel. Nú er nefnilega öldin önnur og mis-
heppnaðar myndir af óundirbúnum við-
fangsefnum heyra í raun sögunni til.
ÞAÐ er ekki langt síðan þetta var, í árum
talið, en fyrir tíma snjallsímans, jafnvel far-
símans almennt. Fyrir tíma filters, „crop“
og áður en „selfie“-myndir með spegla-
svipum fóru að tröllríða öllu. Þegar maður
þurfti að hringja á internetið, þegar hver
ljósmynd var tíu mínútur að hlaðast á skjá-
inn og samfélagsmiðlar voru ekki einu sinni
hugmynd. Og það sem ég er fegin í dag.
MYNDAKASSINN fer beint aftur í ryk-
uga hilluna í kjallaranum. Nú til dags er
maður orðinn svo vanur að geta fylgst með
lífi vina og kunningja gegnum myndir. Það
er eiginlega orðið þannig að sjái maður ekki
mynd, er óvíst að viðkomandi atburðir hafi
yfirhöfuð átt sér stað. Vinir og vandamenn
verða bara að treysta því að undirrituð hafi
misst af Muse á Hróarskeldu árið 2002
sökum drullu og komið efst í Eiffelturninn
þrátt fyrir fjarveru þessara atburða af sam-
félagsmiðlum filteraðra og fínna.
Mynd eða það gerðist ekki