Fréttablaðið - 17.06.2014, Síða 40
17. júní 2014 ÞRIÐJUDAGUR| SPORT | 36
visir.is
Meira um leiki
gærkvöldsins
HM 2014 Roy Hodgson vonast
til þess að fá meira framlag frá
Wayne Rooney gegn Úrúgvæ en
í leiknum gegn Ítalíu. Rooney
hefur enn ekki tekist að skora í
lokakeppni HM en þetta er hans
þriðja mót.
Rooney, sem lagði upp fyrir
Daniel Sturridge eina mark Eng-
lendinga í leiknum, átti í erfið-
leikum á vinstri kantinum.
Alan Shearer gagnrýndi Hodg-
son eftir leik fyrir að troða Roo-
ney út á kantinn. Taldi Shearer
að Hodgson ætti að spila Rooney
í bestu stöðu hans eða einfaldlega
setja hann á varamannabekkinn.
„Við viljum fá hann meira inn í
vítateiginn og við munum reyna
að gera það gegn Úrúgvæ. Ég var
fullviss um að hann myndi nýta
færið sem Leighton Baines stillti
upp fyrir hann,“ sagði Hodgson.
Rooney viðurkenndi að hann
þyrfti að spila betur í leiknum á
fimmtudaginn.
- kpt
Vill fá meira
frá Rooney
SPORT
Portúgalinn Pepe varð
sér enn eina ferðina til
skammar í gær þegar
hann lét reka sig af velli eftir
rúmlega hálftíma leik gegn
Þýskalandi.
Pepe er ekki í miklu upp-
áhaldi hjá knattspyrnuáhuga-
mönnum enda er hegðun
hans á vellinum oftar en ekki
stórfurðuleg.
Það glöddust því margir í
gær er Pepe lét skapið hlaupa
með sig í gönur og eyðilagði
leikinn í leiðinni fyrir sínu liði.
Hvað er að þessum Pepe?
22.00 RÚSSLAND– SUÐUR-KÓREA
Fabio Capello, landsliðsþjálfari Rússlands,
mætir til leiks með strákana sína á Stöð 2
Sport 2 í kvöld en þá spila Rússar gegn Suður-
Kóreu.
Þetta er í fyrsta skipti síðan 2002 sem
Rússar eru með á HM og eru talsverðar
væntingar til liðsins þó svo að það hafi
ekki beint blómstrað á síðustu mótum.
Rússarnir mæta til leiks í fínu formi
en þeir hafa ekki tapað síðustu tíu
leikjum sínum.
Þjóðverjinn Thomas Müller er
oft nefndur maður stóru leikj-
anna og hann stóð fyllilega
undir því nafni í gær.
Hann skoraði þá þrennu í
stórsigri Þjóðverja á Portú-
gölum.
Müller er vanur því að
reynast þýska liðinu vel og
oftar en ekki er hann mættur
á svæðið á réttum stað á
réttum tíma þegar þýska
landsliðið þarf einna helst á
því að halda.
STJARNA
GÆRDAGSINS
Allt um HM á Vísi
FÓTBOLTI Aron Elís Þrándarson,
nítján ára leikmaður Víkings, er
leikmaður 8. umferðar að mati
Fréttablaðsins. Hann átti stórleik
þegar nýliðarnir úr Fossvoginum
lögðu granna sína í Val, 2-1. Það
var reyndar þriðji sigur Víkinga
á Val á þessu ári því þeir unnu
einnig leiki liðanna í Reykjavíkur-
mótinu og Lengjubikarnum.
„Það er oft talað um að það sé
rígur á milli þessara félaga en ég
hef ekki fundið fyrir honum,“ lýsir
Aron Elís en hann er upp alinn
í Fossvoginum og hefur aldrei
spilað fyrir annað félag.
Hann skoraði glæsilegt mark
gegn Val og lagði svo upp sigur-
mark sinna manna. Víkingur
komst upp í fimmta sæti deildar-
innar og er með þrettán stig.
„Ég er sáttur við frammistöðuna
í sumar þó svo að leikirnir gegn
Fylki og FH sitji í mér. Ég hefði
viljað fá meira út úr þeim en ég
sætti mig við þessi þrettán stig,“
segir Aron Elís.
Í góðu lagi að fá hrós
Víkingurinn ungi hefur vakið
mikla athygli fyrir frammistöðu
sína og sparkspekingar hafa keppst
við að lofa drenginn. Magnús
Agnar Magnússon, umboðs maður
hans, staðfesti við Fréttablaðið að
mörg erlend félög hefðu áhuga á
kappanum og nú síðast í gær komu
hingað til lands fulltrúar erlendra
liða til að sjá hann spila gegn Fylki
í Borgunarbikarkeppni karla á
morgun.
„Ég pæli svo sem ekki mikið í
þessu, þó svo að manni sé hrósað
hér og þar. Mér finnst það í góðu
lagi en ég passa mig samt á því að
fara ekki fram úr sjálfum mér þó
svo að ég standi mig vel í nokkr-
um leikjum,“ segir hann og tekur
undir þær staðhæfingar að hann
eigi góða möguleika á að komast
að hjá atvinnumannaliði ytra.
„Ég tel mig alla vega hafa burði
til þess en hvort ég sé í þeim gæða-
flokki nú verður bara að koma í
ljós. En stefnan hjá mér hefur allt-
af verið að komast að úti og það er
ekkert leyndarmál.“
Grunur um kviðslit
Aroni Elísi var hlíft nokkuð í upp-
hafi móts og þá missti hann af
þó nokkrum leikjum Víkinga í 1.
deildinni í fyrra. Engu að síður
var hann markahæsti leikmaður
deildarinnar með fjórtán mörk
í jafn mörgum leikjum, auk þess
sem hann var valinn bæði besti og
efnilegasti leikmaður deildarinnar
af þjálfurum og fyrirliðum liðanna
í vali Fótbolta.net.
„Ég var tæklaður í ökklann í
lok síðasta tímabils og sneri hann
nokkuð illa. Það tók tíma að jafna
sig, sérstaklega þar sem það kom
nokkrum sinnum bakslag. Svo rétt
fyrir mót í vor fann ég fyrir verk
í kviðnum og kom þá upp grunur
um kviðslit. Svo var þó sem betur
fer ekki og tókst að laga það með
sprautumeðferð.“
Síðan þá hefur verið hugsað vel
um Aron Elís og Ólafur Þórðar-
son, þjálfari Víkings, og Milos
Milojevic, aðstoðarmaður hans,
notuðu hann sparlega í upphafi
mótsins.
„Þeir hafa stýrt þessu vel. Ég
vildi til dæmis spila meira en þeir
leyfðu mér gegn FH. Auðvitað vill
maður spila 90 mínútur í hverjum
leik en skrokkurinn var ekki til-
búinn í það. Þá leyfir maður þjálf-
urunum að stjórna þessu,“ segir
Aron Elís en ítrekar að hann sé
algjörlega meiðslafrír í dag.
Vill spila ákveðinn fjölda leikja
Sem fyrr segir er markmið hans
að komast að sem atvinnumaður
en þangað til einbeitir hann sér að
því að standa sig vel með sínu upp-
eldisfélagi. „Ég vil til dæmis spila
ákveðið marga leiki en er ekki með
neitt sérstakt í huga hvað fjölda
marka eða stoðsendinga varðar.
Ég stefni bara að því að eiga þátt í
minnst einu marki í hverjum leik
enda er það mitt hlutverk í liðinu
sem sóknarmaður.“
eirikur@frettabladid.is
Mitt hlutverk að skora mörk
Aron Elís Þrándarson er kominn á góðan skrið eft ir að hafa glímt við meiðsli í upphafi móts og átti stóran
þátt í sigri nýliða Víkings á Val í þriðja sinn á þessu ári. Hann hefur vakið áhuga margra erlendra félaga.
STEFNIR ÚT Mörg erlend félög hafa fylgst náið með framgöngu Arons Elísar
Þrándarsonar að undanförnu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
… Bjarna Guðjónsson, þjálfara Fram, sem sá liðið sitt blómstra gegn
nýliðum Fjölnis í Grafarvoginum eftir erfiða byrjun í deildinni.
… Jonathan Glenn, sóknarmann ÍBV, sem var nokkuð gagnrýndur í
upphafi móts en hefur svarað með því að skora tvö mörk í síðustu tveimur
leikjum auk þess sem hann var maður leiksins gegn Breiðabliki.
Góð umferð fyrir ...
ÚRSLIT
HM Í BRASILÍU
G-RIÐILL
ÞÝSKALAND - PORTÚGAL 4-0
1-0 Thomas Müller, víti (12.), 2-0 Mats Hummels
(32.), 3-0 Thomas Müller (45.+1), 4-0 Thomas
Müller (78.).
GANA - BANDARÍKIN
Leiknum var ekki lokið þegar Fréttablaðið fór
í prentun.
F-RIÐILL
ÍRAN - NÍGERÍA 0-0
STAÐAN
Argentína 1 1 0 0 2-1 3
Íran 1 0 1 0 0-0 1
Nígería 1 0 1 0 0-0 1
Bosnía 1 0 0 1 1-2 0
LEIKIR DAGSINS
H-RIÐILL: Belgía - Alsír kl. 16.00
A-RIÐILL: Brasilía - Mexíkó kl. 19.00
H-RIÐILL: Rússland - S-Kórea kl. 22.00
FÓTBOLTI Knattspyrnukonan Mist
Edvardsdóttir hefur greinst með
Hodgkins-eitilfrumukrabbamein
og verður því frá keppni út árið
hið minnsta. Þessi 23 ára Vals-
kona úr Mosfellsbæ fékk tíð-
indin staðfest sama dag og hún
var valin í kvennalandsliðið fyrr
í mánuðinum.
„Fyrsti dagurinn var svolítið
erfiður þegar ég fékk þetta loksins
staðfest. Þá fyrst gerði maður sér
almennilega grein fyrir því hversu
alvarlegt þetta var,“ sagði Mist í
samtali við Fréttablaðið í gær en
þá var hún stödd í Kaupmanna-
höfn þar sem hún fer í svokall aðan
jáeindaskanna (PET).
„Fótboltinn hefur svo hjálpað
manni að takast á við þetta. Það
hefur verið gott að mæta á æf-
ingar, gleyma sér og hætta að vera
krabbameinssjúklingur eitt augna-
blik,“ útskýrir Mist sem hefur
ávallt verið heilsuhraust auk þess
sem engin saga um krabbamein er
í hennar nánustu fjölskyldu.
„Þess vegna var þetta svolítið
áfall og maður átti erfitt með að
trúa því að þetta væri niðurstaðan
– að ég væri með krabbamein 23
ára gömul.“
Þann 6. júní fékk hún tíð indin
staðfest en þann dag var hún
einnig valin í kvennalandsliðið.
„Ég sagði Frey [Alexanderssyni,
landsliðsþjálfara] frá þessu þá en
af minni hálfu kom ekkert annað
til greina en að fara út með liðinu,
sérstaklega þar sem ég er enn
frísk og líður vel. Þetta var svo
rætt þegar við komum út en flest-
ar vissu þó af þessu. Fréttunum
var tekið af miklu jafnaðargeði og
svo hélt maður bara áfram,“ segir
Mist sem gat tekið þátt í æfingum
landsliðsins af fullum krafti.
„Það er bara á erfiðum þolæf-
ingum sem ég finn eitthvað fyrir
enda meinið í hálsinum og þrýstir
á öndunarveginn,“ útskýrir hún.
Mist mun ekki fara í aðgerð
en lyfjameðferð hefst strax á
föstudaginn. Þá hefst baráttan af
fullum krafti.
„Þetta er barátta sem ég þekki
ekki vel. En ég hugsa um þetta
eins og hvert annað skítadjobb sem
þarf að klára áður en ég get gert
það sem ég vil gera. Það þýðir ekk-
ert að væla eða pirra sig á þessu.
Þetta er bara djobb sem maður
þarf að sinna og hjálpar til að vera
bæði jákvæður og gera eins vel og
maður mögulega getur,“ segir Mist
Edvardsdóttir. - esá
Skítadjobb sem ég þarf að klára
Landsliðskonan Mist Edvardsdóttir hefur greinst með eitilfrumukrabbamein.
BARÁTTUKONA Mist Edvardsdóttir í leik með Val í Pepsi-deild kvenna.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Thomas Müller
Þýskaland