Fréttablaðið - 24.07.2014, Page 4
24. júlí 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 4
EFNAHAGSMÁL Litháen fékk í gær
síðasta græna ljósið á að fá að taka
upp evru um næstu áramót. Land-
ið verður nítjánda aðildarríki Evr-
ópusambandsins (ESB) til að taka
upp sameiginlega mynt sambands-
ins.
Algirdas Butkevicius, forsætis-
ráðherra Litháens, fagnaði þessum
sögulegu tíðindum. Utanríkisráð-
herrann Linus Linkevicius sagði
Litháa verða trausta aðila evru-
svæðisins. „Evran er ekki bara
mynt eða hlutur úr málmi. Fyrir
okkur snýst þetta um að vera í
réttum félagsskap.“ Litháen er
síðasta Eystrasaltsríkið til að taka
upp evru. - aí
Litháar fá nýjan gjaldmiðil:
Evran ekki bara
hlutur úr málmi
ÁFANGANUM FAGNAÐ Litháen verður
síðasta Eystrasaltsríkið til að taka upp
evru. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
ÚKRAÍNA Tvær úkraínskar herþotur
voru skotnar niður á flugi yfir aust-
urhluta Úkraínu í gær.
Talsmaður varnarmálaráðu-
neytis Úkraínu segir að flugmenn
vélanna hafi komist lífs af. Þoturn-
ar voru skotnar niður skammt frá
rússnesku landamærunum, á sömu
slóðum og malasíska farþegaþotan
sem var skotin niður í síðustu viku.
Aðskilnaðarsinnar lýsa yfir
ábyrgð á verknaðinum. Þoturn-
ar voru skotnar niður með flug-
skeytum frá jörðu með sam-
bærilegum hætti og malasíska
farþegaþotan.
Þá hafa fregnir borist af því að í
gær hafi úkraínsk yfirvöld skotið
niður rússneskan dróna í Dónetsk-
héraði. Yfirvöld sögðu drónann
hafa verið notaðan af aðskilnaðar-
sinnum til að fylgjast með svæðinu.
Samkvæmt Washington Post
er ekkert lát á átökum aðskiln-
aðarsinna og úkraínska hersins.
Sprengjur og skothvellir heyrðust
víða í Dónetsk á þriðjudag er fylk-
ingarnar tókust á. - ssb
Ekkert lát virðist vera á átökum úkraínska hersins og aðskilnaðarsinna sem vilja sameinast Rússlandi:
Tvær herþotur skotnar niður yfir Úkraínu
FALLNIR HERMENN
Átök hafa verið hörð
í Dónetsk-héraði. Hér
sjást látnir úkraínskir
hermenn sem féllu í
átökum við aðskilnaðar-
sinna á þriðjudag.
MYND/AP
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is,
Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is
FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is,
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
SVONA ERUM VIÐ
43 friðlönd og friðlýst búsvæði voru á Íslandi
árið 2011.
Árið 1940, eða 71 ári áður, var
aðeins eitt slíkt til.
NÁTTÚRA Umhverfismálaráð Bol-
ungarvíkur leggur til að fram-
kvæmdaleyfi verði gefið út til
dýpkunar Ósár. Þessi ákvörðun
var tekin að fenginni umsögn
Náttúrustofu Vestfjarða.
Þetta kom fram á fundi ráðs-
ins í gær. Óskað var eftir fram-
kvæmdaleyfi fyrir dýpkun árinn-
ar, neðan neðstu brúar, vegna
vatnsstöðu hennar. Hún er nú
orðin allt að einum og hálfum
metra hærri en vanalegt er á
þessum tíma.
Landeigendur og veiðiréttar-
hafar hafa samþykkt fram-
kvæmdina en beðið er eftir
samþykki Fiskistofu fyrir fram-
kvæmdinni. Fáist það verður
framkvæmdaleyfi staðfest. - nej
1,5 metrum hærri en vanalega:
Vilja dýpka Ósá
BANDARÍKIN, AP Lögregla í Massa-
chusetts í Bandaríkjunum hand-
tók í gær mann sem hafði í fórum
sínum níu millimetra Ruger-
skammbyssu sem notuð var við
dráp á lögregluþjóni í tengslum
við sprengjuárásirnar í maraþon-
hlaupinu í Boston í apríl í fyrra.
Maðurinn, Stephen Silva, var
handtekinn í tengslum við heróín-
sölu. Hann er sagður vinur Dzhok-
ahar Tsarnaev sem er í haldi
vegna hryðjuverkaárásanna.
Bróðir Dzhokahars, Tamerlan
Tsarnaev, lést í skotbardaga við
lögreglu nokkrum dögum eftir
árásirnar á maraþonhlaupið. - óká
Áfangi í hryðjuverkarannsókn:
Gripinn með
notaða byssu
SJÁVARÚTVEGUR Nýr sextíu metra
viðlegukantur við Norðfjarðar-
höfn var vígður á þriðjudag þegar
skipið Birtingur NK lagðist upp
að. Stækkun stendur yfir á höfn-
inni um þessar mundir til að gera
hana rýmri fyrir stærri skip.
Frá þessu er greint í frétt á vef
Síldarvinnslunnar hf. Norðfjarð-
arhöfn hefur undanfarin ár verið
ein umsvifamesta höfn landsins
og hefur yfir tvö hundruð þúsund
tonnum verið landað í höfninni.
Það sem af er ári hefur 97 þús-
und tonnum verið landað í Norð-
fjarðar höfn. - bá
Norðfjarðarhöfn stækkuð:
Nýr kantur við
höfnina vígður
Elísabet Margeirsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
KÖFLÓTT OG MILT Suðlægar áttir enn ríkjandi næstu daga með mjög mildu veðri og
úrkomu með köflum víða einkum sunnan og vestan til. Á laugardag verður yfirleitt hæg
breytileg átt og áfram heldur milt í veðri um helgina en víða skúrir inn til landsins.
13°
5
m/s
14°
7
m/s
14°
8
m/s
12°
9
m/s
3-8 m/s.
Hæg
vestlæg
eða
breytileg
átt.
Gildistími korta er um hádegi
28°
35°
29°
29°
20°
26°
25°
25°
25°
25°
27°
32°
32°
29°
24°
28°
25°
28°
14°
4
m/s
16°
3
m/s
21°
2
m/s
17°
3
m/s
19°
2
m/s
18°
3
m/s
11°
8
m/s
14°
14°
12°
11
14°
17°
19°
15°
16°
13°
Alicante
Aþena
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
LAUGARDAGUR
Á MORGUN
FAGURT STÆÐI Bolungarvík er fallegt
bæjarpláss. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
HAMFARIR „Menn átta sig ekki
á þessu fyrr en um tvöleytið á
þriðjudag þegar landvörður frá
okkur kemur inn að Víti,“ segir
Hjörleifur Finnsson, þjóðgarðs-
vörður á norðursvæði Vatnajökuls-
þjóðgarðs. Gríðarlegt berghlaup,
sem talið er það allra stærsta síð-
ustu áratugi, féll í Öskjuvatn seint
á mánudagskvöld.
Lokað hefur nú verið fyrir
umferð að norðausturhluta Öskju-
vatns, þeim hluta sem snýr að Víti.
Heimilt er þó að ferðast að Öskju.
Að sögn Hjörleifs er svæðið þar
sem skriðan féll utan alfaraleiðar
og var því ekki þörf á að loka sér-
staklega fyrir umferð þar.
„Venjulega væri þar lítil eða
engin umferð,“ segir Hjörleifur.
„Það eru kannski tveir á ári sem
ganga hringinn á toppunum, þann-
ig að það eru litlir hagsmunir í
húfi þótt það sé bannað.“
Skriðan féll í suðausturhluta
vatnsins og olli mikilli flóðbylgju
sem gekk allt að 120 metra upp
fyrir yfirborð vatnsins og náði inn
í Víti. Mikil mildi þykir að enginn
var þarna á ferð þegar skriðan féll
en mikið er jafnan um ferðamenn
á svæðinu á þessum árstíma.
Hjörleifur hefur eftir Ármanni
Höskuldssyni jarðfræðingi, sem
skoðaði ummerki skriðunnar á
þriðjudag, að um 24 milljónir
rúmmetra hafi fallið í vatnið hið
minnsta. Alls hafi landfall í skrið-
unni getað numið 50 til 60 milljón-
um rúmmetra.
Vísindamenn á vegum Veður-
stofunnar og Háskóla Íslands
mættu á vettvang í gærkvöldi til
að kanna umfang og orsakir skrið-
unnar. Enn er óljóst hvað nákvæm-
lega olli skriðunni en talið er að
snjóbráð á svæðinu hafi mögulega
hrint henni af stað.
Lokunin að Öskjuvatni gildir að
minnsta kosti til morguns, en þá
á niðurstaða vísindamannanna að
liggja fyrir um það hvert umfang
skriðunnar er og hvort hætta sé á
frekari skriðuföllum.
bjarkia@frettabladid.is
Vísindamenn skoða
orsakir skriðunnar
Stærsta berghlaup landsins síðustu áratugi varð við Öskjuvatn á mánudagskvöld.
Lokað er fyrir umferð að vatninu á meðan umfang skriðunnar er rannsakað.
GRÍÐARLEGT LANDFALL Talið er að 24 milljónir rúmmetra af jarðefnum hafi fallið í vatnið. MYND/JARA FATIMA BRYNJÓLFSDÓTTIR
50-60
milljón rúmmetrar af
jarðefnum eru taldir hafa
verið í skriðunni í Öskju.