Fréttablaðið - 24.07.2014, Blaðsíða 24
24. júlí 2014 FIMMTUDAGUR| TÍMAMÓT | 24TÍMAMÓT
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
sonur, bróðir og afi,
INGVAR GUNNAR GUÐNASON
til heimilis að Merkigarði í Skagafirði
og að Karfavogi í Reykjavík,
lést á krabbameinslækningadeild
Landspítalans 19. júlí 2014. Útförin fer
fram frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 29. júlí
klukkan 15.00. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en
þeim sem vilja minnast hans er bent á Ljósið – Endurhæfingar-
og stuðningsmiðstöð.
Bryndís S. Guðmundsdóttir
Anna Ragnheiður Ingvarsdóttir Pétur Reynisson
Védís Sigríður Ingvarsdóttir
Anna Ragnheiður Ingvarsdóttir Guðni Hannesson
Rósa Marta Guðnadóttir
og barnabörn.
Elsku pabbi okkar,
tengdapabbi, afi og langafi,
RÖGNVALDUR ÞORLEIFSSON
læknir,
lést á Borgarspítalanum síðastliðinn
miðviku dag. Útförin fer fram frá Fossvogs-
kirkju næstkomandi föstudag, 25. júlí, kl. 13.00.
Karl Á. Rögnvaldsson
Leifur Rögnvaldsson
Dóra Á. Rögnvaldsdóttir Marcus Groom
Bergur Þór Rögnvaldsson
Hrafn Goði Rögnvaldsson Erna Ingibergsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær frænka mín,
GUÐRÚN ÞORVALDSDÓTTIR
frá Stóra-Vatnsskarði,
Logasölum 5, Kópavogi,
sem lést á Landakotsspítala 18. júlí, verður
jarðsungin frá Lindakirkju í Kópavogi
föstudaginn 25. júlí kl. 15.00.
Fyrir hönd ástvina,
Guðrún Árnadóttir
Elskuleg móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
VILBORG GUÐNÝ JÓNSDÓTTIR
sem lést að Hjúkrunarheimilinu Ási
í Hveragerði sunnudaginn 13. júlí, verður
jarðsungin frá Hveragerðiskirkju föstudaginn
25. júlí kl. 14.00.
Jón Waage Edda G. Garðarsdóttir
Erla Waage
Auður Waage Kjartan Lárusson
Baldur Waage Þórdís U. Þórðardóttir
Freyr Waage Nina Holm
barnabörn og barnabarnabörn.
„Með Nikkuballinu höfum við brúað
ákveðið kynslóðabil þar sem fólk á
öllum aldri kemur og skemmtir sér
saman,“ segir Friðrik Árni Haralds-
son, sem situr í Ungmennaráði Sel-
tjarnarness en ráðið stendur fyrir
árlegu harmóníkuballi fyrir eldri
borgara, Nikkuballinu svokallaða,
og fer ballið fram í dag kl. 13.30 í
félagsheimilinu á Seltjarnarnesi. „Við
höfum síðustu ár haldið þetta á plan-
inu hjá Björgunarsveitinni Ársæli út
á Nesi en nú urðum við að gera aðrar
ráðstafanir þar sem veðurspáin hefur
ekki verið upp á marga fiska. Ef spáin
breytist eitthvað verður jafnvel hægt
að færa fjörið út á plan en annars
ætlum við bara að skemmta okkur
innandyra,“ segir Friðrik. Gunnar
Kvaran harmóníkuleikari mun leika
fyrir dansi en auk þess verður boðið
upp á hópsöng þar sem ungir og aldn-
ir syngja saman. Þá verða léttar veit-
ingar og kaffi einnig í boði.
Ungmennaráðið er skipað ungu
fólki á aldrinum 16–20 ára en auk
þess að halda Nikkuballið í júlí ár
hvert stendur ráðið fyrir mánaðar-
legum viðburðum fyrir eldri borg-
ara, svo sem boccia-móti, félags-
vist, bingói og tölvukennslu. „Þetta
er alveg rosalega skemmtilegt og
gefandi fyrir okkur unga fólkið.
Auk þess að hafa haldið boccia-mót
og bingó höfum við haldið skemmtileg
pub-quiz og farið í göngutúra. Tölvu-
kennslan hefur einnig gengið mjög
vel og margir mæta oft, tölvukunn-
áttan síast smám saman inn.“
Nikkuballið hefst í félagsheimili
Seltjarnarness kl. 13.30 og stendur til
kl. 16 en aðgangur er ókeypis. Frið-
rik hvetur alla, unga sem aldna, til að
kíkja við á morgun. „Það verður sann-
kallað stuð hjá okkur. Fókusinn verð-
ur auðvitað aðallega á eldri borgur-
unum en það eru að sjálfsögðu allir
velkomnir.“ kristjana@frettabladid.is
Nikkuballið á Nesinu
fyrir unga sem aldna
Ungmennaráð Seltjarnarness stendur fyrir harmóníkuballi fyrir eldri borgara í dag.
Þetta er í fj órða sinn sem Ungmennaráðið stendur fyrir Nikkuballinu svokallaða
en þar fær fólk á öllum aldri tækifæri til að skemmta sér saman.
NJÓTA SAMVERUNNAR Nikkuballið er búið að festa sig í sessi en Ungmennaráð Seltjarnar-
ness sér alfarið um skipulagninguna. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Fókusinn verður
auð vitað aðallega á eldri
borgurunum en það eru að
sjálfsögðu allir velkomnir.
Friðrik Árni Haraldsson
í Ungmennaráði Seltjarnarness
MERKISATBURÐIR
1847 Mormónar undir forystu Brighams Young nema land í Utah.
1896 Nunnur koma til Íslands í fyrsta sinn eftir siðaskipti. Þær eru
fjórar og setjast að til að annast hjúkrun og vitja sjúkra. Þetta er
upphaf starfs St. Jósefssystra í Reykjavík og Hafnarfirði.
1933 Ferðafélag Íslands fer í sína fyrstu Þórsmerkurferð.
1956 Ríkisstjórn Framsóknar, Alþýðubandalags og Alþýðuflokks
undir stjórn Hermanns Jónassonar tekur við völdum og situr í tvö ár.
1961 Júrí Gagarín, fyrsti geimfarinn, kemur við á Keflavíkurflug-
velli á leið sinni til Kúbu, skömmu eftir að hann fer í fyrstu geim-
ferðina.
1966 Michael Pelkey stekkur fyrsta Base-stökkið af fjallveggnum
El Capitan í Bandaríkjunum, ásamt Brian Schubert. Báðir bein-
brotna í stökkinu.
Gullleitarmenn á Skeiðarársandi töldu sig loks hafa fundið skipið Het Wapen von Amsterdam
hinn 24. júlí árið 1982 en leitin að skipinu hafði staðið yfir með hléum í ellefu ár, eða allt frá
árinu 1971. Het Wapen van Amsterdam var hollenskt skip sem sigldi frá Austur-Indíum árið
1667. Skipið, sem hlaðið var dýrmætum varningi, kryddi, silki, gulli og öðrum málmum, strand-
aði hins vegar þann 19. september sama ár og það hóf för sína. Um 200 manns voru um borð
en af þeim björguðust 60 eftir mikla hrakninga. Hinir 140 létust úr sjóvolki og kulda.
Við borun leitarmanna í júlí árið 1982 komu í ljós eikarleifar á svipuðu dýpi og talið var að
skipið væri á. Eins höfðu segulmælingar bent til þess að málmur væri í skipi sem þarna væri
grafið í sand. Því þótti allt benda til þess að um Het Wapen von Amsterdam væri að ræða. Upp
hófst mikill uppgröftur vorið 1983 með 50 milljóna króna ríkisábyrgð en þegar til kom reyndist
flakið vera af þýska togaranum Friedrich Albert frá Getsemünde sem strandaði 19. janúar árið
1903.
ÞETTA GERÐIST 24. JÚLÍ 1982
Töldu hollenska gullskipið fundið
„Efnið er frekar innhverft. Ýmist það sem blasir við
eða eitthvað aðeins dýpra,“ segir Stefán Bogi Sveins-
son um yrkisefni sín í bókinni Brennur. „Í mínum huga
snýst ljóðagerð um að taka einhverja tilfinningu, ýmist
að láni, eins og hún er í dag eða rifja hana upp og pakka
henni í umbúðir þannig að hægt sé að afhenda hana
öðrum. Galdurinn er að gera það þannig að viðtakand-
inn tengi við innihaldið.“
Titill bókarinnar er sóttur í samnefnt ljóð sem fjallar
um vissan atburð. „Hús afabróður míns brann. Hann
var ekki heima og sagði það hafa verið slæmt því hann
hefði aldrei séð hús brenna. Stundum óskar maður þess
að geta tæklað hlutina af slíku æðruleysi þegar brennur
hjá manni í ýmsum skilningi.“
Stefán kveðst alltaf hafa haft þörf fyrir að yrkja. „Ég
byrjaði ungur að koma tilfinningum í ljóð og hef verið
frekar lítið feiminn með það, las upp bæði í grunnskóla
og menntaskóla og er í ljóðahópnum Hása kisa hér fyrir
austan.“
Stefán Bogi vinnur á Austurfrétt sem rekur staðbund-
inn vefmiðil og gefur út Austurgluggann, hann fæst líka
við leiðsögn og er á leið á Borgarfjörð eystri þar sem
undirbúningur undir Bræðsluna er að hefjast. „Mér
finnst gaman að taka þátt í skapandi verkefnum,“ segir
skáldið.
gun@frettabladid.is
Alltaf haft þörf fyrir að yrkja
Útsvarsstjarnan Stefán Bogi Sveinsson, lögfræðingur á Egilsstöðum, hefur ort frá blautu
barnsbeini en var að gefa út sína fyrstu ljóðabók. Brennur, heitir hún.
LJÓÐSKÁLD Brennur er fyrsta bók Stefáns Boga og hann gefur hana út
sjálfur. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI