Fréttablaðið - 24.07.2014, Side 8
24. júlí 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 8
SJÁVARÚTVEGUR Makrílveiðar hafa
gengið vel það sem af er vertíðinni,
sem hófst fyrir um það bil mánuði.
Mikil vinna hefur skapast við að
vinna makrílinn. Unnið er löngum
stundum í Neskaupstað, þar sem
Síldarvinnslan er, í Vestmannaeyj-
um og víðar.
Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson,
eða Binni í Vinnslustöðinni í Vest-
mannaeyjum, segir að það séu upp-
grip í Eyjum þessa dagana. Næga
vinnu sé að fá. „Þetta er ansi mikið
ungt fólk sem er í skólum á vet-
urna. Það er sjálfsagt mest svoleið-
is,“ segir hann spurður um sumar-
starfsmennina.
Binni segir að Vinnslustöðin sé
nú þegar búin að veiða rúmlega sex
þúsund tonn af tólf þúsund tonna
kvóta sem fyrirtækið fékk úthlutað.
Sennilegt sé að fyrirtækið fái tvö
þúsund tonn í viðbót. Það þýðir að
Vinnslustöðin fær 10% af heildar-
makrílkvóta Íslendinga.
Hafrannsóknaskipið Árni Frið-
riksson er þessa dagana í makríl-
leit og var djúpt suðaustur af land-
inu, þegar Fréttablaðið náði tali af
áhöfninni í gær. Sveinn Sveinbjörns-
son, leiðangursstjóri á skipinu, segir
að búð sé að fara um Norðurlandið
og Austfirðina og um Suðausturland.
Hann segir að það hafi ekki sést
mikið við norðanvert landið. „Við
erum að sjá meira af makríl fyrir
Austurlandi og Suðausturlandinu.“
Árni Friðriksson mun svo rann-
saka meira undan Suður- og Suð-
vesturlandi og Sveinn segir ekki
hægt að segja til um stöðu makríl-
stofnsins fyrr en ferðinni er lokið.
Þá verði hægt að fá heildarmynd af
stöðunni.
Ferðin á Árna Friðrikssyni hófst
ellefta júlí og reiknað er með að
henni verði lokið ellefta ágúst. Þá
verður farið í leiðangur í græn-
lenskri lögsögu. „Grænlending-
ar leigja skipið í tólf daga,“ segir
Sveinn. jonhakon@frettabladid.is
Búnir að veiða um
helming af kvóta
Makrílveiðar ganga vel samkvæmt upplýsingum frá útgerðarmönnum og skólafólk
hefur nóg að gera í fiskvinnslu. Hafrannsóknastofnun er við leit suður af landi.
VIÐ LEIT Árni Friðriksson er suður af landinu í rannsóknarleiðangri. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Þetta er
ansi mikið
ungt fólk sem
er í skólum á
veturna. Það
er sjálfsagt
mest svoleiðis.
Sigurgeir Brynjar
Kristgeirsson
210 hestafla dísilvél, 8 þrepa sjálfskipting með takkaskiptingu í stýri og loftpúðafjöðrun með Terrain Response drifbúnaði á öllum
hjólum gera Land Rover Discovery 4 að einum öflugasta og þægilegasta jeppa sem völ er á. Meðal nýjunga er nýr framendi með
nýjum aðalljósum, breytt afturljós, start/stopp ræsibúnaður og Meridian 380W hljómtæki.
Þú færð allar nánari upplýsingar um verð og búnað á www.landrover.is
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
6
3
4
9
8
*M
ið
að
v
ið
u
pp
ge
fn
ar
v
ið
m
ið
un
ar
tö
lu
r
fr
am
le
ið
an
da
u
m
e
ld
sn
ey
tis
no
tk
un
í
bl
ön
du
ðu
m
a
ks
tr
i.
SKOÐAÐU ÞIG UM Á LAND ROVER DISCOVERY 4
Discovery 4 S – verð frá: 11.890.000 kr.
Eldsneytisnotkun 8,8 l/100 km* í blönduðum akstri.
BL Sævarhöfða 2, sími 525 8000
FLESTIR AÐRIR
LÁTA INTERNETIÐ DUGA
landrover.is
2014 DISCOVERY
TAÍVAN Farþegaþota á vegum flug-
félagsins TransAsia hrapaði í lend-
ingu og um fimmtíu manns létust,
farþegar og áhafnarmeðlimir.
Þegar slysið varð var verið að
gera aðra tilraun til að lenda þot-
unni á Magong-flugvelli í vestur-
hluta Taívan.
Mikið óveður hefur geisað á
svæðinu. Skólum og opinberum
byggingum var lokað vegna veður-
hamsins sem hófst á þriðjudag en
búist var við að veðrinu myndi slota
seint á miðvikudag.
Flugumferð til og frá Taívan var
stöðvuð vegna óveðursins og þá lágu
lestarsamgöngur niðri um hríð.
Flugvélin var á leið frá höfuð-
borginni Taípei og til eyjarinnar
Penghu. Eyjan er staðsett á milli
Taívan og meginlands Kína.
Í flugvélinni voru 54 farþegar og
fjórir áhafnarmeðlimir. Vélin fannst
í ljósum logum og vann slökkvilið að
því að ráða niðurlögum eldsins og
bjarga þeim fáu sem lifðu af úr flaki
vélarinnar.
- ssb
Vonskuveður veldur hörmulegu slysi í Taívan:
Um fimmtíu létust í
brotlendingu í óveðri
SLÖKKT Í FLAKINU Vélin var mjög illa farin eftir flugslysið. Slökkviliðsmenn komu
að vélinni í ljósum logum og unnu svo hörðum höndum að því að ráða niðurlögum
eldsins. NORDICPHOTOS/AFP