Fréttablaðið - 24.07.2014, Side 12
24. júlí 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR |
Utanríkisráðherra
er ósammála
Ég held að það
séu röng skilaboð að
einangra ákveðið
ríki og taka ekki
samtalið við það um
þær aðferðir og
aðgerðir sem þeir grípa til. Hvort
sem það eru Ísraelar eða Íranir eða
Rússar núna varðandi Úkraínu.
Gunnar Bragi Sveinsson
utanríkisráðherra,
í viðtali við RÚV
JÚLÍ 2014
Samfylkingin vill
viðskiptaþvinganir
Árni Páll Árnason,
formaður Samfylking-
arinnar, vill að
ríkis stjórnin kanni
hvort unnt sé að ná
samstöðu meðal helstu
samstarfslanda Íslands
um að Ísrael verði kynnt að yfir vofi slit
á stjórnmálasambandi verði hernaðarað-
gerðum þeirra á Gasa ekki hætt þegar í
stað. Samfylkingin vill líka að ríkisstjórn-
in hafi frumkvæði að því að leggja til
viðskiptaþvinganir gagnvart Ísrael.
Félagið Ísland-Palestína krafðist að sam-
skiptum við Ísraelsstjórn yrði slitið. Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir, þáverandi utanríkis-
ráðherra, var ekki á sama máli í viðtali við
Fréttablaðið. Hún sagði slíkt ekki gert nema
framferði ríkis væri farið að valda öðru ríki
beinu tjóni. Ísland hefði ekki slitið sambandi
við Suður-Afríku aðskilnaðarstefnunnar, eða
Júgóslavíu undir Milosevic.
MAÍ 2004
Hvað er nú til ráða?
Nú beini ég
spurningu til
félagsins [Íslands-
Palestínu] og þætti
vænt um að fá svar.
Hvað er nú til ráða
annað en mótmæla hástöfum?
Hvað geta Íslendingar gert? Sjálfur
er ég farinn að hallast að því að
rétt sé að slíta stjórnmálasambandi
við Ísrael.
Ögmundur Jónasson
þingmaður á heimasíðu sinni
NÓVEMBER 2006
Engir smámunir
Ríki hafa sætt
refsiaðgerðum og
einangrun fyrir
smámuni miðað við
það sem Ísrael ber
ábyrgð á. Það er
ekki síður ástæða til að beita
slíkum aðgerðum gegn Ísraels-
mönnum en Suður-Afríku á tímum
aðskilnaðarstefnunnar.
Steingrímur J. Sigfússon,
þáverandi formaður Vinstri grænna,
í Fréttablaðinu
JANÚAR 2009
Yfirlýsing ljóðskálda
Með afskiptaleysi sínu er
ríkisstjórn Íslands í raun að
samþykkja framferði Ísraelsmanna
á hendur Palestínumönnum. Þögn
er sama og samþykki.
Íslensk ljóðskáld sendu frá sér yfirlýsingu
þar sem þau fordæmdu fjöldamorð
Ísraelsmanna á Gasasvæðinu og
hvöttu íslensk stjórnvöld til að slíta
stjórnmálasambandi við Ísrael
JANÚAR 2003
Ber að virða alþjóðalög
Ef Ísraelsstjórn
virðir ekki alþjóða-
lög og grundvallar-
mannréttindi er
réttmætt að hún
finni fyrir því að
slíkt verður ekki liðið. Þá er rétt að
fylgja mótmælum eftir með því að
hætta viðskiptum við Ísrael og slíta
stjórnmálasambandi, á meðan
Ísraelsstjórn fer ekki að lögum.
Sveinn Rúnar Hauksson,
formaður félagsins Ísland-Palestína,
í aðsendri grein í Morgunblaðinu
ÍSRAELSKIR
HERMENN
Ísraelskir
hermenn
halda á þjóð-
fána sínum á
ferð í skrið-
dreka sínum
á Gasasvæð-
inu. Margir
Íslendingar
vilja slíta
stjórnmála-
sambandi
við Ísrael.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
2003–2014 ÍSLAND OG KRAFAN UM AÐ
STJÓRNMÁLASAMBANDI VIÐ ÍSRAEL VERÐI SLITIÐ
NÓVEMBER 2012
Sex þingmenn álykta
Alþingi ályktar að fela
ríkisstjórninni að slíta öll stjórn-
málatengsl við Ísraelsríki, leggja
bann við innflutningi á ísraelskum
vörum og hvetja ríkisstjórnir
annarra Norðurlanda til hins
sama.
Birgitta Jónsdóttir, Þór Saari, Lilja Móses-
dóttir, Sigmundur Ernir Rúnarsson, Atli
Gíslason og Bjarkey Gunnarsdóttir lögðu
fram þingsályktunartillögu um að slíta
stjórnmálasambandi við Ísrael og bann við
innflutningi á ísraelskum vörum.
DESEMBER 2008
Ekki beint tjón vegna framferðis Ísraels
Yfir sex þúsund Íslendingar höfðu í
gær sett nafn sitt á undirskriftalista
á netinu þar sem skorað er á stjórn-
völd að slíta stjórnmálasambandi
við Ísrael vegna nýjustu atburða á
Gasasvæðinu sem hafa kostað fjölda
manns lífið.
Silja Bára Ómarsdóttir, aðjunkt
við stjórnmálafræðideild Háskóla
Íslands, telur að ef stjórnvöld
myndu slíta sambandi við Ísrael
yrði það fyrst og fremst táknræn
yfirlýsing. Viðskiptaþvinganir eða
jafnvel viðskiptabann hefði meiri
áhrif.
„Ég held að þetta kæmi verst
niður á frjálsum félagasamtökum
sem starfa á svæðinu, til dæmis
á fólki sem er að fara á vegum
Íslands-Palestínu,“ segir Silja Bára
aðspurð. „Í friðargæslunni höfum
við síðustu árin fært áherslur
okkar frá Balkanskaga yfir til Pal-
estínu og þetta myndi væntanlega
hafa slæm áhrif á það starf. Þó að
við viljum styðja Palestínu þá er
Palestína undir ísraelsku hernámi
og fólk þarf að fá áritun þar til að
búa í Palestínu. Þetta lokar á þann
möguleika,“ segir hún. „Ef þú ætlar
að slíta stjórnmálasamstarfi þarftu
að íhuga hvort það er ekki verið að
slíta samstarfi á öðrum sviðum. En
mér finnst gott að stjórnvöld skoði
samstarfið við Ísrael og athugi hvar
hægt sé að beita þrýstingi.“
Margir vilja slíta
samstarfi við Ísrael
Yfir sex þúsund Íslendingar skora á stjórnvöld á undirskriftalista á netinu að slíta
stjórnmálasambandi við Ísrael. Þessi krafa hefur komið upp hér á landi með reglu-
legu millibili í gegnum árin en ráðamenn hafa aldrei viljað ganga þetta langt.
Ísland hefur einu sinni slitið
stjórnmálasambandi við annað
ríki. Það var árið 1976 þegar
stjórnmálasambandi við Bretland
var slitið vegna landhelgisdeil-
unnar. Sendiherrar ríkjanna fóru
til síns heima en ræðissambandi
Íslands og Bretlands var ekki
slitið. Norðmenn tóku að sér að
annast málefni sendiráðs Íslands
í Bretlandi og Frakkar gegndu
sama hlutverki fyrir Breta hér á
landi. Síðar sama ár var stjórn-
málasambandið endurnýjað eftir
að samningar tókust á fundi í
Ósló.
➜ Slitu stjórnmálasam-
bandi við Bretland
Freyr
Bjarnason
freyr@frettabladid.is
2014
Katrín Júlíusdóttir,
varaformaður Sam-
fylkingarinnar, telur að
slíta eigi stjórnmála-
sambandi við Ísrael.
Katrín Jakobsdóttir,
formaður Vinstri
grænna, segir að skoða
þurfi hvort sambands-
slit komi til greina.
Fylgjandi sambands-
slitum við Ísrael
En ég sé
ekki að það
þjóni neinum
tilgangi að
Ísland slíti
einhliða
sambandi sínu við Ísrael.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
þáverandi utanríkisráðherra
ASKÝRING | 12
SLIT Á STJÓRNMÁLASAMBANDI GÆTU BITNAÐ Á FRIÐARGÆSLUNNI