Fréttablaðið - 24.07.2014, Blaðsíða 18
Tuttugu og fimm hjólhýsi hafa
verið nýskráð það sem af er júlí.
Þar af er einungis eitt notað.
Þetta kemur fram í tölum Sam-
göngustofu. Fjórtán tjaldvagnar
hafa verið skráðir en einungis tvö
fellihýsi. Sala á ferðavögnum, það
er fellihýsum, hjólhýsum og tjald-
vögnum, hefur verið í jafnvægi
undanfarin þrjú ár. Hjólhýsin selj-
ast best. Salan er þó hvergi nærri
eins góð og hún var fyrir banka-
hrun. Auk nýskráðu hjólhýsanna
seljast notuð hjólhýsi vel.
Það eru einkum tveir aðilar
sem selja ferðavagna hér á landi í
dag, en það eru Víkurverk og Úti-
legumaðurinn. Víkurverk pantaði
sextíu ný hjólhýsi inn fyrir sum-
arið og þau eru að verða uppseld.
Kristín Anný Jónsdóttir, sölu-
stjóri hjá Víkurverki, segist hafa
orðið vör við söluaukningu í ár.
„Það er mikil sala núna á nýjum
hjólhýsum,“ segir hún. Mikil sala
hafi verið bæði í júní og júlí. „Það
eru eiginlega bara allir mánuðirn-
ir búnir að vera góðir,“ segir hún.
Kristín Anný bendir samt á að
leiðinlegt veður í sumar hafi orðið
til þess að draga úr sölu á ferða-
vögnum. „Veðrið hefur áhrif og
fólk hefur jafnvel komið og ætlað
að skila lyklinum bara. Þegar það
er endalaus rigning þá kemur
uppgjöf í fólk. En fólk sækir þá
líka meira í hjólhýsi. Það er bara
24. júlí 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR VIÐSKIPTI | 18
Selja tugi hjólhýsa á mánuði
Á þriðja tug hjólhýsa hafa verið nýskráð hjá Samgöngustofu í júlí, aðeins eitt þeirra er notað. Mun fleiri hjól-
hýsi seljast en fellihýsi eða tjaldvagnar. Helsta skýringin á því er sögð vera vont veður í sumar og síðasta sumar.
þannig að fólk nennir ekki enda-
laust að vera með blautt fellihýsi,“
segir hún.
Kristín Anný segir að vinsæl-
ustu hjólhýsin kosti 2–2,5 millj-
ónir króna. „En hin seljast líka,
fólk er mikið að skipta upp í dýr-
ari,“ segir Kristín Anný og bætir
því við að hjólhýsi seljist á alveg
upp í sjö milljónir króna. Það er
mikil sala á nýjum hjólhýsum
og líka á notuðum. Kristín Anný
segir að þótt hjólhýsin standi klár-
lega upp úr í sölu, hafi tjaldvagn-
ar og fellihýsi einnig selst ágæt-
lega á árinu. Þetta er í samræmi
við fyrrgreindar tölur Samgöngu-
stofu. Í júlímánuði voru 14 tjald-
vagnar og tvö fellihýsi nýskráð.
Á fyrri helmingi ársins voru 128
hjólhýsi, 27 tjaldvagnar og ellefu
hjólhýsi nýskráð.
600
500
400
300
200
100
0
2008 2009 2010 2011 2012 2013
SELD FELLIHÝSI, HJÓLHÝSI OG TJALDVAGNAR
Á ÍSLANDI FRÁ 2008 TIL 2013
FELLIHÝSI HJÓLHÝSI TJALDVAGNAR
Sigurður Erlingsson, forstjóri Íbúða-
lánasjóðs, gagnrýnir nýtt lánshæfis-
mat Standard & Poor’s sem birt var
í fyrrakvöld. Lánshæfismat Íbúða-
lánasjóðs til langs tíma er lækkað úr
BB í BB-. Lánshæfismat til skamms
tíma er aftur á móti óbreytt. Eins og
staðan er núna er full ríkisábyrgð á
skuldbindingum Íbúðalánasjóðs og
er lántökuheimild sjóðsins staðfest í
lögum. Ástæðan fyrir lækkun mats-
ins er einkum sú að S&P telur að dregið hafi
úr líkum á því að Íbúðalánasjóður verði ríkis-
tryggður til langs tíma. Bent er á að tillögur
nefndar sem starfaði á vegum Eyglóar Harð-
ardóttur félagsmálaráðherra um að breyta
rekstri ríkissjóðs hafi litið dagsins
ljós. Þá er jafnframt bent á að Eftir-
litsstofnun EFTA, eða ESA, líti svo
á að eins og rekstri Íbúðalánasjóðs
sé nú fyrirkomið feli það í sér ólög-
mæta ríkisaðstoð. Stjórnvöld hygg-
ist bregðast við þeim athugasemdum
ESA.
Forstjóra Íbúðalánasjóðs finnst
fullsnemmt að bregðast við tillög-
um nefndar um framtíð húsnæðis-
mál með því að lækka lánshæfismat sjóðsins.
„Þarna er verið að ræða um tillögur sem enn
þá á eftir að leggja fram í frumvarpi fyrir
þingið. Það á mikið eftir að gerast áður en
þetta kemur til framkvæmda. Það er svolítið
sérstakt að þeir skuli strax lækka þó það sé
ekki ljóst hvenær og hvernig og hvort mun
spilast úr þessum hugmyndum,“ segir Sigurð-
ur í samtali við Fréttablaðið. Hann bendir á
að lánshæfismatsfyrirtækin hafi verið gagn-
rýnd fyrir það að bregðast seint við og lækk-
að eftir að skaði er skeður.
„En nú má kannski segja að þeir séu of
fljótir á sér,“ segir Sigurður. Endanleg
niður staða um framtíð Íbúðalánasjóðs verði
kannski einhver önnur en núna er áform-
að. „Það er ljóst að það eru skiptar skoðanir
meðal þingflokka og ýmiss konar gagnrýni
sem kemur fram. Þetta er eitthvað sem þeir
hefðu átt að bíða með þangað til endanlegar
tillögur koma fram,“ segir Sigurður. - jhh
Forstjóri Íbúðalánasjóðs segir lækkun S&P á lánshæfismati sjóðsins vera algjörlega ótímabæra:
Gagnrýnir nýtt mat Standard & Poor’s
SIGURÐUR
ERLINGSSON
Leiguverð á höfuðborgarsvæðinu
hefur hækkað um 8 prósent á árs-
grundvelli, sé miðað við vísitölu
leiguverðs sem Þjóðskrá gefur út.
Vísitalan var 133,8 stig í júní og
hækkaði um 0,5 prósent frá fyrri
mánuði.
Sem fyrr er fermetraverðið
á tveggja herbergja íbúð hæst í
Reykjavík vestan Kringlumýrar-
brautar og á Seltjarnarnesi en
þar er fermetraverðið rúmar
2.200 krónur.
Á öðrum stöðum í Reykjavík er
það um 2.000 krónur.
- jhh
Átta prósenta hækkun leigu:
Hækkar áfram
Gert er ráð fyrir að hagnaður
stoðtækjafyrirtækisins Össurar
á öðrum fjórðungi tvöfaldist á
milli ára, samkvæmt afkomuspá
IFS greiningar. Hann verði núna
16,1 milljón Bandaríkjadala eða
1,9 milljarðar króna, en hann var
8,4 milljónir dala eða tæpar 970
milljónir króna í fyrra. Hagn-
aðurinn fyrir fjármagnsliði,
afskriftir og skatta (EBITDA)
verði 27 milljónir dala, eða 3,1
milljarður króna.
- jhh
Spá tvöföldun hagnaðar:
Sífellt betri
afkoma Össurar
GÓÐUR ÁRANGUR Jón forstjóri Öss-
urar hefur tækifæri til að gleðjast.
Upplýsingatæknifyrirtækið
Omnis hefur samið við Microsoft
um að gerast söluaðili fyrir Win-
dows Azure.
„Azure er sérstakt tölvukerfi
í skýi Microsoft sem er meðal
annars sérstaklega sniðið að
þörfum fyrirtækja,“ segir Egg-
ert Herbertsson, framkvæmda-
stjóri Omnis, og bætir við að þar
sem einstaklingar séu farnir að
geyma gögn sín í skýinu sé engin
ástæða fyrir fyrirtæki að gera
ekki slíkt hið sama. - fbj
Verða söluaðili fyrir Azure:
Omnis semur
við Microsoft
Hagnaður Marel á öðrum fjórð-
ungi ársins nam 0,8 milljónum
evra samanborið við 5,2 milljón-
ir evra á öðrum fjórðungi í fyrra.
Hagnaðurinn samsvarar um 124
milljónum króna samanborið við
806 milljónir króna í fyrra. Tekjur
á öðrum ársfjórðungi námu 169,8
milljónum evra samanborið við
178,4 milljónir evra á sama árs-
fjórðungi í fyrra, eða 26,3 millj-
arðar króna á móti 27,6 milljörð-
um króna á sama fjórðungi í fyrra.
Hagnaður fyrir fjármagnsliði,
afskriftir og skatta, eða EBITDA
(leiðrétt fyrir kostnaði vegna hag-
ræðingaraðgerða), var 18,0 millj-
ónir evra, sem er 10,6 prósent af
tekjum. EBITDA var 13,0 milljónir
evra, sem er 7,7 prósent af tekjum,
en var 19,0 milljónir evra í fyrra.
Pantanabók stóð í 156,4 millj-
ónum evra, eða 24,2 milljörðum
króna, í lok annars ársfjórðungs
saman borið við 138,4 milljónir
evra í lok fyrsta ársfjórðungs og
131,8 milljónir evra á öðrum fjórð-
ungi í fyrra.
Árni Oddur Þórðarson, forstjóri
Marel, segir í afkomutilkynn-
ingu að rekstrarniðurstaðan sé
enn ekki viðunandi. „Við vinnum
nú að því að gera félagið skilvirk-
ara, skerpa á markaðssókn þess og
hámarka nýtingu á framleiðsluein-
ingum okkar. Markmiðið er skýrt
– að auka langtímavirði fyrir við-
skiptavini og hluthafa,“ segir Árni
Oddur.
Árni Oddur er aftur á móti
ánægður með þann árangur sem
náðist - jhh
Þrátt fyrir að hagnaður Marel sé mun minni en í fyrra horfir forstjórinn björtum augum á framtíðina:
Hagnaður Marel dregst verulega saman
FORSTJÓRI MAREL Árni Oddur Þórðarson
er sáttur við gang mála. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Verðbólga í júlí mældist rétt
undir 2,5 prósenta verðbólgu-
markmiði Seðlabankans. Júlí
er sjötti mánuðurinn í röð sem
verðbólgan er undir markmiði.
Samkvæmt tölum Hagstofunn-
ar lækkaði vísitala neysluverðs
um 0,17 prósent í júlímánuði.
Áhrif af útsölum vógu þungt til
lækkunar, en fargjöld til útlanda
hækkuðu, ásamt eldsneyti, síma-
þjónustu og veitugjöldum. - jhh
Undir markmiði í hálft ár:
Spá áfram lágri
verðbólgu
MANNLÍF Verðbólgan verður áfram lág
að mati Greiningar Íslandsbanka.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL.
En fólk
sækir þá
líka meira í
hjólhýsi.
Það er bara
þannig að
fólk nennir
ekki endalaust að vera
með blautt fellihýsi.
En hin seljast líka,
fólk er mikið að skipta
upp í dýrari.
Kristín Anný Jónsdóttir,
sölustjóri hjá Víkurverki
Á FLÚÐUM
Hjólhýsin seljast
miklu betur
en fellihýsi og
tjaldvagnar.
FRÉTTABLAÐIÐ/
VILHELM
Jón Hákon
Halldórsson
jonhakon@frettabladid.is