Fréttablaðið - 24.07.2014, Side 40
24. júlí 2014 FIMMTUDAGUR| MENNING | 32
Skýringar Stendur í stað síðan í síðustu viku Fellur um sæti síðan í síðustu viku Hækkar á lista síðan í síðustu viku Nýtt á lista
Listarnir eru teknir saman fyrir Félag hljómplötuframleiðenda. Þátttakendur í Lagalistanum Bylgjan, FM957, Xið 977, Rás 2 og K100,5.
Auk þess er tekið mið af sölu og spilun á Tónlist.is og spilun á Spotify. Verslanir í Tónlistanum Skífan, Hagkaup, Penninn/Eymundsson,
12 tónar, Harpa, Smekkleysa plötubúð, Elko, Samkaup, Kaupfélag Skagfirðinga, Lucky Records, Vefverslun Record Records, N1 og tonlist.is
LAGALISTINN TÓNLISTINN
17.7.2014 ➜ 24.7.2014
1 George Ezra Budapest
2 Sam Smith Stay with me
3 Magic! Rude
4 Sia Chandelier
5 Coldplay A Sky Full Of Stars
6 Mr. Probz Waves
7 Júníus Meyvant Color Decay
8 Nico & Vinz Am I Wrong
9 Jón Jónsson Ljúft að vera til
10 OneRepublic Love Runs Out
1 Ýmsir Fyrir landann
2 Ýmsir Pottþétt 62
3 Kaleo Kaleo
4 GusGus Mexico
5 Samaris Silkidrangar
6 Ýmsir Icelandic folk songs & other favourites
7 Low Roar 0
8 Ýmsir SG hljómplötur
9 Ásgeir Trausti Dýrð í dauðaþögn
10 Ýmsir Icelandic folk songs & other favourites
FIMMTUDAGUR
Birting lýsingar
Útgefandi
REG3A fjármögnun , kennitala 431213-9900, Borgartúni 27, 105
Reykjavík.
REG3A fjármögnun hefur birt lýsingu, dagsetta 23. júlí 2014.
Lýsingin er birt í tengslum við umsókn útgefanda um að skuldabréf
útgefin af sjóðnum verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði NASDAQ
OMX Iceland hf. Lýsingin hefur verið staðfest af Fjármálaeftirlitinu.
Lýsingin er gefin út rafrænt á íslensku. Hún er aðgengileg í tólf
mánuði frá staðfestingu á vefsíðu Öldu sjóða hf., sem er rekstraraðili
sjóðsins, á slóðinni www.aldasjodir.is. Nálgast má útprentuð eintök
á skrifstofu útgefanda sé þess óskað.
Gefin hafa verið út skuldabréf að nafnvirði 9.500.000.000 íslenskra
króna og er heildarstærð flokksins hin sama. Öll skuldabréfin hafa
verið seld. Skuldabréfin eru gefin út rafrænt hjá Verðbréfaskráningu
Íslands hf. í 10.000.000 kr. einingum. ISIN númer bréfanna er
IS0000024313.
Sótt hefur verið um að öll skuldabréfin verði tekin til viðskipta
á Aðalmarkaði NASDAQ OMX Iceland hf. og mun verða tilkynnt um
slíkt með að lágmarki eins viðskiptadags fyrirvara. Óskað hefur verið
eftir því að auðkenni skuldabréfaflokksins í viðskiptakerfi NASDAQ
OMX Iceland hf. verði REG3A 14 1.
Reykjavík, 24. júlí 2014.
Stjórn Öldu sjóða hf.
islandsbanki.is Netspjall Sími 440 4000 Facebook
„Okkur finnst svo gaman að spila,
þetta band er búið til til þess að
spila live, þannig erum við best,“
segir Klara Arnalds, söngkona
Boogie Trouble. Sveitin kemur fram
á Gamla Gauknum í kvöld en það
er í fyrsta sinn sem sveitin spilar í
Reykjavík síðan á Airwaves. Sveitin
hefur einnig verið að vinna í nokkr-
um nýjum lögum sem verða á vænt-
anlegri plötu Boogie Trouble.
„Við erum líka að fikta við ný
cover, það gæti alveg verið að
það slysist eitthvað nýtt inn í pró-
grammið í kvöld.“
Nýjasta lag sveitarinnar ber nafn-
ið Steinunn (Sveitin kallar) en á tón-
leikunum í kvöld verður einmitt
ókeypis aðgangur fyrir alla sem
heita Steinunn.
„Þegar við erum að semja lög þá
finnst mér þægilegast að syngja
lögin með einhverjum texta þótt það
sé ekki kominn texti,“ segir Klara.
„Það sem hentaði best í þetta skipt-
ið var ljóð eftir Steinunni Sigurðar-
dóttur, en síðan settum við okkar
eigin texta en nafnið fékk að hanga
inni. Steinunnir eru góðar konur og
eiga skilið lag sér til heiðurs.“
Á tónleikunum í kvöld kemur
hljómsveitin fram ásamt Soffía
Björg Band en Soffía er góð vinkona
krakkanna í Boogie Trouble. „Hún
gerir meiri svona folk-tónlist þann-
ig að þetta er gott kombó, það mun
kenna ýmissa grasa,“ segir Klara en
tónleikarnir í kvöld hefjast klukkan
21.00 og kostar þúsund krónur inn.
baldvin@365.is
Ókeypis fyrir allar Steinunnir
Hljómsveitin Boogie Trouble kemur fram á tónleikum á Gamla Gauknum í kvöld.
SKEMMTILEG Á SVIÐI Sveitin er þekkt
fyrir líflega sviðsframkomu. MYND/AÐSEND
Steinunnir eru
góðar konur og eiga
skilið lag sér til heiðurs.
Klara Arnalds
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
24. JÚLÍ
Tónleikar
12.00 Jón Bjarnason organisti við Skjál-
holtsdómkirkju leikur hádegistónleika á
Klais-orgel Hallgrímskirkju. Á efniskránni
eru verk eftir J.S. Bach, Pál Ísólfsson,
Þorkel Sigurbjörnsson og Charles-Marie
Widor. Miðaverð er 1.700 krónur.
20.00 Hljómsveitirnar Mosi Musik
og Rafaella Brizuala koma fram á
tónleikaröð Hlemmur Square. Eins og
ævinlega er enginn aðgangseyrir.
20.00 Caput kemur fram á sumartón-
leikum í Skálholti með tónleikum með
yfirskriftina Tristía. Hópurinn flytur
verk eftir Hafliða Hallgrímsson, Huga
Guðmundsson og Þorkel Sigurbjörns-
son. Með Caput kemur kammerkórinn
Hljómeyki fram ásamt Tui Hirv, sópran.
21.00 Drangar koma fram á Græna
hattinum. Tónlistarmennirnir Mugison,
Jónas Sig og Ómar Guðjónsson skipa
Dranga. Miðaverð er 2.500 krónur og
miða má nálgast á heimasíðu midi.is.
21.00 Reggísveitin Ribbaldarnir kemur
fram á Loft Hostel. Sveitin er skipuð sjö
ungum drengjum sem spila sólskins-
reggí, þýsk danslög og það sem þeim
dettur í hug en þeir eru þekktir fyrir
einstaklega líflega sviðsframkomu.
22.00 Magnús R. Einarsson heldur
tónleika á Ob-La-Dí-Ob-La-Da, Frakka-
stíg 8. Aðgangur er ókeypis.
Sýningar
09.00 Á sýningunni Villt hreindýr á
Íslandi sem er í Flóanum í Hörpu er
hægt að sjá og fræðast um hreindýr
og líf þeirra. Hreindýrasýningin er full-
komin blanda menningar, náttúru og
tækninýjunga og er mikil upplifun fyrir
alla aldurshópa. Aðgangseyrir er 1.900
krónur.
14.00 Sirkus Íslands er staddur með
tjaldið Jökla á Akureyri. Sýningin
S.I.R.K.U.S. er sett saman með yngri
börnin í huga en þó ekki á kostnað
eldri áhorfenda. Hún er klukkutími og
er miðuð við leikskólaaldur. Miðverð er
2.500 krónur.
17.00 Sirkus Íslands er staddur með
tjaldið Jökla á Akureyri. Heima er best
er alíslensk sirkusskemmtun þar sem
öll fjölskyldan nýtur þess að horfa
á ótrúlega leikni listamanna Sirkuss
Íslands. Miðaverð er 3.000 krónur.
17.00 Lokahátíð Skapandi sumarstarfa
í Garðabæ. Listhóparnir sýna afrakstur
sumarsins á skemmtilegan hátt í nýja
bílakjallaranum á Garðatorgi.
19.00 How to become Icelandic in 60
minutes er leiksýning sem leikin er á
ensku, samin og flutt af Bjarna Hauki
Þórssyni og leikstýrt af Sigurði Sigur-
jónssyni. Miðaverð er 4.200 krónur og
sýningin fer fram í Kaldalóni í Hörpu.
20.00 Spor Guðjóns Samúelssonar
í Hafnarfirði. Pétur H. Ármannsson
arkitekt leiðir göngu þar sem sérstak-
lega verður hugað að þeim byggingum
sem Guðjón teiknaði og finna má í
Hafnarfirði, en þar á meðal eru Sankti
Jósefsspítali, fyrsti áfangi Flensborgar-
skólans og elsti hluti húss Hafnarborgar.
Gangan hefst í Hafnarborg.
20.00 Leiðsögn hefst kl. 20 við inngang
Ásmundarsafns við Sigtún. Í tilefni af
göngunni er verður opið í Ásmundar-
safni til kl. 22 en þar stendur yfir
sýningin Ásmundur Sveinsson– Meist-
arahendur þar sem gefur að líta verk
sem spanna langan feril listamannsins.
Leiðsögnin hefst, eins og áður segir, kl.
20 við inngang safnsins.
Uppákomur
20.00 Druslugangan efnir til allsherjar
fögnuðar á Brikk þar sem Reykjavíkur-
dætur ásamt Ásdísi Maríu og Halldóri
Eldjárn munu frumflytja lagið
D.R.U.S.L.A. en einnig verður hægt að
festa kaup á glæsilegum drusluvarningi
og styðja þannig gönguna og þolendur
kynferðisofbeldis.
21.00 Skemmtikvöld Lollu og Steina
með bingóívafi. Ólafía Hrönn Jóns-
dóttir og Þorsteinn Guðmundsson
skemmta bæjarbúum í Hljómahöllinni,
Reykjanesbæ. Dagskráin samanstendur
af uppistandi, upplestri, leikþáttum,
tónlist, gríni og glensi. Miðaverð er
2.500 krónur.
22.00 DJ Yamaho spilar oldschool
hiphoptónlist á Prikinu. Yamaho er
þekkt fyrir hiphopsettin sín sem þykja
einstaklega góð. Ókeypis inn.
Leikrit
20.00 Leikverkið Ræflavík hefur fært
sig til Reykjavíkur og verður sýnt í
Tjarnarbíói. Leikritið Ræflavík er byggt
á breska verðlaunaleikritinu Punk Rock
eftir Simon Stephens og er hér sett upp
í staðfærslu og leikgerð Jóns Gunnars
og Norðurbandalagsins.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is og einnig er hægt
að skrá þá inni á visir.is.
„Ég er nýkomin inn í þennan skóla
ásamt kærastanum mínum sem
er fiðluleikari,“ segir hin unga og
efnilega Hrafnhildur Marta Guð-
mundsdóttir sellóleikari, en hún
komst nýverið inn í Jacob’s School
of Music við Indiana-háskóla.
Hrafnhildur hefur spilað á selló
síðan hún var lítil en hún kynntist
kærasta sínum, Guðbjarti Hákon-
arsyni, þegar þau voru bæði í
tónlistarnámi við Lista háskóla
Íslands.
„Við sóttum um í Kaupmanna-
höfn og Bandaríkjunum og kom-
umst bæði inn í báða skólana,“
segir Hrafnhildur glöð í bragði.
„Við ákváðum síðan bara að
stökkva í djúpu laugina og fara til
Bandaríkjanna.“
Hrafnhildur og Guðbjartur hafa
spilað mikið saman og í sumar
fengu þau það verkefni hjá Skap-
andi sumarstörfum að spila tónlist
úti á götum í miðbænum sem Dúett-
inn Par. „Við spiluðum líka á Hrafn-
istu, Grund, Grensás og Hlíðarbæ
sem er heimili fyrir heilabilaða,“
segir Hrafnhildur. „Okkur langaði
líka að fara með tónlistina til þeirra
sem ekki geta verið úti á götu.“
Hrafnhildur heldur styrktar-
tónleika í kvöld í Dómkirkjunni
fyrir skólagjöldunum úti en þar
mun ekki verða neinn aðgangseyr-
ir heldur aðeins tekið á móti frjáls-
um framlögum.
„Það eru margir að nota klósett-
pappír og sælgætissölu fyrir fjár-
öflun en ég ákvað bara að bjóða
fólki upp á tónleika í staðinn,“ segir
Hrafnhildur og hlær en tónleik-
arnir hefjast klukkan 20.00 í Dóm-
kirkjunni.
baldvin@365.is
Stekkur í djúpu laugina
Hrafnhildur Marta er efnilegur sellóleikari sem komst nýverið inn í stóran tón-
listarskóla í Bandaríkjunum. Hún heldur styrktartónleika í Dómkirkjunni í kvöld.
HRAFNHILDUR MARTA Safnar fyrir náminu með tónleikum. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL