Fréttablaðið - 24.07.2014, Page 54
24. júlí 2014 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 46
Morgunheilsusafinn er minn
uppáhalds sem ég blanda mér og
í honum er engifer, gúrka, sítróna,
kókosvatn, spínat og chia-fræ. Besta
startið fyrir daginn.
Sigrún Lilja, hönnuður Gyðju Collection
DRYKKURINN
Kvikmyndin Time Out of Mind,
sem framleidd er af hinni íslensku
Evu Maríu Daniels og skartar Rich-
ard Gere í aðalhlutverki, er meðal
þeirra fjörutíu sem hafa nú verið til-
kynntar til sýninga á Toronto Inter-
national Film Festival, einni stærstu
kvikmyndahátíð heims. Kvikmynd-
in verður heimsfrumsýnd á opn-
unarhelgi hátíðarinnar, en aðrar
heimsfrumsýningar á hátíðinni
verða á myndum á borð við Love &
Mercy með John Cusack í aðalhlut-
verki, While We Were Young með
Ben Stiller og Naomi Watts
í aðalhlutverki og nýjasta
kvikmynd Chris Rock, Top
Five.
Time Out of Mind er eftir
hinn virta handritshöfund
Oren Moverman, sem kemur
einnig til með að leikstýra
myndinni, þar sem Richard
Gere leikur heimilislausan
mann í New York.
„Það var alveg meiri
háttar að vinna með
Richard. Hann er hreint
út sagt yndislegur og hann veitir
manni mikinn innblástur,“ segir
Eva María um samstarfið.
„Það er hrein unun að vera
í návist hans og horfa á hann
vinna,“ útskýrir hún.
„Það er einnig mikill heið-
ur að komast í heimsfrum-
sýningu á kvikmynda-
hátíð eins og í Toronto
og við erum í skýjun-
um yfir því að vera að
sýna á opnunarhelgi
hátíðarinnar.“ - ósk
Eva María og Richard Gere til Toronto
Eva María Daniels framleiddi kvikmyndina Time Out of Mind með Richard Gere í aðalhlutverki.
ÁNÆGÐ MEÐ SAMSTARFIÐ Eva María
segir meiri háttar að vinna með Richard
Gere. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
„Þetta er æfingahópur sem er
opinn öllum og við æfum á morgn-
ana í Reykjavík,“ segir Rakel Eva
Sævarsdóttir íþróttakona. Hún
stýrir æfingahópi sem er nýr
af nálinni og kallast hópurinn
Áform.
„Ég er nýkomin frá Cambridge í
Massachusetts þar sem ég tók þátt
í íþróttahópi undir yfirskriftinni
November Project og má segja að
það sem ég sé að gera sé í líkingu
við það sem ég kynntist úti,“ segir
Rakel Eva.
Hópurinn sem Rakel Eva var í
var stofnaður af tveimur félögum
hennar þegar hún var við nám í
Cambridge, fyrir um tveim-
ur árum. „Þeir félagar vildu
finna sér leið til þess að halda
sér í formi allt árið um kring,
fyrir engan pening og hafa líka
gaman,“ bætir Rakel Eva við.
November Project er nú í sautj-
án borgum í Bandaríkjunum og
í Kanada. „Eftir að hafa verið í
November Project í smá tíma gat
ég hlaupið Boston-maraþonið.“
Hún segir að ekki sé hægt að
líkja umræddum íþróttahópi við
crossfit eða því um líkt. „Þetta er
og verður alltaf frítt. Eina skil-
yrðið fyrir fólk til þess að mæta
er bara að það hafi áhuga á að
hreyfa sig, formið skiptir ekki
máli. Ég held bara utan um hóp-
inn og vil fá alls konar fólk til að
mæta.“
Hópurinn hittist síðast í gær og
æfði í tröppunum fyrir framan
aðalbyggingu Háskóla Íslands en
þetta var í þriðja sinn sem hópur-
inn hennar Rakelar Evu hittist.
Hún ætlar ekki að láta íslenska
veðurfarið hafa áhrif á íþrótta-
iðkunina og ætlar að æfa í öllum
veðrum. „Ég ætla ekki að láta
veðrið hafa nein áhrif. Við æfðum
í öllum veðrum í Bandaríkjunum,
Ætla að hreyfa sig í
öllum veðrum– alltaf
Rakel Eva Sævarsdóttir heldur utan um íþróttahóp sem ætlar að æfa úti í öllum
veðrum og kostar ekkert að vera í. Eina skilyrðið er að fólk hafi áhuga á að hreyfa sig.
Í HÖRKUFORMI Rakel Eva heldur utan um íþróttahópinn Áform. MYND/EINKASAFN
Um er að ræða íþróttahóp sem Brogan Graham og
Bojan Mandaric stofnuðu í Boston árið 2011.
Þeir vildu finna leið til þess að halda sér í formi allt árið
um kring, fyrir engan pening og hafa líka gaman af.
November Project hópar eru nú starfræktir í sautján
borgum í Bandaríkjunum og Kanada.
Hóparnir fara af stað klukkan 6.30 á morgnana og
eru hundruð manna sem sprikla í November Project-
hópum á mismunandi stöðum. Æfingarnar standa í
þrjátíu til fjörutíu mínútur í senn.
Æfingar eru alls kyns, eins og ýmis hlaup, styrktar-
æfingar eins og armbeygjur, Burpees og margt fleira.
November Project
Eftir að
hafa verið í
November
Project í smá
tíma gat ég
hlaupið
Boston-mara-
þonið.
Rakel Eva Sævarsdóttir
„Við erum að klára upptökur
þessa dagana, það er bara
smotterí eftir og við vonumst
til þess að geta gefið út nýja
plötu í haust,“ segir Valdimar
Guðmundsson, söngv-
ari hljómsveitarinnar
Valdimars. Sveitin
frumflytur nýtt
myndband við
lagið Læt það
duga á Vísi í
dag en lagið er
fyrsta smáskífu-
lagið sem lítur
dagsins ljós af
væntanlegri plötu.
„Kristinn Guð-
mundsson tók upp
myndbandið og hinn
ótrúlega myndarlegi
Atli Þór Annelsson
leikur stórleik í myndbandinu,“
segir Valdimar en myndbandið
sýnir einnig sveitina að störfum
í hljóðveri.
Þeir félagar hafa mikið verið
í hljóðveri síðan í janúar. „Þetta
mikla rigningarsumar hefur
lítið farið í okkur, við höfum
verið svo mikið inni í stúdíói,“
bætir Valdimar við. Hann segir
nýju plötuna vera ögn bjartari,
léttari en jafnframt rólegri en
fyrri plötur. „Ásgeir keypti sér
kassagítar fyrir upptökurnar
og það gæti verið að kassagítar-
inn lýsi efnið upp,“ segir Valdi-
mar og hlær, en kassagítar er
að finna í lögum sveitarinnar í
fyrsta sinn á þessari plötu.
Sveitin hefur í hyggju að koma
fram á nokkrum tónleikum
seinni partinn í ágúst. - glp
Valdimar með nýtt myndband
Hljómsveitin leggur lokahönd á nýja plötu sem er væntanleg með haustinu.
Þetta
mikla
rigningar-
sumar hefur
lítið farið í
okkur, við
höfum
verið svo
mikið
inni í
stúdíói.
Valdimar
Guðmundsson
þó það hafi verið tuttugu stiga
frost. Fólk klæðir sig bara vel og
hefur gaman,“ segir Rakel Eva og
hlær.
Þeir sem vilja komast í æfinga-
hóp Rakelar Evu, geta haft sam-
band í gegnum Facebook-síðu
undir nafninu Áform og þar er
hægt að nálgast upplýsingar.
gunnarleo@frettabladid.is