Fréttablaðið - 08.08.2014, Síða 40

Fréttablaðið - 08.08.2014, Síða 40
8. ágúst 2014 FÖSTUDAGUR| LÍFIÐ | 24 BAKÞANKAR Kolbeins Tuma Daðasonar EGILSHÖLLÁLFABAKKA KRINGLUNNI SPARBÍÓ AKUREYRI KEFLAVÍK SAN FRANCISCO CHRONICLE MOVIEPILOT.COM HITFIX WASHINGTON POST NEW YORK DAILY NEWS MONTY PYTHON LIVE (mostly) 7 - 12 ÁGÚST: 20.00 SJÁ FLEIRI SÝNINGAR Á WWW.BIOPARADÍS.IS - Miðasala: 412 7711 - Hverfisgata 54 - bioparadis.is - Hluti af Europa Cinemas LUCY 6, 8, 10(P) NIKULÁS LITLI 3:50 HERCULES 8, 10:10 SEX TAPE 8 PLANET OF THE APES 3D 10:10 TEMJA DREKANN SINN 2D 5 22 JUMP STREET 5 ÍSL TAL Tilboð í bíó. Gildir á allar sýningar merktar með rauðu. www.laugarasbio.isSími: 553-20755% BEINT Á TOPPINN Í USA! LUCY LUCY LÚXUS GUARDIAN OF THE GALAXY 3D GUARDIAN OF THE GALAXY 3DLÚXUS SEX TAPE DAWN _PLANET OF THE APES 3D AÐ TEMJA DREKANN 2 ÍSL. TAL 2D VONARSTRÆTI KL.. 3.10 - 5.40 - 8 - 10.10 KL. 10.40 KL. 3.10 - 5 - 8 - 10.40 KL. 5 - 8 KL. 8 - 10.10 KL. 8 - 10.45 KL. 3.30 - 5.45 KL. 5.20 LUCY NIKULÁS Í FRÍI SEX TAPE DAWN_PLANET OF THE APES 3D 22 JUMP STREET VONARSTRÆTI ENSKUR TEXTI VONARSTRÆTI KL. 5.50 - 8 -10.10 KL. 5.45 - 8 KL. 5.40 - 8 - 10.10 KL.10.15 KL. 10.40 KL. 5.20 KL. 8 Miðasala á: EIN ÓVÆNTASTA SPENNUMYND ÁRSINS FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA Enn eina ferðina hafa forsvarsmenn Alþjóðaknattspyrnusambandsins FIFA, með trúðinn Sepp Blatter í broddi fylking- ar, gert sig að fífli. Maðurinn sem ætlaði að auka vinsældir kvennaknattspyrnu á einu bretti um árið með því að stytta stutt- buxur leikmanna hefur nú gefið grænt ljós á að leikir í næstu heimsmeistara- keppni í Kanada fari fram á gervi- grasi. Töluvert er síðan gestgjafarnir óskuðu eftir að sá háttur yrði hafður á en vonir stóðu til að FIFA myndi ekki samþykkja tillöguna. EÐLILEGA eru leikmenn og áhuga- fólk um knattspyrnu um allan heim ósátt við ákvörðun FIFA. Skiljan lega. Aldrei í sögunni hefur leikur á HM í knattspyrnu farið fram á gervigrasi sem þykir, eðli málsins samkvæmt, ekki komast með tærnar þar sem náttúrulegt gras hefur hælana. Það segir sína sögu að karlalandslið Kanada hafi í undan keppni fyrir HM 2014 í Brasilíu neitað að spila einn leikja sinna á gervigrasi. ÁHUGI á kvennaknattspyrnu er grátlega lítill samanborið við áhuga á karlaknatt- spyrnu. „Það eru eiginlega bara strákar sem veðja á leikina sem mæta,“ sagði vin- kona mín í Pepsi-deild kvenna við mig á dögunum. Ástæður fyrir muninum á áhuga eru efni í aðra bakþanka, reyndar efni í meistararitgerð, en vandamálið er ljóst. LAUSNIN er ekki að höfuð knattspyrn- unnar í heiminum fari í tilraunastarfsemi með fremstu leikmenn heimsins í kvenna- flokki. Eftir glæsilega heimsmeistara- keppni í Þýskalandi árið 2011 var liðum í lokakeppni fjölgað úr 16 í 24. Fleiri þjóðir, þar á meðal Ísland, áttu allt í einu töluvert meiri möguleika á að spila á stóra sviðinu sem allt knattspyrnufólk dreymir um. STELPURNAR okkar mæta Dönum í því sem mætti kalla úrslitaleik um annað sætið í riðli Íslands í undankeppninni í Laugardalnum eftir tvær vikur. Mögu- leiki á sæti í lokakeppninni er fyrir hendi þótt hann sé nokkuð fjarlægur draumur. Draumur er hann engu að síður og í þeim draumi er enginn að spila á gervigrasi. Í HM-draumi spilar enginn á gervigrasi Tökur hófust í vikunni á kvik- myndinni Blóðbergi, en hún er framleidd af Vesturporti í sam- vinnu við 365 miðla og fram- leiðslufyrirtækið Pegasus. Að sögn Jóhönnu Margrétar Gísla- dóttur, framkvæmdastjóra sjón- varpssviðs 365 miðla, er um nokkuð einstakt samstarf að ræða. „Þetta er rosalega spennandi verkefni,“ segir Jóhanna Mar- grét. „Mér skilst að þetta sé í fyrsta sinn sem mynd af þess- ari stærðargráðu er frumsýnd í íslensku sjónvarpi.“ Til stendur að Blóðberg verði frumsýnd í tveimur hlutum á Stöð 2 eftir áramót og í heild sinni í kvikmyndahúsum á svip- uðum tíma. Jóhanna Margrét segir að engin ákvörðun hafi verið tekin um fleiri framleiðslu- verkefni af þessu tagi. „Við erum bara spennt fyrir því að sjá hvernig þetta verkefni gengur,“ segir hún. „Þetta er nátt- úrulega bara hluti af öflugri, inn- lendri dagskrárgerð hjá Stöð 2.“ Það er Björn Hlynur Haralds- son sem leikstýrir myndinni en handritið er byggt á leikriti hans, Dubbeldusch, sem Vesturport setti fyrst upp árið 2008. Sagan er gamansöm með alvarlegum und- irtón og fjallar um hefðbundna íslenska fjölskyldu í úthverfi Reykjavíkur sem þarf að takast á við gamalt leyndarmál, sem einn daginn bankar upp á og þá breyt- ist allt. Rakel Garðarsdóttir, fram- kvæmdastjóri Vesturports, segir tökur fara vel af stað. „Myndin er búin að vera lengi í þróun hjá okkur í Vesturporti og hún ætti að höfða til allra,“ segir Rakel. Hún bendir á að hægt sé að fylgjast með tökum á Face- book-síðunni Blóðberg og undir #bloðberg á Instagram. bjarkia@frettabladid.is Spennandi verkefni Vesturport og 365 framleiða saman kvikmyndina Blóðberg. Myndin verður frumsýnd í sjónvarpi á svipuðum tíma og í bíói, líklega í fyrsta sinn á Íslandi. FRUMRAUNIN Þetta er fyrsta myndin í fullri lengd sem Björn Hlynur leikstýrir. Á SETTI Leikstjórinn ræðir við aðalleikarana, Hilmar Jónsson og Hörpu Arnardóttur. MYND/VESTURPORT TÆKNILEG ATRIÐI Stefnt er á að frumsýna myndina eftir áramót. Myndin er búin að vera lengi í þróun hjá okkur og hún ætti að höfða til allra. Rakel Garðarsdóttir, framkvæmdastjóri Vesturports

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.