Fréttablaðið - 15.08.2014, Blaðsíða 33
KYNNING − AUGLÝSING Gleraugu & sjónmælingar15. ÁGÚST 2014 FÖSTUDAGUR 3
Optical Studio gleraugnaverslunin hefur verið stækkuð og öll endurnýjuð nú í sumar. „Verslunin hefur verið endur-
bætt á öllum sviðum en fyrst og fremst höfum
við bætt þjónustu, vöruúrval og aðgengi,“ segir
Kjartan Kristjánsson, eigandi Optical Studio og
sjóntækjafræðingur.
„Sjónmælingar og linsumátanir eru nú
framkvæmdar af fimm sjóntækjafræðingum
verslunarinnar en þessi þáttur starfseminn-
ar hefur fengið meira rými en áður og aðstað-
an aukin verulega. Bið eftir sjónmælingu er nú
mun styttri en áður.“
Verslunin í Smáralind er ein af þremur versl-
unum Optical Studio. Hinar eru staðsettar á
Suðurnesjum, í Hafnargötu í Keflavík og á frí-
hafnarsvæðinu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
„Optical Studio hefur umboð og dreifingu
á Íslandi fyrir mörg þekktustu merki gler-
augnamarkaðarins en fyrst ber að nefna Ray
Ban, Oakley, Prada, Chanel, Lindberg, Gucci,
Armani og Tom Ford, auk fjölda annarra fram-
leiðenda. Facebook-síða fyrirtækisins, www.
facebook.com/OpticalStudio, gefur góða sýn
á þær vörur sem eru vinsælastar og flottast-
ar á hverjum tíma. Þar koma líka fram tilboð
og myndir af nýkomnum vörum í verslunum
okkar,“ segir Kjartan.
„Skóladagar eru nú í fullum gangi í verslun-
um okkar þar sem veittur er tuttugu til þrjátíu
prósenta afsláttur á gleraugum með styrkleika.“
Tímapantanir fyrir sjónmælingar: Optical
Studio Smáralind. s. 528-8500. Optical Studio
Keflavík. s. 421-3811. Optical Studio Leifsstöð
s. 425-0500.
Bætt þjónusta og aukið vöruúrval
Optical Studio, gleraugnaverslun í Smáralind, hefur nú verið endurbætt á öllum sviðum. Sérstaklega hefur þjónusta og aðgengi verið
bætt. Sjónmælingar eru nú framkvæmdar af fimm sjóntækjafræðingum og er bið eftir sjónmælingu mun styttri en áður.
Bið eftir sjónmælingu í Optical Studio er nú mun styttri en áður. MYND/BERNHARD KRISTINN
Optical Studio býður upp á mörg þekktustu merki gleraugnamarkaðarins. Aðgengi í versluninni er gott.
Verslun Optical Studio í Smáralind hefur verið stórbætt.