Fréttablaðið - 15.08.2014, Blaðsíða 62

Fréttablaðið - 15.08.2014, Blaðsíða 62
15. ágúst 2014 FÖSTUDAGUR| LÍFIÐ | 42 SUMARLAGIÐ „Það er titillag Parísar norðursins með Prins Póló. Það var bara að koma út og ég er búin að hlusta á það mjög mikið síðan.“ Anna Svava Knútsdóttir leikkona. „Þetta er ólíkt þeim myndum sem ég hef tekið áður, það er mikill heimildarstíll á þessu,“ segir ljós- myndarinn Baldur Kristjánsson en hann fór nýverið í óvænta ferð til Grænlands til þess að mynda Jakob Jakobsson í Sisimiut og eiginkonu hans Sóleyju Kaldal, og son þeirra, Óla. „Ég var á kaffihúsi á sunnu- degi þegar ég var að skoða insta- grammið hans Jakobs og fannst það svo magnað,“ lýsir Baldur. „Síðan sendi ég þeim skilaboð um að mig langaði til þess að koma og var svo heppinn að þau voru akk- úrat í netsambandi og sáu þau um leið og næsta dag var ég kominn með flugmiða í hendurnar.“ Baldur ferðaðist til bæjarins Sisimiut á Grænlandi, þar sem búa rúmlega 5.000 manns, til þess að mynda daglegt líf fjöl- skyldunnar og undirbúning Jak- obs fyrir keppnina Arctic Circle sem hann tók þátt í. „Það er svo ótrúlega flott fyrir svona lítinn stað þar sem ekki er margt í gangi að hafa svona stóra keppni því bærinn umturn- aðist og það voru einhvern veg- inn allir saman í þessu,“ segir Jakob, keppandinn sjálfur. Þau Sóley fluttu til Grænlands þegar Sóley fékk vinnu sem mennta- skólakennari en vissu þá ekki mikið um lifnaðarhætti Græn- lendinga. „Við vissum varla hvort þarna væri rafmagn eða jafnvel læknir,“ segir Jakob og hlær. Jakob segir það hafa komið þeim á óvart hve fljót þau voru að venjast því að hafa hversdagslífið ljósmyndað öllum stundum. „Bald- ur byrjaði strax að taka myndir og fyrst var maður svolítið að leika eitthvert hlutverk en síðan vandist maður þessu smátt og smátt,“ lýsir Jakob. Myndirnar sem Baldur tók af fjölskyldunni verða til sýnis á skiltum neðst á Skólavörðustíg, sem sett verða upp í kvöld og munu standa þar í tvær vikur. Gerir upp Grænlands ævintýrið í myndum Baldur Kristjánsson ferðaðist til Sisimiut í Grænlandi til þess að mynda Jakob Jakobsson, Sóleyju Kaldal og son þeirra Ólaf, sem bjuggu þar í afskekktu þorpi. Í MIÐJUM ÓBYGGÐUM Sisimiut er afskekkt þorp á Grænlandi. KOMINN Í MARK Fjölskyldan fagnar komu Jakobs Jakobssonar úr kapphlaupinu sem tekur þrjá daga. ÓLI BREGÐUR Á LEIK Öll húsgögn fjöl- skyldunnar voru keypt notuð þannig að Óli fékk að leika sér í þeim og hoppa um að vild. ÍSKÖLD KEPPNI Frostið á sumum köflum fer niður í -32°C. Arctic Circle-keppnin er 160 kílómetra, þriggja daga kapp- hlaup á gönguskíðum um óbyggðir Grænlands. Keppnin er haldin í nágrenni Sisimiut, fimm þúsund manna bæjar á vesturströnd Grænlands. Keppnin var fyrst haldin árið 1998 og er orðin einn af árlegum viðburðum vetraríþróttaheimsins. ➜ Hvað er Arctic Circle? „Frumsýningin gekk frábærlega. Við höfum verið með forsýning- ar síðustu tvær vikur og sýning- in hefur alltaf verið að þéttast og verða betri, hún hefur aldrei verið betri en á frumsýningunni,“ segir Ívar Páll Jónsson, höfundur söng- leiksins Revolution Inside the Elbow of Ragnar Agnarsson Furn- iture Painter sem frumsýndur var í Minetta Lane Theater í New York borg. Um er að ræða Off Broadway-söngleik sem sýndur er í um 350 sæta leikhúsi sem þykir frekar stórt miðað við Off Broad- way-leikhús. „Salurinn er í stærri kantinum. Þetta er veglegt hús og það er hátt til lofts. Salurinn var fullur á frumsýningunni sem er ánægjulegt. Það voru um það bil sextíu Íslendingar sem mættu á sýninguna,“ segir Ívar Páll. Hann segir það hafa verið gott að hafa Íslendinga salnum. „Það er alltaf gott að hitta sitt fólk og fi nna fyrir stuðningi.“ Ívar Páll, sem hefur dval- ið í New York síðan um miðjan júnímánuð, segir sýninguna hafa þróast hægt og rólega og hún sé fyrst núna orðin eins og hún eigi að vera. „Æfi ngar hófust í júní þannig að þetta hefur verið lang ur og strangur ferill. Ég hef verið að vinna í handritinu þangað til fyrir viku þannig að þetta var fulltilbúið fyrir skömmu. Þetta er orðið þriggja og hálfs árs ferli,” útskýrir Ívar Páll. - glp Íslenskt verk frumsýnt ytra Söngleikurinn Revolution Inside the Elbow of Ragnar Agnarsson Furniture Painter var frumsýndur í New York á dögunum við góðar undirtektir. SÁTTIR SAMAN Bergur Þór Ingólfsson og Ívar Páll Jónsson standa hér fyrir fram an leikhúsið þar sem töfrarnir gerast. MYND/EINKASAFN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.