Fréttablaðið - 15.08.2014, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 15.08.2014, Blaðsíða 26
FRÉTTABLAÐIÐ Nýjar Stelpur Augnablikið Líf ið mælir með Jógaþon 10 spurningar Erna Ómars viðtalið Fataskápurinn Jet Korine Tískuvikan í Kaupmannahöfn 2 • LÍFIÐ 15. ÁGÚST 2014 HVERJIR HVAR? ÚTGÁFUFÉLAG 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000 Ritstjórnarfulltrúi Álfrún Pálsdóttir alfrun@frettabladid.is ● Auglýsingar Atli Bergmann atlib@365.is Hönnun Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is ● Forsíðumynd Stefán Karlson Lífi ð www.visir.is/lifid HVER ER? Nafn? Steiney Skúladóttir Aldur? 24 ára Starf? Ég ætlaði að skrá mig sem drusla í símaskrána um daginn en það mátti ekki. Maki? Laxa-nigiri er reyndar mitt uppáhalds. Stjörnumerki? Steingeit eins og Jesús. Hvað fékkstu þér í morgunmat? Ég hentist inn í Pétursbúð og keypti mér jógúrt. Uppáhaldsstaður? Í dag væri það Vesturbæjar laugin því það er sólskin. Hreyfing? Ég var að byrja í víkingaþreki en annars er ég með gömul skíðalæri. Uppáhaldslistamaður? Um þessar mundir er það Dóra Jóhannsdóttir sem er að kenna snilld í Haraldinum. Uppáhaldsmynd? Mulan. A- eða B-manneskja? Fer það ekki bara eftir því hvort maður fer snemma eða seint að sofa? AUGNA- BLIKIÐ Fyrirsætan Kendall Jenner stal senunni á rauða dreglinum á Teen Choice-verðlaunahátíðinni sem fór fram í Los Angeles síðustu helgi. Hún var klædd hvítu frá toppi til táar. Buxur með víðum skálmum við einfaldan topp, stílhreint og flott. Hárið og förðunin settu svo punktinn yfir i-ið þar sem einfald- leikinn réð ríkjum í bronsaðri húð og vatnsgreiddu hári. ÉG KÆLI CREAM GEL Ég er kælandi fótagel sem dregur í sig þreytu dagsins. Undragel fyrir þreytta og bólgna fætur. Flott blanda með góðum innihaldsefnum eins og myntu og Eucalyptus. Made in Italy www.master-line.eu Fæst í apótekum og Hagkaup Það var stuð á karókíkvöldi söngdívunn- ar Ásdísar Maríu Viðarsdóttur á Dolly í vikunni. Á meðal þeirra sem tóku lagið voru Þuríður Blær Jóhannsdótt- ir, Reykjavíkurdóttir, en hún tók Euro- vision-slagarann Euphoria. Einnig stigu söngkonurnar Karin Sveinsdóttir í Young Karin og Unnur Eggertsdóttir á svið og deildu hljóðnemanum. Í lok kvölds mátti sjá glitta í plötusnúðana og sálar- systurnar Kolbrúnu Klöru og Juliu Rusl- anovna að slá í gegn á dansgólfinu. Fædd: 1988 Útskrift: Vorið 2013 Fyrri störf: París Norðursins Eldraunin Óvitarnir Þingkonurnar Spamalot Fædd: 1987 Útskrift: Vorið 2013 Fyrri störf: Tími nornarinnar Sjónvarpsauglýsing KEA-skyr The Visitors og An Die Musik eftir Ragnar Kjartansson Fædd: 1983 Útskrift: Vorið 2010 Fyrri störf: Karma fyrir fugla Dýrin í Hálsaskógi Vesalingarnir Ballið á Bessa- stöðum Litli prinsinn Málmhaus L eikkonurnar Þórunn Arna Kristjánsdóttir, Salóme Rannveig Gunnarsdóttir og Thelma Marín Jónsdóttir koma nýjar inn í aðra þátta- röð Stelpnanna sem frumsýnd verður í haust á Stöð 2. „Ég dýrkaði þættina þegar þeir byrjuðu,“ segir Þórunn Arna. „Maður leit alltaf rosalega upp til þessara leikkvenna.“ Engin þeirra hefur mikla reynslu af grín- eða sketsaleik og því hleypa þær ferskum and- vara inn í þættina. Þær þurftu ekki langan umhugsunarfrest þegar þeim var boðið að taka þátt. „Að fá tækifæri sem leikkona til að vinna með ótrúlega sterk- um hópi leikkvenna með efni sem er samið alfarið af flottum konum. Þetta var „no-brainer“,“ segir Salóme. „Þau hringdu bara og ég sagði já,“ segir hún og hlær. Thelma Marín er sammála þessu. „Þetta er alveg þvílíkt mikill „girl power“.“ „Þetta eru mín fyrstu spor í gríni. Ég kem mjög fersk inn í þetta,“ segir Thelma og bætir við að þetta sé þar að auki í fyrsta skipti sem hún leikur í sjónvarpi yfirhöfuð ef frá er talið hlutverk fyrir nokkrum árum í þættinum Tíma nornar- innar. Þórunn hefur heldur ekki mikla reynslu af grínleik. „Þannig að þetta er svolítil áskorun fyrir mig. En ég held að það sé nauðsynlegt að blanda svolítið. Kómíkin lyftir manni upp.“ Hún er spennt fyrir því að fá að búa til marga mismunandi karaktera. Leikkonurnar ungu fóru á sína fyrstu æfingu með hópn- um í gær en engin þeirra var sérstaklega stressuð fyrir verk- efninu. „Ég var bara mjög spennt,“ útskýrir Salóme. „Það þurfti að breyta tímasetningun- um og fresta æfingum um einn dag. Mér fannst það mjög erfitt, að þurfa að bíða degi lengur.“ Thelma hefur leikgleðina að leiðarljósi. „Ég hef verið að lesa skagfirskar skemmtivísur til að koma mér í gírinn. Ég get slegið um mig með skagfirsku gríni,“ segir hún hlæjandi. Stelpurnar eru framleidd- ar af Saga Film og handritshöf- undar eru þær Brynhildur Guð- jónsdóttir, María Reyndal, Katla Margrét Þorgeirsdóttir, Ilmur Kristjánsdóttir og Maríanna Clara Lúthersdóttir. nanna@frettabladid.is LIST NÝIR SPROTAR Í GRÍN- FLÓRU ÍSLENSKRA LEIKKVENNA Þrjár ungar leikkonur stíga sín fyrstu skref í sketsaleik í Stelpunum í haust. HÚMORISTAR Þrátt fyrir að hafa ekki leikið mikið í grínsketsum eru stelpurnar húmoristar að eðlisfari og hláturmildar með eindæmum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Salóme Rannveig Gunnarsdóttir Thelma Marín Jónsdóttir Þórunn Arna Kristjánsdóttir Það er margt skemmti- legt um að vera um helgina svona síð- sumars og eftir hitabylgju vik- unnar eru flest- ir í stuði til að lyfta sér upp. Á Húrra í kvöld mun sjálfur Prins Póló stíga á svið en hann á eitt vinsælasta lagið um þessar mundir, titillag myndar- innar París norðursins. Prins Póló er hugarsmíð Svavars Péturs Eysteins- sonar en með honum eru bóksal- inn Kristján Freyr, bóndinn Berglind Häsler og tónskáldið Benedikt Her- mann Hermannsson. Tónleikarnir hefjast klukkan 21. Á morgun verða svo sannkölluð há- tíðahöld á Skóla- vörðustígnum. Þá mun beikonilm- urinn líða um Þingholt- in og miðbæ- inn þar sem Reykja- vik Bacon festival fer fram. Hátíðin hefur fest sig í sessi meðal landans sem flykkist til að fá sér vel steikt beik- on en viðburðurinn stend- ur frá 14-17. Markaðir verða víða um höfuðborgarsvæð- ið um helgina. Á morg- un verður útimarkaður Íbúa- samtaka Laugardals haldinn við smábátahöfnina í Elliðavogi. Markaðurinn stendur frá klukkan 13 til 17 og mun eflaust kenna þar ýmissa grasa. Á sunnudaginn verð- ur svo fatamarkaður á Kexi Host- eli til styrktar börnum í Palestínu. Sá markaður er opinn frá klukkan 14 til 17. LÍFIÐ MÆLIR MEÐ Prins Póló, beikon og markaðir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.