Fréttablaðið - 02.09.2014, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 02.09.2014, Blaðsíða 2
2. september 2014 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 2 Guðmundur, verður lífið þá dans á rósum? „Já, með þyrnum og blóði og sársauka þangað til siggið er orðið vel þykkt.“ Guðmundur Elías Knudsen listdansari vill aðstoða drengi með athyglisbrest eða ofvirkni með því að halda fyrir þá dansnámskeið. STJÓRNSÝSLA Kópavogsbær fékk 30 frímiða á tónleika Justins Tim- berlake frá tónleikahaldaranum Senu. Þetta upplýsir Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri í bréfi til bæjarfulltrúa. Bréf Ármanns er svar við fyr- irspurnum Sigurjóns Jónssonar, varabæjarfulltrúa Framsóknar- flokksins. Sigurjón spurði meðal annars hverjir hefðu fengið boðs- miðana og hvort bæjarstjórinn teldi það samræmast siðareglum að „þiggja slíkar gjafir“. Sjálfur fékk Sigurjón tölvupóst þar sem bæjarstjórinn sagði bæjarfulltrú- um frá frímiðunum. Ármann segir Sigurjón hafa svarað um hæl: „Frábærar fréttir og ég er klár ásamt maka,“ vitnar bæjar- stjórinn í póst Sigurjóns sem hann kveðst hafa svarað með svohljóð- andi sendingu: „Sæll Sigurjón, mér finnst leið- inlegt að þurfa að segja þér að þetta á við bæjarfulltrúana eins og fram kemur í póstinum. Þar sem Birkir Jón er búinn að þiggja miðana þá fær varafulltrúi hans ekki miða.“ Þarna vísar Ármann til Birkis Jóns Jónssonar, bæjar- fulltrúa Framsóknarflokksins. Ármann kveðst hafa talið mikil- vægt að bæjarfulltrúar mættu á tónleikana sem hafi verið stórvið- burður. Taka þurfi stefnumark- andi ákvarðanir um framtíðar- notkun Kórsins. „Af þessum sökum var rætt við tónleikahaldara um að bæj- arfulltrúar gætu sótt tónleikana og var það auðsótt mál,“ útskýrir Ármann sem kveður hvern hinna ellefu bæjarfulltrúa hafa feng- ið tvo miða. „Lagði ég að þeim í tölvupósti fyrir tónleikana að sækja þá með fyrrgreindum rök- stuðningi. Allir bæjarfulltrúar mættu samkvæmt vitneskju und- irritaðs.“ Þá segir Ármann bæinn hafa haft átta miða til ráðstöfunar fyrir starfsmenn bæjarins sem ekki voru að vinna við tónleikana en kæmu engu að síður að starf- semi hússins og umræðu um framtíðarnot þess. Sömu rök gildi um þá og um bæjarfulltrúana. Ekki kemur fram hvaða starfs- menn þetta eru. Varðandi siðareglur kjörinna fulltrúa segir bæjarstjórinn sam- komulagið um frímiðana hafa verið gert að frumkvæði hans sjálfs en ekki Senu. „Í 6. grein siðareglna bæjarins segir að kjörnir bæjarfulltrúar og stjórn- endur skuli tilkynna um allar gjafir, sem var gert í þessu tilviki, og að þeim sé óheimilt að þiggja gjafir ef líta megi á það sem end- urgreiðslu fyrir greiða. Slíkt á ekki við í þessu tilviki.“ gar@frettabladid.is „Frábærar fréttir, ég er klár ásamt maka“ Bæjarstjóri Kópavogs segir hvern og einn bæjarfulltrúa hafa þegið tvo boðsmiða á tónleika Justins Timberlake. Varabæjarfulltrúi Framsóknar, sem telur siðareglur kunna að hafa verið brotnar, fékk enga miða því bæjarfulltrúi flokksins nýtti þá. JUSTIN TIMBERLAKE Tónleikar stórstjörnunnar í Kórnum þóttu afar vel heppnaðir. FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRI ÁRMANN KR. ÓLAFSSON SIGURJÓN JÓNSSON MENNING Andri Snær Magnason hlaut í gær Vestnorrænu barna- og ung- lingabókaverðlaunin fyrir bók sína Tímakistuna. Andri er fyrsti höf- undurinn til að hreppa verðlaunin í tvígang, en hann hlaut þau í fyrsta skipti sem þau voru veitt fyrir Söguna af bláa hnettinum. Þetta var í sjöunda sinn sem Vestnorrænu barnabókaverðlaunin eru veitt. Tilgangur þeirra er að benda á mikilvægi góðra barnabóka á smáum málsvæðum og eru þau veitt annað hvert ár. - bá Vestnorrænu barna- og unglingabókaverðlaunin afhent: Tímakista Andra Snæs verðlaunuð ANDRI SNÆR OG FJÖLSKYLDA Verðlaunin voru afhent í Alþingishúsinu í gær. Afhendingin fer fram í tengslum við ársfund Vestnorræna ráðsins. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA EFNAHAGSMÁL Fjöldi fólks hefur gert séreignarsparnaðarsamning við bankana vegna aðgerða ríkis- stjórnarinnar í tengslum við hús- næðislán. Una Steinsdóttir, framkvæmda- stjóri viðskiptabankasviðs Íslands- banka, segir marga hafa hætt með séreignarsparnað í kjölfar efna- hagshrunsins 2008 en margir þeirra hafa nú snúið aftur. Hjá Íslandsbanka var farið í sér- stakt átak og hringt í viðskiptavini til að kynna fyrir þeim möguleika í tengslum við séreignarsparn- að eftir að ríkisstjórnin kynnti úrræði í tengslum við húsnæðis- lán. Una segist sjá verulega aukn- ingu í gerð séreignarsparnaðar- samninga síðan í vor. Hjá Arion banka var opnuð sér- stök upplýsingasíða og fræðslu- fundir haldnir ásamt því að sér- staklega var haft samband við viðskiptavini. Snædís Ögn Flosa- dóttir, sérfræðingur á eignastýr- ingasviði Arion banka, segir að séreignarsparnaðarsamningum hafi einnig fjölgað mikið hjá Arion banka í vor og sumar eftir að lög um leiðréttingu höfuðstóls íbúðar- lána voru samþykkt á Alþingi. Umsóknarfrestur um lækkun höfuðstóls íbúðalána er runninn út en áfram verður hægt að sækja um nýtingu séreignarsparnaðar. Tímabilið sem leyfilegt er að ráð- stafa hluta af séreignarsparnaði skattfrjálst er frá 1. júlí 2014 til 30. júní 2017. Til að fá nýttan séreignarsparn- að frá 1. júlí þurfti að sækja í síð- asta lagi um í gær. Einstakling- ar hafa rétt á að nýta 500 þúsund krónur á ári skattfrjálst af sér- eignarsparnaði sínum en hjón og sambýlisfólk hafa rétt á að ráð- stafa 750 þúsund krónum samtals árlega. - adá Fjöldi fólks hefur skipt um skoðun eftir að hafa hætt með sparnað sinn: Snúa aftur í séreignarsparnað ARION BANKI Mikið hefur verið að gera hjá bönkunum við gerð nýrra séreignarsparnaðarsamninga eftir að lög um húsnæðislán voru samþykkt á Alþingi. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR STJÓRNSÝSLA Jóhannes Þór Skúla- son, aðstoðarmaður forsætis- ráðherra, mun fyrst um sinn jafnframt gegna embætti aðstoð- armanns dómsmálaráðherra. Sem kunnugt er færast dómsmál tímabundið undir Sigmund Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra í kjölfar þess að innanríkisráð- herra baðst undan þeim. Í gær hóf jafnframt störf í for- sætisráðuneytinu Lilja D. Alfreðs- dóttir, aðstoðarframkvæmda- stjóri á skrifstofu bankastjóra og alþjóðasamskipta í Seðlabanka Íslands, sem hefur verið ráðin tímabundið sem verkefnisstjóri í forsætisráðuneytinu. - bá Breytingar í stjórnarráðinu: Lilja verður verkefnisstjóri SPURNING DAGSINS FJÖLMIÐLAR Fjölmiðlanefnd hefur ákveðið að óska eftir upplýsing- um um rekstur og eignarhald fjöl- miðla í ljósi þeirrar umræðu sem átt hefur sér stað um málefni fjöl- miðla undanfarið. „Við vissum að við vorum ekki með nýjar upplýsingar um eignar- hald DV og það sama á við um aðra fjölmiðla,“ segir Elfa Ýr Gylfa- dóttir, framkvæmdastjóri Fjöl- miðlanefndar. „Við vorum búin að ákveða að fara í þetta en í ljósi þess sem er búið að vera að ger- ast, þá er náttúrulega farið í þetta strax.“ Fram kom um helgina að ritstjóri DV, Reynir Traustason, fékk lánað- ar 15 milljónir króna frá útgerðar- manninum Guðmundi Kristjánssyni á síðasta ári en Reynir neitar því að lánið hafi haft áhrif á fréttaskrif DV um mál Guðmundar. Atli Þór Fanndal, fyrrverandi blaðamaður DV, greindi frá því um helgina að hann hygðist upplýsa Fjöl- miðlanefnd um það sem hann vissi, en hann skrifaði talsvert um sjávar- útvegsmál fyrir blaðið. Elfa og Atli ræddu saman í gær en hún segir að þær upplýsingar sem hann kom á framfæri hafi ekkert með ákvörðun nefndarinnar að gera. „Ekkert form- legt erindi hefur borist frá Atla eða gögn,“ segir Elfa Ýr. - bá Óskað eftir nýjum upplýsingum í kjölfar umræðu um lán útgerðarmanns til ritstjóra DV í fyrra: Fjölmiðlanefnd flýtir skoðun á eignarhaldi ÓSKAR EFTIR UPPLÝSINGUM Elva Ýr segir samtal sitt við Atla Þór ekkert hafa með ákvörðun nefndarinnar að gera. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Við vissum að við vorum ekki með nýjar upplýsingar um eignarhald DV. Elfa Ýr Gylfadóttir, framkvæmdastjóri fjölmiðlanefndar. FÓLK Yoko Ono hefur tilkynnt að Jón Gnarr, fyrrverandi borgar- stjóri, sé einn fjögurra sem hljóta Lennon Ono-friðarverðlaunin árið 2014. Afhending fer fram í Reykja- vík þann 9. október næstkomandi. Í tilkynningu á Facebook-síðu Ono segir að Jón hafi sýnt fram á að stjórnmál séu í þágu fólks og í höndum þess. Jón hlýtur verð- launin ásamt Jann Wenner, einum stofnanda og útgefanda tímarits- ins Rolling Stone, Jeremy Gilley, upphafsmanni samtakanna Peace One Day, og Doreen Remen og Yvonne Force Villareal, stofnend- um Art Production-sjóðsins. - aí Jón Gnarr verður heiðraður: Hlýtur friðar- verðlaun Ono

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.