Fréttablaðið - 02.09.2014, Blaðsíða 28
FRÉTTABLAÐIÐ
BÍLAR10 2. september 2014 ÞRIÐJUDAGUR
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
1,6 DÍSILVÉL, 92 HESTÖFL
Framhjóladrif
Eyðsla 4,0 l./100 km
í bl. akstri
Mengun 103 g/km CO2
Hröðun 11,5 sek.
Hámarkshraði 181 km/klst
Verð 3.130.000 kr.
Umboð Bernhard
● Mikið rými
● Aksturseiginleikar
● Vönduð innrétting
● Lítil djörfung í ytra útliti
● Lítil torfærugeta
● Ekki í boði fjórhjóladrifinn
PEUGEOT 2008
PEUGEOT 2008
Finnur Thorlacius reynsluekur
E
inn nýrra bíla Peugeot
er 2008 en framleiðsla
hans hófst í fyrra. Svo
vel hefur þessum bíl
verið tekið að Bernhard,
söluumboð Peugeot hér
á landi, fékk ekki eitt
einasta eintak af honum í fyrra,
en nú hefur verið bætt úr því.
Peugeot ætlaði í fyrstu að fram-
leiða um 300 eintök af þessum
bíl á hverjum degi en fyrirtæk-
ið hefur þurft að ríflega tvöfalda
framleiðsluna til að hafa undan
eftirspurn. Þessi bíll er tiltölulega
smár, byggður á 208 bíl Peugeot,
en er miklu hærri og í honum sitja
farþegar hátt. Í útliti er 2008 eins
og jepplingur en hann má aðeins
fá með framhjóladrifi svo erfitt er
að setja hann í þann flokk og því
er ef til vill heppilegra að flokka
hann á meðal fjölnotabíla. Hann
er ámóta að stærð og Nissan Juke,
Ford B-Max og Opel Mokka og á
að keppa við þá bíla um hylli bíl-
kaupenda.
Fjórir eyðslugrannir vélarkostir
Peugeot 2008 má fá með þrem-
ur gerðum dísilvéla. Sú minnsta
er 1,4 lítra og 68 hestafla en 1,6
lítra vél má fá í tveimur útgáfum,
92 og 114 hestafla. Einnig er í
boði 1,2 lítra bensínvél sem skil-
ar 82 hestöflum. Allar eru þessar
vélar sparneytnar og eyða 3,8 til
4,9 lítrum á hverja hundrað kíló-
metra. Reyndur var bíll með 92
hestafla 1,6 lítra dísilvélinni og
með henni er hann hvorki vélar-
vana né sérlega aflmikill. Reynd-
ar togar vélin svo ágætlega að
borgaraksturinn varð frískleg-
ur og ekki reyndist erfiðleikum
bundið að hraða bílnum fram úr
silalegri umferð á stundum. Þar
sem bíllinn er ákaflega léttur, eða
rétt um 1.100 kíló þarf ekki svo
stóra og öfluga vél í bílinn og létt-
leiki hans eykur líka á aksturs-
eiginleika hans. Fyrir vikið hall-
ast hann ekki mikið í beygjum
þrátt fyrir að vera háreistur bíll
og getur því farið hraðar í þær
en við mætti búast. Fjöðrun bíls-
ins er með ágætum og hann étur
ójöfnur í veginum vel. Kemur það
ekki á óvart fyrir franskan bíl en
þeir eiga það flestir sameiginlegt.
Bíllinn líkaði betur og betur eftir
því sem honum var meira ekið og
umgengni um hann með sína háu
setu var þægileg. Lipurð bílsins
og léttleiki jók enn á ánægjuna og
á endanum var honum skilað með
eftirsjá.
Mjög plássmikill og flott sæti
Að ytra útliti er bíllinn nokkuð
laglegur, en bílaframleiðendum
reynist oft erfitt að gera bíla þess-
arar gerðar fallega, til þess eru
þeir of háir og stuttir. Fyrir vikið
er hann ekki tiltakanlega falleg-
ur, en Peugeot hefur farið fremur
smekklega og stílhreina leið við
hönnun hans, ólíkt til dæmis Niss-
an Juke, en þar var farin mjög
djörf leið sem mörgum annað-
hvort mislíkar mjög eða dást að.
Að innan er Peugeot 2008 ferlega
smekklegur og þar telur undir-
ritaður að Frökkunum hafi tekist
betur til en í ytra útlitinu. Sætin
eru bæði mjög góð og falleg og er
það reyndar alveg í takti við flest
sæti sem frá frönskum framleið-
endum koma. Meira að segja aft-
ursætin eru þægileg og þar er
nægt höfuðrými, enda bíllinn hár
til þaksins. Aftursætin falla alveg
flöt niður og myndast þá heil-
mikið pláss og má þá nota bíl-
inn til flutnings á stærri hlutum.
Til vitnis um gott rýmið reyndist
það reynsluökumanni ekki nokk-
ur vandi að setja fjallahjól aftur
í bílinn án þess að taka dekkin
af. Mælaborðið er flott, stílhreint
og einfalt og upplýsingaskjár
fyrir miðju þess þar sem stjórna
má mörgu í bílnum. Smíðavinna
öll inni í bílnum kemur á óvart
fyrir vandvirkni og er þar þýsk-
ur bragur.
Á fínu verði og til í mörgum
útfærslum
Peugeot 2008 er á fínu verði
og ódýrasta útfærsla hans með
82 hestafla bensínvélinni er á
3.130.000 krónur. Reynsluakst-
ursbíllinn með sjálfskiptingu
er á 3.770.000 kr. og beinskipt-
ur er hann á 3.695.000 kr. Dýr-
asta útfærslan með 114 hestafla
dísilvélinni og Allure-innrétt-
ingu er á 4.199.000 kr. Að mörgu
leyti kemur þessi bíll skemmti-
lega á óvart. Undirritaður óttað-
ist að litlar vélar sem í boði eru
gerðu hann vélarvana, en svo er
ekki og er það helst að þakka lít-
illi þyngd bílsins. Þessi bíll bætist
nú í stækkandi flóru minni jepp-
linga/fjölnotabíla þar sem sam-
keppnin fer vaxandi, en hann er
gott betur en samkeppnishæf-
ur í þeim flokkum. Hann er eng-
inn torfærubíll en einkar hent-
ugur bíll fyrir breiðan hóp fólks,
hvort sem um ungt barnafólk er
að ræða eða miðaldra eða eldra
fólk sem vill eiga bíl sem tekið
getur slatta af farangri. Peugeot
2008 kemur í kjölfar annars frá-
bærs bíls frá framleiðandan-
um, þ.e. Peugeot 308 sem er bíll
ársins í heiminum í ár og þrátt
fyrir að hann nái honum vart að
gæðum er hér um að ræða aðra
vel heppnaða bílgerð frá fram-
leiðanda sem er í mikillki sókn.
LIPUR OG RÚMGÓÐUR FRAKKI
Hefur selst svo vel að tvöfalda hefur þurft framleiðsluna og núna berast fyrstu eintökin til landsins.
Flutningsrými í
Peugeot 2008 er
merkilega stórt
þegar aftursætin
hafa verið felld
niður og þá verður
gólfi ð alveg flatt.