Fréttablaðið - 02.09.2014, Side 28

Fréttablaðið - 02.09.2014, Side 28
FRÉTTABLAÐIÐ BÍLAR10 2. september 2014 ÞRIÐJUDAGUR FRÉTTABLAÐIÐ/GVA 1,6 DÍSILVÉL, 92 HESTÖFL Framhjóladrif Eyðsla 4,0 l./100 km í bl. akstri Mengun 103 g/km CO2 Hröðun 11,5 sek. Hámarkshraði 181 km/klst Verð 3.130.000 kr. Umboð Bernhard ● Mikið rými ● Aksturseiginleikar ● Vönduð innrétting ● Lítil djörfung í ytra útliti ● Lítil torfærugeta ● Ekki í boði fjórhjóladrifinn PEUGEOT 2008 PEUGEOT 2008 Finnur Thorlacius reynsluekur E inn nýrra bíla Peugeot er 2008 en framleiðsla hans hófst í fyrra. Svo vel hefur þessum bíl verið tekið að Bernhard, söluumboð Peugeot hér á landi, fékk ekki eitt einasta eintak af honum í fyrra, en nú hefur verið bætt úr því. Peugeot ætlaði í fyrstu að fram- leiða um 300 eintök af þessum bíl á hverjum degi en fyrirtæk- ið hefur þurft að ríflega tvöfalda framleiðsluna til að hafa undan eftirspurn. Þessi bíll er tiltölulega smár, byggður á 208 bíl Peugeot, en er miklu hærri og í honum sitja farþegar hátt. Í útliti er 2008 eins og jepplingur en hann má aðeins fá með framhjóladrifi svo erfitt er að setja hann í þann flokk og því er ef til vill heppilegra að flokka hann á meðal fjölnotabíla. Hann er ámóta að stærð og Nissan Juke, Ford B-Max og Opel Mokka og á að keppa við þá bíla um hylli bíl- kaupenda. Fjórir eyðslugrannir vélarkostir Peugeot 2008 má fá með þrem- ur gerðum dísilvéla. Sú minnsta er 1,4 lítra og 68 hestafla en 1,6 lítra vél má fá í tveimur útgáfum, 92 og 114 hestafla. Einnig er í boði 1,2 lítra bensínvél sem skil- ar 82 hestöflum. Allar eru þessar vélar sparneytnar og eyða 3,8 til 4,9 lítrum á hverja hundrað kíló- metra. Reyndur var bíll með 92 hestafla 1,6 lítra dísilvélinni og með henni er hann hvorki vélar- vana né sérlega aflmikill. Reynd- ar togar vélin svo ágætlega að borgaraksturinn varð frískleg- ur og ekki reyndist erfiðleikum bundið að hraða bílnum fram úr silalegri umferð á stundum. Þar sem bíllinn er ákaflega léttur, eða rétt um 1.100 kíló þarf ekki svo stóra og öfluga vél í bílinn og létt- leiki hans eykur líka á aksturs- eiginleika hans. Fyrir vikið hall- ast hann ekki mikið í beygjum þrátt fyrir að vera háreistur bíll og getur því farið hraðar í þær en við mætti búast. Fjöðrun bíls- ins er með ágætum og hann étur ójöfnur í veginum vel. Kemur það ekki á óvart fyrir franskan bíl en þeir eiga það flestir sameiginlegt. Bíllinn líkaði betur og betur eftir því sem honum var meira ekið og umgengni um hann með sína háu setu var þægileg. Lipurð bílsins og léttleiki jók enn á ánægjuna og á endanum var honum skilað með eftirsjá. Mjög plássmikill og flott sæti Að ytra útliti er bíllinn nokkuð laglegur, en bílaframleiðendum reynist oft erfitt að gera bíla þess- arar gerðar fallega, til þess eru þeir of háir og stuttir. Fyrir vikið er hann ekki tiltakanlega falleg- ur, en Peugeot hefur farið fremur smekklega og stílhreina leið við hönnun hans, ólíkt til dæmis Niss- an Juke, en þar var farin mjög djörf leið sem mörgum annað- hvort mislíkar mjög eða dást að. Að innan er Peugeot 2008 ferlega smekklegur og þar telur undir- ritaður að Frökkunum hafi tekist betur til en í ytra útlitinu. Sætin eru bæði mjög góð og falleg og er það reyndar alveg í takti við flest sæti sem frá frönskum framleið- endum koma. Meira að segja aft- ursætin eru þægileg og þar er nægt höfuðrými, enda bíllinn hár til þaksins. Aftursætin falla alveg flöt niður og myndast þá heil- mikið pláss og má þá nota bíl- inn til flutnings á stærri hlutum. Til vitnis um gott rýmið reyndist það reynsluökumanni ekki nokk- ur vandi að setja fjallahjól aftur í bílinn án þess að taka dekkin af. Mælaborðið er flott, stílhreint og einfalt og upplýsingaskjár fyrir miðju þess þar sem stjórna má mörgu í bílnum. Smíðavinna öll inni í bílnum kemur á óvart fyrir vandvirkni og er þar þýsk- ur bragur. Á fínu verði og til í mörgum útfærslum Peugeot 2008 er á fínu verði og ódýrasta útfærsla hans með 82 hestafla bensínvélinni er á 3.130.000 krónur. Reynsluakst- ursbíllinn með sjálfskiptingu er á 3.770.000 kr. og beinskipt- ur er hann á 3.695.000 kr. Dýr- asta útfærslan með 114 hestafla dísilvélinni og Allure-innrétt- ingu er á 4.199.000 kr. Að mörgu leyti kemur þessi bíll skemmti- lega á óvart. Undirritaður óttað- ist að litlar vélar sem í boði eru gerðu hann vélarvana, en svo er ekki og er það helst að þakka lít- illi þyngd bílsins. Þessi bíll bætist nú í stækkandi flóru minni jepp- linga/fjölnotabíla þar sem sam- keppnin fer vaxandi, en hann er gott betur en samkeppnishæf- ur í þeim flokkum. Hann er eng- inn torfærubíll en einkar hent- ugur bíll fyrir breiðan hóp fólks, hvort sem um ungt barnafólk er að ræða eða miðaldra eða eldra fólk sem vill eiga bíl sem tekið getur slatta af farangri. Peugeot 2008 kemur í kjölfar annars frá- bærs bíls frá framleiðandan- um, þ.e. Peugeot 308 sem er bíll ársins í heiminum í ár og þrátt fyrir að hann nái honum vart að gæðum er hér um að ræða aðra vel heppnaða bílgerð frá fram- leiðanda sem er í mikillki sókn. LIPUR OG RÚMGÓÐUR FRAKKI Hefur selst svo vel að tvöfalda hefur þurft framleiðsluna og núna berast fyrstu eintökin til landsins. Flutningsrými í Peugeot 2008 er merkilega stórt þegar aftursætin hafa verið felld niður og þá verður gólfi ð alveg flatt.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.