Fréttablaðið - 02.09.2014, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 02.09.2014, Blaðsíða 30
FRÉTTABLAÐIÐ BÍLAR12 2. september 2014 ÞRIÐJUDAGUR Næsta kynslóð rafmagnsbílsins Nissan Leaf á að geta komist 290 kílómetra á hverri hleðslu rafmagns. Núverandi Leaf kemst 135 kílómetra svo sá nýi bætir 115% um betur og munar um minna. Nýr Nissan Leaf verður kynntur árið 2016 og verður hann búinn gerbreyttum rafhlöðum. Núverandi Leaf notar lithium-ion- rafhlöður en sá nýi verður útbúinn rafhlöðum sem byggjast á annarri tækni. Þessar nýju rafhlöður verða einnig notaðar í fyrsta rafmagns- bílnum frá lúxusarmi Nissan, Infi nity. Nissan mun líklega bjóða Leaf með mismunandi drægni þar sem sá sem kemst lengst verður talsvert dýrari en núverandi Leaf. Nissan hefur reynslu af því að auka sölu Leaf-bílsins með mislangdrægum útfærslum, en hún jókst mjög þegar Nissan kynnti skamm drægari Leaf í fyrra. Nissan ætlar í leiðinni að breyta útliti Leaf verulega og verður hann líkari venjulegum fólksbílum og fremur framúrstefnulegur, eins og hér sést. Nýr Nissan Leaf kemst 290 km á hleðslunni Einn stærsti álframleiðandi í heiminum, Novelis Inc., spáir því að notkun áls hjá bílafram- leiðendum muni þrefaldast á næstu sex árum. Núna notar bílaiðnaðurinn 9% af öllu framleiddu áli, en spá Novelis gerir ráð fyrir að sú tala fari upp í 25% árið 2020. Stærsti hluti álframleiðslu heimsins í dag fer í einnota áldósir fyrir drykkjarvöru og nemur 60% álframleiðslunnar. Hún færi niður í 50% ef spá Novelis um aukna notkun í bíla stenst. Gríðarlegt magn áls fer nú í framleiðslu á söluhæsta bíln- um í Bandaríkjunum, Ford F-150-pallbílnum og sú ákvörð- un Ford að nota mikið ál í hann í stað stáls gæti haft keðju- verkandi áhrif til aukinn- ar notkunar þess. Land Rover er nú að auka mjög notkun áls í bíla sína og Audi hefur til langs tíma notað mikið ál í sína bíla. Mikil pressa er á bílaframleiðendum að minnka eyðslu og losun eiturefna í bílum sínum og ein einfaldasta aðferðin er að létta bílana með notkun áls í stað stáls. Spá þreföldun álnotkunar í bíla til 2020 Þó svo að framleiðsla hins of- ursparneytna bíls XL1 frá Volkswagen sé afar takmörk- uð í fyrstu hefur Volkswagen hug á því að taka framleiðslu hans á næsta stig. Það fæli í sér að framleiða hann fyrir fjóra farþega og þá með fern- um dyrum. XL1 eyðir svo litlu sem 0,9 lítrum á hverja hundr- að kílómetra, vegur aðeins 794 kíló, en tekur aðeins tvo far- þega. Nýr fjögurra sæta XL1 myndi vega aðeins meira, en þó ekki nema 940 kíló, eða svipað og nýr Volkswagen up! Heyrst hefur að nýr fjög- urra sæta XL1 fengi heitið XL2 og það er sjálfur forstjóri Volkswagen, Ferdinand Piëch, sem mestan áhuga hefur á að framleiða hann. Hann vill viðhalda ímynd Volkswagen sem brautryðjanda í fram- leiðslu á ofursparneytnum bílum. Honda mun á næsta ári setja á markað ofursparneyt- inn bíl sem bera mun heitið Honda FCEV og það gæti haft áhrif á ákvörðun Volkswagen um frekari þróun XL1-bílsins. Hætt er við því að Volkswagen þurfi að lækka verulega fram- leiðslukostnað XL2, en núver- andi XL1 kostar 17,2 milljónir króna og því verður hann seint einhver magnsölubíll. Volkswagen XL1 með 4 dyrum og sætum Bí ll á m yn d: C he vr ol et C ru ze L TZ GERÐU BETUR VIÐ ÞIG Opið alla virka daga frá 9 til 18 og laugardaga frá 12 til 16. Verið velkomin í reynsluakstur. SNIÐINN FYRIR ÞIG OG FJÖLSKYLDUNA VERÐ: 3.190 ÞÚS. ENNÞÁ MEIRA FYRIR AÐEINS 190 ÞÚSUND

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.