Fréttablaðið - 02.09.2014, Side 6
2. september 2014 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 6
Við gerum ráð
fyrir því að þau komi
á lóðina, vonandi eins
fljótt og hægt er.
Kristín Ingólfsdóttir,
rektor Háskóla Íslands.
1. Hversu mörg fötluð börn í Reykja-
vík eru á biðlista eftir stuðningsfjöl-
skyldu?
2. Hversu margar hrefnur hafa veiðst
á þessari vertíð?
3. Fyrir hverja er dansnámskeiðið
Hreyfi smiðjan sem Guðmundur Elías
Knudsen heldur?
SVÖR:
1. 461 . 2. 22 . 3. Unglingsstráka með ADHD.
Síðumúli 16 | 108 Reykjavík | Sími 580 3900 | www.fastus.is
Verslun opin mán - fös 8.30 - 17.00
Glös fyrir stórar og smáar veislur
Hjá Fastus fæst mikið úrval af glösum fyrir stóra og litla veitingastaði.
Komið í verslun okkar að Síðumúla 16 og látið fagmenn hjálpa ykkur við að velja réttu glösin.
F
A
S
TU
S
_H
_2
7.
08
.1
4
ALÞINGI Karl Garðarsson, þing-
maður Framsóknarflokksins, og
Vilhjálmur Árnason, þingmað-
ur Sjálfstæðisflokksins, munu
leggja fram frumvarp á komandi
þingi sem á að taka á heimilis-
ofbeldisvandanum hér á landi. Í
tilkynningu segir að heimilisof-
beldi sé ekki litið nægilega alvar-
legum augum í samfélaginu.
Í frumvarpinu felst meðal
annars sú breyting að lögregla
fær heimild til að kæra brot gegn
nálgunarbanni, en samkvæmt
núverandi löggjöf getur einungis
þolandi kært slík brot. - bá
Vilja viðhorfsbreytingu:
Frumvarp um
heimilisofbeldi
KARL OG VILHJÁLMUR Þingmennirnir
segja tilefni til að skerpa á afstöðu löggjaf-
ans í þessum málum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
MENNTUN Ana Maria Cruz, prófess-
or við Kyoto-háskóla og sérfræð-
ingur í hamfarafræðum, heimsæk-
ir Háskóla Íslands þessa vikuna og
heldur erindi í tveimur málstofum.
Fyrri málstofan fer fram í dag en
þar hyggst Cruz kynna Alþjóðafé-
lag um samhæfða áhættustýringu
vegna hamfara (ISIDM), sem starf-
ar í Japan og ætlað er að vera þver-
fræðilegur vettvangur um rann-
sóknir í hamfarastjórnun. Seinni
málstofan fer svo fram á morgun
en þar verður sagt frá rannsóknum í
hamfarastjórnun við Kyoto-háskóla.
- bá
Sérfræðingur heimsækir HÍ:
Málstofur um
hamfarastjórn
SKIPULAGSMÁL Búið er að samþykkja
deiliskipulag á svæði Háskóla
Íslands fyrir nýtt hús menntavís-
indasviðs skólans. Menntavísinda-
svið hefur núna aðstöðu í Stakkahlíð
og Bolholti, þar sem Kennaraháskól-
inn var áður. „Við gerum ráð fyrir
því að þau komi á lóðina, vonandi
eins fljótt og hægt er,“ segir Krist-
ín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla
Íslands. Hún segir að nýtt hús verði
staðsett í námunda við VR I og VR II
á horni Suðurgötu og Hjarðarhaga.
Kristín segir að gamla húsnæðið
í Stakkahlíð verði væntanlega selt
og það hafi verið rætt að það gæti
hentað vel fyrir framhaldsskóla.
Hún segir húsnæðið vera mjög gott
en stúdentar og starfsfólk mennta-
vísindasviðsins þurfi að vera nær
háskólasvæðinu. Hún segir ekki
víst hvenær bygging húsnæðisins
gæti hafist. „Það er í rauninni undir
menntamálaráðuneytinu komið.
Þetta yrði fjármagnað af ríkinu,“
segir Kristín.
Kristín og Dagur B. Eggerts-
son borgarstjóri undirrituðu í gær
samning um lóðir háskólans. Samn-
ingurinn tekur til um 400 þúsund
fermetra landsvæðis og í tilkynn-
ingu segir að hann marki ákveðin
tímamót í samskiptum Reykjavík-
urborgar og Háskólans. Tekin eru
af öll tvímæli um afmörkun eignar-
lóðar háskólans, sem og hvaða lóðir
falla undir lóðarleigu en þar eru
lóðir fyrir kennsluhúsnæði nú und-
anskildar. „Það skiptir máli fyrir
okkur hvað varðar árleg gjöld,“
segir Kristín.
Hún bætir við að mörg verkefni
séu annaðhvort í undirbúningi eða
þeim sé lokið sem breyti ásýnd lóð-
arinnar og borgarinnar. „Ég nefni
sem dæmi stúdentagarðana hér á
vísindagarðalóðinni, svo og bygg-
ingu Alvogen fyrir rannsóknar- og
þróunarstarfsemi. Ég nefni líka
deiliskipulag fyrir stofnun Vigdís-
ar Finnbogadóttur, sömuleiðis deili-
skipulag fyrir Hús íslenskra fræða,“
segir Kristín og bætir við að spítala-
lóðin skipti mjög miklu máli vegna
þess að þar verði heilbrigðisvísinda-
greinarnar allar til húsa.
Þá bendir hún á viljayfirlýs-
ingu um að þróa starfsemi Háskóla
Íslands inn á Fluggarðasvæðið. „Það
skiptir mjög miklu máli vegna þess
að þetta er eina áttin sem skólinn
getur stækkað á næstu áratugum,“
segir Kristín, en tekur fram að ekk-
ert hafi verið ákveðið um hvað verði
á Fluggarðasvæðinu.
jonhakon@frettabladid.is
Gamli Kennaraháskólinn
gæti hýst framhaldsskóla
Stjórnendur Reykjavíkurborgar og Háskóla Íslands segja að tímamótasamningur um lóðir háskólans hafi verið
undirritaður í gær. Gert er ráð fyrir að menntavísindasvið flytjist í nýtt húsnæði sem verður á háskólasvæðinu.
SAMNINGUR UNDIRRITAÐUR Kristín segir mörg verkefni í undirbúningi
og öðrum sé lokið. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
RÚSSLAND Rúblan féll í verði í
gær og hefur ekki verið lægri
gagnvart dollar og evru í fjóra
mánuði. Fallið kemur nokkru
eftir að Seðlabanki Rússlands
ákvað að skipta sér minna af
gengi rúblunnar, ásamt því sem
friðarviðræður milli forsetRúss-
lands og Úkraínu hófust.
Sérfræðingar sem BBC ræddi
við segja að markaðurinn hafi
möguglega orðið fyrir vonbrigð-
um með viðræðurnar.
- fbj
Ekki áður veikari gegn dollar:
Rúblan féll í
verði í gær
LÖGREGLUMÁL „Verklag hér er allt-
af til endurskoðunar og menn eru
að reyna að læra af reynslunni og
gera hlutina rétt,“ segir Ólafur Þór
Hauksson, sérstakur saksóknari,
aðspurður hvort búið sé að breyta
verklagi um aðgang að gögnum
embættisins.
Fréttablaðið greindi frá því í
gær að fulltrúi hjá skiptastjóra
Milestone hefði fengið að róta
eftirlitslaus í tvo daga í gagna-
geymslu embættisins, þar sem
frumrit málsgagna í sakamálum
er að finna ásamt gögnum fleiri
mála. Ólafur vill að öðru leyti
ekki tjá sig um málið þar sem það
er enn í gangi milli lögmanns sak-
bornings í Milestone-málinu og
Ríkissaksóknara. Verjandi Karls
Wernerssonar gerði kröfu um að
gögn málsins yrðu afhent í síð-
asta lagi í gær þar sem fyrirtaka
verður í sakamáli gegn honum í
dag. Ríkissaksóknari hefur ekki
orðið við þeirri kröfu verjandans
né heldur svarað fyrirspurnum
fréttastofu um málið. - fbj
Ríkissaksóknari tjáir sig ekki um „rót“ fulltrúa í gagnageymslum saksóknara:
Verklag alltaf til endurskoðunar
ENDURSKOÐA VERKLAG Gríðarlegt
magn gagna vegna rannsóknar saka-
mála er að finna hjá Sérstökum sak-
sóknara. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Su
O
dd
ag
at
a
Ar
ag
at
a
Es
pim
elu
r
Sæ
m
un
da
rg
at
a
i
i
Eggertsg.
Þorragata
Su
ðu
rg
at
a
gi
Du
nh
ag
i
i B
irk
im
elu
r
-
gata
H
ör
pu
g.
veg.
Rvk
Sk
erplug.
Brynjólfsg
H
agatorg
Bj
ar
ka
rg
Skothúsveg
Sturlugata
Grímsh.
Góug.
Þjó
Ar
ng
r.
Guðbrandsg.
Fossag.
Nja
rða
Fu
ru
elur
A
ða
lb
yg
gi
ng
ar
re
itu
r
Vatnsmýrarreitur
Vísindagarða-
reitur
Vísindagarða-
reitur
Hagareitur
Melareitur
Fluggarðareitur
➜ Háskólalóðir
VEISTU SVARIÐ?