Fréttablaðið - 02.09.2014, Side 18
FÓLK|HEILSA
FIMMFALT
ALGENGARA
„Erlendar rann-
sóknir benda til
þess að allt að
58% krabbameins-
greindra upp-
lifi andlega vanlíð-
an sem er ansi hátt
hlutfall og þung-
lyndi er allt að
fimmfalt algengara
en hjá þeim sem
ekki hafa greinst
með krabbamein,“
Sex til þrettán prósent skoskra krabbameinssjúklinga þjást af klínísku þunglyndi en hlutfall
klínískt þunglyndra almennt er tvö pró-
sent. Þetta kemur fram í rannsókn sem
birtist í læknablaðinu Lancet en greint
var frá innihaldi hennar á heilsuvef BBC
nýverið. Vísindamenn við háskólana í
Edinborg og Oxford skoðuðu gögn 21
þúsund krabbameinsgreindra í Skot-
landi. Þeir komust einnig að því að 75
prósent þeirra sem þjást af þunglyndi fá
ekki þunglyndismeðferð við hæfi.
Lára Sigurðardóttir, læknir á Leitar-
stöð Krabbameinsfélagsins, var innt
eftir því hvernig þessum málum er
háttað á Íslandi.
„Starfsfólk Ráðgjafarþjónustunnar
verður oft vitni að andlegri vanlíðan hjá
þeim sem greinst hafa með krabbamein
og nýta sér þjónustu hennar. Lífslíkur
hafa aukist verulega eftir greiningu
krabbameins. Fyrir fimmtíu árum voru
fimm ára lífslíkur einungis um 24%
miðað við 64% í dag. Nú búum við yfir
tækni sem gerir okkur kleift að greina
ýmis krabbamein á snemmstigum, lækna
þau í mörgum tilfellum eða halda niðri
með lyfjameðferð. Sömuleiðis eru til
margs konar úrræði við þunglyndi og því
afar dýrmætt að greina það snemma til
að auka lífslíkur og lífsgæði,“ segir Lára
en ekki eru til tölur hjá Krabbameins-
félaginu um algengi þunglyndis meðal
þeirra sem nýta sér þjónustu þess.
„Erlendar rannsóknir benda til þess að
allt að 58% krabbameinsgreindra upp-
lifi andlega vanlíðan sem er ansi hátt
hlutfall og þunglyndi er allt að fimmfalt
algengara en hjá þeim sem ekki hafa
greinst með krabbamein,“ upplýsir hún.
EKKI EÐLILEGUR FYLGIKVILLI
Í rannsókninni sem birt var í Lancet er
greint frá því að margir telji þunglyndi
eðlileg viðbrögð við krabbameini en svo
er ekki. „Það er eðlilegt að finna fyrir
depurð eftir áfall, eins og að greinast
með krabbamein. Þar sem depurð er
algengur fylgifiskur alvarlegra veikinda
hættir mönnum til að að upplifa þung-
lyndi einnig sem óhjákvæmilegan hluta
af sjúkdómsferlinu. Á meðan depurð er
eðlilegur partur af sjúkdómsferlinu er
þunglyndi alvarlegri fylgikvilli sem mik-
ilvægt er að skima fyrir og meðhöndla,“
segir Lára en hjá Krabbameinsfélaginu
er ekki skimað sérstaklega fyrir þung-
lyndi en ef starfsfólk verður vart við
andlega vanlíðan er vísað á viðeigandi
fagaðila.
SKIMAÐ FYRIR VANLÍÐAN
Á göngudeild krabbameinslækninga er
skimað fyrir vanlíðan við hverja komu.
„Við erum með skimunartæki sem
heitir, Mat á vanlíðan, en það er þróað
af sálfræðingum í Bandaríkjunum,“
segir Þórunn Sævarsdóttir, deildarstjóri
krabbameinslækninga. Með tækinu met-
ur fólk vanlíðan sína á skalanum núll
til tíu og svarar síðan já- og nei-spurn-
ingum til að skilgreina hvað veldur
vanlíðaninni. „Spurt er um öll möguleg
einkenni. Spurt um almenn vandamál
á borð við húsnæði og fjármál, tilfinn-
ingalegan vanda og almenn líkamleg
vandamál. Fólki er einnig gefinn kostur
á að segja hvort það vilji tala við ein-
hvern sérstakan um þessi vandamál,
hjúkrunarfræðing, lækni, félagsráðgjafa,
næringarráðgjafa eða sálfræðing sem
dæmi,“ lýsir Þórunn. Þá leiðbeina klín-
ískar leiðbeiningar einnig meðferðarað-
ilum um hvernig eigi að bregðast við
niðurstöðum. Innt eftir því hvert hlut-
fall þunglyndis er hjá íslenskum krabba-
meinssjúklingum segir Þórunn það ekki
liggja fyrir. „Gerð var rannsókn fyrir
nokkrum árum sem sýndi að hlutfallið
var lægra hér en alþjóðlegar tölur segja
til um,“ segir Þórunn og veltir fyrir sér
hvort Íslendingar svari listanum öðru-
vísi og reyni að fegra myndina.
NEIKVÆÐ ÁHRIF Á KRABBAMEINS-
MEÐFERÐ
Lára segir þunglyndi geta haft áhrif
á lífslíkur hjá krabbameinsgreindum.
„Samkvæmt erlendum rannsóknum eru
þunglyndir þrefalt líklegri til að fara
ekki eftir fyrirmælum lækna og annarra
meðferðaraðila, sem hefur bein áhrif á
lífslíkur. Dánartíðni hefur þannig verið
hærri meðal þunglyndra, hvort heldur
sem þeir urðu þunglyndir fyrir eða eftir
greiningu krabbameins,“ segir hún og
bendir á að vissir hópar séu í aukinni
hættu á að fá þunglyndi eftir greiningu.
„Dæmi um hópa eru einstaklingar með
langt genginn sjúkdóm, mikil einkenni,
aukaverkanir af meðferð, verki eða
fyrri sögu um þunglyndi,“ segir Lára en
bendir á að andstætt því virðist þættir
eins og að vera giftur, hafa sterkt félags-
legt net, vera með jákvætt hugarfar og
við góða líkamlega heilsu minnka líkur á
þunglyndi og þannig bæta batahorfur.
„Oft gleymist líka að hlúa að nánustu
aðstandendum því þunglyndi og fleiri
geðræn vandamál eru einnig algengari
hjá aðstandendum þeirra sem látist
hafa úr krabbameini.“
ÞUNGLYNDI HEFUR
ÁHRIF Á MEÐFERÐ
HEILSA Þunglyndi er mun algengara meðal krabbameinssjúklinga en ann-
arra. Þunglyndi getur haft áhrif á lífslíkur krabbameinsgreindra. Á Íslandi er
skimað fyrir vanlíðan á göngudeild krabbameinslækninga.
LÁRA
SIGURÐARDÓTTIR
læknir hjá Leitarstöð
Krabbameinsfélagsins
ÞUNGLYNDI
Samkvæmt erlendum
rannsóknum eru þung-
lyndir þrefalt líklegri
til að fara ekki eftir
fyrirmælum lækna og
annarra meðferðaraðila,
sem hefur bein áhrif á
lífslíkur.
NORDICPHOTOS/GETTY
Ferðamálaskóli Íslands www.menntun.is Sími 567 1466
Meðal námsefnis:
Mannleg samskipti.
Helstu áfangastaðir
erlendis í máli og
myndum.
Mismunandi
trúarbrögð.
Saga landsins,
menning og listir.
Frumbyggjar og saga
staðarins.
Þjóðlegir siðir og hefðir.
Leiðsögutækni og ræðumennska.
Ferðalandafræði: Evrópa, Asía, Africa, Ameríka og Eyjaálfan.
Námið fer fram í formi fyrirlestra og reynslu fararstjóra
í leiðsögn á erlendri grund.
Leiðbeinendur eru: Kjartan Trausti Sigurðsson, Pétur Björnsson,
Jóhanna Kristjónsdóttir, Höskuldur Frímannsson, Magnús Björnsson,
Pétur Óli Pétursson, Bjarni Randver Sigurvinsson, Sr. Bragi Skúlason.
Fararstjórn erlendis
Leiðbeinendur eru: Kjartan Trausti Sigurðsson fararstjóri, Pétur Björnsson konsúll Ítalíu á Íslandi,
Jóhanna Kristjónsdóttir blaðamaður og fararstjóri, Höskuldur Frímannsson viðskiptafræðingur,
Ómar Valdimarsson blaðamaður, Magnús Björnsson fararstjóri í Kína, Pétur Óli Pétursso fararstjóri í
Rússlandi, Bjarni Randver Sigurvinsson kennari við Guðfræðideild H.Í. , Sr. Bragi Skúlason sjúkrahúsprestur.
Útsölustaðir:
Hagkaup lífræna deildin, Fjarðarkaup - Fræið heilsuhornið, Heilsuhúsið,
Blómaval – heilsuhornið, Lifandi markaður Borgartúni
www.icecare.is - Netverslun
Pana Chocolate
Súkkulaði sem er gott fyrir þig…
• Náttúruleg ofurfæða
• Enginn unninn sykur!
• Framleitt við lágan hita til að viðhalda
miklu magni næringaefna
• Inniheldur hrá lífræn- og náttúruleg
innihaldsefni
Allt okkar súkkulaði er bæði
hand- gert og innpakkað
Inniheldur lífrænt kakó sem er með mikið magn
af andoxunarefnum, vítamínum og steinefnum.
Við skutlum Júlíu heim
Póstdreifing | Vatnagörðum 22 | 104 Reykjavík | Sími 585 8300 | www.postdreifing.is
Birtingur treystir okkur fyrir
öruggri dreifingu á Júlíu