Fréttablaðið - 02.09.2014, Síða 19
ÞRIÐJUDAGUR 2. SEPTEMBER 2014
BÍLAR
M
argra mánaða bið
bílaáhugamanna
lauk í síðustu viku
þegar Volvo af-
hjúpaði nýjan
Volvo XC90. Mikil
eftirvænting hefur
verið eftir bílnum enda mark-
ar hann stór tímamót hjá Volvo.
Volvo hefur á undanförnum mán-
uðum gefið út ýmsar upplýsingar
um bílinn. Hann er til að mynda
með fullkomnasta öryggisstað-
albúnaðinn á markaðnum og
býður upp á samsetningu af afli,
eyðslu og losun sem ekki hefur
verið í boði áður. Volvo hefur
einnig gefið út að innanrými
Volvo XC90 sé hannað með meiri
lúxus en nokkurt innanrými sem
hefur áður verið í boði hjá Volvo.
Ytra útlit bílsins var svo afhjúp-
að í síðustu viku í Stokkhólmi.
Með Volvo XC90 kynna hönnuð-
ir Volvo nýtt útlit sem mun ein-
kenna komandi kynslóðir Volvo-
bíla.
Volvo XC90 markar nýjan kafla
Volvo hefur unnið að nýjum
Volvo XC90 síðastliðin þrjú ár og
markar bíllinn upphaf að nýjum
kafla í sögu Volvo sem gefur til
kynna framtíðarstefnu fyrir-
tækisins í hönnun ásamt úrvali
af nýjum sérhönnuðum Volvo-
tækninýjungum og nýrri undir-
vagnstækni Volvo sem kallast
Scalable Product Architecture
(SPA). „Dagurinn í dag er einn
mikilvægasti dagurinn í sögu
okkar. Við erum ekki einungis að
frumsýna nýjan bíl, heldur erum
við að endurskilgreina vörumerk-
ið okkar. Þessi dagur markar
tímamót fyrir fyrirtækið. Hinn
nýi Volvo XC90 gefur tóninn fyrir
komandi kynslóðir Volvo-bíla“
segir Håkan Samuelsson, for-
stjóri Volvo Car.
Nýtt andlit Volvo
Hinn nýi Volvo XC90 er fyrsti bíll-
inn sem státar af nýju járnmerki
Volvo. Járnmerkið sem er á fram-
enda bílsins hefur bæði verið end-
urhannað og gert meira áberandi
en áður. Nýja járnmerkið ásamt
nýju T-laga DRL-framljósunum
sem hafa hlotið heitir Þórshamar
eru helstu einkenni hins nýja and-
lits Volvo XC90. „Þegar litið er í
bakssýnispegilinn og Þórshamar
blasir við verður öllum strax ljóst
að þarna er á ferðinni hinn nýi
Volvo XC90,“ segir Thomas Ing-
enlath, aðstoðarforstjóri hönnun-
ardeildar Volvo. „Nýi Volvo XC90
hefur sterka nærveru á vegin-
um.“ Stærri vélarhlíf með nýjum
útlínum og skarpari axlarlína
sem tengist nýju afturljósunum
eru önnur mikilvæg hönnunar-
einkenni sem framtíðarkynslóð-
ir Volvo munu einnig búa yfir. Nýr
Volvo XC90 verður fáanlegur með
allt að 22 tommu felgum sem mun
gera ásýnd hans enn kraftmeiri.
Volvo XC90 er án málamiðlana
Volvo XC90 ber skýr merki um
Volvo by Volvo-stefnuna. Fram-
úrskarandi samsetning XC90 af
lúxus, góðu rými, fjölhæfni, hag-
kvæmni og öryggi mun færa
þennan flokk jeppa á hærra plan,
rétt eins og hinn upprunalegi
XC90 gerði árið 2002. „SPA hefur
gert okkur kleift að búa til fyrsta
jeppann sem er án málamiðlana,“
segir Peter Mertens, aðstoðar-
forstjóri rannsóknar- og þróun-
ardeildar Volvo. „Þú færð lipurð
minni og lægri bíls, lúxusinnan-
rými, auk framúrskarandi sam-
setningar af krafti og litlum út-
blæstri. Þar sem um Volvo er að
ræða, þýðir það að sjálfsögðu
besta fáanlega öryggið.“
Ótrúleg samsetning
Nýr Volvo XC90 mun bjóða upp
á samsetningu af afli, eyðslu
og losun sem ekki hefur verið í
boði áður. Líkt og fyrirrennar-
inn verður XC90 fjórhjóladrif-
inn og sjö sæta en það sem er
fréttnæmast er að hann verð-
ur fáanlegur með 400 hestafla
vél sem losar aðeins 60 g/km.
Aldrei fyrr hefur jeppi verið
fáanlegur með jafn miklu afli
samhliða jafn lítilli eyðslu og
lítilli CO2-losun.
Fullkomnasti öryggisbúnaðurinn
Volvo XC90 mun búa yfir full-
komnasta öryggisbúnaði sem er
í boði á bílamarkaðnum. Þessi
nýi búnaður færir fyrirtæk-
ið skrefi nær markmiði sínu um
að frá 2020 muni enginn slas-
ast alvarlega eða láta lífið í
nýjum Volvo. Öryggisstaðal-
búnaður í þessum nýja sjö sæta
Volvo XC90 inniheldur tvær nýj-
ungar sem aldrei hafa verið í
boði áður: Annars vegar búnað
sem er vörn gegn útafakstri og
hins vegar sjálfvirka bremsu ef
keyrt er í veg fyrir ökutæki úr
gagnstæðri átt. Þessar tækni-
nýjungar sem Volvo heimsfrum-
sýnir nú, gera Volvo XC90 að
einum öruggasta bíl heims.
HEIMSFRUMSÝNING VOLVO XC90
Aldrei fyrr hefur jeppi verið fáanlegur með jafn miklu afli samhliða jafn lítilli eyðslu og lítilli CO2-losun.
ÖRUGGT START
MEÐ EXIDE RAFGEYMUM
Endingargóðir og sterkbyggðir rafgeymar fyrir flestar gerðir
bifreiða. Veldu þaulreynda vöru frá gæðaframleiðanda.
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
13
18
58 Exide rafgeymarnir fást hjá: