Fréttablaðið - 02.09.2014, Blaðsíða 24
BÍLAR
FRÉTTABLAÐIÐ
6 2. september 2014 ÞRIÐJUDAGUR
2,0 BENSÍNVÉL MEÐ FOR-
ÞJÖPPU, 220 HESTÖFL
Framhjóladrif
Eyðsla 6,4 l/100 km
í blönduðum akstri
Mengun 148 g/km CO2
Hröðun 6,5 sek.
Hámarkshraði 245 km/klst
Verð 5.590.000 kr.
Umboð Hekla
VOLKSWAGEN
GOLF GTI
VOLKSWAGEN GOLF GTI
Finnur Thorlacius reynsluekur
Þ
að telst ávallt til tíðinda
þegar ný kynslóð kemur
fram af bílnum sem bjó
til „hot hatch“-flokk-
inn, eða flokk smárra
kraftabíla sem byggja
á vinsælum bílum sem
framleiddir eru í miklu magni.
Volkswagen Golf GTI var sem sagt
bíllinn sem ruddi þessa braut og
margir hafa komið í kjölfarið og
reynt að velta Golf GTI af stalli.
Það hefur ekki enn tekist þó svo að
margir góðir bílar hafi keppt við
hann á undanförnum árum. Nú býr
Golf GTI að því að vera afsprengi
bíls ársins í fyrra, hins hefð-
bundna Golf. Það er ekki slæmt að
vera þróaður út frá slíkum gæða-
bíl. Alveg frá því Golf GTI kom
fyrst á markað hefur hann verið
yndi þeirra sem fjalla um bíla og
dæma þá. Þeirri vegferð er langt í
frá lokið og enn eina ferðina hefur
Volkswagen tekist frábærlega upp.
Hófstillt útlitsbreyting en glænýr bíll
Þó svo að hér sé á ferðinni glæný
kynslóð Golf GTI er hann hvorki
mjög frábrugðinn eldri gerð bíls-
ins í útliti né hefðbundnum Golf,
sem nú er af sjöundu kynslóð. Það
er heldur ekki þörf á að breyta
svo miklu þegar vel hefur tek-
ist til áður. Volkswagen fór því
fremur hófstillta leið á breytingu
hans. Það fer hins vegar ekkert
á milli mála þegar hann er litinn
sýnum að þar fer GTI útgáfa bíls-
ins en ekki venjulegur Golf. Hann
er 1,5 cm lægri, er á gullfallegum
GTI-felgum með rauðan áberandi
bremsubúnað og með GTI-merkið
í grillinu. Þessi nýja kynslóð hans
er nú 5,3 cm lengri, 1,3 cm breiðari
og 2,8 cm lægri. Lengra er á milli
hjóla og hefur framöxullinn verið
færður fram um 4,3 cm. Golf GTI
er nú byggður á MQB-undirvagni
Volkswagen eins og sífjölgandi bíl-
gerðum Volkswagen-bílafjölskyld-
unnar og hefur notkun hástyrktar-
stáls aukist frá 6% í 28% við smíði
bílsins. Því þarf minna stál í bíl-
inn, hann léttist og verður allur
stífari fyrir vikið. Núna liggur 61%
af þyngd bílsins á framöxlinum, en
þar er einmitt drif hans.
220 hestöfl og 5,8 sekúndur í 100
Golf GTI er með 2,0 lítra bensín-
vél með forþjöppu sem skilar 220
hestöflum. Hann er 6,5 sekúndur
í hundraðið og því nokkuð spræk-
ur bíll. Nú er hægt er að fá svokall-
aðan „Performance Pack“ í Golf
GTI og eykst þá aflið um 10 hest-
öfl og þá fær hann öflugri brems-
ur að auki. Akstur Golf GTI er
bara hrein skemmtun. Hann er
að sjálfsögðu stífur bíll á fjöðrun
enda á hann að geta tekið beygj-
urnar hratt en örugglega. Bíll-
inn er því draumur þeirra sem
aka bílum ekki bara til að komast
á milli staða, heldur njóta hverrar
ökuferðar. Þannig var það í tilfelli
reynsluökumanns. Bílinn skort-
ir sjaldan afl og erfitt reynist að
halda sér innan löglegra marka
um hámarkshraða. Bíllinn er best-
ur á milli 2.500 og 4.000 snún-
ingum en veldur þó örlitlum von-
brigðum á háum snúningi. Þessi
bíll er ekki fyrir þá sem kjósa fyr-
irhafnarlausa og ljúfa fjöðrun og
því gæti mörgum húsfrúnum og
þeim sem njóta þess að mynda
langa bílaröð fyrir aftan sig fund-
ist hann of hastur. Rétt er að benda
þeim á hefðbundinn Volkswag-
en Golf eða aðra góða fólksbíla.
Reynsluakstursbíllinn var með 6
gíra DSG-sjálfskiptingu en einnig
má fá hann með 6-gíra beinskipt-
ingu. Sannir bílaáhugamenn taka
hann örugglega með beinskipting-
unni en það verður þó að viður-
kennast að hann er ansi skemmti-
legur með þessari góðu sjálfskipt-
ingu sem ávallt virðist í réttum gír.
Hekla býður bílinn aðeins í sínum
verðlista með sjálfskiptingunni en
hann má að sjálfsögðu sérpanta
með beinskiptingu.
Snyrtileg og vel smíðuð innrétting
Innréttingin í Golf GTI er sér
kapítuli og er þá helst vísað til
sætanna. Þau hafa frá upphafi
verið með rauðköflóttu áklæði og
þar vilja Volkswagen-menn ekki
beygja af leið, enda eru þau fal-
leg og einkennandi fyrir bílinn.
Allt er mjög snyrtilegt, fagurt
og umfram allt vel smíðað í inn-
réttingu bílsins. Stýrið og klæðn-
ingin utan um skiptinguna eru
ísaumuð með rauðum þræði og
segja má því að rauður þráður
sé rauði þráðurinn í innréttingu
bílsins. Það að nota tauáklæði er
enn einn liður Volkswagen í því
að halda ávallt niðri verði bíls-
ins og á það við um margt annað
í bílnum.
Á mjög góðu verði
Þrátt fyrir allt afl Golf GTI er
hann sko enginn eyðsluhákur.
Eyðsla hans er 6,4 lítrar í blönd-
uðum akstri og mengun aðeins
148 CO2. Eitt það albesta við
Volkswagen Golf GTI er þó verð
hans, en þessi öflugi aksturs-
bíll kostar aðeins 5.590.000 kr.
og hafa margir velt því fyrir sér
hvernig Hekla getur boðið þenn-
an bíl á svo góðu verði. Það er
einmitt kosturinn við þennan bíl
að Volkswagen hefur ávallt kosið
að halda niðri verði hans og þar
sem hann er byggður á bíl sem
seldur er í um milljón eintökum
á ári er þróunarkostnaður hans
lágur og því má betur vanda til
í efnisvali og frágangi. Volks-
wagen Golf GTI er og hefur allt-
af verið frábær kostur fyrir þá
sem kunna að meta góða bíla og
undirritaður hefði ekkert á móti
því að einn þeirra væri í inn-
keyrslunni.
FRÁBÆR SEM FYRR
AF NÝRRI KYNSLÓÐ
Golf GTI er draumur þeirra sem aka bílum ekki eingöngu til
að komast á milli staða, heldur njóta hverrar ökuferðar.
Volkswagen Golf GTI hefur lítið breyst í útliti á milli kynslóða. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Bíldshöfði 12 · 110 Rvk · 5771515 · skorri.is