Fréttablaðið - 02.09.2014, Side 26

Fréttablaðið - 02.09.2014, Side 26
BÍLAR FRÉTTABLAÐIÐ 8 2. september 2014 ÞRIÐJUDAGUR Þ eir beinlínis spraut- ast út úr verksmiðj- um Mercedes Benz, nýju bílarnir, og einn þeirra hefur náð að ströndum landsins. Það er einn af stærra taginu, þ.e. fjölnota bíll sem við fyrstu sýn lítur út fyrir að vera sendibíll með gluggum á hliðunum. Því er þó ekki að heilsa því þarna fer afar vandaður bíll með flotta innréttingu. Hann er að auki fjári laglegur að utan. V-Class er bíll sem fá má í feikimörgum útfærslum. Hann rúmar marga og hægt er að fá hann 6, 7, eða 8 manna. Ef hann er sex manna eru fjórir stakir og fallegir snúningsstólar aftur í honum en ef hann er átta manna eru tveir þriggja manna bekkir í bílnum. Þannig munu leigubíl- stjórar væntanlega velja bílinn og er þá kominn góður kostur fyrir þá leigubílstjóra sem vilja hafa þann kost að geta tekið marga farþega. Brautarkerfi tryggir fjölhæfni Brautarkerfi með hraðlosun- arbúnaði er fyrir sætin sem eru fyrir aftan framsætin og því má á örskotsstundu breyta bílnum í heilmikinn flutninga- bíl, annaðhvort með því að renna sætunum fram eða taka þau hreinlega úr bílnum. Að- eins ein vél er í boði, 2,2 lítra dísilvél, en fæst í þremur út- færslum, 136, 163, og 190 hest- afla. Greinarritari prófað nýjan V-Class nýverið með 163 hest- afla vélinni og er hann merki- lega sprækur með henni. Að auki er þessi stóri bíll eins og fólksbíll í akstri og svo lipur að hver sem er getur ekið honum. Hann kemur með 7 gíra Tronic Plus-sjálfskiptingu. Troðfullur af búnaði Margt var það sem vakti aðdáun, ekki síst hversu vel bíllinn er búinn tæknibúnaði og hversu falleg inn- rétting hans er. Auk þess er sætis- fyrirkomulagið og fjölhæfnin sem af því hlýst magnað. Seinna meir mun þessi bíll bjóðast sem húsbíll og er þá fullbúinn með haganlegri innréttingu, lyftanlegu þaki, eldun- araðstöðu, borði og rúmi fyrir tvo. Slíkur bíll ætti að höfða til fólks sem annars hefur kosið að eiga pall- hús sem sett eru á pallbíla. Mikið er af akstursöryggiskerfum í bílnum og má þar nefna blindsvæðisvara, akreinavara, fjarlægðarskynjara, 360 gráðu myndavél og Pre Safe- öryggiskerfi sem verndar farþega þegar líkur eru á árekstri. FJÖLHÆFUR MERCEDES BENZ V-CLASS Sex manna með snúningssætum eða með bekkjum fyrir átta farþega, allt eftir þörfum hvers og eins. Fyrir um áratug hefði flestum þótt óhugsandi að Hyundai setti á markað lúxusbíl. Hyundai hefur síðan þá þó kynnt til sögunnar lúxus- bíla ætlaða fyrir Bandaríkjamarkað, þ.e. bílana Equus og Genesis. Ekki ætlar Hyundai að láta þá nægja heldur hyggur á framleiðslu á lúxusjeppa sem keppa ætti við bíla eins og Lexus RX og Cadillac SRX í Bandaríkjunum. Ef af framleiðslu slíks bíls verður er ólíklegt talið að hann verði einnig mark- aðssettur utan Bandaríkjanna. Nýr lúxusjeppi Hyundai mundi líklega standa á sama undirvagni og nýr Huyndai Santa Fe. Með því getur Hyundai sparað sér mikið fé í hönnunarvinnu og einbeitt sér að því að gera bílinn sem best úr garði að innanverðu og ytra útliti. Huyndai reyndi á árunum 2006 til 2011 að framleiða jeppa fyrir Bandaríkjamarkað sem var á mörkunum að teljast lúxusjeppi og hét hann Veracruz. Framleiðslu hans var hætt, enda veitti hann Lexus RX-bílnum litla samkeppni. Hyundai hyggur á lúxusjeppa B ílabúð Benna seldi dável af bílum frá kór- eska bílaframleiðand- anum Ssangyong hér á árum áður en hlé hefur verið á sölu þeirra á undanförnum árum. Nú eru tvær bílgerðir frá Ssang- yong aftur komnir í sölu hérlend- is. Eru það gerðirnar Korando og Rexton sem hafa nú fengið nýtt og laglegt útlit. Eru þessir bílar afar vel búnir miðað við lágt verð þeirra. Korando er fjórhjóladrif- inn jepplingur með 175 hestafla dísilvél og með 18 cm undir lægsta punkt. Bílablaðamaður Fréttablaðsins fékk að reyna bílinn í síðustu viku og sprautast hann hreinlega áfram með þessari öflugu vél og er lipur í borgarakstrinum. Hann er ári rúmgóður, með flott leðursæti og vel hlaðinn búnaði. Verð á ódýr- ustu útgáfu hans með beinskipt- ingu er 4.990.000 kr. Sjálfskipt- ur og með leðurinnréttingu kostar hann 5.990.000 kr. og 5.790.000 kr. án leðurinnréttingar. Rexton er einn fárra jeppa sem hægt er að breyta Ssangyong Rexton er jeppi og talsvert stærri um sig. Hann er með 155 hestafla vél og eyðir 7,8 lítrum í blönduðum akstri. Verð hans er 6.990.000 kr. með tau- áklæði en með leðuráklæði og ýmsum viðbótarbúnaði kostar hann 7.690.000 kr. Rexton er full- vaxinn torfærubíll með hásingu og lágt drif og millikassa. Því má breyta þessum bíl, hækka hann og setja undir hann stærri dekk og setja á hann brettakanta. Sjálf- skiptingin er 5 gíra og hann er búinn ESP-stöðugleikastýringu, búnaði sem heldur við í brekkum og fleira góðgæti. Í dýrari útgáfu hans með leður- innréttingu kemur auk þess sjálf- stæð fjöðrun að aftan, 18 tommu flottar felgur, fjarlægðarskynj- arar, rafdrifin framsæti, minni í speglum og bílstjórasæti, viðar- klæðning í mælaborði, hiti í aftur- sætum, opnanlegur gluggi á aft- urhlera, hiti í framrúðum og ým- islegt fleira. Þeir eru ekki svo margir jepparnir sem breyta má í dag og munu vafalaust margir fagna þessum bíl í fátæklega flóru jeppa sem svona eru búnir. Hann er auk þess með 78 lítra eldsneyt- istanki svo aka má honum 1.000 kílómetra ef vel er ekið. SSANGYONG KORANDO OG REXTON MÆTTIR AFTUR EFTIR LANGT HLÉ Rexton er fullvaxinn torfærubíll með hásingu, lágt drif og millikassa og því einn fárra sem má breyta. Mercedes Benz V-Class er stór en býsna laglegur bíll. SSANGYONG KORANDO SSANGYONG REXTON VISTVÆNAR SAMGÖNGUR - vegur eða vegleysa? Græna orkan býður til ráðstefnu 17. september næst komandi á Grand Hótel Reykjavík, Sigtúni 38 Þátttökugjald er 12.500 kr. og hádegismatur er inni- falinn. Skráning tilkynnist í glk@newenergy.is. Kynntu þér dagskrána á grænaorkan.is J Ó N S S O N & L E ’M A C K S | S ÍA

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.