Fréttablaðið - 02.09.2014, Page 42

Fréttablaðið - 02.09.2014, Page 42
2. september 2014 ÞRIÐJUDAGUR| SPORT | 22SPORT FÓTBOLTI Kjartan Henry Finnboga- son hefur verið mikið á milli tann- anna á fólki vegna atvika sem hafa komið upp í leikjum KR. Framherjinn er ekki sáttur við þá gagnrýni sem hann hefur fengið í Pepsi-mörkunum og þá sérstaklega þá gagnrýni sem hann hefur fengið frá Reyni Leóssyni. „Reynir var í Skagaliðinu þegar þeir voru upp á sitt grjótharðasta. Ég spilaði stundum á móti honum og ósjaldan var maður klipinn í hornum eða fékk hné í bakið. Hvort það var viljandi eða ekki skiptir ekki máli. Þetta var partur af boltanum,“ segir Kjartan. „Svo situr hann í sjónvarpssettinu með hárkolluna sína og vænir menn um að vera hrotta og óþverra. Mér finnst það vera aumkunarvert. Ég var orðinn frekar þreyttur á því. Reynir fór í taugarnar á mér því hann var að kasta steinum úr glerhúsi. Ég á ekki til orð yfir það að hann sé að væna menn um hrottaskap. Ég skil vel að menn séu að búa til sjónvarp, reyna að vera fyndnir og svaka spaðar en ég held að menn ættu stundum að líta sér nær.“ Kjartan neitar því þó ekki að hann sé fastur fyrir enda keppnismaður. „Ég er ekki að segja að ég sé ein- hver engill. Ég er karakter og hef alltaf verið svona. Ég er líka oft marinn og stigið á mig en ég mæti ekki í viðtöl og væli hvort eitthvað sé viljandi líkt og Brynjar Gauti gerði eftir ÍBV-leik- inn. „Come on“ þetta eru fullorðnir karlmenn í fótbolta.“ - hbg Aumkunarverð framkoma hjá Reyni GRJÓTHARÐUR Reynir í leik með Val. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM FÓTBOLTI „Ég var búinn að ganga frá þessu á föstudag en spilaði síð- asta leikinn með KR gegn Stjörn- unni,“ segir Kjartan Henry Finn- bogason sem er orðinn leikmaður danska B-deildarliðsins Horsens en hann skrifaði undir tveggja ára samning við félagið. Kjartan á reyndar eftir að gang- ast undir læknisskoðun og tjáði Fréttablaðinu að hann væri ekki viss um að hann þyrfti að fara í hana. Hann skoðaði málið vel áður en hann samdi og talaði meðal annars við marga í Danmörku um Horsens. „Eftir að hafa kynnt mér félagið og danska boltann vel þá var aldrei spurning um að stökkva á þetta tilboð. Þetta er eitt af þrem- ur stærstu liðum deildarinnar og Horsens á að vera í úrvalsdeild. Þetta er nýr völlur og frábærar aðstæður hérna,“ segir framherj- inn sem á að rífa upp markaskorun liðsins en það hefur aðeins skorað fjögur mörk í fyrstu sex leikjum deildarinnar. „Þá vantaði mann í teiginn til að klára sóknirnar. Þjálfarinn talaði við Óla Kristjáns og fleiri og ég hef greinilega fengið ágætis með- mæli. Þjálfarinn hefur trú á mér og sannfærði mig.“ Mörgum finnst skrítið að Kjart- an skuli fara í dönsku B-deildina en hvað finnst honum? „Danska úrvalsdeildin er sú besta á Norðurlöndunum. Hér vilja liðin spila fótbolta. Ég hefði ekki farið í hvaða lið sem er í þessari deild en þetta er klúbbur sem talað er vel um og spilar fínan bolta,“ segir Kjartan en hann var til í nýja áskorun. „Ég var orðinn pínu þreyttur á þessu Pepsi-deildar umhverfi og þurfti breytingu. Ég var alvarlega meiddur og munaði engu að ferl- inum lyki snemma hjá mér. Ég hef unnið vel í mínum málum og gott að komast aftur út orðinn 28 ára. Ég hef séð stráka eins og Guðjón Baldvins og fleiri sem hafa unnið sig upp úr neðrideildarboltanum. Ef maður stendur sig vel þá er þetta frábær gluggi.“ Kjartan er umdeildur leikmað- ur og hefur fengið að heyra það úr stúkunni. Það truflar hann ekkert en hann segir það hafa truflað fjöl- skylduna. „Ég fæ að svara fyrir mig inni á vellinum en umræðan var oft ein- hliða um mig. Ég er samt ekki að flýja land út af umræðunni. Þetta var bara frábært tækifæri sem ég stökk á.“ Kjartan mætir á sína fyrstu æfingu með Horsens í dag en hann verður án fjölskyldunnar næstu mánuði. „Það var erfitt að kveðja því ég á konu og fjögurra ára stelpu á skemmtilegum aldri heima. Það verður Skype fram í nóvember sýnist mér.“ - hbg Orðinn þreyttur á Pepsi-deildarumhverfi nu Kjartan Henry Finnbogason fær nýtt tækifæri í atvinnumennskunni en hann samdi við danskt félag. NÝIR TÍMAR Kjartan reynir fyrir sér í Danmörku. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL FÓTBOLTI Ólafur Karl Finsen skor- aði tvö mörk þegar Stjarnan bar sigurorð af KR með þremur mörk- um gegn tveimur á KR-vellinum á sunnudaginn. Hann er leikmaður 18. umferðar Pepsi-deildar karla að mati Fréttablaðsins. „Við erum ánægðir með sigur- inn á sunnudaginn og sumarið í heild,“ sagði Ólafur þegar Frétta- blaðið heyrði í honum hljóðið í gær. Erum með sterkan hóp Stjörnumenn mættu nokkuð væng- brotnir til leiks gegn KR sem hafði ekki tapað á heimavelli sínum frá því í 16. september 2012. Dönsku varnarmennirnir Niclas Vemme- lund og Martin Rauschenberg voru báðir í banni, auk þess sem fyrirliði liðsins, Michael Præst, er frá út tímabilið vegna meiðsla. Ólafur bar lof á þá sem komu inn í liðið, en Stjarnan endaði leik- inn á sunnudaginn með þrjá 19 ára stráka inn á vellinum; Heiðar Ægisson, Þorra Geir Rúnarsson og Jón Arnar Barðdal. „Við erum með sterkan hóp og það kemur maður í manns stað,“ sagði Ólafur og bætti við: „Allir sem komu inn stóðu sig vel, eins og Heiðar sem spilaði frábærlega í bakverðinum, og svo er Þorri búinn að vera geggjaður á miðj- unni eftir að Præst meiddist. Þetta eru frábærir strákar og framtíðin er mjög björt hjá okkur.“ Þótt aldurinn sé ekki að þvæl- ast fyrir Ólafi (sem er fæddur árið 1992) býr hann yfir töluverðri reynslu. Hann gekk til liðs við hol- lenska liðið AZ Alkmaar árið 2008, en sneri aftur heim í Garðabæinn tveimur árum seinna. Þar hefur Ólafur leikið síðan, fyrir utan eins árs dvöl hjá Selfossi 2012. Fyrir þessa leiktíð hafði Ólafur skorað tíu mörk í efstu deild, en hann er næstum því búinn að tvöfalda þá tölu í sumar. Ólafur hefur skorað níu mörk í 16 deildarleikjum, auk tveggja marka í Borgunarbikarn- um og fimm í forkeppni Evrópu- deildarinnar þar sem Stjörnumenn komust í fjórðu umferð. Þá get ég bara hætt sáttur Ólafur sagði það hafa verið mikla upplifun að spila gegn Inter á San Siro, þótt úrslitin hefðu ekki verið Garðabæjarliðinu hagstæð (6-0 fyrir Inter): „Þetta var frábær ferð. Við verðum að sætta okkur við að við áttum ekki séns í þá, en bara það að Stjarnan hafi spilað við Inter á San Siro og 300 Stjörnu- menn hafi verið í stúkunni er ótrú- legt. Mér leið eins og mig væri að dreyma. Þetta var ógleymanlegt.“ Stjarnan er enn ósigruð í Pepsi- deildinni, en liðið situr í öðru sæti með 39 stig, tveimur stigum á eftir toppliði FH. Ólafur hefur trú á að það verði framhald á þessu góða gengi: „Við höfum bullandi trú á við getum unnið titilinn. Við þurf- um bara að halda áfram að leggja hart að okkur,“ sagði Ólafur sem segist ekki vera farinn að gæla við atvinnumennskuna: „Nei, alls ekki. Eina sem ég hugsa um er að vinna Íslands- meistaratitilinn með Stjörnunni og eftir það get ég jafnvel bara hætt sáttur. Búinn að spila á San Siro og vinna titilinn með uppeld- isfélaginu. Ég horfi ekki neitt á atvinnumennskuna. Ég veit ekki hvort löngunin sé nógu mikil. Mér finnst alveg gaman í fótbolta, en ég veit ekki með allt umstangið í kringum leikinn. Þegar þetta er orðin atvinna, er þetta kannski orðið of mikið,“ sagði Ólafur Karl Finsen að lokum. ingvithor@365.is Eina sem ég hugsa um er að vinna Íslandsmeistaratitilinn Ólafur Karl Finsen hefur spilað vel með Stjörnunni í sumar, en hann var í stóru hlutverki þegar Garðabæjar- liðið vann KR í Vesturbænum á sunnudaginn. Gæti jafnvel hætt ef liðið endar sem Íslandsmeistari. KRAFTMIKILL Ólafur Karl Finsen hefur átt gott tímabil með Stjörnunni sem er í harðri baráttu um Íslandsmeistaratitilinn við FH. FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRI MARINÓ FYLKIR - VALUR 2-0 1-0 Lucy Gildein (62.), Sæunn Sif Hreiðarsdóttir (90.+2). STAÐAN Í DEILDINNI: Stjarnan 14 12 1 1 48-8 37 Breiðablik 14 10 1 3 40-11 31 Fylkir 15 9 2 4 18-13 29 Þór/KA 14 8 3 3 18-16 27 Selfoss 14 7 2 5 29-21 23 Valur 15 6 4 5 25-21 22 ÍBV 14 6 0 8 31-24 18 FH 14 2 3 9 12-49 9 Afturelding 14 2 1 11 9-41 7 ÍA 14 0 1 13 8-34 1 MARKAHÆSTAR Harpa Þorsteinsdóttir, Stjörnunni 23 Shaneka Jodian Gordon, ÍBV 8 Aldís Kara Lúðvíksdóttir, Breiðabliki 8 Fanndís Friðriksdóttir, Breiðabliki 8 Guðmunda Brynja Óladóttir, Selfossi 8 Telma Hjaltalín Þrastardóttir, Breiðabliki 8 PEPSI KVENNA 2014 FÓTBOLTI Fylkiskonur unnu Val, 2-0, í Pepsi-deild kvenna í knatt- spyrnu í gærkvöldi og komust þannig upp fyrir Þór/KA í þriðja sæti deildarinnar. Norðankonur geta þó endurheimt þriðja sætið á miðvikudaginn. Lucy Gildein kom Fylki í 1-0 í fyrri hálfleik og Sæunn Sif Hreiðarsdóttir bætti við öðru marki í uppbótartíma seinni hálf- leiks. Valskonur eru nú án sigurs í þremur síðustu leikjum sínum. Fylkir er með 29 stig í þriðja sæti en Valur með 22 stig þegar bæði lið eiga þrjá leiki eftir. - tom Fylkir komst í þriðja sætið BARÁTTA Það var hart tekist á á Fylkis- vellinum í gærkvöldi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON FÓTBOLTI Hólmbert Aron Frið- jónsson, framherjinn stóri og stæðilegi, var lánaður frá Celtic til danska liðsins Bröndy í gær út tímabilið. Danska félagið er svo með forkaupsrétt á Hólmberti Aroni næsta sumar. Hólmbert gekk í raðir Celtic í desember í fyrra en fékk aldrei tækifæri með aðalliðinu. Þegar Ronny Deila tók við sá hann ekki hlutverk fyrir HK-inginn í liði sínu á þessari leiktíð og talaði því fljótlega um að að lána hann. Bröndby er í 3. sætinu í Dan- mörku eftir sex umferðir. - tom Hólmbert fór til Bröndby SPILTÍMI Hólmbert Aron þarf að fara að spila reglulega. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL FÓTBOLTI Manchester United fékk til sín tvo leik- menn á lokadegi félagaskipta í gær, en annar þeirra er kólumbíski markahrókurinn Radamel Falcao sem kemur frá Mónakó í Frakklandi. Þegar Fréttablaðið fór í prentun í gær var ekki búið að staðfesta kaupin. Daley Blind kemur frá Hollandsmeisturum Ajax, en hann var kjörinn besti leikmaður hollensku úrvalsdeildarinnar á síðustu leik- tíð. Hann getur bæði leikið sem varnar- maður og miðjumaður. United losaði sig við tvo framherja; Danny Welbeck og Javier Hernández. Chicharito fór til Real Madrid á láni og Arsenal fékk frest fram á gærkvöldið til að kaupa Danny Welbeck fyrir 16 milljónir. Stór dagur hjá United

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.